Morgunblaðið - 16.02.1985, Side 39

Morgunblaðið - 16.02.1985, Side 39
MORGUNBLAÐID, LAUGARDAGUR 16. PEBRÚAR 1985 39 Frá vígslu nýju smfðastofunnar. Morgunblaðift/Kjartan Aðalstcmaaon Þórdís Bergsdóttir, formaður skólanefndar, tók við smíðastofunni og afhenti síðan Albert Ómari Gíslasyni skólastjóra lyklavöldin. Seyðisfjörður: Fyrsti áfangi skól- ans tekinn í notkun HINN II. janúar slíðastliðinn var fyrsti áfangi nýs skóla á Seyðisfirði tekinn í notkun. Skólahús hefur ekki verið byggt nema einu sinni áður á Seyðisfirði, en það var árið 1907. Þá kom út til íslands til- höggvinn viður í skólahús og var húsið reist um sumarið og kennsla hafin í því um haustið. Byggingará- ætlun nýja skólans gerir ráð fyrir a.m.k. 6 árum. Þessi fyrsti áfangi nýja skól- ans er smíöastofa og er hún nú þegar búin helstu trésmíðatækj- um. Ennfremur eru grupnplötur fyrir öll skólahúsin tilbúnar. Skólinn er teiknaður af Vaid- imar Harðarsyni arkitekt og Verkfræðistofa Austurlands sér um verkhönnun. Verktaki þessa fyrsta áfanga var Steypustöð Seyðisfjarðar. Verið er að vinna að útboði næsta áfanga, sem inniheidur al- mennar kennslustofur. Gert er ráð fyrir að taka hann í notkun innan tveggja ára. Fréttaritari. l>orvaldur Jóhannsson, bæjar- stjóri, afhenti smíðastofuna fyrir hönd Seyðisfjarðarbæjar og ríkis- sjóðs. Breytingar á Kögurhólfi DAGANA 11.—14. desember 1985 og 1. og 2. febrúar sl. var Kögurhólf- ið kannað undir eftirliti Hafrann- sóknastofnunarinnar. í Ijósi þeirra athugunar hefur ráðuneytið ákveðið að leyfa togveiðar í norðvesturhluta hólfsins og markast það eftir þá breytingu af eftirgreindum punkt- um: a. 67°19’6 N, 23°01’0 V b. 67°20’0 N, 22°32’5 V c. 67°01’0 N, 22°12’3 V d. 66°57’0 N, 23°21’0 V e. 67°03’3 N, 23°30’6 V Breyting þessi tekur gildi frá og með 19. febrúar nk. — Fréttatilkynning. Sveinbjörg Guðjóns dóttir - Minning Dýpsta sæla og sorgin þunga svífa hljóðlaust yfir storð. Þeirra mál ei talar tunga, tárin eru beggja orð. (Ólöf Sigurðardóttir.) í dag er til moldar borin í Há- bæjarkirkju í Þykkvabæ Svein- björg Guðjónsdóttir fædd og upp- alin hjá foreldrum sínum Guðjóni Magnússyni og Einhildi Sveins- dóttur í Þúfu, Vestur-Landeyjum, en bjó mestan hluta ævi sinnar í Þykkvabæ, frá 1958 í Dísukoti og frá 1968 í Hákoti. Okkur setti hljóð sl. laugar- dagsmorgun er okkur barst fregn- in um andlát Sveinu. Eftir lang- dregin veikindi síðastliðin ár hef- ur hún öðlast hina dýpstu sælu sem jafnframt hefur sett þunga sorg á okkur hin sem Sveinu þekktum. Það er búið að taka á að horfa uppá þessa elskulegu konu verða veikindum að bráð, að horfa uppá hvernig hinn dugmikli kraft- ur hinnar íslensku húsfreyju hef- ur dvínað út og gert hana iiáða okkur hinum, þeim sem hér áður þurftu alltaf að sækja sitt til hennar. Við vissum öll að hverju stefndi og Sveina ekki síst, hún var orðin sátt við það og gerði okkur það ljóst, þess vegna vitum við nú að hún fer frjáls og sátt á móts við sinn guð og sitt fólk. Kynni okkar systkina af Sveinu hófust æsku okkar. Ingibjörg, móðir okkar, og Sæli, voru yngst í itóra systkinahópnum f Dísukoti ■ >g þau þannig e.t.v. bundin fastari böndum en hin systkinin en mikill kærleikur ríkir þeirra á milli, sá kærleikur sem yfirfærðist á fjöl- skyldur þeirra beggja jafnt maka sem börn. Eftir að þau Sæli og Sveina fóru að búa í Disukoti fór það þannig að við systkinin vorum tekin þangað i hinni árlegu sumardvöl okkar. Á hverju ein- asta sumri frá 1958—1983 hefur a.m.k. eitt af okkur þremur systk- inum dvalið hjá þeim. Frá