Morgunblaðið - 08.02.1985, Side 6
6
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 8. FEBRÚAR 1985
Skólastofan
Sá er hér stýrir penna hefir
óbilandi trú á sjónvarpinu sem
kennslutæki og hefir raunar ritað
greinar hér í blaðið og einnig í
dagblaðið Vísi á sínum tíma um
nauðsyn þess að koma sjónvarps-
tæki í hverja kennslustofu og
tengja þann kassa Fræðslumynda-
safni ríkisins og myndbands-
tækjum i eigu skólanna. Nú og svo
er þess vonandi ekki langt að bíða
að hér rísi fleiri sjónvarpsstöðvar
sem gætu þá að einhverju marki
sérhæft sig í þágu skólakerfisins
og atvinnulífsins almennt. En nú
er í tísku að líta á skólann sem
hvern annan vinnustað og vantar
sums staðar bara stimpilklukkuna
á vegginn.
Nóg um það, við lifum á viðsjár-
verðum tölvutímum og því getum
við varla leyft okkur mikið lengur
þann munað að beita eingöngu
hinum „akademisku" kennsluað-
ferðum Platons sem byggjast svo
til alfarið á leiðsögn kennarans.
Tími tölvunnar:
Hér er kannski fulldjúpt tekið í
árinni, en getum við horft fram
hjá þeirri staðreynd, að senn verð-
ur hægt að miðla upplýsingum á
sjónvarpsskjái, nánast heims-
horna á milli með hraða ljóssins.
Verður skólinn ekki að taka tillit
til þessarar stökkbreytingar á
miðlun þekkingar? Er ekki brýnt
verkefni að endurmennta kennara-
stéttina svo hún geti sinnt því for-
ystuhlutverki á sviði þekkingarmiðl-
unar sem hún mun óhjákvæmilega
hafa innan skólakerfisins? —
Kennarastéttin er hér að mínu
mati mjög vel stödd þekkingarlega
og menntunarlega enda hafa
margir í þeirri stétt dregið að sér
lærdóm í hinum fremstu háskól-
um. En er kennarastéttin undir
það búin að beita hinni nýju miðl-
unartækni? Það er stóra spurn-
ingin, er kannski skiptir sköpum
um framtíð samfélags vors í há-
tækniheimi. Þaö er nefnilega ekki
nóg að kaupa sjónvarpsskerma,
myndbönd og tölvukerfi sem
tengja skólana við hina alþjóðlegu
upplýsingabanka ef það vantar
leiðbeinendur til að stýra þessu
öllu saman í þágu unga fólksins er
síðar tekur við þessu þjóðfélagi
okkar.
Hinir nýju sálmar:
Ástæða þess að ég fer út í þessa
sálma hér í fjölmiðladálki er
heimildarþáttur frá BBC og Sam-
einuðu þjóðunum er sjónvarpið «
sýndi á miðvikudagskveldið. Þátt-
ur þessi nefndist Litiö um öxl og
fjallaði annarsvegar um matvæla-
ástandið í heiminum og hinsvegar
um ástand heilbrigðismála.
Næstkomandi miðvikudag verður
svo þætti þessum framhaldið og
rætt um menntun og atvinnuhorf-
ur á jörðu hér. Að mínu mati var
þáttur þessi ekki bara fræðandi
heldur og skemmtilegur og áhuga-
vekjandi og þannig kjörið fræóslu-
efni. Held ég að ég geti sem kenn-
ari fullyrt, að þáttur sem þessi
vekti miklar og frjóar umræður í
vinnuhópi. Ég tala nú ekki um ef
sá hópur hefði sem kjörsvið
þróunarhjálp. Kennarinn getur
svo aðstoðað nemendurna við að
afla frekari upplýsinga um það
ástand sem lýst er í þættinum í
gegnum tölvunet, er tengir skóla-
tölvuna við tölvubanka Matvæla-
og landbúnaðarstofnunar Samein-
uðu þjóðanna og Alþjóða heil-
brigðismálastofnunarinnar. Þann-
ig, kæru lesendur, held ég að
skólastarfið verði í nánustu fram-
tíð, beri okkur gæfa til að sam-
hæfa kennarastéttina tækniþró-
uninni.
