Morgunblaðið - 08.02.1985, Blaðsíða 25

Morgunblaðið - 08.02.1985, Blaðsíða 25
24 25 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 8. FEBRÚAR 1985 MORGUNBLAÐID, FÖSTUDAGUR 8. FEBRÚAR 1985 fHwgtu Otgefandi itMftMfe hf. Árvakur, Reykjavík. Framkvæmdastjóri Haraldur Sveinsson. Ritstjórar Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. Aöstoöarritstjóri Björn Bjarnason. Fulltrúar ritstjóra Þorbjörn Guömundsson, Björn Jóhannsson, Árni Jörgensen. Fróttastjórar Freysteinn Jóhannsson, Magnús Finnsson, Sigtryggur Sigtryggsson, Ágúst Ingi Jónsson. Auglýsingastjóri Baldvin Jónsson. Ritstjórn og skrifstofur: Aöaistræti 6, sími 10100. Auglýsingar: Aö- alstræti 6, simi 22480. Afgreiösla: Kringlan 1, sími 83033. Áskrift- argjald 330 kr. á mánuði innanlands. í lausasölu 25 kr. eintakiö. Varðhundahald á öllum sviðum Almenningur er þessa dag- ana að huga að skatt- skýrslunni sem ber að skila á sunnudagskvöldið. Á sama tíma hefur fjármálaráðu- neytið, yfirstjórn skattamála, efnt til auglýsingaherferðar þar sem segir meðal annars: „Skattsvikarinn er innbrots- þjófnum engu betri, en fórnar- lömbin margfalt fleiri — hver einasti heiðarlegur framtelj- andi.“ Og í sömu herferð er samneysla hafin á stall og leit- ast við að sannfæra menn um að telja rétt fram og með góðri samvisku. Vonandi verða góðar heimt- ur hjá ríkissjóði. Deilurnar um tvær þjóðir á íslandi snúast ekki einungis um tekjuskipt- inguna heldur mismunandi að- stöðu borgararanna gagnvart skattyfirvöldum. Morgunblaðið vill á hinn bóginn vara Albert Guð- mundsson, fjármálaráðherra, eindregið við efni auglýsing- anna sem sendar eru út í hans nafni. Blaðið telur að unnt sé með mun áhrifameiri hætti en þeim að þjófkenna fólk og syngja ríkishítinni lof og dýrð að laða íslendinga til öflugs sameiginlegs átaks í fjármál- um. Fyrir stjórnmálamennina er brýnast að sjá til þess að vel sé farið með þá fjármuni sem teknir eru með skattheimtu. Á því hefur oftar en einu sinni orðið alvarlegur misbrestur. Þá er ekki síður mikilvægt að með sanngirni sé staðið að skatt- heimtu, skattareglur séu rétt- látar og svíðingsháttur ein- kenni ekki framgöngu skattyf- irvalda. Varðhundahald hins opin- bera kerfis hefur því miður ekki minnkað hin síðari mis- seri. Hefðu menn þó haldið að Albert Guðmundsson, fjár- málaráðherra, myndi beita sér fyrir auknu frjálsræði á sem flestum sviðum og dregið yrði úr afskiptasemi kerfisins. Lítið dæmi um ofríkishátt og varð- hundahald er sú regla sem upp var tekin þegar Tollpóststofan flutti í nýtt húsnæði við Ár- múlann í Reykjavík að hætta að dreifa bókum til hverfis- pósthúsa en krefjast þess af mönnum að þeir gengju fyrir tollheimtumennina í Ármúlan- um, gerðu grein fyrir sér og verðmæti bókar, biðu tímunum saman eftir afgreiðslu, greiddu skattinn og fengju náðarsam- legast að taka við hinni erlendu bók. Um söluskatt á bókum geta menn haft sínar skoðanir. Þeir sem kaupa bækur sjálfir og milliliðalaust myndu vafalaust möglunarlaust borga eitthvert opinbert bókajöfnunargjald í ríkishítina, ef þeir gætu með því losnað undan þeirri áþján að þurfa að komast í snertingu við kerfið, svipleysi þess og stirðbusahátt. Undan þessu lít- ilvæga atriði hefur áður verið kvartað hér á þessum stað. Auðvitað hefur kerfið ekki séð neina ástæðu til að koma til móts við þær kvartanir á þann veg að máli skipti fyrir