Morgunblaðið - 16.02.1985, Qupperneq 24
24
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 16. FEBRÚAR 1985
Frestun heimsmeistaraeinvígisins
„Þetta er
farsi“
Segir Friðrik Ólafsson,
fyrrum forseti FIDE
„ÁKVÖRÐÚN ('ampomancsar er
ákaflcga umdeilanleg. Út af fyrir
sig má deila um hvort líkamíegt
þrek eigi að hafa áhrif í einvígi um
heimsmeistaratitilinn í skák. En
svo er í núverandi reglum og Kasp-
arov og Karpov höfðu gengist und-
ir það jarðarmen fyrir einvígið. I»ví
kemur ákvörðun forseta FIDE
spánskt fyrir sjónir, sérstaklega
þegar röksemdir eni hafðar uppi
um að úthald og líkamlegt þrek
annars keppandans sé á þrotum.
I»á þýðir ekki að hlaupast undan
merkjum og biðjast va*gðar,“ sagði
Friðrik Olafsson, fyrrum forseti al-
þjóðaskáksambandsins, FIDE í
samtali við blm. Mbl. í gær.
„Ákvörðun forseta FIDE virðist
beinlínis hlutdræg — draga taum
Karpovs. Þetta er farsi, skopleikur
og þær röksemdir, sem haldið hef-
ur verið á lofti eru vafasamar. Ef
málið er skoðað hlutlaust, þá
kveða reglur skýrt á um, að kepp-
Friðrik Ólafsson.
andi tapar skák mæti hann ekki
til leiks. Ákvörðun um nýtt 24
skáka einvígi byggir ekki á reglum
FIDE. Hins vegar má vænta, að
þær reglur yrðu bornar undir
aukaþing FIDE til samþykkis en
það hlýtur að teljast í hæsta máta
óeðlilegt að breyta reglunum í
miðju einvígi.
Campomanes er ekki öfunds-
verður af hlutverki sínu, en hann
kemur ekki heiðarlega fram í
þessu máli,“ sagði Friðrik Ólafs-
„Skákheimurinn
má ekki sætta sig
við þessi úrslit
- bara verið að koma í veg fyrir að ég geti unnið,“ sagði Garri Kasparov
Moskvu, 15. febrúar. AP.
FUNDURINN minnir mig sterklega á
vel undirbúna leikæfingu þar sem allir
kunna sína rullu ... Það er bara verið
að koma í veg fyrir, að ég geti unnið í
einvíginu," hrópaði Garri Kasparov á
hávaðasömum og einstæðum blaða-
mannafundi í Moskvu þegar Campom-
anes, forseti Fide, skýrði frá því, að
heimsmeistaraeinvíginu í skák hefði
verið hætt og að nýtt hæfist að misseri
liðnu. Karpov var ekki á fundinum til
að byrja með en skyndilega ruddist
hann inn á sviðið, þreif hljóðnemann
af Campomanes og mótmælti því há-
stöfum, að einvíginu skyldi hætt. Hafa
nú margir á orði, að þetta mál allt sé
mesta hneyksli í samanlagðri skáksög-
Blaðamannafundurinn hófst með
því að Campomanes sagði, að ein-
víginu hefði verið hætt og nýtt ein-
vígi hæfist eftir hálft ár þótt ekki
væri búið að fá til þess samþykki
keppendanna. Var hann vægast sagt
tvísaga um heilsufar Karpovs og
ætlaði að fara að svara spurningum
fréttamanna um þetta þegar Karp-
ov stormaði í salinn og upp á svið,
þreif hljóðnemann úr hendi Camp-
omanes og kvaðst vilja segja nokkur
orð.
„Við getum og viljum halda ein-
víginu áfram. Ég er andvígur þess-
ari ákvörðun og ég er viss um, að
Kasparov er mér sammála," sagði
Karpov við dynjandi lófatak við-
staddra.
„Vilt þú eitthvað segja, Garri?“
“Vilt þú eitthvað segja, Garri?“
sagði Campomanes eftir yfirlýsingu
Karpovs og Kasparov skálmaði
fram á sviðið en hann hafði setið að
tjaldabaki ásamt fimm aðstoðar-
mönnum sínum. Hann notaði ensku
og hrópaði fremur en talaði til
Campomanesar.
„Fyrir 25 mínútum sagðir þú, að
heimsmeistarinn vildi ekki hætta
einvíginu. Hvers vegna ertu þá með
þessa leiksýningu? Viltu gjöra svo
„Campomanes dreg-
ur taum Karpovs“
Rætt við Spassky, Larsen, Van der Wiel og Yusupov um atburði í Moskvu
BORIS Spassky og Van der Wiel sátu
að snæðingi ( veitingabúðinni á Hótel
Loftleiðum þegar blaðamann Mbl. bar
að garði. Þeir voru að ræða atburði í
Moskvu, hinn dæmalausa blaða-
mannafund Florenrio Campomanesar,
en fregnir þær, sem þeir höfðu frá
Moskvu voru óljósar. Blaðamaður
sýndi þeim fréttaskeyti AP af fundin-
um og Spassky las þau íbygginn á svip
og undrunar gætti í rödd hans. „Auð-
vitað er erfitt að dæma um þetta nú
svo fjarri atburðum sem við erum. En
einvígi þeirra Karpovs og Kasparovs
minnir mig á hnefaleikakeppni í
þungavigt, þar sem báðir keppendur
hanga á öxlum hvors annars. Ég hef
samúð með þeim báðum," sagði
Spassky.
