Morgunblaðið - 08.02.1985, Blaðsíða 3

Morgunblaðið - 08.02.1985, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 8. FEBRÚAR 1985 3 Morgunblaðid/ólafur K. Magnússon Ólafur Laufdal veitingamaðiir: Sækir um lóð undir ráð- stefnu- og skemmtanahöll sem taka á 2500 manns Nýbyggingin við Hótel Sögu er nú uppsteypt og gnæfir yfir gamla Melavöll- inn. Verðlagsstofnun: Minni hækkun olíu en dollars ÚTSÖLUVERÐ íslensku olíufélaganna á bensíni, gasolíu og svartolíu hefur lækkað meira en heimsmarkaðsverö á síðastliðnum fjórum árum. Ennfremur hefur hækkun á olíuvörum orðið minni en hækkun á gengi Bandaríkjadollars á sama tímabili. Samkvæmt útreikningi Verð- lagsstofnunar hefur gengi Banda- rikjadollars hækkað um 571% frá árslokum 1980, en á þessu tímabili hefur útsöluverð á bensíni hérlend- is hækkað um 349%, gasolíuverð um 355% og útsöluverð á svartolíu um 508%, en þessar hækkanir eru eins og sjá má talsvert minni en hækkun dollars. Skýringuna er meðal annars að finna í lækkun olíuverðs á heimsmarkaði, en sam- kvæmt útreikningum Verðlags- stofnunar er lækkunin innanlands meiri en sem nemur lækkun á inn- kaupsverði. Lækkun bensíns á heimsmarkaði nam um 28% en lækkunin innanlands um liðlega 33%. Hið sama er að segja af gas- olíu og svartolíu. Verðmunur á gas- olíu og svartolíu hefur minnkað á þessu tímabili og er skýringuna meðal annars að finna í því, að á heimsmarkaði hefur svartolíuverð nánast staðið í stað síðan 1980, en gasolía hefur lækkað um 27,6%. Skýringar á þessari hlutfallslegu lækkun útsöluverðs olíufélaganna eru, að sögn talsmanna olíufélag- anna, meðal annars þær, að álagn- ing hafi lækkað á tímabilinu enda Vinsælda- listi rásar 2 TÍU vinsælustu lög hlustenda rásar 2 í þessari viku eru sem hér segir: 1. ( 5) I Want to Know What Love is/ Foreigner 2. ( 1) Everything She Wants/ Wham! 3. ( 3) Búgalú/ Stuðmenn og Ragnhildur Gísladóttir 4. ( 2) Sex Crime/ Eurythmics 5. (-) The Moment of Truth/ Survivor 6. ( 8) Easy Lover/ Philip Baley og Phil Collins 7. ( 4) Húsiðogég/ Grafík 8. (12) We Belong/ Pat Benatar 9. ( 9) Heartbeat/ Wham! 10. (11) Forever Young/ Alphaville Tölur innan sviga tákna sæt- in sem lögin voru í á vinsælda- lista síðustu viku. hafi verið dregið úr innlendum kostnaði við rekstur olíufélaganna. Þrátt fyrir þessar tölur er olíuverð hérlendis mun hærra en í ná- grannalöndum okkar, og hefur ver- ið talað um allt að 30% til 40% lægra olíuverð i erlendum höfnum en hér fæst. ÓLAFUR Laufdal veitingamaður hefur ritað borgarráði bréf og óskað eftir 7—8.000 fermetra lóð á mótum Suðurlandsbrautar og Holtavegar undir ráðstefnu-, skemmtana- og fjölskylduhöll, eins og segir í bréfinu. Borgarráð hefur vísað umsókninni til skipulags- nefndar til umsagnar. Ólafur sagði í samtali við Morgunblaðið í gær, að enn sem komið væri lægju aðeins fyrir frumhugmyndir að húsinu. Hann hefði hug á að reisa hús sem tæki 2.300—2.500 manns, þar af 1.500 í sæti. Aðalsalurinn yrði með stóru sviði og þar yrði hátt til lofts. Þarna ætti að skapast möguleiki á að halda dansleiki og stórar samkomur, t.d. alþjóðlega fegurð- Ólafur Laufdal arkeppni, svo sem „Ungfrú Evr- ópa“, tónleika og aðra stóra list- viðburði. Ennfremur yrði mögu- legt að halda í húsinu stóra fundi, ráðstefnur og hafa þar vörusýn- ingar. Loks væri hugmyndin að hafa í húsinu vísi að skemmti- garði fyrir alla fjölskylduna með leiktækjum og öllu tilheyrandi, sem opinn yrði alla daga vikunn- Ólafur hefur starfað við veit- ingamennsku í 25 ár og rekur nú tvo stóra skemmtistaði í Reykja- vík, Hollywood og Broadway. „Það er enginn vafi á því að hús af þessu tagi vantar í Reykjavík. Ég tel, að ég búi yfir þeirri þekk- ingu og reynslu sem er nauðsyn- leg til að reisa og reka svona hús,“ sagði Ólafur Laufdal. Aukatónleikar Slenczynska Píanótónleikar Ruth Slenczynska á Kjarvalsstöðum sl. mánudags- kvöld vöktu mikla hrifningu við- staddra. Því hefur verið ákveðið að hún haldi aðra tónleika í Reykjavík. Tónleikarnir verða haldnir í Austur- bæjarbíói laugardaginn 9. febrúar kl. 14:00. Á efnisskránni verða 24 etýður op. 10 og 25 eftir Chopin, Nocturne eftir Aaron Copland og Carnaval eftir Schumann. (Úr fréttatilkynningu.) . Hefur þú undanfarið tekið eftir þessum glæsilega bíl á götunum? Pað bættust 346 nýir Ford Escort bílar við bílaflota íslendinga á síðastliðnu ári. Petta er ekki óeðlileg þróun, því landsmenn hafa ávallt verið fljótir að finna út hvar mest fæst fyrir peningana. Nú bjóðum við 1985 árgerðina af Ford Escort og sem fyrr er verð og búnaður í sérflokki. Verð frá kr. 328.000L» Förd Escort mest seldi bíll heims undanfarin 3 ár. Söludeildin er opin: mánud. - föstud. 9-18 laugard. 13-17 SVEINN EGILSSON HF. Skeifunni 17. Sími 685100.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.