Morgunblaðið - 08.02.1985, Page 22

Morgunblaðið - 08.02.1985, Page 22
22 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 8. FEBRÚAR 1985 cauWa AMERÍKA PORTSMOUTH/NORFOLK City of Perlh 11. febr. Laxfoss 19. feb. Bakkafoss 1. mar. City of Perth 13. mar. NEWYORK City of Perth 9. feb. Laxfoss 17. feb. Bakkafoss 27. feb. City of Perth 11. mar. HALIFAX Laxfoss 22. feb Laxfoss 25. mar. BRETLAND/MEGINLAND IMMINGHAM Eyrarfoss 17. feb. Alafoss 24. feb. Eyrarfoss 3. mar. Alafoss 10. mar. FELIXSTOWE Eyrarfoss 18. feb. Álafoss 25. feb. Eyrarfoss 4. mar. Álafoss 11. mar. ANTWERPEN Eyrarfoss 19. feb. Álafoss 26. feb. Eyrarfoss 5. mar. Álafoss 12. mar. ROTTERDAM Eyrarfoss 20. feb. Álafoss 27. feb. Eyrarfoss 6. mar. Álafoss 13. mar. HAMBORG Eyrarfoss 21. feb. Alafoss 28. feb. Eyrarfoss 7. mar. Alafoss 19. mar. GARSTON Fjallfoss 19. feb. USSABON Skeiösfoss 6. mar. LEIXOES Skeiösfoss 7. mar. BILBAO Skeiösfoss 8. mar. NORÐURLÖND/- EYSTRASALT BERGEN Reykjafoss 8. feb. Skógafoss 16. feb. Reykjafoss 22. feb. Skógafoss 1. mar. KRIST1ANSAND Reykjafoss 11. feb. Skógafoss 18. feb. Reykjatoss 25. feb. Skógafoss 4. mar. MOSS Reykjafoss 12. feb. Reykjafoss 26. feb. Skógafoss 5. mar. Reykjafoss 12. mar. HORSENS Skógafoss 21. teb. Skógafoss 7. mar. GAUTABORG Reykjafoss 13. feb. Skógafoss 20. feb. Reykjafoss 27. feb. Skógafoss 6. mar KAUPMANNAHÖFN Reykjafoss 14. feb. Skógafoss 22. feb. Reykjafoss 28. feb. Skógafoss 8. mar. HELSINGJABORG Reykjafoss 15. feb. Skógafoss 22. feb. Reykjafoss 1. mar. Skógafoss 8. mar. HELSINKI Vessel 4. mar. ÞÓRSHOFN Reykjafoss 18. feb. Skógafoss 25. feb. VIKULEGAR STRANDSIGLINGAR -fram ogtil baka fra REYKJAVIK alla manudaga fra ISAFIRÐI alla þnðjudaga fra AKUREYRI alla fimmtudaga EIMSKIP * Bandaríkin: Á þriðja þús- und Kúbumenn sendir heim á ný AtUnU, 7. febrúar. AP. Á NÆSTU þremur til fjórum vik- um verda tæplega þrjú þúsund Kúbumenn, sem nú eru í fangels- um eða á geðveikrahælum í Eldur olli tjoni í Wilson- höll í Genf Genf, 6. febrúar. AP. ELDIIR kom upp í hinni sögu- frægu Wilson-höll við Genfar- vatn í dag, miðvikudag, og olli talsverðu tjóni á byggingunni, sem eitt sinn var íburðarmikið hótel og fyrsta aðsetur Þjóða- bandalagsins. Húsið hefur verið í eigu Genfar frá 1966 og er notað undir skrifstofur á vegum borgarinnar. Bandaríkjunum, fluttir til heima- lands síns, að því er Louis Richard, yfirmaður útlendingaeftirlitsins í Atlanta, greindi frá í gær. Kúbumenn þessir komu til Bandaríkjanna í „frelsisflotan- um“ svonefnda árið 1980, þegar 125 þúsund manns flúðu frá Kúbu sjóleiðina. Að sögn Rich- ards fara þeir ekki heim aftur af fúsum vilja, heldur eru fluttir nauðugir viljugir. „Þeir munu streitast á móti og berjast um á hæl og hnakka," sagði hann. Lögfræðingar Kúbumannanna hafa reynt að koma í veg fyrir að þeir verði sendir heim. Hafa þeir haldið því fram að fólkið muni sæta ofsóknum í heimalandi sínu vegna flóttans. Samkvæmt samkomulagi, sem bandarískir og kúbanskir emb- ættismenn gerðu með sér í des- ember, verða samtals 2.746 Kúbumenn sendir heim. Banda- ríkjastjórn heldur því fram að margir þessara manna sé hættu- legir umhverfi sínu. Allir um borð Hópur ísraelskra hermanna, sem nýkomnir eru frá Líbanon, klifra upp á herbíl á landamærum Líbanon og ísrael fyrir lokasprettinn heim. una ekki sam- við Sue Ellen Df rt að • • • o >c • jofnuði BANDARÍSKI sjónvarpsmyndaflokkurinn Dallas heldur enn athygli fólks í Bretlandi, en núna undanfarið hafa sjónir manna beinst að réttarsal einum í London, þar sem málaferli hafa staðið yfir í u.