Ólafur M.
Jóhannesson
ÚTVARP / S JÓN VARP
Richard Benjamin og Joanna Shimkus leika hjónin í mynd-
inni.
Við freistingum
gæt þín
■■ Föstudags-
55 mynd sjón-
“* varpsins er
bandarísk frá árinu 1971
og nefnist Við freistingum
gæt þín (The Marriage of
a Young Stockbroker).
William Alren er ungur
og myndarlegur verð-
bréfasali. Honum finnst
hann hafa staðnað í leið-
inlegu starfi sínu og
aðgerðarlaus horfir hann
upp á hjónabandið fara í
vaskinn enda þótt hann
elski konu sína afar heitt.
Einhvern veginn er sam-
bandið á milli þeirra tekið
að rofna.
Alren fer að stytta sér
stundir við dagdrauma
um ungar stúlkur og æsi-
leg ástarævintýri. En þá
gerast tveir atburðir sem
fá hann til að hrista af sér
slenið.
Leikstjóri er Lawrence
Turman en með aðalhut-
verk fara Richard Benja-
min, Joanna Shimkus, El-
izabeth Ashley og Adam
West.
Úr blöndukútnum
■■§■ Þáttur RÚ-
9935 VAK, „Úr
“• blöndukútnum"
er á dagskrá útvarps í
kvöld kl. 22.35 í umsjá
Sverris Páls Erlendsson-
ar.
Þátturinn í kvöld er
annar af þremur þáttum
sem fjalla eingöngu um
íslenska jassleikara af
yngri kynslóðinni. Að
þessu sinni verður fjallað
um Nýja kompaníið og
leikin verða lög af plötu
þeirra. Þá verður Jakob
Magnússon kynntur og
þrjár plötur hans þar sem
hann leikur svokallaða
jassfusion-tónlist. Þá
verða kynntar tvær plötur
hlómsveitarinnar Ljósin í
bænum sem gerði garðinn
frægan fyrir nokkrum ár-
um. Loks verður Árni Eg-
ilsson kynntur og hans
eina sólóplata sem hann
gerði ásamt erlendum
hljómlistarmönnum, líkt
og Jakob Magnússon gerði
sínar þrjár jassfusion-
plötur með.
I næsta þætti, sem
verður á dagskránni þann
15. þ.m., verða strákarnir
í Mezzoforte kynntir, en
þeir hafa sem kunnugt er
gert það með eindæmum
gott á erlendri grund.
Með grimmdina
í klónum
- áströlsk mynd um hauka
llaukar eni sannarlega
tignarlegir fuglar sem sjá
má af þessari mynd.
■■■■ Með grimmdina
9| 25 * klónum nefn-
— ist áströlsk
náttúrulífsmynd um
hauka sem sýnd verður í
sjónvarpi í kvöld kl. 21.25.
Mynd þessi er gerð af
sömu aðilum og gerðu
myndina um fálka sem
sjónvarpið sýndi ekki alls
fyrir löngu.
í þessari mynd um hin-
ar ýmsu haukategundir í
Ástralíu, verðum við leidd
í allan sannleika um lifn-
aðarhætti þessara tign-
arlegu ránfugla. Auk þess
er sýnt hvaða aðferðum
kvikmyndatökumennirnir
beita til að ná jafngóðum
nærmyndum af ránfugl-
um og raun ber vitni.
Þýðandi og þulur er
Óskar Ingimarsson.