borgar- ana. Hvernig væri að fjármála- ráðherrann eyddi svo sem fimm mínútum til að kynna sér þetta mál og púa síðan á kerf- ið? Varðhundahaldi ríkisins eru engin takmörk sett af ríkinu sjálfu. Til að sporna við því verða borgararnir sjálfir að grípa til sinna ráða. Sann- gjarnar skattareglur, góð fjár- málastjórn ríkisins og vin- samleg afstaða almennings til hins opinbera kerfis eru bestu úrræðin gegn skattsvikum — engin auglýsingaherferð breyt- ir því viðhorfi. Skrifaöu flugvöll Af og til verða umræður um Reykjavíkurflugvöll og framtíð hans. Afstaða til þess máls ræðst af mörgu. Hér og nú verður hvorki rætt um völl- inn né framtíð hans. En í Dag- blaðinu-Vísi í gær lýsir Albert Guðmundsson, fjármálaráð- herra, því allt í einu yfir, að það eigi að fara með flugvöll- inn burt úr Reykjavík og til Keflavíkur. Og fjármálaráð- herra segir: „Fjárhagslegir hagsmunir verða að víkja fyrir meiri hagsmunum." Eins og kunnugt er hafa ís- lendingar einir ekki bolmagn til að smíða nýja flugstöð á Keflavíkurflugvelli, þeir hafa ekki heldur bolmagn til þess að smíða einir nýjan, fullkomin varaflugvöll utan höfuðborgar- svæðisins. Er það rétti tíminn nú fyrir fjármálaráðherra að lýsa því yfir, að fjárhagslegir hagsmunir verði að víkja og Reykjavíkurflugvöllur líka? Gæfa stjórnmálamanna ræðst mjög af því að þeir hafi rétt pólitískt tímaskyn. Albert Guðmundsson hefur ekki skort það í baráttu sinni til stjórn- málaframa. Hitt má efast um að hann hafi nægilega glöggt tímaskyn sem fjármálaráðh- erra. Ástæðulaust er að fram- tíð Reykjavíkurflugvallar taki hug fjármálaráðherra allan nú um stundir. Fr elsunar guð fr æðin í rómönsku Ameríku — eftir Torfa Úiafsson Eitt þeirra orða, sem hafa tekið sér bólfestu í tungu okkar síðast- liðin ár, er „frelsunarguðfræði". Er það þýðing heitisins „liberation theology" sem komst fyrir alvöru á kreik nokkru eftir lok II Vatík- anþingsins (1962—65) og þó sér- staklega eftir fund biskupa róm- önsku Ameríku í Medellín í Kól- umbíu 1986. Á þeim fundi urðu biskuparnir sammála um að al- menn mannréttindi væru svo fót- um troðin i þeim heimshluta, auði svo hróplega misskipt og vald- níðslu beitt í svo ríkum mæli að það byði heim uppreisn og blóðs- úthellingum ef ekki yrði ráðin ein- hver bót á þessum hörmungum. Þessi sannleikur hafði að visu um langan aldur hlasað við öllum sem vildu sjá hann, en þar sem neyð og örbirgð er landlæg, vaxa menn upp við ástandið án þess að veita því sérstaka athygli. „Þetta hefur bara alltaf verið svona," segja menn. Fornir hnútar leystir Jóhannes XXIII páfi kvaddi saman II Vatíkanþingið 1962 til þess að „opna alla glugga og hleypa inn hreinu lofti," eins og hann orðaði það. Og loftstraumur- inn varð svo mikill að sumum þótti nóg um. Allt var tekið til endurmats. Það hrikti í gömlum stoðum og hinir íhaldssamari menn óttuðust að kirkjan væri að liðast sundur. Ottaviani kardínáli sagðist t.d. vona að hann fengi að „deyja í kirkju sem enn væri kaþ- ólsk“. Það sem í raun og veru gerð- ist var það að þróun, sem annars hefði orðið smám saman á hálfri fimmtu öld, átti sér nú stað á fá- einum árum. Þegar mest fór að gefa á bátinn á siðaskiptatíman- um, var allt bundið fast sem bund- ið varð á fleyi Péturs, svo að því skolaði ekki fyrir borð, en nú var allt í einu farið að leysa hina fornu hnúta og þá tóku menn að óttast, fannst sem hinn