Morgunblaðið - 08.02.1985, Side 36

Morgunblaðið - 08.02.1985, Side 36
36 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 8. FEBRÚAR 1985 fólk í fréttum &'vv- Jóhanna Björnsdóttir og Soffía Inga- dóttir hjá Hagstofunni rýna í gamlar kirkjubækur líka sjálfumglaður og menn ýmist hötuðu hann eða dýrkuðu er óð á honum um eigið ágæti. Myia virð- ist ekki einungis hafa erft glæsi- legt útlit föður síns, heldur fram- komuna að auki, en það var haft eftir henni mjög nýlega: „Ég er mjög falleg stúlka, fegurð mín er gulls ígildi og mun færa mér ríki- dæmi og frama." Það birtist á dögunum býsna skemmtileg grein í Víðförla, sem er fréttablað Þjóðkirkjunnar, er heitir „Af kirkjubókum fyrr og nú“. Þar rýna þær Jóhanna Björnsdóttir og Soffía Ingadóttir starfs- menn Hagstofu íslands í forn blöð og draga fram skondnar athuga- semdir og skrítin nöfn. Blm. hitti Jóhönnu að máli og fékk leyfi til að birta hluta af greininni. Það kemur margt í hugann þegar þessum gömlu og oft lúnu kirkjubókum er flett og þær segja mikla og oft sorgarsðgu þjóðar vorrar á liðnum öldum. Það eru ýmsar athugasemdir sem fólki í dag koma e.t.v. spánskt fyrir sjónir eins og t.d. eftirfarandi: — Átt barn í hórdómi — „H þessi hefur áður átt eitt barn í hórdómi með annarri kven- persónu meðan kona hans lifði og á nú tvö með þessari, en þetta er móðurinnar annað brot í hórdómi með téðum manni." — Hálfgift — „Á öldinni sem leið dó kona, sem í kirkjubókinni var sögð hálfgift. Skýringin var sú að hún hefði dáið á undan hjóna- vígslu að afloknum öllum lys- ingum." — Að sögn Jóhönnu eru mörg skrítin nöfn í gömlu kirkjubókunum og hefur hugmyndaflugið í nafngiftum verið mikið og prestarnir verið furðu eftirgefanlegir í þeim efnum. E.t.v. hefur það að ein- hverju leyti stafað af því að börn voru oftar skírð heima skemmri skírn strax eftir fæðingu og skírnin síðar staðfest í kirkjunni. Stundum hafa þó klerkar beitt neitunarvaldi. Að sögn þeirra hjá Hagstofunni er misjafnt eftir prestaköllum hve mikið af óvenju- legum nöfnum hafa komið fyrir. Stundum finnst ekkert furðulegt nafn í heilli kirkjubók en í öðrum rekur hvert furðunefnið annað. — Críshildur, Þorgrautur og Óljóna — Dæmi um nöfn af þessu tagi eru t.d. Snæfellsnes, Arnstensa, Björnósk, Grómundur, Guðgils og Klóing. Þeir fyrir vestan hafa verið iðnir við að finna upp frumleg nöfn á börn sín og má þar nefna Gríshildi, Hyppolyte, Pelagóniu, Mildenberg, Bjarnaþórey, Hjálmhlif, Óljóna , Gerilíus, Fástínu, Illaug, Evfesus og Þorgraut. Þetta er aðeins hluti af þeim nöfnum sem finna má og ef víðar af landinu er skoðað má finna nöfn eins og Grámann, Ossilá, Sakkaríu og Borgarfjörð. — Napóleon og Kató — Ýmsir frægir menn eiga sér nafna á íslandi svo sem Sókrates, Napóleon, Kató, Ibsen og Gladstone, Lazarus og Sakkeus. — Það virðist oft vera þannig að fólk hafi gefið börnunum nafn eftir þeim tíma ef þau voru fædd á eins og t.d. Oktavía í október, Jólavísa á jóladag, Siguröld sem fæddist þjóðhátíðarárið 1874 og Karl Sjöundi sem var sjöundi sonur foreldra sinna. Við látum þetta duga, e.t.v. hafa einhverjir orðið hrifnir af nöfnunum og vilja gefa börnum sinum einhver þeirra. Það er bara að presturinn samþykki!! — bodar nfja tískulúiu Ljósmyndafyrirsætan Christie Brinkley hefur nú ýtt því starfi til hliðar og spreytir sig á öðru sem hún telur til mikilla muna meira krefjandi og skapandi. Hún hannar föt eftir eigin höfði og kemur þannig þeim kenningum sínum á framfæri, að tískubólur séu ekki það sem fylgja beri undir öllum og aftur öllum kringumstæðum. Christie telur að hver kona eigi að laga sig að „eigin tísku" ef svo mætti að orði komast, velja þá liti og þau snið sem hentar hverri og einni best, það sé afleitt að horfa upp á heila hjörð kvenna sem eru allar eins klæddar. „Bandariskar konur eru þó svolítið sérstæðar í þessum efnum, eru opnar fyrir skemmtilegum hugmyndum. Mér þykir gaman að sjá þær t.d. í jakkafötum og strigaskóm. Christie vinnur með hönnuði sem heitir Mitchell Gross og skiptast þau á hugmyndum. Hún er spurð hvort hún telji að föt þau sem hún hanni seljist frekar vegna þess hve fræg hún er fyrir vestan haf. „Nafnið verður kannski til þess að konur skoða fötin ef til vill frekar, en ég geri mér grein fyrir því að þeim verður að líka við fötin til þess að þær kaupi þau,“ segir hún og bætir við: „Þeim skilaboðum vil ég koma til kvenna hvað varðar fataval þeirra, að þær leyfi sér að „sletta úr klaufunum" Iítið eitt, skemmta sér við fatavalið. Þetta verður þó að gerast með hliðsjón af vinnustað og aðstæðum öðrum. Best sett- ar eru þær konur sem ráða sér sjálfar.* „Gríshildur, Fástína og Hjálmhlíf ... “ „Ég er mjög falleg stúíka, fegurð mín er gulls ígildi og mun færa mér ríki- dæmi og frama,“ segir Myia Ali. Dóttir Alis: Erfði útlitið og framkomuna Þessi unga snót er að ryðja sér til rúms í Ijósmyndafyrirsætubransan- um og þykir með afbrigðum efnileg, auk þess sem ungur aldur hennar tryggir henni að líkindum mörg gæfurík ár á framabrautinni. Hún heitir Myia Ali og er aðeins 13 ára gömul. Eins og nafnið bendir til á hún ættir að rekja til „The Greatest" eins og kýlarinn heimsfrægi var ákaflega gjarn á að kalla sig. Auð- vitað er hér átt við Mohammed Ali fyrrum heimsmeistara í hnefa- leikum. Myia hefur tekið skýrt fram að fyrirsætustörfin séu unn- in í fullri þökk pabba gamla sem sé bara stoltur af dóttur sinni. Hún tilkynnir jafnframt að kvikmyndahlutverk heilli og hún hafi sett stefnuna á slíkt. Mo- hammed Ali þykir hafa verið glæsilegur I æsku sinni, vel skapaður íþróttamaður. Hann var

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.