Morgunblaðið - 16.02.1985, Síða 29

Morgunblaðið - 16.02.1985, Síða 29
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 16. FEBRÚAR 1985 29 AF INNLENDUM VETTVANGI eftir BJÖRN BJARNASON Sagan endurtekur sig Þorsteinn Pálsson og Steingrímur Hermannsson raeta við fulltrúa Alþýðusambands íslands í fundarherbergi ríkisstjórnarinnar í kjaradeilunum i síðasta hausti. — samrádið aftur komið á dagskrá Sagan endurtekur sig, ekki síst stjórnmálasagan. Eftir harð- ar og markvissar efnahagsaðgerð- ir ríkisstjórnar Geirs Hallgríms- sonar í ársbyrjun 1978, sem mið- uðu að því að tryggja kaupmátt launa með öðru en sífellt fleiri verðlausum krónum í launaum- slaginu, risu verkalýðsfélögin hvert á eftir öðru öndvert gegn öllum slíkum ráðstöfunum. Efnt var til alls kyns mótmælaaðgerða. Alþýðubandalag og Alþýðuflokkur tóku höndum saman í nafni verka- lýðsins og sigldu sigurglaðir bæði í gegnum sveitarstjórna- og Al- þingiskosningar sumarið 1978. Þessum kosningum lyktaði með því að Framsóknarflokkur og Sjálfstæðisflokkur, sem áttu aðild að stjórn Geirs Hallgrímssonar, hlutu slæma útreið. Eins og jafn- an áður var þó nauðsynlegt að mynda stjórn að kosningunum loknum og lenti það i hlut Ólafs Jóhannessonar, formanns Fram- sóknarflokksins, að hafa forsæti í nýrri stjórn með fulltrúum Al- þýðubandalags og Alþýðuflokks. Eftir hörkuna sem stjórnvöld sýndu í ársbyrjun 1978 og mál- flutning og niðurstöðu í kosn- ingabaráttunni var hin nýja ríkis- stjórn Ólafs Jóhannessonar mynd- uð á nýjum forsendum. Hverjar voru þær? Jú, í orði kveðnu átti að láta „samningana í gildi", það er kjarasamningana frá 1977 sem ollu kollsteypu i efnahagslífinu. Kollsteypunni sem brugðist var við af hörku á fyrstu mánuðum ársins 1978. Þá var það sérstakt markmið rikisstjórnar A-flokk- anna og Framsóknar að stjóma i samráði við verkalýðshreyfing- una. Stjórnmálamennirnir ætluðu ekki að brenna sig á þvi að lenda i andstöðu við verkalýðsforystuna. Bæði alþýðuflokks- og alþýðu- bandalagsmenn töldu verka- lýðshreyfinguna máttarstólpa i flokkum sinum og vildu hlú að hreyfingunni með því að stjóma landinu í samráði við hana. Fram- sóknarmenn tóku glaðir kúvend- ingu bæði til vinstri og í verka- lýðsmálum. ^Rikisstjórn samráðsins var mynduð 1. september 1978. En strax 1. desember sama ár byrjaði hún að krukka i kaupið. Á þeim tima sem Alþýðubandalagið sat síðan nær samfellt í stjórn, til maí 1983, var alls krukkað 14 sinnum i kaupið, en aldrei vikið frá sam- ráðskenningunni, og aldrei lent i útistöðum við verkalýðshreyfing- una með þeim hætti að sérstaka athygli vekti. egar ríkisstjórn Steingríms Hermannssonar tók við í maí 1983, var sagt skilið við samráðiö. Það var gert með skýmm og af- gerandi hætti. Visitölutenging launa var afnumin með bráða- birgöalögum og kemur ekki til framkvæmda að nýju fyrr en 1. júní í ár, að óbreyttum lögum. Og ekki nóg með það, vinnustöðvanir og gerð nýrra kjarasamninga var bönnuð með lögum. Þessar harkalegu ráðstafanir nutu stuðnings mikils meirihluta þjóðarinnar allt árið 1983 og hlutu í raun viðurkenningu verkalýðs- forystunnar i verki með kjara- samningum sem gerðir voru í febrúar 1984. Á þessum tíma var staða rikisstjórnarinnar sterk. Allt gekk henni i haginn nema vöxtur þjóðarframleiðslunnar, sem hún hafði ekki á valdi sinu. Skömmu eftir að kjarasamning- arnir voru gerðir snemma árs 1984 fór að halla undan fæti hjá rikis- stjórninni. Þá kom allt í einu i ljós, að fjárlögin sem samþykkt voru á þingi í desember 1983 reyndust marklaus. í nokkrar vik- ur var stjórnarliðið að berjast við það á vormánuðum 1984 að fylla upp