ramm- byggði veggur, sem þeir höfðu alltaf getað stutt sig við, væri tek- inn að riða geigvænlega. Ekki var þó svo að skilja að ný grundvallaratriði kæmu til sög- unnar á Vatíkanþinginu. ÖU þau atriði, sem þar voru rædd, höfðu ævinlega verið til í kirkjunni, t.d. trúfrelsi, samviskufrelsi, réttur hvers manns til óskerðanlegs lífs og viðurværis, jafnrétti manna o.s.frv. Það sem breyttist var því fyrst og fremst að ný áhersia var lögð á það sem áður hafði að nokkru leyti legið í skugga; rykið var dustað af gömlum sannindum. En því gat fylgt sú áhætta að þau atriði, sem legið höfðu rykfallin um langan aldur yrðu nú gerð að höfuðatriðum, þótt þeim hefði aldrei verið ætlað það. Slík atriði voru t.d. frelsið og jafnréttið, þ.e. hin félagslega hlið kristninnar. Bæði þessi atriði eru góð og lofsverð og þættir í kenn- ingu Krists um kærleikann, en kenningin snýst ekki fyrst og fremst um þau. Kristin kenning er sú að Guð hafi skapað heiminn, mennina hafi borið svo háskalega af réttri leið að Guð hafi sent þeim son sinn til að leiða þá á rétta braut, með þeim algera kærleika sem dregur ekkert und- an, gefur sjálfan sig, framselur sig jafnvel til þjáninga og dauða fyrir mennina, rís síðan upp frá dauð- um og er með mönnunum, í boðun sinni og sakramentum, allt til enda veraldar. Og allt þetta gerir Guð af kærleika til mannanna og sýnir þeim með því, hvernig þeir eigi að lifa lífi sínu, í kærleika til allra manna, jafnvel reiðubúnir til að þjást og deyja fyrir bræður sí- na og systur. En þessari kenningu, umfram allt kenningunni um kærleikann, hefur mönnum tekist furðanlega vel að gleyma í rás al- danna. Og þess vegna er heimur- inn eins og hann er. Fólkið og kærleikurinn Það sem skeð hefur í rómönsku Ameríku er að biskupar, prestar og aðrir kristnir menn hafa loks ekki getað lengur orða bundist um hversu „eftirbreytendur Krists" Torfi Ólafsson hafa gersamlega stungið kærleiks- boðorði meistara síns undir stól. Fólkið, börn Guðs sem Kristur lif- ir áfram í, hefur verið „notað“ sem vinnudýr, því hefur verið þrælað út fyrir smánarlaun og fleygt til hliðar, þegar ekki var þörf fyrir það lengur, án þess að þvi væru gefnir neinir möguleikar á því að framfleyta sjálfum sér og fjöl- skyldum sínum. Þetta fólk er al- snautt og lítt menntað og ef það hefur hreyft andmælum, hefur svipan dunið á holdi þess, og þeirri svipu stjórna menn sem kalla sig kristna, játa í orði kveðnu kær- leiksboðorðið! Jafnframt því alhliða endur- mati, sem fór fram innan kaþ- ólsku kirkjunnar á Vatíkanþing- inu og eftir það, fóru biskupar, prestar, klausturfólk og leikmenn að virða fyrir sér það sem alltaf hafði blasað við þeim en þeir höfðu ekki tekið eftir eða ekki kos- ið að taka eftir, einmitt af því að það hafði alltaf verið fyrir augun- um á þeim. Nú fór það að tíðkast í síaukn- um mæli að stofnað væri til svonefndra „grasrótarhópa". Það voru smáhópar manna sem stjórn- að var af prestum, systrum eða hæfum leikmönnum og miðuðu að því að kenna fólkinu og gera það hæfara til að bjarga sér og heimta rétt sinn sem frjálsar manneskj- ur. Stefnt var að því að fólkið tæki sjálft frumkvæðið en sækti ekki allt til annarra. Valda- og auð- stéttum líkaði þetta stórilla því að gróði þeirra byggðist á ódýru vinnuafli. Hinum íhaldssamari armi kirkjunnar leist ekki allskostar á þessa þróun. Yfirgnæfandi meiri- hluti manna í