Morgunblaðið - 08.02.1985, Side 43
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 8. FEBRÚAR 1985
43
VELVAKANDI
SVARAR í SÍMA
10100 KL. 11-12
FRÁ MÁNUDEGI
TIL FÖSTUDAGS
jkÆMU
Um embætti veiðistjóra
l>orstfinn Einarsson, fyrrum
íþróttafulltrúi skrifar:
í Velvakanda birtist 8. janúar
sl. grein með fyrirsögninni
„Endurskoðun". Varðar hugvekj-
an, sem er tímabær og þðrf, tvenn
atriði.
f fyrsta lagi setningu starfs-
manns í embætti veiðistjóra, sem
er hið tímabæra, því að umsóknar-
frestur um stöðuna er út runninn
og er komið að því að Búnaðarfé-
lag fslands gefi veitingavaldinu
umsögn um þá umsækjendur sem
sótt hafa. Munu þeir greinast í tvo
höfuðflokka: veiðimenn og líffræð-
inga. Þeir sem láta sig varða og er
annt um velferð lífríkis landsins,
frá sjónarmiði dýraverndar og
náttúruverndar, hljóta að legga
því áliti sterklega lið, að bæði um-
sagnaraðilar og veitingavald velji
sagði umsjónarmaðurinn Ásgeir
Tómasson þá, að um stórsvindl
hafi verið að ræða þegar hlustend-
ur hringdu og völdu lagið „Save a
prayer" með hljómsveitinni Duran
Duran, sem vinsælasta lagið.
Ég var í Traffic á Duran Dur-
an-hátíðinni og varð ég ekki var
við að starfsmenn væru að biðja
fólk um að hringja i rás 2 og velja
áðurnefnt lag. Það getur vel verið
að starfsmenn rásar 2 geti lækkað
lög á listanum ef sami hlustand-
inn hringir mörgum sinnum en
varla geta þeir það þegar hlust-
andi hringir bara einu sinni eins
og raunin var í þættinum þann 3.
febrúar.
Því vil ég að starfsmenn rásar 2
hugsi sig tvisvar um og dragi orð
sín til baka. Duran Duran-aðdá-
endur, hringið ótrauðir áfram því
lagið „Save a prayer" á skilið að
komast áfram upp listann. Nú er
það t.d. í fyrsta sæti í Árseli.
Ókeypis í
sund og strætó
Ásgeir Guðmundsson hringdi:
Nýlega las ég í dálkum Velvak-
anda tilmæli aldraðs, að afslátt-
arkort í strætisvögnum giltu í
ákveðinn tíma svo eigi þyrfti að
rífa af miða í hvert sinn sem farið
væri með vagninum.
Mig langar vinsamlega til að
benda á einföldustu lausn þessa
vandamáls. íbúar í Kópavogi, 67
ára og eldri, geta snúið sér til Fé-
lagsmálastofnunar og fengið þar
aögangskort aldraðra sem gildir í
sundlaug og Strætisvagna Kópa-
vogs. Þetta kort mun kosta 130
krónur og gildir ævilangt. Væri nú
tilvalið fyrir ráðamenn þéttbýl-
issvæða þar sem sundstaðir eru og
strætisvagnar ganga, að sýna nú
hug sinn í verki. Látið aldraða fá
ókeypis aðgangskort að sundstöð-
um og strætisvögnum.
Skrifið eða
hringið til
Velvakanda
Velvakandi hvetur lesendur til
að skrifa þættinum um hvaðeina,
sem hugur þeirra stendur til —
eða hringja milli kl. 11 og 12,
mánudaga til föstudaga, ef þeir
koma því ekki við að skrifa.
Meðal efnis, sem vel er þegið,
eru ábendingar og orðaskipti,
fyrirspurnir og frásagnir, auk
pistla og stuttra greina. Bréf
þurfa ekki að vera vélrituð, en
nöfn, nafnnúmer og heimilisföng
verða að fylgja öllu efni til þátt-
arins, þó að höfundar óski nafn-
leyndar.
Sérstaklega þykir ástæða til
að beina þvi til lesenda blaðsins
utan höfuðborgarsvæðisins, að
þeir láti sinn hlut ekki eftir
liggja hér í dálkunum.
í embætti „veiðistjóra" líffræðing.
Starfsvið þessa eftirlitsmanns
með ákveðnum þáttum í lífríki ís-
lands er skilgreint í ákvæðum
þriggja laga. í greinargerð, er þau
voru til meðferðar sem frumvarp,
segir að sá sem hljóti embættið
skuli vera líffræðingur. Því miður
varð embættisheitið „veiðistjóri"
og við veiðar tengja margir byssu-
meðferð og skotfimi, því er hætta
á að glappast verði til að veita
embættið skotfimum veiðimanni.
Lífríki verður að skoöast af
líffræðingi en ekki veiðimanni,
þegar dæma þarf um meintan yf-
irgang einnar lífveru gegn annarri
og ásókn dýra í bústofna eða rækt-
un. Það þarf til víðtækari þekk-
ingu en að kunna að handleika
skotvopn og miða til aflífunar á
„vargdýr".
