Morgunblaðið - 16.02.1985, Síða 6

Morgunblaðið - 16.02.1985, Síða 6
6 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 16. FEBRtlAR 1985 Bríet m Igærdagsgrein minni átti ekki að standa ... er ég vil nefna hér einu sinni „framsóknar- maddömur" ... heldur: er ég vil nefna hér einu nafni „framsóknar- maddömur“. Það var annars eng- inn framsóknármaddömustíll á fimmtudagsleikriti útvarpsins að þessu sinni. Hin alþekkta leik- húskona Bríet Héðinsdóttir samdi bæði leiktextann og leikstýrði. Gaf hún leikritinu nafnið: „Það var haustið sem ... “ Nafn þetta hefir yfir sér einhvern óræðan, rómantískan blæ sem fylgdi raun- ar verkinu ekki bara vegna hins tæra, lipra texta Bríetar heldur ekki síður vegna ljúfra tóna frá slaghörpu Önnu Þorgrímsdóttur er liðu einkar lipurlega inn á milli tilsvaranna og einsog límdu sam- an hughrifin þannig að hvergi varð brotalöm. Þessi slaghörpu- leikur var annars engin tilviljun í þessu verki, því það fjallaði um unga stúlku, Stínu að nafni, er leggur stund á píanónám. En for- eldrarnir eru „smáborgarar" er vilja beina einkadótturinni inná praktískari lífsbrautir og nota þau í því skyni sem einskonar grýlu móðursystur Stínu, sem einnig hafði lagt stund á píanónám en að lokum framið sjálfsmorð suður í París. Snyrtilegur texti En stúlkan er ung og uppreisn- argjörn og hefur því auðvitað grýluna upp á stall dýrlings. For- eldrarnir hrapa aftur á móti niður af þeim stalli er barnshugurinn hafði smíðað. Er lýsing Bríetar á viðhorfi ungu stúlkunnar til for- eldra sinna óvenju hispurslaus að mínu mati. Þannig segir Stína á einum stað: En hvenær vissi ég ... að mér líkaði ekki við þau? Nei, þetta má ég ekki segja ... (ákveð- in). Jú, þetta er satt. Mér-líkar- ekki-við-þau.“ Ástæðan fyrir þess- ari óvild ungu stúlkunnar í garð foreldranna er kannski fyrst og fremst til komin vegna þess, að pabbin hafði lagst með móðursyst- urinni músíkölsku, er aftur leiddi til fóstureyðingar og spillti hjóna- bandi foreldra Stínu. Þannig gengur eiginlega verk Bríetar út á það að fletta ofan af þessu hjú- skaparbroti pabba Stínu. Leikfléttur Eins og menn sjá af framan- sögðu er kannski ekki svo ýkja frumleg hugmynd lögð til grund- vallar þessum leiktexta, þvi oft hafa skáldin fjallað um togstreit- una milli listamannshlutverksins og hins borgaralega, og þá ekki síður um þau átök er eiga sér stað innra með unglingi þá hann upp- götvar breyskleika foreldranna. En hér réð fagmannleg úrvinnsl- an úrslitum. Ég hef áður minnst á það hve lipur og tær texti Bríetar er. Ég vil sérstaklega taka fram að þar er ekki að finna eitt einasta klámyrði. Samt kemst allt til skila sem segja þarf. Þá eru „sviðsleið- beiningar" einstaklega nákvæmar og hnitmiðaðar og bera skarpri hugsun Bríetar fagurt vitni. Dæmi: Skyggt inn: í fjarska leikhljóð — sónn ásamt klið af mannamáli, glasaglaum, hlátrum. Allt með óraunveruleikablæ, gengur í óeðlilegum bylgjum. Raddir Gerðar og Hildar eru einn- ig með óraunveruleikablæ, heyr- ast í gegn, en orðaskil greinast illa. Rödd Stínu er aftur á móti eins og að ofan, þétt við hljóð- nema. Sigrún Edda Björnsdóttir lék hér Stínu. Þar