Morgunblaðið - 16.02.1985, Qupperneq 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 16. FEBRÚAR 1985
Gaf út ávísanir
fyrir 100 þúsund
- bauð tveimur kunningjum til Kaupmannahafnar
TVEIR ungir Vestmanneyingar
sváfu úr sér hjí Reykjavíkurlögregl-
unni í gær svo hægt væri að yfir-
heyra þá um umfangsmikla útgáfu
Afmælismót
Skáksambandsins:
Larsen efstur
BENT Larsen hefur tekið forustu á
afmælismóti Skáksamhands fs-
lands. Hann vann biðskák sína við
Margeir Pétursson í gær. Biðskák
Guðmundar Sigurjónssonar og Arth-
urs Yusupovs lauk með jafntefii. Þá
telfdu Jón L Árnason og Vlastimil
Hort skák, sem frestað var í 1. um-
ferð og lauk viðureign þeirra með
jafntefli.
Staðan á mótinu er nú:
1. Bent Larsen 2'/fev.
2. -3. Boris Spassky og Van der
Wiel 2v.
4.-9. Margeir Pétursson, Helgi
Ólafsson, Jóhann Hjartarson,
Arthur Yusupov, Vlastimil
Hort og Jón L. Árnason Vk\.
10.—11. Karl Þorsteins og Guð-
mundur Sigurjónsson lv.
12. Curt Hansen %v.
Fjórða umferð verður telfd í dag
og hefst klukkan tvö á Hótel Loft-
leiðum.
innistæðulausra ávísana. Er taiið að
þeir hafi skrifað út ávísanir fyrir
rúmlega 100 þúsund krónur á einum
sólarhring — m.a. kcypt farseðla
fyrír þrjá til Kaupmannahafnar og
borgað hóteluppihald þar í nokkra
daga.
Piltarnir, sem eru um tvítugt,
hafa í vetur unnið úti á landi en
komu nýlega félitlir til höfuðborg-
arinnar. Annar var með ávísana-
hefti með nokkrum blöðum í og
ákváðu þeir því að gera sér daga-
mun, sem m.a. fólst í ferð til Ak-
ureyrar á bílaleigubíl og fleiri
uppátækjum. Þegar til þeirra náð-
ist í fyrri viku var ekkert blað eft-
ir í heftinu en reikningarnir biðu,
samtals um 60 þúsund krónur.
Fyrr í vikunni stofnaði annar
þeirra svo nýjan ávísanareikning
og fékk hann afhent ávísanahefti
síðdegis á fimmtudag. Þá um
kvöldið fékk Rannsóknarlögregla
ríkisins pata af rikidæmi félag-
anna og við athugun komu far-
seðlarnir til Kaupmannahafnar í
ljós. Voru miðarnir teknir af þeim
en í gærmorgun fékk RLR til-
kynningu frá viðkomandi banka
um að innistæðulausar ávísanir
streymdu inn. Voru piltarnir þá
handteknir og var þess beðið í
gærkvöld, að þeir yrðu viðræðu-
hæfir.
Viðskiptaráðherra:
Ekki um að ræða að leggja
Útvegsbankann niður
MORGUNBLAÐINU barst í gær
eftirfrandi yfirlýsing frá Matthíasi
Á. Mathiesen, viðskiptaráóherra:
„Að gefnu tilefni vill viðskipta-
ráðherra, Matthías Á. Mathiesen,
taka fram eftirfarandi:
Á vegum viðskiptaráðuneytisins
er nú unnið að tillögum um bætt
skipulag og rekstur viðskipta-
banka. Hlutverk þeirra er vinna
að þessu verkefni er að gera tillög-
ur um fækkun banka með samein-
ingu þeirra. Á það ber hins vegar
að leggja áherslu að ekki er um
það að ræða að leggja niður starf-
semi Útvegsbankans eins og fram
hefur komið í fjölmiðlum."
Fjárhagsáætlun Seltjarnarness samþykkt:
Útsvar lækkað í 10%
— hámarksafsláttur
af fasteignagjöldum
FJÁRHAGSÁÆTLUN Seltjarnarness var samþykkt á fundi bæjarstjórnar
þann 13. þ.m. Heildarniðurstöður á rekstrarreikningi eru tæpar 98 milljón-
ir kr., sem er um 34% hækkun frá endurskoðaðri áætlun síðasta árs. Lagt
verður á 10% útsvar sem er 0,5 prósentustigum minna en á síðasta ári
þegar lagt var á 10,5%útsvar.