„Hlutverk Campomanesar í þess-
ari uppákomu er allt hið undarleg-
asta og mér finnst Kasparov hafa
mikið til síns máls þegar hann
gagnrýnir Campomanes og Karpov.
Campomanes dregur taum Karpovs,
en virðir Kasparov að vettugi,"
sagði Spassky ennfremur.
„Karpov er maður „kerfisins"
— Hvað telur þú að Kasparov
eigi við þegar hann segir að „þeir“
séu að svipta hann möguleika á að
ná heimsmeistaratitlinum til sín?
Eru “þeir“ svoésk yfirvöld? Spassky
verður hugsi á svip — lítur á Van
der Wiel sem segir: „Ég tel það eng-
um vafa undirorpið að Karpov er
maður „kerfisins“. Honum hefur
verið hjálpað á ýmsa vegu. En aðal-
sökin er Campomanesar. Kasparov
hefur fullan rétt á að vera reiður og
flestir vinna gegn honum.“
„Campomanes verið nefndur
Karpovmanes“
„Jú, en þú mátt ekki gleyma því
að Kasparov er meðlimur í komm-
únistaflokknum,“ segir Spassky og
heldur áfram. „Ég er ekki að fullu
sannfærður um, að flokkurinn
standi á bak við þetta. Sovésk skák-
yfirvöld eru í mikilli „krísu“ og auð-
vitað FIDE. En augljóst er að Kasp-
arov hefur verið settur til hliðar.
Campomanes frestar einvíginu eftir
viðræður við Karpov, en spyr Kasp-
arov einskis. Þessi uppákoma —
þetta hneyksli í Sovétríkjunum er
yfirvöldum áreiðanlega ekki að
skapi. Eg mundi taka svo stórt upp í
mig að segja að Campomanes sé á
bandi Karpovs. Campomanes hefur
verið nefndur Karpovmanes af sum-
um og það ótvírætt að þeim er vel til
vina.“
— Bent Larsen gengur nú í salinn
og það gustar af honum eins og
venjulega. „Þetta eru meiri tiðindin
frá Moskvu," segir hann. Van der
Wiel sýnir honum fréttaskeytin.
„Eintómur fyrirsláttur“
segir Larsen
„Þetta er eintómur fyrirsláttur,"
segir hann og heldur áfram. „Þeir
halda því fram, að ein af ástæðum
frestunar sé þreyta dómara. Það er
einfaldasta mál i heimi að fá nýja
dómara. Nei, það sem Kasparov ætti
að gera er að fara með málið fyrir
dómstóla — fá heimsmeistaratitil-
inn dæmdan sér til handa og bjóða
Karpov að ná fram hefndum í
september næstkomandi. Reglur FI-
DE um einvígishald eru skýrar og
þær gera ráð fyrir atvikum eins og
þreytu keppenda og veikindum. Þeir
fá að fresta tilteknum fjölda skáka,
en verða að mæta að því loknu, það
er einfalt mál. Þeir verða að mæta,
jafnvel á hækjum eða í hjólastól. Ef
keppandi mætir ekki, þá tapar hann
skákinni stendur í reglum FIDE.
Svo einfalt er málið. Mæti Karpov
ekki til leiks á mánudag, þá tapar
hann fjórðu skákinni, fimmtu á
miðvikudag og sjöttu og síðustu á
föstudag. Þar meö er einvíginu lokið
— og Karpov getur skorað á hinn
nýja heimsmeistara í september.
Raunar held ég að það verði ekki af
neinu einvígi í september, því Karp-
ov er veikur maður,“ sagði Larsen
og beindi máli sínu til Spassky.
„Þetta er sirkus, finnst þér það ekki
Boris?“
„llppákomur hinar ótrúlegustu"
„Sko ég hef staðið í sporum þess-
ara manna — ég hef háð einvígi um
heimsmeistaratitilinn og tala því af
reynslu. Uppákomurnar eru hinar
ótrúlegustu. Ég man ég varð ákaf-
lega reiður og sár, þegar Max Euwe,
þáverandi forseti FIDE, frestaði
einvígi mínu og Fischer hér í
Reykjavík. Ég varð raunar rosalega
reiður, því Fischer mætti ekki til
leiks og undir öllum kringumstæð-
um og samkvæmt reglum hafði
Fischer fyrirgert rétti sínum og ein-
vígið honum tapað. Frestun var eina
leiðin til að bjarga einvíginu, en ég
stóð með Euwe útávið og hann
reyndist mér um margt hollur.