vann hún leik- sigur og einnig held ég að Bríet geti verið ánægð með frumburð- inn. Þar var ekki um að ræða neitt slysabarn. Ólafur M. Jóhannesson ÚTVARP / S JÓN VARP Harrý og kettlingurinn Tonto. Harrý og Tonto ■i Bíómynd 30 kvöldsins er bandarísk frá árinu 1974 og nefnist Harrý og Tonto. Harrý er ekkill á átt- ræðisaldri, búsettur í stórborginni New York. Hann ákveður að yfirgefa borgina fyrir fullt og allt, liggja til þess tvær ástæð- ur. Önnur er sú að Harrý telur sig hafa verið rænd- an ólíðanlega oft af ódæð- ismönnum í borginni og svo á að fara að jafna íbúðarhúsið sem hann býr í við jörðu. Harrý leggur því land undir fót ásamt kettlingn- um sínum Tonto. Þeir reyna fyrir sér hjá syni Harrý og furðulegri fjöl- skyldu hans en sjá fljót- iega að sveitin og flökku- lífið heilla. Leikstjóri er Paul Maz- ursky en aðalhlutverkin eru í höndum Art Garney, Ellen Burstyn, Chief Dan George, Geraldine Fitz- gerald, Larry Hagman (J.R.) og svo auðvitað kettlingsins sem við vit- um þó því miður ekki hvað heitir. Uglan hennar Mínervu — rætt viö Sigurbjörn Einarsson biskup ■i Þátturinn Ugl- 35 an hennar Mín- ervu er á dag- skrá útvarps í kvöld kl. 22.35. Umsjón með þætt- inum hefur Arthúr Björgvin Bollason. Gestur þáttarins að þessu sinni er Sigurbjörn Einarsson biskup. Mun umræðan snúast um nokkur atriði í kristin- dómnum og mun Sigur- björn svara margvíslegri gagnrýni sem fram hefur komið gegn kristindómn- um. Til dæmis mun Sigur- björn svara þeirri gagn- rýni að trúin sé andstæð skynseminni og að trú og vísindi hljóti að eiga í úti- stöðum. Þá mun hann verja það sjónarmið að kristindómur hafi jákvæð áhrif á framgang vísinda í sögunni, andstætt því sem gagnrýnendur kristin- dómsins hafa haldið fram. Loks mun Sigurbjörn Sigurbjörn Einarsson biskup. taka afstöðu til þeirrar gagnrýni að kristindóm- urinn hafi mjög bölsýnis- Iegt viðhorf til mannsins og líti á hann sem lítil- mótlega veru. Verða í þessu sambandi skoðaðar greinar sem Sigurbjörn hefur skrifað um þessi mál í gegnum árin. Hér og nú — fréttaþáttur í vikulokin ■i Fréttaþáttur- 00 inn Hér og nú ““ er að venju á dagskrá útvarps í dag kl. 14. Stjórnendur að þessu sinni eru Kári Jónasson, Gunnar E. Kvaran og Atli Steinarsson. Þátturinn er í beinni út- sendingu héðan og þaðan um landið. Fjallað verður um ráðstefnu sem haldin er á Suðurnesjum í dag um ástandið þar í at- vinnumálum. Rætt verður við forystumenn launþega og atvinnurekendur á Suðurnesjum. Þá verður fjallað um vinnubrögð á Alþingi enda hafa margir gagn- rýnt þau I gegnum árin, ekki síst þingmennirnir sjálfir. Til dæmis verður farið í það hvers vegna sum mál ganga hraðar en önnur í gegnum Alþingi. Rætt verður við þing- mennina Guðrúnu Helga- dóttur og Björn Dag- bjartsson. Þá verður rætt um rík- isstyrk til sjávarútvegs til landa þeirra sem keppa við okkur á aðalmörkuð- unum. Verður ríkisstyrkt- ur sjávarútvegur í Noregi í brennidepli og Bjarni Sigtryggsson fréttaritari útvarpsins i Ósló verður með pistil um það efni. ÚTVARP LAUGARDAGUR 16. febrúar 7.00 Veðurtregnir. Fréttir. Bæn. Tónleikar. Þulur velur og kynnir. 7.25 Leikfimi. Tónleikar. 