Morgunblaðið - 08.02.1985, Blaðsíða 13

Morgunblaðið - 08.02.1985, Blaðsíða 13
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 8. FEBRÚAR 1985 13 Morgunbladið/ Jli. Hið nýja verksmiðjuhús Henson hf hefur þotið upp með miklum hraða. Starfsemi hefst í húsinu um næst mánaðamót. Akranes: Verksmiðjuhús Hen- son hf. þýtur upp Akrancsi, 6. febrúar. HIÐ nýja verksmiðjuhúsnæði Henson hf. á Akranesi er nú senn fullgert og hefur smíði þess gengið með eindæmum vel. Húsið er um 800 fermetrar að stærð og verður mjög glæsilegt í alla staði. Framkvæmdir hófust í október sl. og reiknað er með að verksmiðjan hefji starfsemi um mánaðamótin febrúar-mars. Alls er gert ráð fyrir að um 50 manns geti unnið þar þegar best lætur. Vænta margir sér góðs af starf- semi þessa fyrirtækis og að sögn hefur mikil eftirspurn verið eftir störfum þar. J.G. Mikil kohnunnaveiði við Færeyjar: 33,50 krónur fást fyrir kíló af kolmunnafarsi MIKIL kolmunnaveiði er nú við Færeyjar og að sögn færeyska blaðsins Dimmalætting, er kol- munninn nú stærri og betri til vinnslu en nokkru sinni fyrr. Nótaskipið Gullfinnur hafði um síðustu mánaðamót fengið um 2.000 lestir, en búizt er við því, að hann nái alls um 4.000 lestum. Kolmunninn hefur meðal ann- ars verið unninn í fars hjá Bakkfrosti á Glyvrum. Alls vinna um 80 manns á vöktum allan sólarhringinn við kol- munnavinnsluna og hefur vinn- an verið nær linnulaus síðan veiðarnar hófust. Farsið er selt Pálssonar prýddar hans vandaða handbragði. Samsetning þessa hráefnis ber því síðan vitni hversu vel Erlend- ur Sveinsson, höfundur handrits og stjórnandi myndarinnar, hefur undirbúið verkið. Hér ræður hippsumhappsaðferðin ekki. ólíkt mörgum heimildamyndum, sem unnar eru í flýti, er Lífið er salt- fiskur ekki byggð upp á burðarási viðtala. Hún reiðir sig á sviðsetn- ingar, sem flestar eru eðlilegar og vel heppnaðar og hugvitsamlega samskeytingu fjölbreytilegs myndefnis, óháða tímaröð og rúmi. Og á tjaldinu er fólk í fyrir- rúmi, ekki vélar eða vara. Hljóð- rásin er kapítuli út af fyrir sig; Fyrir utan þulartexta, sem ævin- lega er lífrænn og skýr, en hefði stöku sinnum þolað styttingu, er veitt inn á hljóðrásina tilvitnun- um í þjóðmálaumræðu og ritaðar heimildir, jafnt sem dægurlögum og viðeigandi stemmningsmúsík, auk umhverfishljóða. Þetta mynd- ar ákaflega velvirka heild, sem einatt skilar eftirminnilegum skeiðum. Ég nefni sem dæmi hnýsilega innsýn í hin flóknu sam- ningamál fiskseljenda okkar á er- lendri grund og snjalla tengingu hvunndagsmynda úr islenskri fiskvinnslu við fréttamyndir úr heimsviðburðum eins og stríðinu í Nígeríu. Með þessum vinnubrögðum verður efni, sem í orði virðist þurrt og leiðinlegt, spennandi og safaríkt á borði. Þannig er salt- fiskur. Og þannig er kvikmynda- gerð þegar menn vanda sig. til brezka fyrirtækisins Ross í Grimsby og er það unnið þar í fiskstauta. Brúttóverð fyrir hvert kíló af farsi er um 33,50 íslenzkar krónur, en skilaverð til Bakkafrosts er um 28 krónur fyrir hvert kíló. Verð til sjó- manna er 4,70 krónur. Þá hefur Dimmalætting það eftir Svend Age Ellefsen, út- gerðarmanni Giljaness, sem er einn stærsti verksmiðjutogari í Norður-Evrópu, að hagkvæmara sé fyrir útgerð skipsins að stunda kolmunnaveiðar um þessar mundir en rækjuveiðar. Giljanes er nú á leið frá Sval- barða með um 400 lestir af frystri rækju. Skipið getur unn- ið 50 lestir af rækju á sólarhring og verið á sjó í 110 daga sam- fleytt án þess að þurfa að leita til hafnar, enda getur það borið 900.000 lítra af olíu. Við rækju- vinnsluna vinna um 30 manns um borð en 60 við kolmunna- vinnsluna. Reiknað er með að kolmunninn verði flakaður um borð og seldur til Bretlands, en þar fást að minnsta kosti 33,50 krónur fyrir kílóið. spurt og svarad I Lesendaþjonusta MORGUNBLAÐSINSI SKATTAMÁL Hér fara á eftir spurningar, sem lesendur Morgun- blaðsins hafa beint til þáttarins Spurt og svarað um skattamál og svörin við þeim. Þjónusta þessi er í því fólgin að lesendur geta hringt í síma Morgunblaðsins, 10100, milli klukkan 10 og 12 virka daga og borið upp spurningar sínar um skattamál. Mbl. leitar síðan svara hjá starfsmönnum embættis ríkisskattstjóra og birtast þau í þessum þætti að nokkrum dögum liðnum. Lækkun skattstofns vegna náms