Morgunblaðið - 16.02.1985, Side 14
14
MORGUNBLAÐID, LAUGARDAGUR 16. FEBROAR 1985
Vöruverð í strjál-
býli verulega hærra
Kafli úr fyrstu þingræðu Gunnþórunnar Gunnlaugsdóttur
„í ÖRLÍTILLI könnun sem ég fram-
kvæmdi í gær í matvöruverzlun úti á
landi og í stórmarkaði í Reykjavík
kom eftirfarandi verömismunur í
Ijós:
Vörategund:
Kjúklingar
Appelsínur
Epii
Laukur
Kgg
Gr. baunir
Kaffi
Tómatsósa
stór- Verzlun Mis-
markaður landsb. munur
202,90 272,00 34%
46.60 67,00 44%
54,00 63,00 17%
30.60 44,80 46%
113,00 165,00 46%
19.90 27,40 38%
42.90 48,00 12%
24,50 34,10 39%
Samtals 534,40 721,30 35%
l*etta þýðir aö húsmóðir sem
verzlar fyrir helgina í Reykjavík
fyrir 2.000,- kr. þarf til að fá sömu
vöru úti á landi að greiða 2.700,- kr.
Hún þarf sem sé einn vinnudag
aukalega í hverri viku með taxta í
frystihúsi.“
Þannig komst Gunnþórunn
Gunnlaugsdóttir varaþingmaður
Sjálfstæðisflokksins úr Aust-
fjarðakjördæmi að orði, í Jóm-
frúrræðu" á Alþingi í gær, er hún
mælti fyrir tillögu sinni til þings-
ályktunar um að leita lieða til
meiri jöfnunar vöruverðs í land-
inu. Hún tíndi til fjölmörg dæmi
um verulega hærra vöruverð í
strjálbýli, sem m.a. á rætur í
flutningskostnaði og sköttun
flutningskostnaðar. Hér á eftir fer
kafli úr ræðu Gunnþórunnar, orð-
réttur:
„Þessi þingsályktunartillaga um
að leitað verði leiða um meiri jöfn-
un vöruverðs sem ég flyt hér,
varðar að mínu mati mikilvægan
þátt í lífsafkomu fólks úti á lands-
byggðinni. Ástæða þess að ég flyt
þessa tillögu er að ég tel íbúa
smærri og afskekktari byggðar-
laga bera skertan hlut frá borði,
bæði hvað varðar vöruverð —
vöruval og þjónustu á því sviði.
Samið er um kaup og kjör fyrir
alla landsmenn og því sanngirn-
ismál að hlutur landsbyggðarinn-
ar sé sem réttlátastur í þessum
efnum sem öðrum svo lífskjör
fólksins í landinu séu sem líkust.
Enda hefur margt verið gert í þá
átt.
Verðjöfnun á olíu og benzíni var
lögfest þann 18. febrúar árið 1953.
Vörujöfnunargjald er á áburði og
sementi og það sama á við um
landbúnaðarvörur. Flutnings-
kostnaði á þeim vörutegundum,
sem ég hef hér nefnt, er jafnað út
og því ætti ekki að vera ýkja erfitt
að nota svipaðar reglur við jöfnun
verðs á öðrum nauðsynjavörum.
Ýmis framleiðslufyrirtæki hér-
lendis hafa tekið upp jöfnun flutn-
ingskostnaðar og selja vöruna á
sama verði hvert sem hún er send.
Vert er svo að minnast þeirra
ágætu þingmanna sem unnið hafa
að framgangi þessa máls á árum
áður og hverju þeir fengu ágengt.
Fyrir 15 árum síðan var þessu
máli hreyft hér á Alþingi, en þá
varð lítið um framkvæmdir. Á 93.
löggjafarþingi, árið 1972, var enn
flutt þingsályktunartillaga svip-
aðs efnis og voru flutningsmenn
þeir Matthías Bjarnason, Sverrir
Hermannsson, Guðlaugur Gísla-
son og Halldór Blöndal. í tillögu
þessari var lagt til að Alþingi
skipaði fimm manna milliþinga-
nefnd til þess, og ég vísa í áður-
nefnda þingsályktunartillögu með
leyfi hæstvirts forseta:
»1. Kanna þátt flutningskostnað-
ar í mismunandi vöruverði I
landinu.