Á sveitalínunni
■ Hilda Torfa-
15 dóttir er um-
— sjónarmaður
þáttarins „Á sveitalín-
unni“ frá RÚVAK sem er
á dagskránni kl. 23.15, að
loknum þættinum Úr
blöndukútnum.
Að þessu sinni ræðir
Hilda við fjóra menn bú-
setta í Grýtubakkahreppi.
Fyrst spjallar hún við
Björn Ingólfsson, skóla-
stjóra í Grenivík. Fyrir
norðan Grenivík eru tveir
firðir, Hvalvatnsfjörður
og Þorgeirsfjörður, sem
saman eru ætíð kallaðir
því óvenjulega nafni
Fjörður. Já, hér er ekki um
prentvillu að ræða, þeir
eru ekki kallaðir firðir
heldur Fjörður. Björn mun
skýra nánar frá því
hvernig þetta óvenjulega
heiti er tilkomið og beygt
og jafnframt fara með
vísu eftir Látra-Björgu.
Þá ræðir Hilda við
Gunnþór Hallgrímsson,
fyrrverandi bónda, sem
nú er búsettur í Lundi.
Hann bjó á árum áður úti
í Fjörðum, þ.e. Hval-
vatnsfjörðum og Þorgeirs-
fjörðum, og ætlar hann að
segja frá lífinu og starf-
inu þar. Hilda hefur því
næst samband við Sverri
Guðmundsson, bónda á
Lómatjörn, og mun hann
skýra frá sögulegum
göngum sem hann fór í á
þessum slóðum þegar
hann var 14 ára gamall.
Loks ræðir Hilda við
Friðrik Eyfjörð Jónsson,
bónda á Finnastöðum, en
hann er refaskytta, og
ætlar að rifjar upp gaml-
ar veiðisögur.
Hilda Torfadóttir
ÚTVARP
FÖSTUDAGUR
8. febrúar
7.00 Veöurfregnir. Fréttir.
Bæn.
Á virkum degi. 7.25 Leikfimi.
7.55 Daglegt mál. Endurt.
páttur Siguröar G. Tómas-
sonar frá kvöldinu áður.
8.00 Fréttir. Dagskrá. 8.15
Veðurfregnir.
Morgunorð: — Kristján
Þorgeirsson talar.
9.00 Fréttir.
9.05 Morgunstund barnanna:
.Perla" eftir Sigrúnu Björg-
vinsdóttur. Ragnheiöur
Steindórsdóttir les (5).
9.20 Leikfimi. 9.30 Tilkynn-
ingar. Tónleikar. 9.45 Þing-
fréttir.
10.00 Fréttir. 10.10 Veöur-
fregnir. Forustugr. dagbl.
(útdr.).
10.45 .Mér eru fornu minnin
kær". Einar Kristjánsson frá
Hermundarfelli sér um þátt-
inn. (RÚVAK).
11.15 Morguntónleikar.
12.00 Dagskrá. Tónleikar. TiF
kynningar.
12.20 Fréttlr. 12.45 Veður-
fregnir. Tilkynningar. Tón-
leikar
14.00 .Blessuö skepnan" eftir
James Herriot. Bryndls Vlg-
lundsdóttir les þýöingu slna
(2).
14.30 A léttu nótunum. Tónlist
úr ýmsum áttum.
15.30 Tilkynningar. Tónleikar.
16.00 Fréttir. Dagskrá. 16.15
Veöurfregnir.
16.20 Sfðdegistónleikar.
a. Sembalkonsert nr. 1 I d-
moll hefur Johann Sebastian
Bach. George Malcolm og
Menuhin-hátlðarhljómsveitin
leika; Yehudi Menuhin stj.
b. Flautukonsert I G-dúr K.
313 eftir Wolfgang Amadeus
Mozart. Hubert Barwahser
19.15 A döfinni. Umsjónarmaö-
ur Karl Sigtryggsson. Kynnir
Birna Hrólfsdóttir.
