Morgunblaðið - 08.02.1985, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 8. FEBRÚAR 1985
19
Heiðursborgari Reykjavíkur:
Kristján Sveinsson
læknir 85 ára
í dag er heiðursborgari
Reykjavíkur, Kristján Sveinsson
læknir 85 ára, en það var hinn
20. febrúar 1975, sem Borgar-
stjóm Reykjavíkur sæmdi
Kristján þessari virðingarstöðu
fyrir langt og frábært starf í
þágu borgarbúa.
Það fer ekki framhjá neinum,
sem hefur kynnst Kristjáni
Sveinssyni lækni, að hann er
sérstakur mannkostamaður, sem
hefur látið samborgara sína og
samtíð njóta góðs af þessum
miklu hæfileikum, enda hefur
hann um rúmlega 50 ára skeið
gegnt læknisstörfum hér í borg
af sinni alkunnu kostgæfni og
kunnáttu. Hafa þúsundir sjúkl-
inga hans getað borið þess vitni
og oftast án þess að hugsað sé
náið um hvort gjald kæmi fyrir.
Þeir eru margir bæði yngri og
eldri, sem hafa notið góðs af
læknisþjónustu hans. Augn-
sjúkdómar hafa verið sérstak-
lega tíðir hér á landi og því var
ómetanlegt að svo snemma
skyldu koma hingað heim frá
framhaldsnámi mjög hæfir
augnlæknar með Kristján
Sveinsson í broddi fylkingar,
sem snéru vörn í sókn gegn þess-
um sjúkdómum, sem svo oft ullu
blindu.
Eins og lesa má í minningabók
Kristjáns, hefur hann víða kom-
ið og látið gott af sér leiða.
Margar voru þær augnlækninga-
ferðir, sem hann fór út á land til
að sinna þeim sem erfitt áttu
með að komast til Reykjavíkur.
Víðfrægt er, hve mannglöggur
Kristján er, þekkir hann með
nafni ótrúlegan fjölda sjúklinga
og kann sjúkrasögu þeirra.
Þá hafa áhrif hans á sviði
kennslu í augnsjúkdómum í
læknadeild verið mikil, en hann
kenndi öllum læknastúdentum
um 20 ára skeið. Var þar ekki
aðeins um frábæra kennslu á
vandasamri grein læknisfræði
að ræða, heldur er ekki síður
mikilvægt, að slíkur kennari hef-
ur mikil persónuleg áhrif á verð-
andi lækna og kennir þeim jafn-
framt, hvernig koma á fram við
sjúklinga og gera þeim mest
gagn, en það hafa fáir gert eins
vel og Kristján Sveinsson á sinni
löngu starfsævi.
En langur vinnudagur og oft
strangur hefur ekki dregið
Kristján niður, heldur er það
svo, að fáir eru glaðari á manna-
mótum og nýtur sín þá vel hin
glettna frásagnargáfa hans, þar
sem öllum er lagt gott til, á glað-
væran hátt, án þess að særa
nokkurn.
Það er mikil gæfa að fá að
starfa langa og farsæla ævi að
verkefni, sem tekur hug manns
allan og sjá slíkan árangur af
starfi sínu. Kristján hefur verið
slíkur gæfumaður. Ég veit að
Reykvíkingar og aðrir lands-
menn óska Kristjáni til ham-
ingju í dag og þakka honum
frábær störf á liðnum árum.
Lifðu heill.
Páll Gíslason
Landsbyggðar kirkjur:
Messur á
HVAMMSTANGAKIRKJA: Barna-
guðsþjónusta á sunnudaginn kl.
11. Sr. Guðni Þór Ólafsson.
MELSTAÐAKIRKJA: Barnaguðs-
þjónusta kl. 14. Sr. Guðni Þór
Ólafsson.
fjármagn fæst til þessara mála.
Loftræsting var ekki með í upp-
hafi, nema lítillega á klósettum, en
það er með loftræstinguna eins og
geislahitann, þar er verið að bæta
úr.
Greinarhöfundur segir orðrétt:
„Það fer þá líka svo, að þeim
hólpna, sem þarna fékk inni, endist
sjaldan líf og heilsa." — Þessi setn-
ing er svo alvarleg, að ég vil beina
því til æðstu manna heilbrigðis-
mála að láta kanna réttmæti þess-
ara orða af hlutlausum aðila og í
beinu framhaldi af því, láta reyna
fyrir dómstólum réttmæti slikra
fullyrðinga. Vissulega kemur mér
það á óvart, þar sem meðalaldur
hefur hækkað á þessu heimili und-
anfarin ár.