2. Skila áliti um hvort tiitækt
væri að jafna kostnaðinn við
vöruflutninga með stofnun og
starfrækslu vöruflutninga-
sjóðs, þannig að verð á allri
vöru verði hið sama á öllum
stöðum á landinu sem vöru-
flutningaskip sigla til og flug-
vélar og vöruflutningabílar
halda áætlun til.“
Tilvitnun lýkur.
Þessi milliþinganefnd átti einn-
ig að gera tillögur um bætt skipu-
lag vöruflutninga á sjó, landi og í
lofti með tilliti til breyttrar til-
högunar frá helztu viðskiptaborg-
um íslands erlendis til hinna
ýmsu hafna hér á landi.
Nefndinni var gert að hraða
störfum svo að frumvarpið yrði
Gunnþórunn Gunnlaugsdóttir.
lagt fyrir næsta þing. Þetta var
árið 1972, eða fyrir 13 árum. Þessi
nefnd skilaði síðan sínum niður-
stöðum eftir mikla vinnu í október
1976, eða fyrir rúmum 8 árum síð-
an.
í kjölfar þessarar athugunar á
bættum samgöngum og jöfnun
vöruverðs varð ýmsu góðu komið
til leiðar. Menn voru sammála um
að stofnun Verðjöfnunarsjóðs
vöruflutninga væri ekki sú leið er
fara ætti. Stórt átak var gert í
skipulagningu á rekstri Ríkisskips
með tilkomu bættra flutnings-
hátta í formi gámaflutninga, enda
annar starfsmaður nefndarinnar
núverandi forstjóri Rfkisskips,
Guðmundur Einarsson, sem vann
af miklum dugnaði í þessu máli.
Þarna er átt við ferðir á fasía
viðkomustaði kringum landið.
Flóabátar gegna og mikilvægum
þætti í þessum flutningum. Einnig
áunnust úrbætur í landflutning-
um en ekki nægileg skipulagning
þeirra innan landsfjórðunganna
og mun ég víkja að þeim þætti hér
á eftir.
Á síðustu árum hefur orðið um-
talsverð aukning á innflutningi
varnings erlendis frá og til þess
landsfjórðungs er varan á að fara
til og þar vil ég nefna siglingar
Norrænu og skiparekstur Aust-
fars hf. á Seyðisfirði. Þessir flutn-
ingar eru til mikilla hagsbóta
fyrir Seyðisfjörð og ekki síst fyrir
atvinnuvegina í fjórðungnum.
Ávinningur þessarar nefndar
verður að teljast allgóður og því
vek ég máls á þessu að ég tel að
halda verði áfram skipulagðri
vinnu að þessum málum uns
takmarkinu er náð og verðlag sé
sem jafnast. Þjónusta verzlunar-
innar þarf að geta náð því tak-
marki að fullnægja þörfum neyt-
andans og það gerist hér á Stór-
Reykjavíkursvæðinu. Eftir að
álagning var gerð frjáls hefur
skapast eðlileg samkeppni og á svo
stórum markaði sem hér er verður
veltuhraðinn meiri og því skapast
möguleikar á hagstæðu vöruverði
og meira vöruúrvali.
íbúar minni byggðarlaga búa
ekki við þau skilyrði að geta litið á
það sem sjálfsagðan hlut að geta
farið út í búð og keypt það sem þá
vanhagar um, gengið á milli stór-
markaða og tryggt sér sem hag-
kvæmust innkaup. Það verður að
láta sér nægja eina matvöruverzl-
un eða í mesta lagi tvær verzlanir
sem keppa verða um þann þrönga
markað er um ræðir. Þessar verzl-
anir búa auk þessa við stopular
samgöngur og oft samgöngutepp-
ur að vetrarlagi en verða samt að
tryggja neytandanum þær brýn-
ustu nauðsynjar sem við getum
ekki án verið. Og vil ég í því sam-
bandi benda á staði þar sem veg-
um er aöeins haldið opnum 2 daga
í viku yfir vetrartímann. Aðra
daga er aðeins um fólksflutninga
með snjóbíl að ræða og sums stað-
ar ekki einu sinni það. Algjör ein-
angrun ríkir.
Þegar ungt fólk velur sér stað til
búsetu, þarf það að vega og meta
nokkur stór atriði. Efst á blaði eru
auðvitað atvinnumöguleikar, þá
koma húsnæðismál, heilbrigðis-
þjónusta, menntunaraðstaða,
samgöngur og síðast en ekki síst
verzlunarþjónusta.