i fjárlagagatið. Að þvi máli var staðið með þeim hætti, að traustið á rikisstjórninni minnk- aði mikið. Þá strax hófust umræð- ur um að það þyrfti að styrkja stjórnina með þvi að skipta um mann eða menn i henni. Það var ekki gert en því hins vegar lýst yfir, að sumarið yrði notað til að marka skýra efna- hagsstefnu og semja verkefnaskrá fyrir ríkisstjórnina. Þetta var gert og lágu markvissar niðurstöður fyrir 6. september síðastliðinn. Áðeins fjórum dögum siðar hófst verkfall bókagerðarmanna og i byrjun október fóru opinberir starfsmenn í verkfall. Þegar upp var staðið að lokum með samningi Vinnuveitendasambandsins og Al- þýðusambandsins 6. nóvember 1984 voru markmið ríkisstjórnar- innar fokin út i veður og vind. Þá var enn rætt um að skipta þyrfti um menn í ríkisstjórninni. Iáramótaávarpi, 31. desember 1984, sagði Steingrímur Her- mannsson, forsætisráðherra, að nú þyrfti markvissa efnahags- stefnu. Hana ætluðu stjórnar- flokkarnir að móta til að koma í veg fyrir nýja kollsteypu. Hana myndi stjórnin ekki þola. Enn urðu umræður um að nauðsynlegt væri að styrkja stjórnina með því að skipta um menn i henni. . Niðurstaðan á því verki sem for- sætisráðherra ræddi í ávarpi sinu var kynnt 8. febrúar síðastliðinn. Þar er ekki að finna markvissa stefnu í hefðbundnum skilningi þess orðs. Stjórnin hefur valið þann kost að stjórna í samráði við aðila vinnumarkaðarins. Nú á að leita samninga um kaup og kjör áður en efnahagsmarkmiðin eru kynnt, þótt forsætisráðherra hafi enn talað um 5% gengissvigrúm á árinu og 10% verðbólgu í árslok i sjónvarpinu á þriðjudagskvöldið. Stjórnin hefur kúvent i afstöð- unni til vinnumarkaðarins frá því að stjórnarsáttmálinn var gerður, já, raunar frá því að markmið hennar voru sett fram 6. septem- ber síðastliðinn. Nú er að sjá hvernig aðilar vinnumarkaðarins bregðast við þessari nýju stöðu. Kennarar halda sér að vísu enn fast við harðlínustefnuna sem ein- kenndi BSRB í haust. Aðilar al- menna vinnumarkaðarins eru hins vegar farnir að ræða saman, að því er virðist í alvöru. Enn er ekki ljóst, hvort þau áform rikisstjórnarinnar heppn- ast að stjórna í samráði við laun- þega, hvort það tekst frekar með þeim hætti en ekki-samráðsstefn- unni að komast hjá kollsteypunni. Reynslan frá árunum 1978 til 1983 lofar ekki góðu um árangurinn. Verðbólga, lækkun kaupmáttar, misvægi milli launahópa og sér- kennilegur kyrkingur í þjóðlífinu samfara stjómlausri þenslu voru þá helstu einkennin. Samfara þessu varð svo pólitísk upplausn þar sem flokkar riðluðust og áhrifamenn rufu flokksböndin. Draga má í efa að ríkisstjórn Steingríms Hermannssonar sé nægilega sterk til að standast þá áraun sem samráð við aðila vinnumarkaðarins er. Því fer víðs fjarri að það sé auðveldari leið en að draga skýrar og skarpar víglín- ur. Samráðs-stjórnarhættir gáf- ust vel á tímum viðreisnarstjórn- arinnar. En það tók langan tíma að skapa þann trúnað milli manna sem var forsendan fyrir því að samráðið þá bar árangur. Auglýsingamennska í stjórn- málum og verkalýðsmálum hefur aukist hin síðari ár. Minnisvarða- áráttan veldur því að stjórnmála- menn treysta ekki lengur hver öðrum jafn vel og áður og sókn verkalýðsforingja eftir pólitískum ítökum ræður oft meira en „fag- legt“ mat. Hugmyndum um að styrkja rík- isstjórnina sem verið hafa á döf- inni í tæpt ár hefur ekki verið hrundið í framkvæmd. Verkföllin í haust veiktu ríkisstjórnina meira en fjárlagagatið. Nú liggur sem sé fyrir stefnubreyting hjá stjórn- inni. Valdabaráttan innan Alþýðu- bandalagsins um yfirráð í verka- lýðshreyfingunni á eftir að setja svip á stjórnmálaþróunina