Morgunblaðið - 16.02.1985, Page 23
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 16. FEBRÚAR 1985
23
BÍLASWPT'
greiðslu-
l KJÖR...
við tökurn
notaðra bi'a
viðskipt' og
i betur í 96é
I kjÖrurrv
pið í dag, laugardag, kl. 1-5
Bílvangur hefur sýningarsal sinn fyrir nýja og notaða bíla opinn í dag frá klukkan 1-5.
Þú finnur þar mikið úrval notaðra bíla, skoðar Opel Kadett, bíl ársins og handhafa ýmissa
annarra alþjóðlegra viðurkenninga, kynnist öðrum Opel-bifreiðum,
sérð japönsku Isuzu Trooper jeppana og fleiri fyrsta flokks bíla.
NOTAÐIR BÍLAR:
Það er skemmst af að segja, að
strax og Hörður Valdimarsson
mætti á fyrsta fundi, var hann
kosinn formaður Reykjavíkur-
klúbbsins og var það í mörg ár unz
hann fluttist búferlum austur i
Rangárþing og tók þar við þeirri
vandasömu ábyrgðarstöðu, sem
hann gegnir enn í dag við góðan
orðstír. Og á fyrsta reglulegum
stofnfundi Landssamtaka klúbb-
anna árið 1969, valdist Hörður
sem varaformaður þeirra og var
það óslitið í fjölda ára þar til hann
varð formaður LKL Öruggur akst-
ur þegar Stefán Jasonarson bóndi
og hreppstjóri í Vorsabæ sagði af
sér formennsku eftir 10 ára setu.
Þá tók Hörður við, og þótti öllum
sjálfsagt. Slíkt álit hafði hann þá
áunnið sér.
Það var ekki fyrr en á aðalfundi
LKL 1981, að Hörður baðst undan
endurkjöri sökum anna í öðrum
félagsmálastörfum, en það ár var
hann starfandi umdæmisstjóri
Lionshreyfingarinnar hérlendis og
hafði þá sannarlega meira en nóg
á sinni könnu, því félagsmálamað-
ur er Hörður mikill; ötull, áhuga-
samur og fylginn sér.
Þrátt fyrir það, að Hörður hafi
sagt af sér formennsku í Lands-
samtökum klúbbanna, var síður
en svo, að hann hefði skilið við
þessa sérstæðu hreyfingu til
slysavarna í umferðarmálum.
Sumar eftir sumar hefir hann tek-
izt á hendur fundaferðalög á veg-
um klúbbanna víðsvegar um land-
ið, alveg eins og verið hafði mörg
árin meðan hann var formaður —
líkt og forveri hans, Stefán. Slík-
um ferðalögum hefur Hörður
haldið áfram alla tíð síðan á
hverju sumri og þannig átt mikils-
verðan þátt í að plægja þann jarð-
veg sem klúbbarnir leitast við að
sá í. Hörður er því orðinn vinsæll
og gagnkunnugur því fólki, sem af
Fer inn á lang
flest
heimili landsins!
Árg. Km. Kr. Árg. Km. Kr.
Mercedes Benz 280 1980 46.000 795.000 Isuzu Trooper bensfn 1982 35.000 610.000
Ch. Citation 6cyl. sjálfsk 1980 88.000 275.000 Ch. Malibu Classic 1980 60.000 350.000
Plymouth Volaré Opel Kadett Luxus 1981 47.000 240.000
Premier 1979 41.000 270.000 Subaru 1600 DL 1979 66 000 140.000
Saab 99 GLI 4ra dyra 1981 56.000 320.000 Mazda 3231,5 1983 21.000 320.000
Opel Rekord 1978 170.000 Volvo 245 DL station 1982 60.000 420.000
Saab 99 GL 2ja dyra 1982 45.000 350.000 Ch. Citation 4cyI beinsk. 1980 40.000 295.000
Ch. Malibu Classic 1978 240.000 Mazda 323 1978 75.000 120.000
Opel Ascona Luxus 1982 16.000 360.000 Mazda 929 1982 19.000 400.000
Ch. Malibu Sedan 1981 69.000 360.000 Ford Bronco II Ranger 1984 22.000 1.290.000
Opel Rekord dísil Berlina 1982 420 000
Vauxhall Chevette st. 1977 80.000 95.000
Buick Skylark 1981 350.000
Dodge Ramcharger S.E. 1979 26 000 490 000
Ch. Malibu Classic 2ja d. 1981 42.000 480.000
Buick Skylark LTD 1977 49.000 240.000
Datsun pickup 1979 51.000 150.000
Ch. Malibu Sedan 1979 73.000 220.000
Scoutll 1974 180.000
Mð foðum u-
tessurr, ad
'AKIB
da9 mi'l'il bli
WgfTT
BÍLVANGUR SF
HÖFÐABAKKA 9 SÍMI 687300
Hörður Valdimars-
son — Afmæliskveðja
Mér þótti leitt að framhjá mér
skyldi fara að mestu sextugsaf-
mæli góðvinar míns Harðar Valdi-
marssonar aðstoðarforstöðu-
manns vinnuhælisins að Akurhóli
við Gunnarsholt. Annað hefði sá
maður átt af mér skilið en að ég
léti sem ég vissi ekki af þessum
tímamótum í ævi hans. Hörður er
hógvær maður og prúður en lætur
ekki gang lífsins afskiptalausan,
því félagslyndur er hann og óbág-
ur á að láta i té liðsinni sitt og
forystu til góðra verka.
