Morgunblaðið - 16.02.1985, Page 12

Morgunblaðið - 16.02.1985, Page 12
12 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 16. FEBRÚAR 1985 26933 íbúð er öryggi 26933 Yffir 16 ára örugg þjónusta Nú er rétti tíminn tii að kaupa Opið í dag 1-3 Digranesvegur - Kóp.| I 4ra herb. 100 fm ib. á jaröhæö i þríbýli. Glæsileg eign. | Verö 2,3 millj. Fossvogur 4ra herb. tæpl. 100 fm falleg ib. á 1. hæö. Verö 2,3-2,4 ( millj. Engjasel 3ja herb. vönduö 95-100 fm ib. á 2. hæö. Bílskýli. Laus fljótlega. Verö 2,1 millj. Miövangur - Hf. Mjög hugguleg 3ja herb. endaíb. á 3. hæö. Verð 1750 þús. Laus nú þegar. Snyrtistofa í Ármúla Til leigu 70 fm húsnæði fyrir snyrtistofu. Innréttingar og öll aöstaöa selst sér. Leigusamningur til 5 ára a.m.k. mSrCadurl nri f Hafnaratraati 20, almi 20033 (Nýja húsinu við Laskjartorg) SIMAR 21150-21370 S0LUSTJ LARUS Þ VALDIMARS LOGM J0H Þ0ROARS0N HDl Að gefnu tilefni: Vegna rógsgreinar enn á ný i Helgarpóstinum i gær er Almennu fasteignasölunni sf. bæði Ijúft og skyft að upplýsa eftirfarandi staöreyndir: 1. Fullyrðing sem er ósönn og skaöar mannorð eða aöra hagsmuni einstaklings eða persónu aö lögum varðar við lög og er refsiverö. 2. Helgarpósturinn hefur í tveim siöustu blöðum sinum gerst sekur um slikan verknaö bæöi gegn eigendum Almennu fasteignasölunnar sf. persónulega og fasteignasölunni sem slikri. Er þarna á feröinni atvinnurógur og veröur ekki viö annaö unaö en aö svara þvi meö auglýsingu þessari svo og meö kæru fyrir dómstólum. Engu þreytir í þessu sambandi þó Helgarpósturinn viróist ekki hafa neinn skráöan ábyrgóarmann og fari þannig i bága viö landslög. 3. Vegna hagsmuna hinna fjölmörgu viöskiptavina sinna vill Almenna fasteignasalan sf. taka fram aö dæmi þaö sem Helgarpósturinn nefnir er slitiö úr réttu samhengi og þar meö falsaö. Ákvæöi sem sett var til verndar hagsmunum allra kaupendanna i sölusamningum fyrir ibúöir i byggingu er rangfært og má benda á aö i formálabókum og kennslubókum eru gefin dæmi til fyrirmyndar sem ganga mun lengra í þessu efni en i samningum þeim sem Helgarpósturinn kynni aó vera aö mióa viö, en getur þess þó ekki nægilega i tilvitnuninni enda er tilvitnunin fram sett í villandi tilgangi. 4. Ákvæöió sem Helgarpósturinn viröist taka og rangfæra var i reyndinni kvöö á fasteignasölunni í tilteknum mögulegum atvikum sett til verndar hagsmunum allra kaupendanna. 5. Ef tilgáta Almennu fasteignasölunnar sf. um þaö hvar Helgarpósturinn hefur boriö nióur i rangfærslum sinum og rógburöi er rétt aó upplýsa aö þeir samningar bera meö sér ákvæöi sem tryggja hagsmuni kaup- endanna langt fram yfir þaö sem algengt er i slikum kaupum á markaðnum i dag. 6. Varóandi margnefnd kaup hafa engin kærumál eöa ágreiningsmál risiö upp. enda byggjandinn og seljandinn kunnur fyrir vandaöan frágang og sérstaka skilsemi I öllum viöskiptum sinum viö kaupendurna. 