Morgunblaðið - 08.02.1985, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 8. FEBRÚAR 1985
5
Fargjaldastrfð f Evrópuflugi:
Annafargjöldin munu
auka tekjur Arnarflugs
— segir Magnús Oddsson markaðsstjóri
hjá Arnarflugi
„VIÐ ERUM algjörlega á öndverðum meið við þá Flugfélagsmenn að þessi
nýju annafargjöld verði til að rýra tekjur flugfélaganna,“ sagði Magnús
Oddsson, markaðsstjóri hjá Arnarflugi, er Morgunblaðið hafði samband við
hann vegna ummæla Sigfúsar Erlingssonar, framkvæmdastjóra hjá Flugleið-
um, f frétt Mbl. um ný fargjöld Flugleiða til Luxemborgar, en þar segir m.a. að
Flugleiðir séu nú að gera nánari könnun á áhrifum þessara nýju fargjalda.
I frétt Morgunblaðsins er m.a.
haft eftir Sigfúsi Erlingssyni, að
erfitt sé að skilja þetta „fargjalda-
útspil Arnarflugs" og ennfremur að
þetta muni verða til að rýra tekjur
flugfélaganna. Magnús Oddsson hjá
Arnarflugi sagði hins vegar að ein
af ástæðunum fyrir að Arnarflug
fór út í þessi annafargjöld, sem
gefa 38% afslátt á flugi til Amst-
erdam, hafi einmitt verið sú, að tal-
ið var að þau myndu auka tekjur
fyrirtækisins. „Það má raunar
spyrja þá Flugleiðamenn á móti,
hvers vegna þeir hafi nú sjálfir far-
ið út í þessi fargjöld, ef þeir telja að
þau muni rýra tekjurnar," sagði
Magnús. „Okkar skýring er ósköp
einföld. Eftir að hafa kannað þetta
rækilega lá fyrir sú vitneskja að
mikil aukning hefur orðið á farþeg-
um sem þurfa að ferðast í við-
skiptaerindum í stuttar ferðir til
Evrópu. Þessir farþegar hafa mikið
fært sig yfir á hin ýmsu lægri far-
gjöld sem í gildi eru svo sem „Pex“,
„Apex“ „IT“ og fleiri, en þau eru öll
háð þeim skilmálum að viðkomandi
þarf að dvelja úti yfir helgi lág-
mark, og menn hafa jafnvel verið
að teygja sína dvöl ytra lengur en
þeir þurftu og greiða þá erlendum
hótelum meira sem því nemur.
Okkar skoðun er því sú, að þessir
aðilar séu tilbúnir að greiða flugfé-
laginu örlítið fleiri krónur í
staðinn fyrir að greiða þær til er-
lendra hótelhringa. Þetta er grund-
völlurinn fyrir því að við ákváðum
að fara út í þessi annafargjöld,"
sagði Magnús ennfremur.
Varðandi ummæli Sigfúsar Erl-
ingssonar um undirboð í þessu sam-
bandi sagði Magnús m.a.: „Flugleið-
ir hafa tekið upp svokölluð „hopp-
fargjöld" og „Apex“ innanlands. Við
erum sannfærðir um að þetta
myndi rýra tekjur okkar, og því elt-
um við það ekki. Það er því ekki rétt
sem Sigfús segir að ef annar aðilinn
undirbjóði muni hinn svara. Ef
Flugleiðir hafa áhyggjur af þessu
hefði kannski verið eðlilegra fyrir
þá að byrja á að hækka fargjöld til
Luxemborgar, hliðstætt þeim far-
gjöldum sem eru í gildi til Evrópu.
Sem dæmi má nefna að svokölluð
„Pex-fargjöld“ til Luxemborgar eru
24% lægri en „Pex“ til Amsterdam
þótt flugleiðin sé lengri. Við höfum
ekki elt það. Aðalatriðið í þessu er
hins vegar, að okkar skoðun er sú,
að þessi annafargjöld okkar muni
verða til að auka tekjur fyrirtækis-
ins en ekki öfugt," sagði Magnús
Oddsson, markaðsstjóri hjá Arnar-
flugi.
MorgunblaJiS/ RAX
Valtýr Pétursson listmálari
Ég hafði þörf fyr-
ir að breyta til
— segir Valtýr Pétursson listmálari
VALTÝR Pétursson listmálari opnar sýningu á málverkum sínum í Gall-
eríi, Vesturgötu 17, laugardaginn 9. febrúar kl. 14.00.