Það er ekki á mínu færi að gera
neina allsherjar úttekt á lífsferli
Harðar Valdimarssonar. En sam-
leið okkar um langt árabil á veg-
um klúbbanna Öruggur akstur og
landssamtaka þeirra er svo
ánægjuleg og þakkarverð hvort
heldur sem er málefnalega eða
persónulega að ég má til að minn-
ast hennar i fáum orðum.
Um það bil sem við klúbbamenn
vorum að hefja starf þessara nýju
samtaka til umferðarslysavarna
frá haustinu 1965, var Hörður
starfandi varðstjóri í lögregluliði
höfuðborgarinnar og hafði áður
unnið mikið og lengi að hvers kon-
ar vandamálum umferðarinnar á
götum úti. Hann þekkti þvi vel til
allra mála hér að lútandi og ekki
ónýtt að fá slikan mann til liðs við
sig.
hugsjónalegri tryggð og áhuga
hefur lagt sitt við klúbbana og við-
leitni þeirra i að hamla á móti og
draga úr umferðarslysum og tjón-
um.
Hörður Valdimarsson er mjög
traustur fundarmaður; vel máli
farinn, margfróður og reyndur í
öllum umferðarmálum og glögg-
skyggn i besta lagi. Það hefur því
ekki verið ónýtt að eiga Hörð að í
sambandi við t.d. tillögugerð á
fundum, þegar þurft hefur að
smíða og ganga frá tillögum
stundum svo að segja mitt i
spennu umræðna. Þær voru ófáar
ófrágengnu tillögurnar, sem ég
rétti að honum, þegar ég var
„stopp" — stundum i nokkrum
hugaræsingi — segjandi sem svo:
„Æ, góði Hörður minn, komdu
þessu nú saman fyrir mig.“ Þá var
aldrei í kot vísað, klár, kaldur og
rólegur gekk Hörður frá öllu eins
og best var á kosið, svo sem
sönnum lögreglumanni sæmdi.
Af því, sem nú hefur verið sagt
beint og gefið til kynna, má ljóst
vera hvern hauk í horni við aðrir,
sem helzt höfum borið hita og
unga af starfsmemi Klúbbanna
ruggur Akstur höfum átt og eig-
um í Herði og eigum honum þess
vegna þakkarskuld að gjalda. Og
af því við vitum, að Hörður er nú
einu sinni eins og hann er og ekki
eldri en hann er, trúum við því, að
ennþá sé hann engan veginn af
baki dottinn, heldur eigi enn eftir
að gæða klúbbastarfsemina þátt-
töku sinni og forystu — jafnvel
e.t.v. í enn ríkari mæli en hin síð-
ustu árin. Ég vona að svo verði, og
það gera fleiri.
öi
Vegna fjarveru minnar, þegar
afmælisbarnið tók á móti gestum
sínum með myndarskap í verka-
lýðshúsinu á Hellu laugardaginn
9. febrúar sl., sendi ég nú þeim
hjónum Herði og ágætri konu
hans, Erlu Bjarnadóttur, beztu
kveðjur og árnaðaróskir í tilefni
af afmælinu. Ekki má gleyma
hennar hlut, svo oft sem samband
okkar klúbbfélaga hefur mætt á
henni. Margir okkar eiga góðra
stunda að minnast á gestrisnu
heimili hennar fyrir austan, þar
sem ljúflyndi þeirra og hlýtt við-
mót hefur yljað. Ferða hennar út
um land með manni sínum, honum
til ánægju og styrktar, hafa
klúbbarnir og málstaður þeirra
einnig notið góðs af.
Ég óska svo afmælisbarninu
margra bjartra og frjórra æviára
svo að hver sá málstaður, sem
honum er kær, megi góðs af njóta.
Baldvin Þ. Kristjánsson
BILVANGUR BYÐUR ÞER
MIKIÐ ÚRVAL NÝRRA OG
NOTAÐRA BÍLA