7. Almenna fasteignasalan sf. fagnar þvi þess vegna aö fá fyrir dómstólum tækifæri sem ekki er hægt aö láta ganga sér úr greipum fyrst Helgarpósturinn gekk á annaö borö i gildruna og spinnur upp lygasögu sem Helgarpósturinn nefnir dæmiö um brot lögmannsins og fasteignasölunnar gagnvart viðskiptamanni. 8. Varöandi fullyröingu Helgarpóstsins um brot fasteignasölunnar á lögum um fasteignamat skal þaö upplýst, aö 13. gr. þeirra laga sem Helgarpósturinn fullyröir aö fasteignasalan brjóti er um allt annaó efni og skiptir engu máli í þessu sambandi utan þess eins aö höfundur rógsgreinanna i Helgarpóstinum hefur bersýnilega sneitt hjá þvi aö lesa greinina og kynna sér efni hennar. 9. Fasteignasalan tekur fram aö siöustu aö hún hóf ekkl rógsherferöina en mun aö sjálfsögöu hér eftir sem hingaö til gæta hagsmuna viö- skiptavina sinna janfvel þó þaö kosti töluveröan tima og nokkur f járútlát umf ram þaö sem eölilegt er. Því alkunna er aö dómsstólaleiöin er bæði seinfarin og kostnaöarsöm. Viö kaup og sölu veitir fasteignasalan ráögjöf og traustar upplýsingar. ALMENNA FASTEIGNASALAH mm^mmmmmmmmmmmmmmmmmmm LAUGAVEG118 SÍMAR 21150-21370 m jrl 2 Askriftcirsíminn er 83033 Launamisrétti sem nemur 61 % Um kjör háskólamenntaðra ríkisstarfsmanna — eftir Gunnar G Schram Að undanförnu hefur launamis- réttið í þjóðfélaginu oft borið á góma. Þær umræður hafa fyrst og fremst fjallað um nauðsyn þess að bæta kjör þeirra sem lægst hafa launin. Það fer ekki milli mála að leiðrétting á kjörum þeirra er hér það verkefni, sem brýnast er í kjar- amálum, og gegnir raunar furðu hve þungur róðurinn hefur þar ver- ið á undanförnum árum. En það má sjá launamisrétti á fleiri sviðum í þjóðfélaginu. Þess gætir ekki síst hjá þeim stóra hópi ríkisstarfsmanna, sem eru félags- bundnir í BHM og að undanförnu hafa átt í kjaraviðræðum við ríkis- valdið. Kjarakönnun Hagstofunnar I þessum hópi eru nær 3.000 launþegar, sem hjá ríkinu starfa, en það er um helmingur félags- manna Bandalags háskólamanna. Sérstaða þeirra í samningum við ríkisvaldið er sú að þeir njóta ekki verkfallsréttar eins og þeir ríkis- starfsmenn sem eru innan vébanda BSRB. Um kaup og kjör semja þeir beint við ríkið, en náist ekki sam- komulag í slíkum viðræðum fer málið fyrir Kjaradóm, sem kveður upp endanlegan og bindandi úr- skurð um launakjör þessa stóra hóps ríkisstarfsmanna. I gildi hefur verið aðalkjara- samningur milli ríkisins og launa- málaráðs ríkisstarfsmanna innan BHM, sem gildir til 28. þessa mán- aðar. Ekki tókust samningar um nýjan aðalkjarasamning og fór kjaradeilan af þeim sökum fyrir Kjaradóm. Er úrskurðar hans að vænta þann 22. febrúar. í samkomulagi sem gert var milli ríkisins og launamálaráðs í tengsl- um við aðalkjarasamninginn á síð- asta ári var sett á stofn sameigin- 43307 Opið frá 1-4 Vesturgata Góð 2ja herb. íb. á 2. hæð. Verð 1400 þús. Nýbýlavegur 3ja herb., 100 fm, ib. á jaröh. Allt sér. Verö 1850 þús. Álfhólsvegur 3ja-4ra herb. ib. á 1. hæö. Verö 1900 þús. Flúðasel Góð 4ra herb. íb. á 3. hæð ásamt bílsk. Verð 2.250 þús. Nýbýlavegur 4ra