Staðan í Moskvu er viðkvæm og við
þekkjum ekki baksviðið, við verðum
að hafa það í huga.
„Vitum ekki hvað
gerist að tjaldabaki“
Við vitum ekki hvað gerist að
tjaldabaki. I Niksic spurði ég Garri
af hverju í veröldinni hann hefði
ekki mætt til leiks gegn Viktor
Korschnoi i Pasadena í Bandaríkj-
unum í áskorendaneinviginu. Garri
sagði, aö honum mislíkaöi staður-
inn. Það kemur mér undarlega fyrir
sjónir, sagði ég við Garri, því Pasa-
dena er Ijúfur staður og fólkið á
þínu bandi. En einhver að tjalda-
baki sannfærði Garri um að tefla
ekki í Pasadena.
Ég spurði Viktor af hverju hann
hefði ekki sett á svið „hatur“ í ein-
víginu við Garri í Lundúnum, því
undir slíkum kringumstæðum telfdi
hann bezt. Viktor svaraði eins og
honum einum er lagið — yppti
syfjulega öxlum og sagði svo: „Boris,
ómeðvitað var ég reiðubúinn að tapa
fyrir Garri." En þetta vilja blaða-
menn ekki skrifa um,“ sagði
Spassky og hló. „Þetta hefur enginn
viljað skrifa, en þetta er þó stað-
reynd málsins," sagði hann með
áherzlu og bætti við. „Við vitum svo
lítið hvað gerist að tjaldabaki í
Moskvu. Það er svo margt, sem kem-
ur ekki fram í dagsljósið, en kann að
vera afgerandi fyrir þróun mála.“
llndirrótin fáránlegar reglur
í sömu svifum kom Arthur Yus-
upov, hinn sovéski inn í salinn og
þeir beindu tali sínu strax að hon-
um. „Þú varst í Moskvu um daginn.
Hvað er eiginlega að gerast,“ spurðu
þeir og Yusupov byrjaði að lesa
fréttaskeytin. Á sinn hæverska hátt
yppti hann öxlum, dró seminn og
sagði. „Þetta er allt hið undarleg-
asta mál og rætur þessara leiðinda
eru keppnisreglur — þessar fárán-
legu reglur um endalaust einvigi.
Vissulega var Karpov þreytulegur í
Moskvu þegar hann tapaði þriðju
skákinni, en við verðum að hafa í
huga að honum nægir aðeins einn
vinningur í viðbót til sigurs. Ég
hafði ekki á tilfinningunni, að hann
væri svo þreyttur að hann væri í
þann mund að leggja upp laupana.
Jú, undirrót allra þessara leiðinda
eru þessar reglur — skákmenn
þurfa að byggja á traustum grunni,
þetta eru slæmar reglur," svaraði
Yusupov. „ímyndið ykkur knatt-
spyrnuleik sem staðið hefur í fimm
mánuöi. Það væru allir búnir að fá
sig fullsadda af slíkum leik,“ sagði
hann. Hann vildi greinilega ekki tjá
sig frekar, brosti aðeins hæversk-
lega.
Karpov rúinn þreki
„Karpov hefur ekki þrek til að
vinna sjöttu skákina. Það var áber-
andi fyrstu daga einvígisins, að
Kasparov var taugaóstyrkur og kom
til leiks illa undirbúinn. Hann tók
svo þá ákvörðun að tefla til jafntefl-
is þegar staðan var 5—0 Karpov í vil
og draga einvigið á langinn. Og það
sem síðan gerist er að Karpov
bókstaflega brotnar saman — hefur
ekki þrek til að vinna sjöttu skákina
og þeir eru nú eins og tveir þunga-
vigtarmenn — hanga hvor utan í
öðrum til stuðnings. En hinn
siðferðilegi sigurvegari er tvímæla-
laust Kasparov. Flestir hefðu brotn-
að við að tapa þremur skákum, hvað
þá fimm, en ekki Garri Kasparov og
gagnrýni hans nú á rétt á sér. En ég
býð ekki í þá í einvígi í haust. Ég
þekki það af reynslu að það tekur
mann minnsta kosti 1 'k ár að jafna
sig eftir einvígi. Það tók mig langan
tíma að jafna mig eftir vonbrigðin
gegn Fischer. En það tók mig einnig
langan tima að jafna mig eftir að
hafa unnið heimsmeistaratitilinn
frá Tigran Petrosian," sagði Boris
Spassky.
Þeir voru samdóma um að skák-
listin biði aðeins tjón af atburðum í
Moskvu. „Þetta vekur athygli og
umtal um heim allan, en þeir sem
unna skákinni harma þessa uppá-
komu,“ sagði Boris Spassky. — HH.
A LOFTLEIÐUM I GÆR
Frá vinstri Boris Spassky, þá Bent Larsen. Vlastimil Hort og loks Van der Wiel
Mortfunblaðið/Július.