Morgunblaðið - 16.02.1985, Page 51
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 16. FEBRÚAR 1985
51
VELVAKANDI
SVARAR í SÍMA
10100 KL. 11-12
FRÁ MÁNUDEGI
TIL FOSTUDAGS
XmiMÍi
Hvort er
öruggara?
Hannes Ólafsson, Hnífsdal
skrifar:
Mig langar til að beina spurn-
ingu minni til lækna á sjúkra-
Athvarf
og opið
hús
Ein áhyggjufull skrifar:
Ég get ekki orða bundist eftir
að ég las grein í Mbl. 7. þ.m. sem
nefnist „Stofnum athvarf fyrir
unga fíkniefnaneytendur".
Þannig vill til að ég á 17 ára
stúlku sem hefur verið fíkni-
efnaneytandi frá 14 ára aldri.
Hún vill ekki búa heima heldur
vera út af fyrir sig með „lýð-
num“ eins og hún nefnir það.
Hún er mjög dugleg að læra, tók
samræmdu prófin með ágætum.
Þó stundaði hún ekki skólann
eins og skyldi, var í gæslu og
meðferð á sjúkrahúsum af og til
sl. vetur.
Við viljum hjálpa þeim en það
virðist enginn grundvöllur vera
fyrir þeirri fórnfýsi sem við vilj-
um leggja til. Ég gæti sagt öll
þau sömu orð og hin sorgmædda
móðir skrifaði um drenginn
sinn.
Stofnum athvarf fyrir þessi
ifhgu og afvegaleiddu börn og
einnig væri æskilegt að við for-
eldrar þessara ungmenna hefð-
um opið hús til að ræða okkar
vandamál.
húsum borgarinnar. Ég hef
heyrt svona á milli manna, að
læknar tækju ekki mark á svo-
kölluðum SOS-nistum sem seld
hafa verið að undanförnu. Taka
læknar þá meira mark á plötun-
um sem Lions-hreyfingin selur?
Ég hef sjálfur t.d. SOS-nistið
og límmiða í mínu veski. Ég þjá-
ist nefnilega af sjúkdómi sem
getur leynt mjög á sér, þannig
að ef maður t.d. fellur í yfirlið
þá getur fundist áfengisþefur úr
vitum manns. Er ég hér að tala
um sykursýki.
Því spyr ég hvort sé öruggara,
SOS-nistið eða platan frá
Lions-hreyfingunni?
Skrifiö eða
hringið til
Velvakanda
Velvakandi hvetur lesendur til
að skrifa þættinum um hvaðeina,
sem hugur þeirra stendur til —
eða hringja milli kl. 11 og 12,
mánudaga til fostudaga, ef þeir
koma því ekki við að skrifa.
Meðal efnis, sem vel er þegið,
eru ábendingar og orðaskipti,
fyrirspurnir og frásagnir, auk
pistla og stuttra greina. Bréf
þurfa ekki að vera vélrituð, en
nöfn, nafnnúmer og heimilisfdng
verða að fylgja öllu efni til þátt-
arins, þó að höfundar óski nafn-
leyndar.
Sérstaklega þykir ástæða til
að beina því til lesenda blaðsins
utan höfuðborgarsvsðisins, að
þeir láti sinn hlut ekki eftir
liggja hér í dálkunum.
Þessir hringdu . . .
Styrkjum
Virkið
Sigrún hringdi:
í framhaldi af ummælum Ás-
geirs Einarssonar í Velvakanda sl.
miðvikudag skora ég á alla að
leggja sitt af mörkum svo að Virk-
ið geti gengið áfram.
Asgeir á mikið þakklæti skilið
fyrir þetta framtak sitt. Sem
kunnugt er hefur nú verið opnaður
gíróreikningur fyrir framlög til
Virkisins. Væri það skömm ef fólk
brygðist ekki vel við og léti sitt af
hendi rakna. Stöndum saman og
styðjum við bakið á þeim sem
hvergi eiga höfði sínu að halla.
Jón Baldvin
og
fatafellurnar
Ein undrandi hringdi:
í Helgarpóstinum er spurt hvað
sé líkt með Jóni Baldvin og fata-
fellunum.
Að vel íhuguðu máli sé ég engan
mun.
Menningarverðmæti þjóðarinn-
ar benda víða á háleit markmið að
keppa að og þau má ekki skera
niður vegna hjálparstarfs þó víða
sé þörf, önnur úrræði verður að
finna.
Mig grunar reyndar að fólk
skrifi svona bréf af því að það er
mótsnúið kirkjum yfirleitt. Sumt
fólk segir hneykslað yfir nýrri
kirkjubyggingu, sem einhvers
staðar er að rísa, að það sé nóg af
kirkjum fyrir, þær standi hálf-
tómar oftast nær.