herb. 115 <m efri sérhæö í smiðum. Til afh. nú þegar. Álfhólsvegur 4ra-5 herb. neðri sérhæð ásamt bilsk. Verð: tilboð. Laufás Garðabæ Góð 138 fm efri sérhæð ásamt 40 fm bílsk. Mögul. að taka minni eign uppi. Borgarholtsbraut Góö 5 herb. 137 fm neöri sér- hæð ásamt 30 fm bílsk. Reynihvammur Vönduð 4ra-5 herb. efri sérhæð. Bilsk.réttur. Góður staður. Mögul. skipti á minni eign. Atvinnuhúsnæði Kóp. 190 fm iðnaðarhúsn. Lofthæð 4,5 m. Gæti verið laust fljótlega. KIÖRBÝLI FASTEIGNASALA Nýbýlavegi22 III hæð (Dalbrekkumegin) Sími 43307 Solum : Svemb|orn Guðmundsson % Rafn H. Skulason, logfr. ^^mmmmmm^m^mm^r leg nefnd aðila, sem skyldi fá það verkefni að gera athugun á kjörum ríkisstarfsmanna innan BHM. Var verkefni nefndarinnar skilgreint þannig að hún skyldi afla upplýs- inga um kjör starfsmanna hjá öðr- um en ríkinu, sem vinna hliðstæð störf, er að eðli og umfangi gera svipaðar kröfur um menntun, sér- hæfni og ábyrgð. Samkvæmt beiðni nefndarinnar gerði Hagstofa íslands könnun á launagreiðslum til starfsmanna utan ríkiskerfisins. Samkomulagið um gerð þessarar launakönnunar af hálfu hlutlauss aðila var mjög mikilvægt að dómi ríkisstarfsmanna innan BHM. Með henni var talið að unnt yrði að sýna það svart á hvítu, svo ekki yrði ve- fengt, hver væri launamunurinn milli manna með sambærilega menntun hjá ríkinu og hjá einkaað- ilum. Það var öllum ijóst að sá munur hefur farið hraðvaxandi á undanförnum árum en glöggar upplýsingar og sannanir skorti til þess að kveða upp úr um það hver sá munur er orðinn í raun í dag. Hver er launa- munurinn? Ef tölur Hagstofu {slands um laun háskólamanna á almennum markaði eru bornar saman við laun hjá ríkinu kemur í ljós að miðað við dagvinnu eru launin á almenna markaðinum í dag 61% hærri en hjá ríkinu að meðaltali. Sambærilegar tölur liggja fyrir úr könnun sem gerð var 1977. Þá var munurinn ekki nema 28%. Þessar staðreyndir sýna hve sundur hefur dregið í þessum efn- um og gefa til kynna hve brýnt það er orðið að gera hér á lagfær- ingar svo mannauðn verði ekki í ýmsum mikilvægum störfum hjá hinu opinbera. í þessu sambandi er ástæða til þess að minnast á merkilegt ákvæði í lögunum um kjarasamn- inga opinberra starfsmanna frá 1973. Þar er fjallað um það eftir hvaða meginreglu Kjaradómur skuli úrskurða ríkisstarfsmönnum laun. Skal hann „gæta þess vid úr- lausnir sínar að ríkisstarfsmenn njóti sambærilegra kjara og þeir raenn með svipaða menntun, sér- hæfni og ábyrgð, sem vinna hliðstæð störf hjá öðrum en ríkinu“. Jafn- framt skal hafa hliðsjón af al- mennum afkomuhorfum þjóðar- búsins. Þar til Hagstofukönnun var gerð fyrr í vetur var ekki gjörla vitað um það hve launamismunur- inn er hér orðinn mikill. Nú verð- ur ekki lengur um það deilt hverj- ar eru staðreyndir málsins. Er ekki að efa að Kjaradómur, sem kveðinn mun verða upp 22. febrú- ar, muni leggja þessa könnun til grundvallar í störfum sínum og draga af henni þær ályktanir sem við hæfi eru. Skarður hlutur kennara Kjaramál framhaldsskólakenn- ara hafa verið í brennidepli að und- anförnu. 