Sýningin nefnist „Frá liðnum
árum“ og eru á henni 30 olíumál-
verk og 3 vatnslitamyndir, sem
málaðar eru á árunum
1977-1984.
Lítið ber á abstraktmyndum á
sýningunni og var Valtýr spurður
hvort hann væri hættur við að
mála abstrakt.
„Það eru nú örfáar abstrakt-
myndir á sýningunni og hinar eru
undir miklum áhrifum. Þær
hefðu ekki orðið til nema ég væri
búinn að mála abstrakt í um 20
ár. En ég hafði þörf fyrir að
breyta til. Á þessari sýningu eru
að mestu nýjar myndir, sem ekki
hafa sést áður. Ég sýni í Þrastar-
lundi á hverju sumri og hafa
reyndar nokkrar verið sýndar
þar, en ég hef endurunnið þær
síðan.“
— Kemur það oft fyrir að þú
endurvinnir myndirnar?
„Já. Ég vinn myndirnar á með-
an þær eru í vinnustofunni.
Hérna er ein mynd, sem ég kalla
Mosa og er i svolitlu uppáhaldi
hjá mér. Hún gleymdist f vinnu-
stofunni hjá mér og var því lengi
í vinnslu. Sama er að segja um
aðra mynd, Vetur, ég var mjög
lengi að vinna hana.“
— Hér eru margar myndir úr
Vesturbænum. Er hann í miklu
uppáhaldi hjá þér?
„Já. Ég er með vinnustofu hér á
Vesturgötunni og ég hef gaman
af að mála útsýnið, bæði úr norð-
ur- og suðurglugganum. Svo hef-
ur slippurinn og höfnin líka mik-
ið aðdráttarafl, eins og myndirn-
ar bera með sér.“
— Höfða vatnslitirnir minna
til þín en olían?
„Meirihluti mynda minna er
unninn í olíu og ég hef alltaf verið
hrifinn af henni. En ég hef
vatnslitina með. Gallinn við að
vinna með vatnsliti er sá að ég
þarf að mála svo mikið ef ég ætla
að senda eitthvað frá mér sem ég
get staðið við. En ég er ánægður
með þessar þrjár myndir á sýn-
ingunni, sérstaklega eina.“
— Að hverju vinnur þú um
þessar mundir?
„Ég fékk starfslaun frá borg-
inni og er nú að vinna að stórri
sýningu sem haldin verður að
Kjarvalsstöðum eftir rúmt ár,“
sagði Valtýr Pétursson.
Sýning Valtýs stendur til 3.
mars nk. og er hún opin frá 9—17
á vikum dögum og kl. 14—18 um
helgar.
Garbo Áöur Nú Kuldajakkar (vatt) 3.290 1.690
Samfestingar 2.500 1.500 Stakir jakkar fínni 4.290 1.980
í Samfestingar 2.290 1.500 Stakir jakkar fínni 4.850 2.290
j Gallabuxur 2190 500
Gallasamfestingar 2.780 500
Gallajakkar 1.990 500 Karnabær Áöur Nú
i; Kápur 8.580 4.900 Stretch-buxur 1.290 790
J Kápur 8.050 4.900 Sokkabuxur 430 190
f Belti 190 100 Belti 290-400 130
í Belti 750 250 D-kakhibuxur 1.390 790
Belti 480 250 H-kakhibuxur 1.290-1390 790
í Hrásilkidragtir 4.900 1.500 D-peysur 1.290—1.390 690
Stretch-buxur 1.390 695 Köflóttar d-buxur 1.690 890
| Pils 1.990 980 Skyrtur stórar 1.290 490
Buxur 2.450 1.225 H-peysur 1.390-1.590 490
Buxur 2.670 1.350 T-bolir 270 90
{ Hattar 1.190 650 Stórir jakkar 2.950 1.490
l Dragtir 7.900 3.900 Kakhi-dragtir 2.950 1.490
1 Utijakkar (ull) 6.780 3.500 Samfestingar 2.690 1.490
í Stakir jakkar 3.600 1.990 Pils 1.790 890
Stakir jakkar 5.300 2.900
! Klútar, slæður 360 150
Bonanza Áöur Nú
Bonaparte Áöur Nú Kuldajakkar (vatt) 3.290 1.690
Jakkaföt í úrvali 7.980 3.980 D-kakhi-buxur 1.390 790
t Skyrtur 790 490 H-kakhi-buxur 1.290-1.390 790
Rúskinnsjakkar 4.590 2.790 H-peysur 1.390-1590 690
Stakir buxur fínni 1.980 1.190 Samfestingar 2.690 1.490
Aðeins nokkrir dagar í viðbót