8.00 Fréttir. Dagskrá. Morg- unorð — Hrefna Tynes talar. 8.15 Veðurfregnir. 8.30 Forustugr. dagbl. (útdr ). Tónleikar. 8.55 Daglegt mál. Endurt. þáttur Valdimars Gunnarssonar trá kvöldinu 16.20 íslenskt mál Asgeir Blöndal Magnússon flytur þáttinn. 16.30 Bókaþáttur Umsjón: Njöröur P. Njarðvlk. 17.30 A óperusviðinu Umsjón: Leifur Þórarinsson. 18.10 Tónleikar. Tilkynningar. 18.45 Veðurfregnir. Dagskrá kvöldsins. 19.00 Kvöldfréttir. 19.35 Úr vöndu að ráða Hlustendur leita til útvarpsins með vandamál. 20.00 Útvarpssaga barnanna: „Grant skipstjóri og börn hans“ eftir Jules Verne. Ragnheiður Arnardóttir les þýöingu Inga Sigurðssonar (2). 20.20 Harmonikuþáttur Umsjón: Siguröur Alfonsson. 20.50 Sögustaðir á Norðurlandi Möðruvellir I Eyjafirðl. Um- sjón: Hrafnhildur Jónsdóttir. (RÚVAK.) 21.35 Uglan hennar Mlnervu Umsjón: Arthúr Björgvin Bollason. 23.15 Öperettutónlist SJÓNVARP áður. 9.00 Fréttir. 9.30 Óskalög sjúklinga. Helga Þ. Stephensen kynnir. (10.00 Fréttir. 10.10 Veður- fregnir.) Öskalög sjúklinga, frh. 1120 Eitthvað fyrir alla Sigurður Helgason stjórnar þætti fýrir börn. 12.00 Dagskrá. Tónleikar. Til- kynningar. 1220 Fréttir. 12.45 Veður- fregnir. Tilkynningar. Tón- leikar. 13.40 Iþróttaþáttur 14.00 Hér og nú Fréttaþáttur I vikulokin. 15.15 Listapopp — Gunnar Salvarsson. 16.00 Fréttir. Dagskrá. 16.15 Veöurfregnir. 14.45 Enska knattspyrnan York City og Liverpool leika I 5. umferð ensku bikarkeppn- innar. Bein útsending frá 14.55—16.45. 1720 Iþróttir Umsjónarmaóur Bjarni Fel- ixson. 1925 Ævintýri H.C. Andersen. 2. Litla stúlkan með eldspýt- urnar og Prinsessan á baun- inni. Danskur brúðumyndaflokkur I þremur þáttum. Jóhanna Jóhannsdóttir þýddi með hliðsjón af þýðingu Stein- grlms Thorsteinssonar. Sögumaður Viðar Eggerts- son. LAUGARDAGUR 16. febrúar (Nordvision — Danska sjón- varpiö). 19.50 Fréttaágrip á táknmáli 20.00 Fréttir og veður 2025 Auglýsingar og dagskrá 20.35 Við feðginln Fimmti þáttur. Breskur gamanmyndaflokk- ur i þrettán þáttum. Þýðandi Þrándur Thorodd- sen. 21.00 Kollgátan Spurningakeppni sjónvarps- ins, annar þáttur. Gestir: Að- alsteinn Ingólfsson og Egill Helgason. Umsjónarmaöur lllugi Jök- ulsson. Stjórn upptöku: Viðar Vlk- ingsson. 2120 Harrý og Tontó Bandarlsk blómynd frá 1974. Leikstjóri Paul Mazursky. Aöalhlutverk: Art Carney ásamt Ellen Burstyn, Chief Dan George, Geraldine Fitzgerald og Larry Hagman. Harrý, sem er ekkill á átt- ræöisaldri, er ekki lengur vært I New York. Hann legg- ur þvl land undir fót ásamt Tontó, kettinum slnum, I leit að viðkunnanlegum sama- staö. Þýðandi Guðni Kolbeinsson. 2320 Dagskrárlok 24.00 Miðnæturtónleikar Umsjón: Jón Örn Marinós- son. 00.50 Fréttir. Dagskrárlok. Næturútvarp frá RAS 2 til kl 03.00. LAUGARDAGUR 16. febrúar 'A00—16.00 Léttur laugar- dagur Stjórnandi: Asgeir Tómas- son. 16.00—18.00 Milli mála Stjórnandi: Helgi Már Barða- son. Hlé. 24.00—24.45 Listapopp. Endurtekinn þáttur frá rás 1. Stjórnandi: Gunnar Salvars- son. 24.45—03.00 Næturvaktin. Stjórnandi: Kristln Björg Þorsteinsdóttir. Rásirnar samtengdar að lok- inni dagskrá rásar 1.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.