440 kennarar hafa sagt upp störfum frá 1. mars en það er um 70% stéttarinnar. Engan þarf að undra að kennarar hafa gripið til þessa úrræðis, þegar haft er f huga að kjör þeirra hafa á síðustu árum versnað enn meir en annarra ríkisstarfsmanna. Eru nú laun framhaldsskólakennara 81% læri en meðaltalslaun háskólamennt- aðra manna á hinum almenna markaði. Byrjunarlaun kennara, sem allir hafa háskólapróf að baki í sér- greinum sínum, eru í dag 22 þús. kr. Sambærileg laun eru 47 þús. kr. í Danmörku, 44.600 kr. í Noregi og 48.500 kr. í Færeyjum. Hæstu kennaralaun hér á landi eru 29.000 eftir langan starfsferil og háskóla- menntun m.a. til doktorsprófs. Kennaralaunin eru í dag mun lægri en skrifstofumanna á al- Gunnar G. Schram „Það liggur Ijóst fyrir að kennarar munu draga uppsagnir sínar til baka ef þeir fá leiðréttingu sinna mála í úrskurði Kjaradóms. Því hafa þeir lýst yfir. Einnar viku ráðrúm gefst þá fyrir ríkisvaldið til þess að gera við þá sérkjara- samninga en mennta- málaráðherra hefur margsinnis lýst því yfir að brýn nauðsyn sé á því að bæta kjör kenn- ara við framhaldsskóla landsins.“ menna markaðinum sem ekki hafa lokið verslunarprófi. Það liggur ljóst fyrir að kennar- ar munu draga uppsagnir sínar til baka ef þeir fá leiðréttingu sinna mála í úrskurði Kjaradóms. Því hafa þeir lýst yfir. Einnar viku ráð- rúm gefst þá fyrir ríkisvaldið til þess að gera við þá sérkjara- samning en menntamálaráðherra hafur margsinnis lýst því yfir að brýn nauðsyn sé á því að bæta kjör kennara við framhaldsskóla lands- ins. Ríkið (fjármálaráðherra) er ann- ar aðili launamálsins fyrir Kjara- dómi. Því hefur ríkisvaldið það í rauninni í hendi sér að koma til móts við óskir kennara og annarra háskólamenntaðra ríkisstarfsm- anna svo farsæll endir verði bund- inn á þessu deilu. Það er beggja hagur. Lokaorð Kjarakönnun sú, sem Hagstofan vann að tilhlutan launadeildar fjármálaráðuneytisins og launa- málaráðs BHM, hefur sýnt svo ekki verður lengur um villst hve gífur- legur launamunurinn er orðinn hjá ríkinu annars vegar og á hinum al- menna markaði hinsvegar. Það liggur í augum uppi að mannauðn mun verða í mörgum mikilvægum störfum hjá ríkinu, ef af henni verða ekki dregnar réttar ályktan- ir. Gæti þá svo farið að taka þyrfti allt samningakerfi háskólamennt- aðra ríkisstarfsmanna til endur- skoðunar. Um áramótin kvað Kjaradómur upp úrskurð um laun alþing- ismanna, hæstaréttardómara, og yfirmanna ýmissa ríkisstofnana. Voru þær launabætur allt að 37% svo sem kunnugt er. Sá úrskurður var því í samræmi við það laga- ákvæði um kjör ríkisstarfsmanna sem áður var til vitnað. Sú stefna, sem þar var mörkuð, hlýtur að vekja vonir um að sanngjarnar og réttmætar úrbætur fáist í þessu mikilvæga máli, sem báðir aðilar megi vel við una. Gunnar G. Schram er formaður Bandalags háskólamanna.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.