Morgunblaðið - 08.02.1985, Blaðsíða 27

Morgunblaðið - 08.02.1985, Blaðsíða 27
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 8. FEBRÚAR 1985 27 Ný mynd í Nýja bíói NÝJA BÍÓ hefur frumsýnt bandarísku kvikmyndina „Bachelor Party" med Tom Hanks, Adrian Zmed, William Tepper og Tawny Kitaen í aðalhlutverkum. Leikstjóri er Neal Israel. Maður einn ákveður að ganga í það heilaga og vinir hans ákveða að halda honum veglega veizlu. Þeir reyna að freista brúðgumans með „lausakonum af léttustu gerð, glaum og gleði," eins og segir í kynningu kvikmyndahússins. Aðalfundur Kvenstúdentafélagsins og Félags íslenskra háskólakvenna Kvenstúdentafélagið og Félag ís- len.skra háskólakvenna heldur aðal- fund í Hallargarðinum, Húsi versl- unarinnar, laugardaginn 9. febrúar kl. 11:30. Auk aðalfundarstarfa verður á fundinum slegið á léttari strengi og munu þær Henríetta og Rósa- munda segja frá Parísarferðum. Kvenstúdentafélagið starfar einungis innanlands, en Félag ís- lenskra háskólakvenna er aðili að Alþjóðasambandi háskólakvenna. Félögin hafa milligöngu um er- lendar styrkveitingar, bæði frá Alþjóðasambandi háskólakvenna og samtökum bandarískra há- skólakvenna. Félögin hafa einnig styrkt eina eða tvær konur á hverju ári í námi. Þegar styrkir hafa verið auglýstir berast fjöl- margar umsóknir, sem ekki er hægt að sinna. Félögin ráðgera því ýmsar leiðir til fjáröflunar í því skyni að veita íslenskum konum aðstoð til að mennta sig. Rétt til þátttöku í Félagi ís- lenskra háskólakvenna eiga kon- ur, sem lokið hafa tveggja ára há- skólanámi. (flr rréttatilk)>iiningii.) Ljósmyndarinn, Loftur Atli Ljósmyndasýning á Mokka Á Mokka-kaffi við Skólavörðustíg stendur yfir Ijósmyndasýning Lofts Atla. Þetta er 3ja einkasýning hans en auk þess hefur hann tekið þátt í nokkrum samsýningum. Á sýningunni eru 3 svart/hvítar myndir og 11 litmyndir og eru þær allar til sölu. Sýningin er opin til 25. febrúar á opnunartíma kaffihússins. (Fréttatilkynning.) Afengishækkunin: Algeng whiskítegund hækk- ar úr 790 í 890 krónur HÆKKUNIN á áfengi á þriðjudag- inn nam að meðaltali 15%. Flaska af Geisweiler Reserve rauðvíni kostar nú 420 kr. en kost- aði áður 380 kr. Chateaneu-Du- Pape kostar nú 420, en kostaði áð- ur 340. Beaujolais Cruse hækkar úr 220 í 260. White Bordeaux hvítvín hefur hækkað úr 180 kr. í 210 kr., Lieb- fraumilch Anhauser hækkaði ein- na minnst, eða úr 150 í 170 kr. og Paul Masson, einn og hálfur lítri hækkaði úr 380 í 470 kr. Johnny Walker, Red Label, hækkar úr 790 kr. í 890 kr. og 12 ára gamalt Ballantine’s viskí kost- aði áður 940 kr. en 1030 nú. Hækk- un á gini er einnig um og yfir 100 krónur á flösku. T.d. kostaði Gord- on’s London Dry 710 kr. fyrir hækkun, en kostar nú 810 kr. Svip- aða sögu er að segja um romm. Flaska af Bacardi kostaði 810 kr. fyrir hækkun en er nú á 920 krón- ur. Vodka hækkar yfirleitt um 100 til 110 kr. hver flaska. Wyborowa hækkar úr 670 kr. í 780 kr. og Smirnoff úr 710 kr. í 820. Tíkallaflóa- markaðurinn hjá FEF í síðasta sinn laugardag Á LAUGARDAG 9. febrúar verður Tíkallaflóamarkaður Félags ein- stæðra foreldra frá kl. 14—17 í Skeljanesi 6, í þriðja og síðasta skipti að sinni. Þarna er hægt að fá fatnað hvort sem er á árshátíðina, grímu- ballið eða við heimaverkin, segir í tilkynningu frá FEF. Allur ágóði rennur í Húsbyggingarsjóð félags- ins, en starfssvið þess nýja sjóðs verður kynnt á næstunni. Félögum er um þessar mundir einnig send tilkynning um hvað er um að vera í félagsstarfi i febrú- armánuði og er hvatt til góðrar þátttöku. Upplýsingar um það eru einnig gefnar á skrifstofunni í Traðarkotssundi. Indverskt kvöld INDVERSKT kvöld verður á föstudags- og laugardagskvöld í veitingastaðnum „Keisaranum frá Kína“, sem er á horni Laugavegar og Klapparstígs. Þar mun ind- versk-portúgalska söngkonan Leongine Martin syngja nokkur lög, sem hún hefur samið sjálf, en einnig mun hún matreiða ind- verskan mat. Kántrý-rokkkóngur norðursins, „Johnny King“. „Johnny King“ í Skiphóli Kántrý-rokkkóngur norðurs- ins, „Johnny King“, kemur fram í Skiphóli og kynnir lög af ný- útkominni plötu sinni, „Kántrý rokk“, föstudags og laugar- dagskvöld, 8. og 9. febrúar. (Fréttatilkynning.) Sýnir í Alþýðubankanum á Akureyri Á vegum Menningarsamtaka Norðlendinga stendur nú yfir kynning á verk- um eftir Samúel Jóhannsson í Alþýðubankanum á Akureyri. Samúel hefur tekið þátt í samsýningum m.a. á Kjarvalsstöðum og í Norræna húsinu. Hann hefur einnig haldið eina einkasýningu á Akureyri 1983. hekla hf. hefur opnað nýja bílasölu að Brautarholti 33 fyrir NOTAÐA BÍLA undir nafninu: BÍLASALAN BJALLAN - Mjög rúmgóöur sýningarsalur - - Aðgengilegt útisvæöi - - Reyndir sölumenn - Notaleg aðstaða fyrir viðskiptavini Tökum allar gerdír notadra bíla í umboðssölu. Úrval skiptibíla frá HEKLU HF. VERIÐ VELKOMIN I NYJA „BJÖLLU" SALINN % BÍLAST ÆDI [___________ Bíia- saiao 0j/kLLAN 1 Hekla hf. J 1 LAUGAVEGUR BRAUTARHOLTI 33 - SÍMI: 621240 fHlHEKIAHF 170 172 Simt 21240

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.