Á fimm hjúkrunardeildum sem
eru á Hrafnistu Reykjavík er með-
alaldur eftirfarandi:
1978 á hjúkrunard. 83 ár á vistd. 81 ár.
1980 á hjúkrunard. 84 ár á vistd. 81 ár.
1982 á hjúkrunard. 84 ár á vistd. 82 ár.
1983 á hjúkrunard. 85 ár á vistd. 8214 ár.
1984 á hjúkrunard. 85,75 ár á vistd. 83 ár.
Spurningar um fótsnyrtingu og
læknisþjónustu getur hann kynnt
sér sjálfur og er það vart svara-
vert. Ef það er tilefni til blaða-
skrifa að neglur eru ekki klipptar
á fólki hjá okkur, þá eru vanda-
málin ekki stór. Hér starfar, að
sjálfsögðu, fótsnyrtikona, sem
sunnudag
SEYÐISFJARÐARKIRKJA: Á
morgun, laugardag, kirkjuskóli kl.
11. Messað á sunnudaginn kl. 14.
Organisti Sigurbjörg Helgadóttir.
Sr. Magnús Björnsson.
snyrtir fætur og hendur fólks,
fólki aö kostnaðarlausu, auk þess
sem baðkonur annast slíkt.
Við skulum hafa í huga ákvörð-
un og vilja einstaklingsins sjálfs
hér á Hrafnistu, hann segir sjálf-
ur til um sínar neglur og verða
þær jafnvel ekki klipptar nema í
samráði við hann, ekki eftir skip-
un gesta. Hér fær einstaklingur-
inn að halda sínum eiginleikum og
að sjálfsögðu er það hans ákvörð-
un sem ræður. Ég þekki þær
ágætu manneskjur persónulega.
Læknisþjónustan er að lands-
lögum og eftir samningum við
Læknafélag íslands, þar er best að
mér lærðari menn svari.
Ég tel að það fólk sem hér vinn-
ur við aðhlynningu eigi betra skil-
ið en dylgjur og aðdróttanir af
ónafngreindum aðila, sem senni-
lega hefur ekki inn á Hrafnistu
komið og felur sig undir öðru
nafni. Það er víst orðið í tísku að
finna að og slá því upp á prenti,
helst í einhverjum æsifréttastíl.
Allt of fáir gefa sér tíma til að
skoða sjálfir málin, en það bauð ég
Jóni Daníelssyni, blaðamanni
Nútimans, sem sér um þessa les-
endasíðu, ásamt „Hrafnistugesti".
Kafn Sigurdsson er forstjóri Hratn-
istu.
Beskytteren við Ægisgarð
Danska varöskipið Beskytteren liggur við Ægisgarð í Reykjavíkurhöfn. Skipið er notað tíl gæslusUrfa
við Grsnland og kom hér við. Beekytteren kom á miðvikndag og fér aftur mestkomandi mánudag.
•'■'•■ •••' - •-%
SUMIR VERSLA DÝRT
AÐRIR VERSLA .
HJÁ OKKUR >
Kynnum 1 dag í Mjóddinni:
Columbia kaffi. Vorrúllur.
og Tilbúna Avaxtagrauta.
KYNNINGARVERÐ
Kynnum í Austurstræti:
5^ Mastró súpur ^
VERÐ SEM ÞOLA SAMANBURÐ.
Lambalifur ^Q.OO
Kjúklingar 5 stk. J ýg .00
Nautahakk 1. fl.J^ .00
1 kg. Egg 99
Spar tekex 17 .00 pr.pk.
Blandaðir ávextir ^Q.OO
^ 1/1 dós
Fransman franskar CQ.00
lV2kg. 700gr.
Appelsínur 39.OO
Rauð Deiidus Epli 48 ss
Silkience Shampó 250 ml. iTA
Silkience Hárnæring l) JS pr.ig.
Opið til kl. 19 í Starmýri og Austurstræti,
en til kl. 21 í Mjóddinni
VÍÐIR
STARMÝRI 2 AUSTURSTRÆT117 MJÓDDINNI