barna Inga Helgadóttir, Sörlaskjóli 84, spyr: . Hver er námsfrádráttur for- eldra vegna kostnaðar við fram- haldsnám barns og hverju breyt- ir það ef barnið hefur um 40 þús- und króna árstekjur? Svan Foreldrar geta fengið lækkun á tekjuskattsstofni vegna náms barna þeirra sem eru 16 ára eða eldri. Ráðstöfunarfé nemandans (tekjur, lán og styrkir) hafa áhrif á upphæð lækkunarinnar. Fylla skal út eyðublaðið „Um- sókn B skv. 4. tl. 66. gr. R3.06" og láta fylgja framtali foreldra. Leigutekjur og leigugjöld Óskar Einarsson, Laugarnesvegi 39, spyr hvort tillit sé tekið til þess, ef húseigandi, sem leigir út eign sína, leigir aðra íbúð fyrir nánast sömu upphæð. Spyr hann hvernig farið skuli að í tilfelli sem þessu, hvernig húsaleigu- tekjur skuli taldar fram og svo húsaleigugreiðslur. Svar: Sá sem leigir húsnæði skal gera rekstraryfirlit yfir leigu- tekjur og er heimilt að telja til gjalda beinan kostnað við öflun þessara leigutekna, þó ekki vaxtagjöld eða fyrningar. Hrein- ar tekjur af leigunni skal færa í reit 72 á 4. bls. framtalsins. Ef gjaldandi leigir sér íbúð til eigin nota er honum heimilt að færa til frádráttar í reit 70 helming greiddrar húsaleigu vegna tekjuársins. Útsvarsafsláttur lífeyrisþega Jón Þórarinsson, Háaleitisbraut 52, spyr hvort lífeyrisþegar njóti einhvers afsláttar frá útsvari. Svan Við álagningu útsvars er skattstofninn lækkaður um fjár- hæð ellilífeyris og örorkulífeyris sem Tryggingastofnunin greiðir, þ.m.t. tekjutrygging. Enn frem- ur er skattstofninn lækkaður hjá þeim sem hafa skerta tekju- tryggingu um fjárhæð sem svar- ar til þeirrar skerðingar. Stofnun atvinnu- rekstrar Oddgeir Ottesen í Hveragerði stofnaði kanínubú í útihúsi í þéttbýli í fyrra. Engar afurðir voru seldar á árinu. Spyr hann hvort hann geti sett fóðurkostn- að og annan kostnað á skýrsluna sem gjöld, og einnig hvort hann geti talið fasteignaskatta og fasteignatryggingu, rafmagn og hita, fyrningar og aðkeypta vinnu. Ef svo er, í hvaða reit skýrslunnar ber að færa þessi atriði? Svar: Fyrirspyrjandi telst hafa stofnað til atvinnurekstrar og ber að láta fylgja framtali sínu rekstrarreikning og efnahags- reikning. Á framtalið færast að- eins niðurstöðutölur í reiti 01, 62 eða dálk S1 eftir því sem við á, og reiknuð laun í reit 24. Skattar af hluta úr bújörð Lilja Þorbjarnardóttir, Birki- hvammi 9, Kópavogi, á hluta úr bújörð, sem ekki er búið á, og er hluti hennar metinn á rúmar 40 þúsund krónur. Skiptingu jarð- arinnar er ekki að fullu lokið vegna ósættis í þeim efnum og spyr viðkomandi hvort eignar- hlutinn sé skattskyldur, hvort telja eigi hann fram þar sem skiptum er ekki að fullu lokið, og hvar færa beri eignina á skattskýrsluna. Svar: Ef hér er um að ræða skiptingu á eign dánarbús og skiptum er ekki lokið í árslok ber dánarbúinu að telja eignir þess (og tekjur) fram og greiða af þeim álagða skatta. Fasteignagjöld ekki frádráttarbær Ólína Pálsdóttir í Völvufelli spyr hvort telja beri fasteigna- gjöld fram og iðgjald af innbús- tryggingu og hvort þessi gjöld komi til frádráttar. Svar: Nei. Ef íbúð er hins veg- ar leigð út má draga fasteigna- gjöldin frá leigutekjum. Ráðskonukaup ekki frádráttarbært Þorgils Arason hefur slitið samvistum við konu sína og spyr hvort hann hljóti frádrátt greiði hann konunni svokallað ráðs- konukaup og þá hvar telja eigi slíkt fram á skattseðli (skatt- framtali?). Svar: Nei. Sala á uppgerðri bifreið Ásmundur Guðmundsson, Kárs- nesbraut 119, spyr hvort maður, sem kaupir klesstan bíl, gerir hann upp og selur hærra verði en hann var keyptur á, geti talið fram eigin vinnu og varahluti til lækkunar á söluhagnaði? Svar: Beinan kostnað, s.s. kaup á varahlutum, skal bæta við kostnaðarverð bílsins en ekki eigin vinnu nema litið sé svo á að um atvinnurekstur sé að ræða. 1 því tilfelli færist eigin vinna til tekna í reit 24 á framtali. Flugleiðir fljúga þrjár sérstakar fraktferðir í febrúar frá New York til Keflavíkur. Flogið er frá New York þriðjudagana 12., 19. og 26. febrúar með Boeing 727 flugvél. Hafðu samband við sölumenn okkar og fáðu allar nánari upplýsingar. ÞETTA ER GREIÐ LEIÐ FYRIR ALLA ÞÁ SEM ANNAST INNFLUTNING FRÁ AMERÍKU FLUGLEIDIR FLUGFRAKT simi:27800

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.