Morgunblaðið - 08.02.1985, Side 44
44
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 8. FEBROAR 1985
„Islendingar
eru gjörsamlega
óðir í golf!“
— spjallað við John Drummond, golfkennara hjá GR
JOHN Drummond, golfkennari
hjá Golfklúbbi Reykjavíkur, er nú
kominn til landsins, en GR hefur
gert viö hann þriggja ára samn-
ing. Hann starfaði einnig hjá
klúbbnum síöastliðiö sumar.
John er fæcjdur og uppalinn í
borginni York. Eins og menn vita
kannski sló knattspyrnuliö staöar-
ins stórliöið Arsenal úr bikar-
keppninni fyrir skömmu. „Þaö var
frábært. Og svo dróst York gegn
Liverpool í næstu umferö. Ég er
hræddur um aö Liverpool bursti
þá .. “ sagöi Drummond er blm.
hitti hann aö máli i gærdag. Ekki
sagöist hann hafa sérlega mikinn
áhuga á knattspyrnu þrátt fyrir
þessi ummæli.
„Fótboltinn er enn vinsælli í
Englandi, en golfiö er aö vinna
mikiö á. Áhugi á golfi hefur víöa
aukist gífurlega á undanförnum ár-
um, sérstaklega í Skandinavíu held
ég-
Og hér á íslandi...
„islendinaar eru gjörsamlega
óöir í golf. Eg myndi segja aö þeir
væru of áhugasamir — hér leika
menn oft langt fram á nætur. Hér
eru menn áhugasamari en í Eng-
landi. Þar láta menn sér nægja aö
fara einn hring á dag, en hér leika
menn allt upp í þrjá hringi á vellin-
um á einum degi. En þaö stafar
vitaskuld aö hluta til af þvi hve
golftímabiliö er stutt hér á landi.“
—Eru islendingar
snjallir golfleikarar?
„Miöaö viö hve golftimabilið er
stutt hérna eru þeir mjög góöir, já,
hreint ótrúlega snjallir. Hér eru
nokkrir mjög snjallir, ég get nefnt
Ragnar (Ólafsson), Sigurö (Pét-
ursson), Björgvin (Ólafsson) og
í>lormmWnt»ií»
ívar (Hauksson). Þeir gætu unniö
fjöldann allan af áhugamönnum í
Englandi."
Drummond fór nokkuö út á land
til kennslu í fyrrasumar, m.a. heim-
sótti hann Sauökrækinga, Sel-
fyssinga, Ólafsfiröinga, Borgfirö-
inga og Keflvíkinga. Fari aðrir
klúbbar fram á þaö viö GR mun
hann gera slíkt hiö sama í sumar.
„Ég verö greinilega mjög upptek-
inn í sumar viö kennsluna, en hafi
klúbbarnir samband nógu
snemma ætti þetta ekki aö vera
neitt vandamál."
Kennsla hefst hjá Drummond í
dag og fer hún fram innanhúss.
„Ég verö með inninámskeiöin í átta
til tíu vikur — og vona þá aö þeim
loknum aö ég komist strax út, í
apríl. Veöriö hér hefur veriö svo
ótrúlega gott, þaö hlýtur aö takast.
Annars vonast ég bara til að kom-
ast út sem allra fyrst. Þaö er alltaf
mun betra aö kenna úti en inni.“
Golfskólinn hjá GR hefur veriö
mjög vinsæll undanfarin ár. Aö
sögn Björgúlfs Lúövíkssonar,
framkvæmdastjóra klúbbsins, er
golfiö greinilega mjög vaxandi
grein. „Viö byrjuöum með tíu
manna hóp byrjenda í fyrra, sem
átti aö vera í sex skipti, en þegar
því námskeiöi var lokiö var þegar í
staö fullt í annaö og þegar upp var
staöiö höföu yfir 100 manns komiö
á þessi byrjendanámskeiö hjá
okkur," sagöi Björgúlfur.
Drummond sagöi marga
byrjendurna vera ótrúlega fljóta aö
ná árangri. „Þaö veltur náttúrulega
á því hve menn leggja sig fram. Á
þessu ári mun ég leggja sérstaka
áherslu á aö kenna byrjendum, því
viö erum ákveönir aö ná enn fleiri í
klúbbinn," sagöi hann. Nú eru 544
meðlimir í GR, þar af rúmlega 500
sem stunda íþróttina reglulega.