næstu vikur og mánuði. Verkalýðsfor- ingjar eiga undir högg að sækja í hinum „pólitíska armi“ hreyf- ingarinnar eins og Svavar Gests- son nefndi hinn margklofna flokk sinn, þegar hann þóttist hafa öll ráð í hendi sér. Á næstu vikum og mánuðum verður meira spennandi að fylgj- ast með því, hvernig til tekst í samskiptum rikisstjórnarinnar við aðila vinnumarkaðarins, en nokkru öðru í íslenskum stjórn- málum, vilji menn líta á aðalat- riði. Fróðlegt verður að fylgjast með því, hvernig alþýðuflokks- menn undir forystu hins nýja formanns reyna að troða sér inn í það mál. Og loks er ljóst, að náið samráð verkalýðsforystunnar við stjórnvöld og viðræður hennar við vinnuveitendur eru eitur í beinum þeirra, sem telja sig hafa náð und- irtökunum í verkalýðsmálum í Al- þýðubandalaginu. „Frá liðnum árum“ Myndlist Bragi Ásgeirsson „Frá liðnum árurn", er heiti sýn- ingar er hinn kunni myndlistar- maður Valtýr Fétursson stendur fyrir f Galleríi íslenzk list á Vest- urgötu 17. Á sýningunni eru þrjátiu olíu- málverk og þrjár vatnslitamyndir, sem iistamaðurinn hefur málað á síðastliðnum sjö árum, þannig að liðnu árin eru í sjálfu sér ekki ýkja mörg. Valtýr segir sjálfur um þess- ar myndir, að lftið beri á abstrakt- myndum enda séu þær örfáar á sýningunni en hinar undir miklum áhrifum. Þær hefðu ekki orðið til nema hann hefði verið búinn að mála abstrakt í um tuttugu ár og að hann hafi haft þörf fyrir að breyta til. Þetta er rétt hjá listamanninum svo langt sem það nær og þó held ég að allar myndirnar á sýningunni séu dæmigerðar abstraktmyndir svo sem hugtakið er skilgreint. Að vísu sjá menn móta fyrir landslagi í myndunum, svo og húsum og bát- um, já, jafnvel nöktum fyrirsætum, en útfærslan er í hæsta máta abstrakt, þ.e. huglæg. Annað mál er, að þær geta ekki allar talist óhlutlægar en það er allt annað hugtak, sem kemur abstraktinu ekki við, nema að hluta til. Abstr- akt, er sérhæfð hlutlaus hugmynd af því sem listamaðurinn upplifir og mjög oft má sjá móta fyrir hlutkenndum formum í myndum abstrakt-málara. Hér er því um hlutlaus hughrif að ræða af því sem listamaðurinn sér og lifir sig inn í að ræða, en ekki bein og sann- ferðug lýsing myndefnisins. Það hafa þó nokkuð margir mál- arar er fyrrum rannsökuðu lögmál hins óhlutlæga þróast yfir { hlut- kennd viðfangsefni og má hér nefna sjálfan Picasso svo og hinn gáfaða og róttæka málara Jean Hélion, sem er öllu minna þekktur hér á norðurslóðum. En útfærsla mynda þeirra var jafnan f besta máta abstrakt. Hið nýjasta, sem finna má í myndum Valtýs á þessari sýningu tel ég vera í myndunum „Brim“ (15) og „Vetur" (17) en í þeim nálg- ast hann natúralismann einna mest, litasamsetningin f seinni m.vndinni er mjög óvenjuleg frá hendi Valtýs og yfir henni er mikill ferskleiki, dulúð og dýpt einkennir hina og hér er um miklar andstæð- ur að ræða í útfærslu allri. Þá eru myndirnar „Krabbi“ (20), og „Hani“ (22) óvenjuleg viðfangsefni frá hendi listamannsins en þó sem fyrr í mjög frjálsri útfærslu. Þessi sýning getur engan veginn talist yfirlitssýning af neinu tagi heldur eins konar stikkprufa eins og ann- að, sem Valtýr hefur fengist við á undanförnum sjö árum, og sem slík er hún forvitnileg um margt. Þetta árið er Valtýr, „Borgar- listamaður', sem þýðir að hann nýtur starfslauna borgarinnar. Stefnir listamaðurinn að stórri sýningu á Kjarvalsstöðum að ári og þessi sýning kann þvl að vera fróð- leg uppstokkun fyrir hann sjálfan ásamt markverðri kynningu á vinnubrögðum listamannsins fyrir gesti og gangandi. Bragi Ásgeirsson.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.