Morgunblaðið - 08.02.1985, Side 4

Morgunblaðið - 08.02.1985, Side 4
4 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 8. FEBRÚAR 1985 Tilboð OLIS tO sjávarútvegsins: Ekki áhugi á að ganga að tilboðinu — segir Ágúst Einarsson, fulltrúi í LÍÚ — Tilbúinn til frekari umræðna um mál- ið, segir Óskar Vigfússon „Þ/ER hugmyndir komu fram á aðalfundi LÍÚ í haust hvort nokkur áhugi væri fyrir því hjá mönnum, að þeir tækju að sér olíudreifingu fyrir útgerðina. Svo reyndist ekki. Hins vegar var samþykkt að reyna að fá því kerfi, sem við búum við í dag, breytt í þá veru að brjóta upp samtryggingu olíufélaganna og koma á heilbrigðri samkeppni þeirra á milli. Ennfremur að útgerðin fái að njóta stórinnkaupa sinna í lægra verði en aðrir. Ég held að það sé enginn áhugi fyrir því að ganga að þessu tilboði OLÍS,“ sagði Agúst Einarsson, fulltrúi hjá LÍÚ, er Morgunblaðið bar undir hann tilboð OLÍS þess efnis að sjávarútvegurinn taki við eigin olíuviðskiptum. „Við höfum gagnrýnt innlendar skipasmíðastöðvar fyrir of hátt verð á íslenzksmíðuðum skipum. Þó við gagnrýnum, er ekki þar með sagt að útgerðarmenn séu tilbúnir til að taka yfir rekstur viðkomandi aðila. Eðlileg gagnrýni á sér alltaf fullan rétt. Við vitum það líka, að það yrði viðkomandi aðilum til góðs yrði tekin upp eðlileg sam- keppni þeirra á milli," sagði Ágúst Einarsson. Óskar Vigfússon, formaður Sjó- mannasambands íslands, sagði í samtali við Morgunblaðið, að tilboð OLÍS hefði komið sjómönnum á óvart. í því fælist ýmislegt mjög jákvætt, en annað ekki. Svo sem að hið nýja olíufélag ætti að taka yfir skuldir útgerðarinnar við OLÍS. „Hins vegar get ég svo sannarlega verið tilbúinn til þess, að ræða þessi mál frekar, ef maður hefði það tryggt að útgerðin eða sjávar- útvegurinn legðist á eitt um að skipta við slíkt olíufélag, sitt eigið olíufélag. Við höfum ekki kannað tilboð OLÍS nánar, en eftir þeim viðbrögðum, sem komið hafa fram hjá LIÚ, sýnist mér málið vera dautt, að minnsta kosti þeim megin frá. Ég er sannfærður um það, að leggist samtök sjómanna, útgerðar og fiskvinnslu saman á eitt um það, að útvega sér sína olíu og dreifa henni sjálf, að lækka megi olíuverð til útgerðar hér á landi verulega," sagði óskar Vigfússon. Svamlað í laugunum MorgunblaJið/ Ólafur K. Magnúaaon Húsnæðisstjórnarlán tekið 1980: Greiðslubyrðin hefur aukist um 15—20% frá árinu 1981 GREIÐSLUBYRÐI ársgreiðslna húsnæðisstjórnarlána hefur aukist verulega á undanfornum árum. Árs- greiðsla láns sem tekið var 1980 var til dæmis 15% meiri á síðastliðnu ári en á árinu 1981 sé miðað við greidd laun verkamanna skv. samantekt kjararannsóknanefndar en yfír 20% sé miðað við kauptaxta verkamanna. Ársgreiðslur húsnæðisstjórn- „Látið veggina í friði' arláns að fjárhæð 54.000 kr., sem tekið var 1. janúar 1980 til 26 ára með 2,25% vöxtum og fullri verð- tryggingu miðað við byggingavísi- tölu, hafa verið þannig (afborgun- arlaust fyrsta árið, gjalddagar 1. maí ár hvert): 1980 443 kr., 1981 4.880 kr„ 1982 7.263 kr„ 1983 12.694 kr„ 1984 16.752 kr. og 1985 (áætlun) 21.610. Fasta ársgreiðsl- an er 2.848 kr. og hefur hún því meira en sjöfaldast á þessum rúmu fimm árum. Eftirstöðvar lánsins verða eftir ársgreiðslu þessa árs 45. 