Allir þessir þættir verða að vera
í góðu lagi til þess að búsetja telj-
ist fýsileg. Sem betur fer eru mörg
byggðarlög vítt og breitt um land-
ið sem uppfylla öll ofangreind at-
riði, þó með þeirri undantekningu
að þjónusta, svo sem neysluvara,
er þar miklu mun dýrari."
Salome Þorkelsdóttir:
Tryggjum öryggi í umferð
— Frumvarp til breytinga á umferðarlögum
Salome Þorkelsdóttir (S) fiytur ásamt fleiri þingmönnum frumvarp til
breytinga á umferðarlögum. Meginbreytingar, sem frumvarpið leggur til, eru
tvær:
1) Við akstur bifreiðar, bifhjóls
og létts bifhjóls skulu jafnan vera
tendruð ljós á lögboðnum ljósker-
um frá 1. september til 30. apríl ár
hvert. Sama gildir um akstur ann-
arra ökutækja í rökkri, í myrkri
eða í ljósaskiptum eða þegar
birtuskilyrði eru ófullnægjandi
vegna veðurs eða af öðrum ástæð-
um.
2) Bifreiðir, sem notaðar eru til
að flytja skólabörn, skulu vera
sérstaklega auðkenndar með þar
til gerðum skiltum. Ökumönnum
sem koma á eftir eða á móti slíkri
bifreið ber að stöðva ökutæki sín á
meðan skólabörnum er hleypt út
eða þau eru tekin upp í bifreiðina.
Dómsmálaráðherra ákveður með
reglugerð hvernig merkingum
skólabifreiða skal háttað.
Frumvarp sama efnis var flutt á
sl. ári. Það er nú endurflutt með
þeirri breytingu að í stað þess að
lögbinda notkun ökuljósa allan
ársins hring er lagt til að lögbind-
ing gildi frá 1. september til 30.
apríl.
í greinargerð Salome segir m.a.:
„Mikilvægi Ijósanotkunar öku-
tækja er tvíþætt:
Oti á þjóðvegum er það tillits-
semi við aðra ökumenn, sem á
móti koma, að nota ljósin.
í þéttbýli er fyrst og fremst um
að ræða tillitssemi við gangandi
vegfarendur. Gangandi vegfarend-
ur í yngstu aldurshópunum og
þeim elstu hafa ekki allir fullt
sjónskyn. Þeir eldri eru margir
sjóndaprir og hreyfihamlaðir að
meira eða minna leyti og við-
bragðsflýtir margra skertur vegna
aldurs eða af öðrum ástæðum. Að
kveikja ökuljós á farartækjum
veitir þessum vegfarendum mikið
öryggi.
í skýrslu, sem landlæknisemb-
ættið hefur tekið sman um slys í
umferðinni, kemur fram sú
hörmulega staðreynd að í aldurs-
hópnum 7—20 ára eru slys algeng-
asta dánarorsök hér á landi. Öll-
um ráðum verður því að beita til
að tryggja öryggi í umferðinni.
í Svíþjóð var það lögleitt 1. okt
Salome Þorkelsdóttir.
1977 að ökumenn væru skyldugir
til að nota ljós allt árið. í athugun,
sem fram fór, var gerður saman-
burður á slysum næstu tvö árin
fyrir gildistöku laganna um lög-
bundna ljósanotkun í akstri að
degi til og fyrstu tvö árin eftir
gildistökuna. Fyrir samþykkt lag-
anna notuðu 50% ökumanna öku-
ljós, eftir gildistökuna yfir 95%.
Talið var að umferðaróhöppum að
degi til, þar sem slys urðu á fólki
og fleiri en eitt farartæki kom við
sögu, hefði fækkað um 11%.
Fækkun slysa eftir tegundum
var sem hér segir:
Mest fækkaði slysum þar sem
hlut áttu að máli bifreið og veg-
farandi á reiðhjóli eða bifhjóli.
Þar fækkaði slysum um 21%.
Slysum fækkaði um 17% þar
sem gangandi vegfarendur og bif-
reiðir áttu í hlut.
Minna dró úr þeim slysum sem
urðu vegna árekstra bifreiða.
Þeim slysum, sem urðu vegna
árekstra bifreiða er komu hvor á
móti annarri, fækkaði um 10%.
Slysum í árekstrum á gatna-
mótum fækkaði um 9%.
Slysum í árekstrum bifreiða, er
voru á leið í sömu átt, fækkaði um
2%.
Ákvæði 2. gr. frv. varðandi
skólabifreiðir er þáttur í þeirri
viðleitni að tryggja sérstaklega
öryggi ungra vegfarenda."