rómönsku Ameríku er rómversk-kaþólskur, en presta- fæð er þar mikil svo að sumstaðar verður einn prestur að þjóna um það bil 10.000 manns. Af því leiðir að trúarleg uppfræðsla fólksins er víða í lágmarki. Því fylgir sú hætta að ef því er boðin girnileg hugmyndafræði, sem lofar betra lífi og lausn frá skorti og kúgun, er þetta fólk ekki nógu vel að sér til að halda fast við trú sina og verja hana og getur því auðveld- lega glatað henni. Vatikanið gagnrýnir Vatíkanið hefur gagnrýnt frels- unarguðfræðina og bent réttilega á að kirkjan sé annað og meira en félagsleg endurbóta- eða bylt- ingarhreyfing. Félagslegi þáttur- inn sé aðeins einn þáttur hins margþætta boðskapar kirkjunnar og ekki megi draga hann út úr heildinni og gera hann að höfuð- atriði. Kirkjustjórninni er full- ljóst við hvaða hörmungar at- vinnuleysingjar og annað um- komulaust fólk á við að búa í róm- önsku Ameríku, eins og raunar víðar, enda hefur Jóhannes Páll II páfi oft deilt hart á misskiptingu auðsins og bent handhöfum hans á að þeim sé skylt sem kristnum mönnum að deila auði sínum með þeim sem líða skort, enda eru jarðneskar eignir ekki annað en lán frá Guði, sem sumir hafa skammtað sér nokkuð ríflega af. Þá hefur kirkjustjórnin varað við því að nálgast marxismann um of. Að vísu sé hægt og ekki rangt að beita þjóðfélagslegri skilgrein- ingu marxismans við könnun þjóð- félagsástandsins í löndum á borð við rómönsku Ameríku, en kirkjan getur með engu móti fallist á að marxiskum aðferðum sé beitt við lausn vandamálanna, þ.e. uppreisn öreiga gegn auðvaldi í því skyni að koma á kommúnisma. Kommún- isminn byggist, eins og kunnugt er, á díalektiskri efnishyggju (árekstri tveggja andstæðna sem útrýma hver annarri svo að loks verður til þriðja atriðið — öreigar og auðvald berjast og á rústum þeirra skapast hið stéttlausa þjóð- félag). Efnishyggjan hafnar Guði og þar með er hún kirkjunni óað- gengileg og andstæð. Við þurfum ekki annað en skyggnast um í kommúnistalöndunum til að sjá, hversu ósættanleg öfl kommún- isminn og kristindómurinn eru. Tilraunir ýmissa marxista til að koma á viðræðum og jafnvel sam- komulagi við kirkjuna, minna mig á kvikmynd sem sýnd var fyrir alllöngu og sagði frá manni sem hafði gert þrjár tilraunir til að ráða konu sína af dögum. Þegar hann reynir í fjórða sinn og konan grunar hann um græsku, segir hann: „Why don’t you trust me, Nellie?" Þáttur presta Enn hefur Vatíkaninu ekki get- ist að því að prestar taki beinan þátt í stjórnmálabaráttu. Það hef- ur þó skeð og nægir að benda á prestana fjóra sem sitja í ríkis- stjórn Nicaragua. Prestar hafa meira að segja tekið þátt í beinum vopnaviðskiptum og fallið (t.d. Camillo Torres, 1966). Prestvígslan er heilög vígsla i kirkjunni og að taka á móti henni er ekki sambærilegt við að ráða sig t.d. í vegavinnu. Presturinn hefur á hendi helga þjónustu í þágu fólksins og þá þjónustu hefur hann heitið að inna af hendi til dauðadags. Hann getur því ekki hlaupist á brott frá þjónustu sinni og ráðið sig til veraldlegs starfs nema fá áður lausn frá prestþjón- ustu. Geri hann það engu að síður, á kirkjan ekki annars úrkosta en svipta hann leyfi til prestþjón- ustu. Hinsvegar getur presturinn, jafnframt þjónustu sinni, unnið margvísleg afrek í þágu hinna kúguðu og má nefna sem dæmi um slika menn Dom Helder Camara erkibiskup í Brasilíu, og Oscar Romero