459 kr. en uppfært miðað við vísitölu er höfuðstóllinn orðinn 344.940 kr. Séu ársgreiðslurnar settar i samhengi við vinnulaun, það er mánaðarlaun miðuð við meðal- stundafjölda og meðaltímakaup verkamanna skv. upplýsingum kjararannsóknanefndar, lítur dæmið þannig út: Ársgreiðslan 1981 og 1982 var 61% af áætluðum meðaltalsvinnulaunum verka- manna í maí, 1983 var hún 66,5% og 1984 70,5%. Á árunum 1981 til 1984 hefur greiðslubyrðin því hækkað um 15% miðað við greidd laun. Ef hinsvegar er miðað við breytingu kauptaxta á þessu tíma- bili hefur greiðslubyrðin aukist enn meira, eða yfir 20%, enda hafa greidd laun hækkað um 12,8% umfram kauptaxta frá 1980. Iceland Seafood í Bandaríkjunum: Hráefnisskortur veldur samdrætti í sölu flaka „IIVERNIG væri nú að nota pappír til að krota á, en láta veggina í friði? Það má gjarnan sjást að það er full- orðið fólk, sem notar símaklefana." Forseti ED. sem hér í Þannig hljóðar orðsending fannst í símaklefa nokknim borg. Lesendur velta því eflaust fyrir sér hver forseti ED er og til hverra forsetinn hefur skrifað ofan- greinda orðsendingu. Máske láta einhverjir sér detta í hug að hér sé um orðsendingu einhvers skólafé- lagsforsetans að ræða, til nemenda sem ekki gangi nógu vel um sfma- klefa skóla síns, en hvers vegna er forsetinn þá að tala um að það megi gjarnan sjást að það sé full- orðið fólk, sem noti símaklefana? Jú, sannleikurinn í málinu er sá, að orðsendinguna ritaði Salome Þor- kelsdóttir, forseti efri deildar Al- þingis, og ljósriti af henni er komið fyrir í símaklefum þingsins, þing- mönnum og öðrum notendum síma- klefanna til áminningar. „GANGUR mála hjá Iceland Seafood í janúar einkenndist því miður nokkuð af vöruskorti. Okkur vantar dálítið illilega ýmsar þýðingarmiklar afurðir í bili. Fyrst og fremst er um að ræða skort á ýsu, en einnig á karfa, og hefðum við getað selt verulega meira af þeim tegundum, hefðu þær verið fyrir hendi. Okkur skortir ennfremur grálúðu og vegna þessa er flakasalan hjá okkur 26% minni í magni en á sama tíma í fyrra," sagði Guðjón B. Ólafsson, forstjóri Iceland Seafood í Bandaríkjunum í samtali við Morgunblaðið. Salan á verksmiðjuframleiddum hefði ekki verið um áðurnefndan vörum hjá Iceland Seafood í janúar jókst um 17,5% í magni miðað við sama tíma í fyrra. Heildarsalan í magni jókst um 4,1%, en í dollur- um talið dróst hún saman um 5,5%. í janúar nú var selt fyrir 8,8 millj- ónir dollara (361 milljón króna) en í fyrra 9,3 milljónir dollara (381 milljón króna). Guðjón sagði, að ljóst væri að sala hefði orðið verulega meiri, vöruskort að ræða. Það væri erfitt að spá um framtíðina, en innkomn- ar pantanir virtust vera nokkuð miklar, en því miður stæði hráefn- isskortur sölunni fyrir þrifum og gerði það líklega fram i marzmán- uð. Sér sýndist þó, að markaðurinn ætti að vera þokkalegur. Sala verk- smiðjuframleiddra vara hefði i janúar verið meiri en nokkru