19.25 Krakkarnir I hverfinu.
8. Pétur tekur áhættu. Kan-
adiskur myndaflokkur I þrett-
án þáttum um atvik I llfi
nokkurra borgarbarna. Þýð-
andi Kristrún Þórðardóttir.
19.50 Fréttaágrip á táknmáli.
20.00 Fréttir og veöur.
20.30 Auglýsingar og dagskrá.
20.40 Margeir og Agdestein.
Þriöja einvlgisskákin.
Jóhann Hjartarson flytur
skákskýringar.
20.55 Kastljós.
Þáttur um innlend málefni.
og Sinfónluhljómsveit Lund-
úna leika; Colin Davis stj.
17.10 Slödegisútvarp
Tilkynningar
1845 Veðurfregnir. Dagskrá
kvöldsins.
19.00 Kvöldfréttir. Tilkynningar.
19J0 Daglegt mál. Valdimar
Gunnarsson flytur þáttinn.
20.00 Lög unga fólksins. Þóra
Björg Thoroddsen kynnir.
2040 Kvöldvaka
Umsjónarmaður Sigurveig
Jónsdóttir.
21.25 Með grimmdina ( klónum
— Haukar
Aströlsk náttúrullfsmynd
gerð af sömu aðilum og
myndin um fálka sem Sjón-
varpið sýndi nýlega.
I þessari mynd um hauka-
tegundir I Ástraliu er einnig
sýnt hvaöa aðferðum kvik-
myndatökumennirnir beita til
að ná jafngóöum nærmynd-
um af ránfuglum og raun ber
vitni. Þýðandi og þulur
Oskar Ingimarsson.
^ 21.55 Viö freistingum gæt þln.
a. Af Arna Grlmssyni. Bene-
dikt Sigurðsson lýkur frá-
sögn sinni.
b. MA-kvartettinn syngur.
Undirleikari: Bjarni Þóröar-
son.
c. Kýrin hennar Jóu.
Alda Snæhólm Einarsson
flytur frumsaminn frásögu-
þátt. Umsjón: Helga Ag-
ústsdóttir.
21.30 Hljómbotn. Tónlistarþátt-
(The Marriage of a Young
Stockbroker)
Bandarlsk blómynd frá
1971.
Leikstjóri Lawrence Turman.
Aöalhlutverk: Richard Benja-
min, Joanna Shimkus, Eliza-
beth Ashley og Adam West.
Ungur veröbréfasali hefur
staönaö I leiðinlegu starfi og
dauflegu hjónabandi. Hann
styttir sér stundir við dag-
drauma um ungar stúlkur og
ástarævintýri. En svo gerast
atburðir sem fá hann til aö
hrista af sér sleniö. Þýöandi
Björn Baldursson.
23.30 Fréttir I dagskrárlok.
ur I umsjón Páls Hannesson-
ar og Vals Pálssonar.
22.00 Lestur Passiusálma (5)
22.15 Veöurfregnir. Fréttir.
Dagskrá morgundagsins.
Orö kvðldsins.
22.35 Ur blöndukútnum —
Sverrir Páll Erlendsson.
(RÚVAK).
23.15 A sveitallnunni. Umsjón-
Hilda Torfadóttir. (RÚVAK).
24.00 Fréttir. Dagskrárlok.
Næturútvarp frá rás 2 til kl
03.00.
10.00—12.00 Morgunþáttur
Stjórnendur: Páll Þorsteins-
son og Siguröur Sverrisson.
14.00—16.00 Pósthólfiö
Stjórnandi: Valdls Gunnars-
dóttir.
16.00—18.00 Léttir sprettir
Stjórnandi: Jón Ólafsson.
Hlé.
23.15—03.00 Næturvaktin
Stjórnendur: Vignir Sveins-
son og Þorgeir Astvaldsson.
Rásirnar samtengdar að lok-
innl dagskrá rásar 1.
SJÓNVARP
Föstudagur
8. febrúar