erkibiskup í E1 Salvador sem handbendi ríkisvaldsins, dauðasveitirnar alræmdu, myrtu fyrir altarinu þar sem hann var að syngja messu árið 1980. Góðir og heiðarlegir prestar, sem þora að segja sannleikann, eru alltaf illa séðir í einræðis- og ofbeldisríkj- um. Nasistar drápu þá marga og kommúnistar hafa ýmist brytjað þá niður í sínum löndum eða hneppt þá í fangelsi eða þrælkun- arvinnu. Er skemmst að minnast séra Popieluszko sem myrtur var í Póllandi á sl. ári, af sjálfri „lög- reglunni". Það er ekki af fylgispekt við íhaldsöfl sem kirkjan varar við öfgum í frelsunarguðfræðinni. Kirkjan er ekki bundin neinni pólitík en hún hlýtur að hafna þeim stefnum sem vilja hana feiga. Löng og ströng barátta Hugsunin bak við frelsunarguð- fræðina er góð; samúð með hinum kúguðu og vilji ti að leysa vanda þeirra. Það verður bara að stjórna þessari viðleitni til úrbóta þannig að hún leiði fólkið ekki úr öskunni í eldinn. Enginn getur borið Jó- hannesi Páli páfa það á brýn að hann sé að vara við einhverju sem hann þekki ekki. Hann óx upp og starfaði í kommúnistalandi og hann vill ekki þurfa að horfa á bræður sína og systur í kirkjunni leiða yfir sig kommúnisma fyrir vanþekkingu og einfeldni, jafnvel þótt fólki standi til boða að losna í staðinn við núverandi kvalara sína. Hinsvegar verður kirkjan að standa ótrauð við hlið fólksins i frelsisbaráttu þess. Ef hún kysi sér stöðu með þeim sem á svipunni halda nú, væri hún þar með að reka fólkið í fangið á kommúnism- anum, því til þess er engin von að þetta umkomulausa fólk sætti sig öllu lengur við sín aumu lífskjör. Róm var ekki byggð á einum degi og frelsi og réttlæti verður ekki heldur komið á í einni svipan. Bylting leysir engan vanda, hún flytur svipuna aðeins í hendur annarra harðstjóra og hörmung- arnar halda áfram, f nokkurn veg- inn sama farvegi. Um það ber sag- an óbrigðult vitni. Baráttan fyrir frelsi og mannréttindum verður vafalaust löng og ströng, en hana verður að heyja af viti og fram- sýni, fremur en tilfinningahita. Og ofbeldi verða kristnir menn að útiloka, því að ofbeldi leiðir aðeins til nýs ofbeldis. Gleymum ekki vísdómsorðunum í Síraksbók: „Sá er ætlar að gjöra gott með ofbeldi, líkist geldingi er leggst hjá meyju.“ Torfí Ólafsson er formaður félags kaþólskra lcikmanna. Akranes: Stærsta skip sem komið hefur í skipalyftuna AkraneNÍ, 7. febrúar. MIKIL vinna hefur verið í skipa smíðastöð Þorgcirs & Ellerts hf. á Akranesi í vetur og mun meiri en búist var við. Mest hefur verið um viðgerðar- vinnu að ræða og eins vélaskipti í skipum. Nú eru tvö skip í véla- skiptum, skuttogararnir Skipa- skagi frá Akranesi og Ásbjörn frá Reykjavík, en hann mun vera stærsta skip, sem tekið hefur verið upp í skipalyftunni á Akranesi. Að sögn forráðamanna fyrirtækisins eru menn bjartsýnir á að næg verkefni verði hjá fyrirtækinu á næstu mánuðum, þó harla lítið verði um nýsmíðaverkefni. — JG Gunnþórunn Gunnlaugsdóttir tekur sæti á Alþingi: „Held ég sé fyrsta konan á þingi fyrir Austurlandskjördæmi“ Gunnþórunn Gunnlaugsdóttir frá Seyðisfirði, 2. varaþingmaður Sjálfstæðisflokksins í Austur- landskjördæmi, tók sl. mánudag sæti í fyrsta skipti á Alþingi, og kem- ur hún nú inn á þing fyrir Sverri Hermannsson. „Ég held þetta sé í fysta sinn sem kona kemur inn á þing fyrir Austurlandskjördæmi," sagði Gunnþórunn í stuttu spjalli við blm. Mbl. Aðspurð