Af fasteignagjöldum íbúðar-
húsnæðis verður gefinn 25% af-
sláttur (hámarksafsláttur). Verð-
ur því lagður 0,375% fasteigna-
skattur á íbúðarhúsnæði en 1% á
aðrar eignir. Gjaldstigi aðstöðu-
gjalda er óbreyttur eða frá 0,20%
upp í 1,00% eftir tegund atvinnu-
rekstrar. Nýmæli er að lækkað er
aðstöðugjald af iðnfyrirtækjum í
samkeppnisiðnaði í 0,20%. í
fréttatilkynningu frá bæjarstjór-
anum á Seltjarnarnesi, þar sem
þessar upplýsingar koma fram, er
sagt að að á árinu verði lögð
áhersla á að bæta greiðslustöðu
bæjarstjóðs sem verið hafi erfið
undanfarin ár.
Helstu tekjuliðir eru: Útsvör 60
milljónir kr., fasteignagjöld 12,5
milljónir, Jöfnunarsjóður 10
milljónir, aðstöðugjöld 3,2 millj-
ónir og gatnagerðargjöld 4 millj-
ónir kr. Helstu gjaldaliðir eru:
P’ræðslumál 15 milljónir kr., al-
mannatryggingar og félagshjálp
12.5 milljónir, gatna- og holræsa-
gerð 15,6 milljónir, stjórn kaup-
staðarins 5 milljónir, æskulýðs-
og íþróttamál 4 milljónir, skipu-
lagsmál, 4 milljónir, hreinlæt-
ismál 3,5 milljónir, brunavarnir
1.5 milljónir og samgöngumál
(SVR) 1,9 milljónir kr.
Framlög til verklegra fram-
kvæmda hækka á milli ára í
krónutölu en framlag til eigna-
breytinga hefur lækkað i 13,2%
úr 17% á síðustu áætlun. Niður-
stöður eignabreytinga eru um 13
milljónir kr. Af verklegum fram-
kvæmdum bæjarsjóðs er helst að
telja framkvæmdir í og við
miðbæ, íþróttasvæði, gatnagerð
svo og margskonar verkefni á
sviði umhverfismála. Gert er ráð
fyrir að opna gufubað við sund-
laug í vor og ljúka ýmsum frá-
gangi við sundlaug.
Sjá samtal við Magnús Er-
lendsson, formann bæjar-
stjórnar Seltjarnarness, á bls.
30.
á
Mft
MorgunbtaíiJ/Árni Sæberg
Fulltrúar þingfiokka virða fyrir sér framkvæmdir Byggung í Selási við Rauðavatn, sem munu stöðvast innan
tveggja vikna líkt og öll önnur starfsemi félagsins, fáist ekki greitt það sem Byggung á inni hjá Byggingarsjóði
ríkisins. F.v. Haraldur Ólafsson, Halldór Blöndal, Bragi Dýrfjörð og Stefán Benediktsson.
Starfsemi Bygg-
ung að stöðvast
„Eigum 44 milljónir hjá Byggingarsjóði ríkisins og förum
aðeins fram á að farið sé að lögum,“ segir framvæmdastjórinn
Allar byggingarframkvæmdir á
vegum Byggingarsamvinnufélags
ungs fólks í Reykjavík, Byggung,
munu stöðvast innan tveggja vikna
og 150 starfsmenn félagsins verða
atvinnulausir, fáist ekki greitt úr
þeim greiðsluörðugleikum, sem fé-
lagið er komið f vegna tafa á af-
greiðslu lána frá Húsnæðisstofnun
ríkisins.
í bréfi, dagsettu 14. febrúar,
sem Byggung hefur sent ríkis-
stjórninni segir m.a. að vinna við
nær 500 íbúðir á vegum félagsins
muni stöðvast með öllu innan
tveggja vikna vegna þessara tafa.
Og að „samkvæmt lögum um
Húsnæðisstofnun ríkisins frá 21.
maí 1984 og samþykkt ríkis-
stjórnarinnar um húsnæðismál
frá 22. september 1983, ættu 44
milljónir að hafa komið til út-
borgunar til félagsins umfram þá
upphæð, sem borist hefur“.
„Við erum ekki að fara fram á
neina opinbera aðstoð, heldur
einungis að það verði staðið við
lög og reglur," sagði Þorvaldur
Mawby, framkvæmdastjóri Bygg-
ung, í skoðunarferð með full-
trúum þingflokkanna um at-
hafnasvæði félagsins á Seltjarn-
arnesi og í Selási í gærmorgun.
Fulltrúar allra flokka nema
Kvennalistans mættu í skoðunar-
ferðina, þau Guðrún Helgadóttir,
(Abl.) Halldór Blöndal, (S), Har-
Þorvaldur Mawby, framkvæmda-
stjóri Byggung.
aldur Ólafsson, (F), Stefán Bene-
diktsson, (BJ), og Bragi Dýrfjörð,
þinglóðs Alþýðuflokksins.