Hitt atriði er endurskoðun laga
og reglugerða sem varða ákvarð-
anir um eyðingu „vargdýra" og
hvaða aðferðum skal beitt. Slík
endurskoðun er þörf en haldbest
og raunhæfust verður hún ef
henni er stjórnað af líffræðingi
sem gjörþekkir íslenska náttúru
og hefur það embætti að leitast
við að innan lífríkis íslands hald-
ist jafnvægi milli tegunda.
Kosið
verði
í vor
H.S. skrifar:
í sumar er leið skrifaði ég grein-
arkorn í „Velvakanda" með fyrir-
sögninni „Það á að kjósa í haust".
Því miður var það ekki gert, en
kosningar í haust hefðu að öllum
líkindum komið í veg fyrir verk-
fall opinberra starfsmanna og að
minnsta kosti hefði það orðið með
öðrum brag. En þetta verkfall
hafði hrikalegar afleiðingar og
mun þjóðin seint eða aldrei bíða
þess bætur. Hroki og óbilgirni,
nokkuð jafnt á báðar hliðar, setti
hér allt úr skorðum og nú stefnir í
nýjan og hættulegan ófrið. Ríkis-
stjórnin, sem nú situr að völdum,
er búin að sýna og sanna svo ekki
verður um villst að hún er ófær til
að stjórna og ráða fram úr brýn-
ustu vandamálum þjóðarinnar.
Þess vegna þarf að kjósa og aðrir
menn að koma til. í næstu kosn-
ingum geta kjósendur til að
mynda sagt til um hvort þeir vilja
stórfjölga stjórnmálaflokkum eða
margfalda verðbólguna.
Á Islandi eru aðeins 240.000 íbú-
ar, rétt eins og í smábæ í stóru
löndunum. Landið er gott og sjór-
inn gjöfull. Hér á um alla framtíð
að vera sæmileg afkoma og aldrei
sultur. En þessi litla þjóð hefur
engin efni á því að standa í eilífum
verkföllum og ófriði. Hér þarf
þjóðarsátt, núverandi ríkisstjórn
er alls ófær til að koma henni á.
Þess vegna á að kjósa í vor. Næstu
ríkisstjórn á formaður stærsta
stjórnmálaflokksins að mynda
með einhverjum sem alls óvíst er
nú hverjir verða. En þeir sem
næst setjast að völdum verða að
gera sér grein fyrir því, að það
verður engin þjóðarsátt meðan
marg umtalaðri þjóðarköku er
jafn misskipt og nú. Og að sósial-
ismi og stefna frjálshyggjumanna
eiga ekki heima á íslandi.
Hljómsveitin Fyrirbæri.
Nöfn féllu niður
Þessi mynd af hljómsveit- og Haraldur Kristinsson.
inni Fyrirbæri birtist í Vel- Það skal jafnframt tekið
vakanda sl. miðvikudag en þá fram að hljómsveitin Fyrir-
láðist að geta um nafn hennar bæri er ekki sú sem við er átt í
og hljómsveitarmeðlima. Þeir greininni sem myndin birtist
eru taldir frá vinstri: Kristján með sl. miðvikudag.
Eldjárn, Ingi Ragnar Ingason
ÚTSALA
Karlmannaföt kr. 1.995—2.995.
Terelynebuxur frá kr. 790—950.
Gallabuxur frá kr. 295—595.
Skyrtur, peysur o.fl. ódýrt.
Andrés, Skólavöröustíg 22
Þáttur frumkvöðla í samfélagi nútímans er mikil-
vægur. Sýnt hefur verið fram á að ný atvinnutæki-
færi verði oftar til í nýjum fyrirtækjum heldur en í
eldri og rótgrónum fyrirtækjum.
Stofnun
nýrra
fyrírtækja
Markmið: Tilgangur þessa námskeiðs er
að hjálpa jDeim sem hyggjast eða hafa
nýlega stofnað eigin fyrirtæki. Eftir nám-
skeioið er stefnt að því að þátttakendur hafi
vald á þeim þáttum sem mikilvægastir eru
við stofnun nýrra fyrirtækja, og geti forðast
þær gryfjur sem á vegi þeirra verða.
Efni: Á námskeiðinu er tekið fyrir m.a.:
- Frumkvöðull (entrepreneur) - skilgreining.
- Þrándar í götu frumkvöðulsins í ytra og innra
umhverfi.
- Arðsemisrannsóknir/hagkvæmnisathuganir.
- Stefnumótun.
- Áætlanagerð.
- Framkvæmd.
- Stjórnun.
Þátttakendur: Allir sem hyggjast stofna eigið
fyrirtæki eða hafa nýlega gert það, eiga erindi
á þetta mikilvæga námskeið.
Leiðbeinendur: Þorsteinn Guðnason rekstrarhag-
fræðingur. Viðskiptafræðipróf frá Háskóla (slands
1981, og MBA próf frá San Diego State University
1983. Starfar nú sem hagfræðingur hjá Fjárfesting-
arfélagi íslands.
Tími: 18.-20. febrúar kl. 9-13.
TIIKYNNIÐ ÞÁTTTÖKU
Í SÍMA 82930
YJÓRNUNARFÉLAG
ÍSLANDS ISmI8293023