því elsta til þess yngsta og nú síðustu árin afkomendur okkar. Allan þennan tíma höfum við mætt ein- skærri ástúð, hlýju og umhyggju hjá Sveinu og Sæla. Ekki einu sinni er húsið þeirra í Disukoti brann, árið 1967, féll úr ár hjá okkur. Þótt þau hefðu misst allt sitt og bjuggu í bráöabirgðahús- næði og höfðu miklu meira og erf- iðara við að hafast var alltaf sjálf- sagt að bæta við einum í fjölskylduhópinn. Það var stund- um erfitt að kveðja foreldra er þau fóru i borgina aftur en þau vissu í hvaða höndum þau skildu okkur eftir í. Sæist tár á hvarmi var Sveina komin, hún hafði af svo miklu að gefa og fórnaði svo miklu þannig að við gætum verið glöð og ánægð í návist hennar. Við vorum tekin sem eitt af börnum þeirra, við vorum alltaf jafn rétthá og þau og við fengum allt til jafns á við þau. Þetta hefur gert það að verkum að við erum öll eins og systkin. Fyrir borgarbarnið sem elst upp á malbiki er sveitin nýr heimur. Slíkt er aðdráttarafl hennar að við komum pangað aftur og aftur. Þar Legsteinar grarnt — - marmari Optó aila daga. ^^la/níl xf. sinnig kvöld Unnarforaut 19, SBttjamamMi, og halgar . símar 620809 og 72818. ber hæst náttúruna sjálfa, dýrin mannfólkið og athafnir þess. Fyrir okkur var heimabakað brauð, broddur og spenvolg kúamjólk ný- lunda. Sveina hafði einstakt lag á að láta okkur líða vel og láta okkur borða hollan og kjarngóðan mat. Hún var mikilhæf húsmóðir sem lét sér annt um að prýða og fága heimili sitt þannig að öðrum gæti ávallt liðið þar sem best. Það fengu margir að njóta gestrisni hennar á heimili hennar þvi þar sem glaðværð og vinátta haldast í hendur er gestkvæmt. Unglingsárin eru eflaust þau ár sem móta manninn hvað mest. Að fá að njóta slíkrar handleiðslu sem við nutum hjá Sveinu og Sæla er okkur góður skóli. Fyrir vikið berum við meiri umhyggju fyrir Móður jörð, dýrum og ekki síst mannfólkinu sjálfu. Trúin var ofarlega í huga Sveinu. Hún fór ekki hátt með það en i henni átti kristin trú öflugan liðsmann. Hún lét okkur krakkana fara til kirkju þegar við vorum ung til þess að auka gildi trúarlífs í augum okkar. Gamalkunnugt íslenskt mál- tæki segir: „Enginn veit hvað átt hefur fyrr en misst hefur.“ Við horfum nú á bak elskulegri konu sem var okkur öllum svo kær. Við tregum hana sárt en sorgin er mest hjá ástkærri fjölskyldu hennar sem við vottum okkar innilegustu samúð og biðjum góð- an guð að styrkja. Við þökkum Sveinu af alhug fyrir alla þá fórn- fýsi, þann kærleik og þá umönnun sem hún sýndi okkur á allan hátt. Við vitum að góður guð tekur við henni handan við skilin, sá guð sem „horfir svo hýrt og bjart, sá guð sem andar á myrkrið svart“. Nú ertu leidd, mín ljúfa, lystigarð Drottins í, þar áttu hvíld að hafa hörmunga og rauna frí, við Guð þú mátt nú mæla, miklu fegri en sól unan og eilíf sæla er þín hjá lambsins stól. Dóttir, í dýrðar hendi Drottins, mín, sofðu vært, hann, sem þér huggun sendi, hann elskar þig svo kært. Þú lifðir góðum Guði, i Guði sofnaðir þú, í eilífum andarfriði ætíð sæl lifðu nú. (Hallgrímur Pétursson.) Hvíldu í friði. _ Marta, Áslaug, Ármann Oskar og Ingþór. Sendum okkar innilegustu þakkir til allra þeirra er sýndu okkur samúð og hlýhug vegna andláts móður okkar, HALLDÓRU VALGERDAR JÓHANNSDÓTTUR, Úthaga 12, Selfoasi, og vottuöu minningu hennar viröingu. Sérstakar bakkir til lækna og starfsfólks á deild 11-G á Land- spitalanum. Jónlna Hugborg Kjartansdóttir, Sigurbjörn Snævar Kjartansson, Jóhann Bjarni Kjartansson.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.