En málið er ekki svona einfalt.
Það er stofnaður söfnuður í nýjú,
vaxandi bæjarhverfi, þessi söfnuð-
ur getur ekki starfað með aðgangi
að kirkju, sem er í fjarlægu bæj-
arhverfi. Hann þarf aðstöðu í sínu
nágrenni, eigin félagsmiðstöð og
þess vegna berst fólk úr söfnuðin-
um við að koma upp kirkju.
Þó stundum sé þunnskipað við
messur er það ekki rétt að kirkjur
standi tómar þess utan. Þar fer
margt fleira fram en sjálfar
sunnudagsmessurnar. Þetta fer
bara fram hjá fólki, sem ekkert
vill hafa með kirkjur og trúmál að
gera.
Ég skil sorg móður, sem segir
hrakfallasögu sonarins unga. Hún
spyr að lokum: Hvað myndi Krist-
ur segja?
Hún er greinilega ekki í vafa að
honum væri fremur að skapi að
fólk leggi peningana sína í athvarf
fyrir afvegaleidda unglinga en
kirkjuorgel.
Jesús svarar ekki svona spurn-
ingu beint, þó hann sé án efa oft
Bréfritari, Kristín Jónsdóttir.
nálægur í minningarkirkju trú-
arskáldsins, sem orti honum svo
stórbrotin ljóð, á þeim tíma sem
menning Islands var í dýpstri
lægð, að nútímafólk les þau enn og
syngur og leitar þar huggunar.
En Jesús átti það til á jarðvist-
ardögum sínum að koma fólki á
óvart.
I sambandi við þetta orgelmál
og deilur kom mér í hug ein slík
saga. Það gerðist þegar Jesús var
kominn í loftsalinn til að halda
hina síðustu páskahátíð með læri-
sveinunum. Hann einn vissi að
hverju fór. Þá kom þar vinkona
hans með smyurslabauk, kannski
hafa þessi smyrsl kostað alla
sparipeningana hennar. Hún
smurði fætur meistarans og þerr-
aði með hári sínu. Ilminn af
smyrslunum lagði um allan sal-
inn.
Þá sagði Júdas, sem gætti
pyngjunnar:
— Því voru þessi smyrsl ekki
seld fyrir 300 denara og gefin fá-
tækum?
En Jesús sagði: — Lát hana í
friði, hún hefur geymt þessi
smyrsl til greftrunardags míns.
Fátæka hafið þér alltaf hjá yður
en mig hafið þér ekki ávallt —.
Hún kom til að heiðra meistar-
ann á hátíðinni, hún kom til að
geaf Guði dýrðina. Hann gat þegið
þá fórn.
Þeir sem vilja gefa Hallgríms-
kirkju þetta stóra vandaða orgel,
ætla að gefa Guði dýrðina með
tónlist. Hugsum okkur að orgelið
komi í stað smyrslabauks Maríu
og tónaflóð í stað smyrsla, sem
fylltu loftsalinn ilmi.
Orgelið mun koma og fylla hina
stóru kirkju guðdómlegum hljóm-
um þegar meistarar tónlistarinn-
ar fara um það höndum. *
Kristur mun einnig þiggja þá
fórn.
Og þú, hrellda móðir, týndu ekki
voninni þinni, eins og þú segir —
meðan er líf, er von. —
Hann sem sagði: — Ég er með
yður alla daga, allt til enda ver-
aldarinnar. — Hann getur enn
gert kraftaverk.
Bladburðarfólk
óskast!
fUíurpwM&liili
Vesturbær
Granaskjól
Austurbær Sóleyjargata
Miðbær I
Viðtalstími borgarfulltrúa
Sjálfstæðisflokksins í
Reykjavík
Ðorgarfulltrúar Sjálfstæöisflokksins veröa til viötals i Valhöll, Háaleit-
isbraut 1, á laugardögum frá kl. 10—12. Er þar tekiö á móti hvers
kyns fyrirspurnum og ábendlngum og er öllum borgarbúum boöiö aö
notfæra sér viötalstima þessa.
i
Laugardaginn 16.
febrúar veröa til viö-
tala Jóna Gróa Sig-
uröardóttir ■ atjórn
framkvæmdanefndar
vegna bygginga
stofnana í þágu aldr-
Böra og i fræðsluráöi
og Einar Hákonarson,
formaður i atjórn
Kjarvalaataöa og i
fræðsluráöi.
GÆÐA
BOLLURl
Allar tegundir af bollum,
einnig vatnsdeigsbollur.
VATNSDEIGS-
RJOMAHRINGUR
A 150 KR.
Borgartioltsbraut 19 sfmi 43560