„Með sama áframhaldi er ég
sannfæröur um aö eftir tíu til
fimmtán ár veröa komnir nokkrir
atvinnumenn í golfi hér á landi. Ég
er sannfæröur um aö þetta á eftir
að veröa „stór“ íþrótt hér á landi,“
sagöi Drummond.
Hann var spurður hvers vegna
golf væri jafn vinsæl íþrótt og raun
ber vitni.
„Þetta er einfatdlega svo
skemmtilegur leikur! En þetta er
erfitt bæöi líkamlega og andlega.
Menn veröa einnig aö vera geysi-
lega „teknískir“ til aö ná árangri í
golfinu. Þaö er líka stórt atriöi
varðandi vinsældirnar aö golfiö er
fyrir alla aldurshópa. Knattspyrnu-
menn og tennisleikarar, svo ein-
hverjir séu nefndir, hætta yfirleitt
iðkun þeirra íþrótta eftir vissan
árafjölda — en golfleikarar viröast
ekki geta hætt.
Úti í Englandi kom einn daginn
til mín kona og sagöi: „Ég er 82
ára. Ég hef aldrei snert golfkylfu,
en nú langar mig til aö fara aö
leika golf! Nú, ég tók hana í nokkra
tíma og hún leikur nú alla laugar-
daga og sunnudaga, og hefur sér-
lega gaman af.“
Á þessu sést aö golfiö er fyrir
alla — unga sem aldna, og ekki aö
undra þó vinsældir þess aukist svo
mjög sem raun ber vitni um allan
heim um þessar mundir.
Morgunblaöið/Rax
• John Drummond, Englendingurinn, sem kennir hjá Golfklúbbi
Reykjavíkur.
Golfkennslan hefst
hjá Drummond í dag
Morgunblaöinu hefur borist
eftirfarandi fréttatílkynning fré
Golfklúbbí Reykjavíkur.
Golfskóli Golfklúbbs Reykja-
víkur hefur hafiö starfsemi undir
handleiöslu Johns Drummond,
golfkennara klúbbsins. Starf-
semin fer fram í nýju viðbygging-
unni í Sundlaugunum í Laugar-
dal. Opiö er mánudaga til föstu-
daga kl. 16.00 til 22.00 og laug-
ardaga og sunnudaga kl. 9.00 til
16.00.
Þarna gefst kylfingum tæki-
færi á aö slá í net og búa sig
undir golfvertíöina í vor. Þá er á
staönum sandglompa og 9 holu
púttvöllur með ýmsum hindrun-
um.
Öll golfkennsla fer þarna fram.
Geta kylfingar ráöiö, hvort þeir
fara í einkakennslu eöa hóp-
kennslu. Þá er einnig í boöi sór-
stök kennsla meö myndband-
stæki.
Sérstakir kvennatímar meö
ókeypis kennslu veröa á mánu-
dögum kl. 17.00 til 18.00. Þá er
einnig ókeypis kennsla fyrir börn
og unglinga á sunnudögum kl.
14.00 til 15.00.
Allar nánari upplýsingar og
tímapantanir eru hjá kennara í
síma 40189 og framkvæmda-
stjóra klúbbsins í símum 84735
og 35273.
Þaö skal sérstaklega tekiö
fram, aö allir kylfingar eru velk-
omnir, byrjendur sem lengra
komnir, meölimir GR sem utan-
félagsmenn.
Fréttatilkynning.
H: 150. Br: 55. D: 60.
310 litra, tvískiptur.
H: 150. Br: 55. D: 60.
300 lítra m/blásturskæl-
ingu, tvískiptur.
H: 160. Br: 60. D: 60.
350 lítra, tvískiptur.
H: 160. Br: 67. D: 60.
410 litra, tvískiptur með
vatnskæli.
H: 165. Br: 55. D: 60.
290 lítra, sambyggöur
kælir/frystir, 2 pressur.
390 litra, sambyggður 380 litra, sambyggður
kælir/frystir, 2 pressur. kælir/frystir, 2 pressur.
H: 141. Br: 50. D: 60.
225 litra tvískiptur
H: 139. Br. 55. D: 60.
265 lítra, tvískiptur.
—------"3!----
|C*>a*
—
Kr. 20.520 Kr. 19.940 Kr. 20390 Kr. 28310 Kr. 2Z705 Kr. 28.025 Kr. 30365 Kr. 34.190 Kr. 34365