sinni áður, en salan í flökunum hefði valdið sér verulegum vonbrigðum. Salan hefði verið mun minni en í fyrra og mun minni en hún hefði getað orðið. Því ylli fyrst og fremst hráefnisskortur og síðan gætu verkföll heima fyrir haft mjög al- varleg áhrif og stefnt mörkuðum okkar vestra í hættu. Góður árang- ur íslendinga á markaðnum hefði meðal annars skapazt af áreiðan- leika og stöðugu framboði. Ef skarð kæmi í það, gæti tekið langan tfma að vinna skaðann upp að nýju. Endurgreiðsla kjarnfóðurgjalds til alifugla- og svínaræktar: Sama gjald innheimt og fyrir reglugerðarbreytingu — Strangar reglur um skil á framleiðsluskýrslum l,andhúnaóarráðherra hefur gengið frá bráðabirgðareglum um endurgreiðslu á kjarnfóðurgjaldi til alifugla- og svínaræktar, en kjarn- fóðurgjald á fóður fyrir þessar bú- greinar var eins og kunnugt er hækkað í 60% um sl. áramót. Endurgreiðslureglurnar eru byggð- ar á áliti nefndar þar sem m.a. sátu fulltrúar þessara búgreina. Endur- greiðslan miðast við að bændur í alifugla- og svínarækt greiði í heild ekki hærra gjald en þeir gerðu fyrir reglugerðarbreytinguna um áramót, það er 33% en sett eru ýmis ákvæði svo sem um hámarksgjald pr. tonn og skil á framleiðsluskýrslum. Fram til 1. júní nk. skal endur- greiðslan vera 26,67%-stig af álögðu kjarnfóðurgjaldi, sem i heild er 60%. Þó er sett ákveðið þak á kjarnfóðurgjaldið, hannig að ekki innheimtist hærra gjald en 2.700 kr. af hverju innfluttu tonni fóðurs. Endurgreiðslan get- ur annaðhvort farið fram með milligöngu fóðursala eða beint úr kjarnfóðursjóði til framleiðanda. Framleiðendum er gert skylt að leggja fram framleiðsluskýrsl- ur (innleggs- eða sölunótur) ársfjórðungslega til Framleiðslu- ráðs landbúnaðarins eða til stjórnar viðkomandi búgreinafé- lags, sem safnar þeim saman og Ieggur fram til staðfestingar á endurgreiðslurétti. Þessu fylgi skýrsla um bústofnsstærð í lok hvers tímabils. Ennfremur er framleiðendum gert skylt að leggja fram framleiðsluskýrslu fyrir sl. ár fyrir 1. mars nk. Segir í reglunum að ekki verði greitt til aðila, sem ekki skila skýrslu um framleiðslu, fyrr en úr hefur ver- ið bætt. Leiðrétting LÍNA féll niður í grein Leifs Sveinssonar í Morgunblaðinu í gær, þannig að efni frásagnar hans komst ekki til skila. Þessi lokakafli greinarinnar birtist því hér aftur: „Eitt sinn var ég í afmælisveislu hjá Kristjáni heitnum Eldjárn og segi við hann: „Eins og þú veist Kristján, þá safna ég öllum tölum nema buxnatðlum og nú var ég að eignast síðasta talið, Múraratal- og steinsmiða.“ Þá svarar Krist- ján: „Já, þau eru góð og gagnleg þessi töl, en þó lætur það talið á sér standa, sem fer nú að lenda í eindaga með að hægt sé að setja saman. Leifur minn, það vantar alveg tilfinnanlega íslenskt draugatal og ég ætla að biðja þig að koma því á framfæri við rétta aðila áður en það verður um seinan.“ Kem ég þessum tilmælum hér með á fram- færi við Sálarrannsóknafélag ís- lands og þjóðsagnadeild Háskól- ans. Er þá mál að linni tali minu um töl.“

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.