Stuttar þingfréttir
Frumvarp til
umferöarlaga
Fram hefur verið lagt
stjórnarfrumvarp til umferð-
arlaga í 17 köflum, 122 grein-
um. Kaflaheiti gefa til kynna
efnisatriði: 1) Gildissvið. 2)
Reglur fyrir alla umferð. 3)
Umferðarreglur fyrir vegfar-
endur. 4) Umferðarreglur fyrir
ökumenn. 5) Ökuhraði. 6) Sér-
reglur fyrir reiðhjól og bifhjól.
7) Sérreglur um umferð reið-
manna. 8) Ökumenn. 9) Öku-
tæki. 10) Notkun öryggisbún-
aðar. 11) Flutningur, hleðsla,
þyngd og stærð ökutækja. 12)
Hindrun á vegi. 13) Umferðar-
stjórn — umferðarmerki. 14)
Fébætur og vátrygging. 15)
Viðurlög. 16) Umferðarráð —
umferðarfræðsla. 17) Gildis-
taka.
Frumvarpið er samið af um-
ferðarlaganefnd. Tilgangur
endurskoðunar laganna nú er
tvíþættur. Annars vegar bæta
um, hvar gildandi lög teljast
úrelt orðin. Hins vegar að sam-
ræma umferðarlög hér um-
ferðarlöggjöf annarra þjóða og
alþjóðasamningum um umferð.
Skipulegt nám og vinna í
sölu og markaðsmálum.
Árni Johnsen og fimmtán
aðrir þingmenn Sjálfstæðis-
flokks flytja tillögu til þings-
ályktunar um skipulagningu
náms og vinnu í sölu- og mark-
aðsmálum, svohljóðandi:
„Alþingi ályktar að fela rík-
isstjórninni að beita sér fyrir
því með samstarfi mennta-
málaráðuneytisins, viðskipta-
ráðuneytisins, utanríkisráðu-
neytisins og aðila vinnumark-
aðarins að skipuleggja nám og
starfsþjálfun á sviði sölu- og
markaðsmála innanlands og
utan, jafnhliða sérstökum að-
gerðum til að afla þekkingar á
mörkuðum. Markmiðið verði
að koma á fót í skólakerfinu og
viðskiptalífinu víðtæku námi í
sölumennsku, markaðsöflun,
áróðurs- og auglýsingatækni
og samningagerð.
Upphaf greinargerðar hljóð-
ar svo: Það skýtur sannarlega
skökku við að þjóð, sem þarf að
selja nær alla sína framleiðslu
til annarra landa, skuli hvergi
í skólakerfinu hafa skipulagt
víðtækt nám sem tengist sölu-
og markaðsmálum með hlið-
sjón af þeirri sérstöðu sem ís-
lendingar búa við, þ.e. fámenni
þjóðarinnar og þeirri stað-
reynd að sjávarafurðir eru
grundvöllur undir gjaldeyris-
tekjum þjóðarinnar. Möguleik-
ar til náms á þessu sviði eru
ekki fyrir hendi í grunnskólum,
fjölbrautaskólum, fram-
haldsskólum, sérskólum né
Háskóla íslands, nema að mjög
takmörkuðu leyti og þá helst í
Háskóla íslands.
Sölumennska hefur um langt
árabil verið litin hornauga á
Islandi. Einhvers konar minni-
máttarkennd eða einangrun
lítillar þjóðar í langan tíma
virðist hafa leitt til skilnings-
leysis á því hversu mikilvægt
er að keppa af festu og ein-
beitni á öllum mörkuðum þar
sem hægt er að bæta söluað-
ferðir og þar með afkomu þjóð-
arinnar. Þótt margir aðilar
hafi vissulega staðið sig vel í
samkeppninni á alþjóðavett-
vangi, eins og t.d. á sviði flug-
mála, siglinga, sjávarafurða og
vísinda, þarf að herða þarna
verulega á með samstilltu
átaki og markvissri vinnu með
framtíðina í huga.“
Viðmiðun verðtryggingar
Þingmenn Samtaka um
kvennalista flytja svohljóðandi
tillögu til þingsályktunar:
„Alþingi ályktar að fela rík-
isstjórninni að undirbúa nú
þegar að verðtrygging lang-
tfmalána til einstaklinga vegna
náms eða byggingar eigin hús-
næðis verði miðuð við vísitölu
kauptaxta f stað lánskjaravisi-
tölu.“