um hvað vekti helst athygli hennar, þessa fyrstu daga hennar á þingi, sagði Gunn- þórunn: „Þetta eru nú ekki nema þrír dagar sem ég hef verið hér, svo ég læt vera að nefna einstök mál. Þó er alveg ljóst að það eru ráðstafanir í efnahagsmálum sem brýnastar eru nú, og vonandi tekst að afgreiða þær frá þingflokki Sjálfstæðisflokksins síðdegis í dag. Annars hefur það verið mikil og lærdómsrík reynsla að fá að setjast á þing og mér hefur verið afskaplega vel tekið. Reyndar leið mér fyrsta daginn eins og ég væri sest á skólabekk á ný, en vonandi lærist þetta áður en langt um líð- ur.“ — eftir Valgerði Bjarnadóttur Um síðastliðna helgi hélt Bandalag jafnaðarmanna annan landsfund sinn. Samkoma þessi varð þess valdandi að um helgina og eftir hana varð nokkur umræða i fjölmiðlum um bandalagið, hins vegar ekki sem skyldi um stefnu- mál þess. Sú leynd sem fjölmiðlar gjarnan bregða á stefnumál BJ er hins vegar ekki forsvarsmönnum BJ að kenna, heldur gæzlumönn- um núverandi ástands í stjórn- málum og stjórnmálaumræðu sem ekki telja sér í hag, að mönnum sé stefna og um leið sérstaða BJ of ljós. I annað skipti á tveim mánuðum er yfirskrift ritstjórnargreinar þessa virðulega blaðs: „Bandalag jafnaðarmanna". f hvorugt skiptið hefur virðulegur (að slæmri venju blaðsins nafnlaus) höfundur rit- stjórnargreinarinnar fjallað um stefnu BJ heldur verið með al- mennt röfl kerfiskarlsins um að BJ verði að kveða upp úr um hvar í fjósi fjórflokkanna BJ vilji vera. Það virðist rétt að upplýsa leið- arahöfunda Morgunblaðsins og aðra áhugamenn um stjórnmál, sem hafa jafn víðan sjóndeild- arhring og þeir, um að BJ vill ekki vera í fjósi. Bandalag jafnaðarmanna var stofnað fyrir tveim árum af áhug- afólki um stjórnmál, sem andsvar við fjórflokkunum. Undanfarna áratugi hafa fjórflokkarnir ekki einungis skipt með sér völdum, heldur einnig fjármunum og fjöl- miðlum þessa lands, svo eitthvað sé nefnt. Ég held, að það þurfi ekki yfirlýsta stuðningsmenn BJ til að sjá, að siðasta áratuginn að minnsta kosti hefur starf þessara stjórnmálaflokka ekki skilað þjóð- inni fram á við. Fjórflokkarnir hafa ekki breytzt vitundarögn á þeim tveim árum, sem liðin eru síðan BJ var stofnað. Þess vegna er BJ ennþá til og mun verða enn um sinn. Stjórnmálaályktun BJ samþykkti á landsfundi eft- irfarandi stjórnmálaályktun: Nýtt afi — Nýjar leiðir Á Islandi býr þjóð í vanda. Ræt- ur hans má rekja til fáranlegrar miðstýringar fjármagns og heilla atvinnugreina, kjördæmapots og sérhagsmunavörzlu stjórnmála- manna. Á þessar rætur verður höggvið með eftirtöldum hætti: 1. í kosningum til Alþingis verði landið eitt kjördæmi og vægi atkvæða jafnt. Stofnað verði til öflugra heimastjórna í héruð- um. Ríkisstjórn verði kjörin beinni kosningu. 2. Fámennisvald í verkalýðs- hreyfingu og samtökum at- vinnurekenda verði brotið á bak aftur með samningum á vinnustöðum. Fámennisvald í viðskiptalífinu svo sem hjá SÍS verði afnumið með auðhringa- löggjöf. Með fullri virðingu fyrir stjórn- málayfirlýsingum yfirleitt, þá er þetta ein sú róttækasta og gagn- orðasta, sem ég hef augum litið. Tólf línur Þeir sem hafa atvinnu af að flytja Islendingum fréttir höfðu m.a. þetta að segja. Fréttamanni útvarpsins fannst merkilegast að samþykktin var einungis 12 línur. Blaðamanni Morgunblaðsins fannst merkilegast að málfrelsi var ekki afnumið á fundi og menn