þ.b. vikutíma. Ástæðan til þess að málið hefur vakið svo mikla eftirtekt er sú, að þar hefur beinlínis verið tekist á um, hvort mönnum bæri réttur til að leyfa sér dálitla gamansemi á opinberum vettvangi, þ.e.a.s. án þess að eiga á hættu að vera dregnir fyrir dóm fyrir að hafa komist hnyttilega að orði. Árið 1981 skrifaði Jonathan Aitken, þingmaður íhaldsflokks- ins í Thanet South-kjördæmi, grein í tímaritið East Kent Critic, þar sem hann þóttist sjá ýmsar hliðstæður í stjórnmálalífi kjör- dæmisins og bandaríska sjón- varpsmyndaflokknum Dallas. 1 greininni líkti Jonathan Aitk- en konu nokkurri, Hazel Pinder- White, sem er áberandi einstakl- ingur í kjördæminu, við eina af höfuðpersónum Dallas-þáttanna, Sue Ellen. Eins og þeim, sem þekkja til myndaflokksins, mun kunnugt á Sue Ellen við áfengisvandamál að stríða. Og Hazel Pinder-White hikaði ekki augnablik, heldur hóf meiðyrðamál á hendur hinum orð- hvata þingmanni. Málið var í síðustu viku lagt fyrir 12 manna kviðdóm og fór mikið af tíma dómsins í að skoða myndbönd með Dallas-þáttunum til þess að dómendum gæfist kost- ur á að setja sig sem best inn í allar aðstæður þar á bæ. En ekki varð það til að létta þeim dóms- uppkvaðninguna. Sue Ellen (Linda Gray) — með glas- ið við höndina. Eftir þriggja og hálfs tíma um- hugsun spurði dómarinn hvort kviðdómurinn hefði komist að ákveðinni niðurstöðu. Svarið var „nei“. Dómarinn tilkynnti þá, að meirihlutaákvörðun yrði látin ráða úrslitum málsins, og eftir að dómendurnir höfðu enn ráðgast sín á milli drjúga stund kom svar- ið: Jonathan Aitken var með öllu sýknaður. „Ég er ákaflega ánægður með þessi málalok," sagði Aitken, eftir að dómurinn hafði verið upp kveð- inn. „Ef ég hefði tapað málinu hefði enginn verið ugglaus í fram- tíðinni að grínast svolítið á opin- berum vettvangi." Hazel Pinder-White, sem tapaði málinu, var ekki margmál eftir dómsuppkvaðninguna. Og það er kannski ekki að undra. Það kemur nú í hennar hlut að greiða máls- kostnaðinn, u.þ.b. 1,1 til 1,3 millj- ónir íslenskra króna. Nicaragua: Ræðum við Sandinista þegar við höfum umkringt Managua — segir Pastora, einn af leiðtogum skæruliða Miami, Flórdía, 7. febrúar. AP. EDEN Pastora, einn af foringjum skæruliða, sem berjast gegn herstjórn- inni í Nicaragua, segir að hann sé reiðubúinn til að sameina samtök þau, sem hann er í forystu fyrir, öðrum skæruliðahópum í landinu, en þá hafi hann líka í huga hernaðarlegt samstarf, en ekki aðeins samvinnu í friðarviðræðum. „Sameiningin verður að verða til þess að efla hina vopnuðu baráttu í Nicaragua," sagði Pastora við blaðamenn, sem hann hitti á Miami í Flórída, þar sem hann er nú staddur. Adolfo Calero, sem er leiðtogi lýðræðisfylkingarinnar í Nicar- agua, annarra skæruliðasam- taka sem hafa um 12.000 menn undir vopnum, hefur skýrt frá því, að á fundum á Miami og Washington á sl. tíu dögum hafi náðst samkomulag um samein- ingartillögur, sem bornar verða undir leiðtoga allra skæruliða- hópana. Calero segir að jafnframt sé hugmyndin að gera stjórn Sand- inista í Nicaragua „lokatilboð um friðarviðræður", eins og hann orðaði það. „Við eigum eftir að eiga ein- hvers konar viðræður við komm- únistastjórnina í Managua, en það verður ekki fyrr en við höf- um umkringt höfuðborgina," sagði Pastora hins vegar. „Við- ræðurnar munu snúast um valdaafsal til okkar og um það með hvaða hætti kommúnistar ætla að búa áfram í landinu eða yfirgefa það,“ bætti hann við. Calero viðurkenndi að það væri mikilvægt fyrir skæruliða- hreyfingarnar í Nicaragua að sýna merki um samstöðu og samvinnu ef þær ættu að eiga möguleika á fjárhagslegum stuðningi Bandaríkjastjórnar. Þingið í Washington samþykkti í sumar sem leið, að hætta slíkum stuðningi.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.