Voru þeim sýndar framkvæmd-
ir á nokkrum byggingarsvæðum
Byggung og afhent greinargerð
þar sem aðstæður félagsins og af-
leiðingar stöðvunar á fram-
kvæmdum eru skýrðar.
„Áherslan hefur verið lögð á að
þróa tækni til mikillar lækkunar
á kostnaði við flest byggingar-
stig, en þessar tafir hafa komið í
veg fyrir fullnýtingu hennar,"
sagði Þorvaldur Mawby. „Það eru
engin vandræði með fólkið, sem
er að byggja hjá okkur, það
stendur í skilum. Það er við yfir-
stjórn byggingarmála sem bar-
áttan stendur."
Að sögn Þorvalds eru þessar 44
milljónir nálægt því að vera þrið-
jungur af veltu fyrirtækisins í
fyrra og hleður sífellt utan á sig.
í bréfi, sem Byggung sendi fé-
lagsmálaráðherra 21. janúar sl.,
var skýrt frá því, að félagið ætti
nú 34,8 millj. króna hjá Bygg-
ingarsjóði ríkisins, 1. febrúar
bættust 9. millj. við þessa upp-
hæð og í næsta mánuði bætast 5.
milljónir við hana.
„Ef pólitískur vilji er fyrir því
að venjulegt fólk njóti sömu
kjara og lúxusfólk þá hlýtur að
vera hægt að gera eitthvað í
þessu máli,“ sagði Halldór Blön-
dal, er blm. Mbl. innti fulltrúa
þingflokkanna eftir afstöðu
þeirra, þar sem þeir voru að virða
fyrir sér byggingarframkvæmd-
irnar og ræða við framkvæmda-
stjóra Byggung. „Ég tel vissulega
að þeir sem sýna fram á svona
hagkvæmni eigi að fá stuðning"
sagði Haraldur Ólafsson. Bragi
Dýrfjörð kvaðst telja að hörmu-
lega hefði verið á byggingamálum
haldið og að þetta mál sannaði
það, að húsnæðismálakerfið væri
í rúst.
Halldór Blöndal:
78 % verðmunur á tveimur
íbúðum í verkamannabústöðum
„Ég hef lengi haft af því þungar áhyggjur, hversu greiðslur úr Bygg-
ingarsjóði ríkisins hafa dregist,“ sagði Halldór Blöndal alþingismaður,
sem mikið hefur sinnt húsnæðismálum fyrir hönd Sjálfstæðisflokksins, í
samtali við Mbl. í gær.
„Þeir sem fá lán úr Byggingar-
sjóði ríkisins til nýbygginga hafa
einungis fengið tæp 30% af
staðalibúðarverði, á móti
80—90% úr Byggingarsjóði
verkamanna. Svo að í mínum
augum er það lágmarkskrafa, að
Byggingarsjóður ríkisins standi
við skuldbindingar sínar gagn-
vart því fólki sem ekki fær hærri
lán.
Það kom mér mjög á óvart
hversu slæm staða Byggingar-
sjóðs ríkisins er gagnvart Bygg-
ung,“ sagði Halldór. „Það er óþol-
andi að tregða í húsnæðiskerfinu
skuli koma í veg fyrir að fólk geti
notið bestu kjara, sem fáanleg
eru á húsnæðismarkaðnum. Ég
mun taka húsnæðismálin og
stöðu Byggung upp á þingflokks-
fundinum á mánudag og vil mega
trúa því, að viðunandi úrlausn fá-
ist í næstu viku. Þvf má ekki
gleyma, að hluti af vandræðum
húsbyggjenda nú á rætur sínar að
rekja til þess hversu illa er búið
að Byggingarsjóði ríkisins.
Það má enginn skilja mín orð
svo, að ég sé á móti því, að þeir
sem verst eru settir og, þá meina
ég þá sem verst eru settir, njóti
þeirra forréttinda sem Bygg-
ingarsjóður verkamanna býður
upp á. En því miður verður að
viðurkenna, að verkamannabú-
staðirnir eru oft óþarflega og
stundum allt of dýrir í byggingu.
Ég hef hér fyrir framan mig
kostnaðartölur um 2 slíkar íbúð-
ir. Önnur þeirra er að vísu í rað-
húsi, en rúmmetrinn er líka 78%
dýrari en í hinni íbúðinni, sem er
í fjölbýlishúsi. Það þarf enginn að
segja mér, að lægst launaða fólk-
ið geti risið undir slíkum verð-
mun. Þetta dæmi sýnir Ijóslega,
að aukið aðhald er nauðsynlegt
varðandi verkamannabústaða-
kerfið í heild. Mín skoðun er sú,
að án tafar eigi að efna tií
hugmyndasamkeppni meðal arki-
tekta um það hvernig ódýrast og
hagkvæmast sé að byggja í verka-
mannabústöðum," sagði Halldór
Blöndal.