skiptust á skoðunum m.a. um, hvort fámennisvald og völd fárra manna væri eitt og hið sama. Að gefnu tilefni ætla ég að reyna að skýra fyrir þessum ágætu mönnum inntak stjórnmálaálykt- unarinnar. í kosningum til Alþingis verði landið eitt kjördæmi og vægi atkvæða jafnt. Þessi setning felur í sér að óþol- Valgerður Bjarnadóttir andi mismunun þegnanna verði afnumin. Búseta ylli því ekki leng- ur að Vestfirðingur hafi margfalt meiri áhrif en Reyknesingur á samsetningu löggjafarsamkund- unnar. Þeir ágætu menn (konur eru líka menn), sem sitja fyrr- greinda virðulega samkundu, hefðu frekar heill allrar þjóðar- innar en einstakra byggðarlaga í huga í störfum sínum. I einu vet- „Undanfarna áratugi hafa fjórflokkarnir ekki einungis skipt með sér völdum, heldur einnig fjármunum og fjölmiðl- um þessa lands, svo eitthvað sé nefnt. Ég held, að það þurfi ekki yfirlýsta stuðningsmenn BJ til að sjá, að síðasta áratuginn að minnsta kosti hefur starf þessara stjórnmálaflokka ekki skilað þjóðinni fram á við. Fjórflokkarnir hafa ekki breytzt vitundar- ögn á þeim tveim árum, sem liðin eru síðan BJ var stofnað. Þess vegna er BJ ennþá til og mun verða enn um sinn.“ fangi mundi þetta því valda gjör- breyttri fjárfestingastefnu hjá okkar ágætu þjóð, svo eitthvað sé nefnt. Stofnað veröi til öflugra heimastjórna í héruðum Verði þetta að veruleika, yrði miðstjórnarvald það, sem nú er í Reykjavík, sem ríkir og drottnar, fært út í heimabyggðirnar. Þessu fylgdu auðvitað breytingar á skattheimtu á þann veg að skatt- heimta heimabyggðar yrði meiri, en ríkisins minni, og þar með færðust völd frá ríkisstjórninni til heimabyggðanna. I einu orði: valddreifing. Kíkisstjórn verði kjörin beinni kosningu Næðist þetta fram yrði tíma- skeið samsteypustjórna eins og þær eru í dag á enda runnið. Menn yrðu fyrir kosningar að taka af- stöðu, segja hvað þeir ætla sér eft- ir kosningar, gætu ekki skotið sér á bak við samninga og þannig svikið allt, sem þeir höfðu lofað og haldið áfram gamla sullumbull- inu. Fámennisvald í verka- lýöshreyfingu og samtökum atvinnurekenda verði brot- ið á bak aftur með samning- um á vinnustöðum Verði þetta að veruleika hverfa 60 eða 70 manna nefndirnar, sem sitja við samningaborð og semja um kaup og kjör. I staðinn veldu vinnufélagar þá, sem þeir treysta bezt af félögum sínum í samninga- nefnd til að semja við atvinnu- rekandann. Launabilið mundi minnka. Fyrirtæki semdi við alla starfsmenn sína í einu aðeins einn hópur gæti stöðvað rekstur fyrir- tækis. Sú staðreynd, að þegar öllu er á botninn hvolft fara hagsmun- ir starfsfólks og eigenda fyrirtæk- is saman, yrði mönnum Ijósari en áður. Fámennisvald í viðskiptalíf- inu s.s. SÍS verði afnumið með auðhringalöggjöf BJ hefur ekkert á móti sam- vinnuhreyfingu, þegar hún hins vegar teygir sig eins og krabbi um allt viðskiptalífið þannig að þjóð- lífið allt fær slagsíðu, þá ber að sporna gegn áhrifum hennar. Hið sama er að segja um önnur rekstr- arform. Tengsl fyrirtækja mega ekki verða þannig að samkeppni þeirra verði heft af annarlegum ástæðum. Svo mikið um stefnu Bandalags jafnaðarmanna, ef eitthvað annað stjórnmálaafl í landinu er tilbúið að skrifa undir öll þessi stefnu- mál, þá er BJ ofaukið, fyrr ekki. Valgerður Bjarnadóttir er rara- formaður landsnefndar Bandalags jafnaðarmanna.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.