Morgunblaðið - 16.02.1985, Qupperneq 56
LAUGARDAGUR 16. FEBRÚAR 1985
VERÐ í LAUSASÖLU 25 KR.
Rækjuvinnsluleyfi til Patreksfjarðar:
„Óánægður með
margt í þessari
afgreiðslu"
— segir Matthías Bjarnason ráðherra
„ÞGSSAR fréttir koma mér afar spánskt fyrir sjónir og satt að segja trúi
ég þessu ekki fyrr en ég tek á því. Málsmeðferðin er öll mjög undarleg,“
sagði Matthías Bjarnason, samgönguráðherra og 1. þingmaður Vest-
fjarða, er Mbl. leitaði áiits hans á þeirri fullyrðingu kaupfélagsstjóra
Kaupfélags V-Barðstrendinga á Patreksfirði að félagið muni væntanlega
fá leyfi til rækjuvinnslu í sláturhúsinu á staðnum. Kram kom í blaðinu í
gær að annað fyrirtæki á Patreksfirði, Vatneyri hf., hefur sótt um leyfi til
rækjuvinnslu þar heima.
Matthías Bjarnason minnti á,
að sláturhúsið á Patreksfirði
hefði upphaflega verið frystihús,
sem Hraðfrystihús Patreks-
fjarðar hf. hefði selt kaupfélag-
inu. „Kaupfélagið ákvað að
breyta húsinu í sláturhús og
kjötvinnslu og það var lagt mik-
ið kapp á að íeggja niður minni
sláturhús í sveitunum í kring,
Rauðasandshreppi, Barða-
strandarhreppi og Tálknafirði,"
sagði Matthías. „Til allrar ham-
ingju tókst ekki að leggja niður
sláturhúsið á Bíldudal. Breyt-
ingarnar á húsinu kostuðu mikið
fé, sem kom úr opinberum sjóð-
um, m.a. frá Framleiðsluráði
landbúnaðarins. Sjálfur tel ég að
aldrei hafi verið fjárhagslegur
grundvöllur fyrir rekstri hússins
miðað við sláturfé í sýslunni."
Ráðherra sagði að sér væri
kunnugt um að fyrir hálfu öðru
ári hefði fyrirtækið Vatneyri hf.
(sem misritaðist Vatnar hf. í
blaðinu í gær) sótt um leyfi fyrir
rækjuvinnslu á Patreksfirði.
„Því bréfi hefur aldrei verið
svarað af sjávarútvegs-
ráðuneytinu en nú skilst mér að
það sé eiginlega búið að lofa HP
leyfinu. Eg vil ekki trúa að svo sé
fyrr en ég tek á því — ekki á
meðan hinum hefur ekki verið
svarað. Ég er óánægður með
margt í þessari afgreiðslu,"
sagði Matthías Bjarnason.
Um hvort málið yrði tekið upp
í ríkisstjórninni sagði hann:
„Málið er í höndum viðkomandi
ráðherra en ef annar stjórnar-
flokkurinn telur að gengið sé
lengra en hann fær skilið, þá
geri ég ráð fyrir að málið verði
rætt í stjórninni."
Sjómannadeilan:
Olían streymir í land í Flatey
Eins og Mbl. hefur skýrt frá flutti varðskipið Týr íbúum Flateyjar á Breiðafirði 30 þúsund lítra af olíu, en
íbúarnir ellefu voru þá orðnir olíulitlir. Þessa mynd tók Helgi Hallvarðsson þegar olíunni var dælt í land, en
þarna segir hann vera um fjögurra metra mun á flóði og fjöru.
Sjómenn höfnuðu tilboði
útgerðarmanna í gærkvöldi
— teljum þá ekki hafa nálgast okkur nóg, segir formaður Sjómannafélags Reykjavíkur
„VIÐ TELHIM þetta tilboð útgerðarmanna ekki aðgengilegt — enn vantar
talsvert upp á að við teljum þá hafa nálgast okkur nægilega mikið,“ sagði
(•uðmundur Hallvarðsson, formaður Sjómannafélags Keykjavíkur, í samtali
við blaðamann Mbl. seint í gærkvöldi. Þá höfðu fulltrúar sjómanna á samn-
ingafundi með útgerðarmönnum hjá ríkissáttasemjara hafnað tilboði, sem
útvegsmenn lögðu fram rétt fyrir kvöldmat í gær, og aftur lagt höfuðáherslu
á upprunalcgar kröfur sínar um ívöfoldun kauptryggingar.
Samkvæmt upplýsingum Mbl.
hljóðaði tilboð útgerðarmanna
upp á um 20% hækkun kauptrygg-
ingar og 15% hækkun á kauplið-
um og föstum launum á stórum
togurum. Þegar tilboðið hafði ver-
ið lagt fram var fundum frestað til
kl. 21. Hálftíma síðar svöruðu sjó-
menn útgerðarinnar og var beðið
viðbragða útvegsmanna þegar
Mbl. hafði síðast fregnir af fund-
inum. Þá var talið iíklegt, að mál-
in gætu þokast eitthvað áfram svo
ekki þyrfti að koma til verkfalls.
Tilboð útvegsmanna miðast við
samningstíma til loka næsta árs.
15% hækkun komi þegar á kaup-
tryggingu og 2,4% hækkun 1.
marz og 1. maí. 10% hækkun komi
þegar á föst laun á stóru togurun-
um (500 lestir og stærri) og 2,4%
1. marz. og 1. maí. Hefði samning-
um sjómanna ekki verið sagt upp,
hefðu kauptrygging og föst laun
svo og aðrir launaliðir hækkað um
5% 1. janúar. Því er hér um að
ræða hækkun við gildistöku samn-
ingsins, sem er 10% — og 5% um-
Sjóðanefnd búin að skila tillögum til forsætisráðherra:
Lán fjárfestingarlánasjóðanna
fari í gegnum viðskiptabankana
fram það, sem annars hefði orðið.
Þá er gert ráð fyrir, að samning-
urinn taki kaupbreytingum miðað
við kaupbreytingar verkafólks á
samningstímanum, að öðru leyti
en þeim hækkunum, sem verða 1.
marz og 1. maí.
Samkvæmt því samkomulagi,
sem náðist um lífeyrismál sjó-
manna í fyrradag, og háð er því að
um aðra hluti semjist — er gert
ráð fyrir þremur þrepum í lífeyr-
isgreiðslum þannig að við upphaf
samningstímans verði greitt í líf-
eyrissjóð af 80% af heildartekjum
sjómanna, síðar á samningstiman-
um verði greitt af 90% heildar-
tekna og undir lok samningstím-
ans er gert ráð fyrir að lífeyris-
greiðslurnar verði miðaðar við
fullar heildartekjur, að sögn Guð-
mundar Hallvarðssonar, for-
manns Sjómannafélags Reykja-
víkur.
Hæstiréttur dæmir
í „Scobie-málinu“
Framkvæmdastofnun lögö niður í núverandi mynd
SJÓÐANEFND gerir að tillögu sinni að fjárfestingarlánasjóðirnir verði
steyptir saman í þrjá sjóði atvinnulífsins, Sjávarútvegssjóð, Búnaðarsjóð og
Iðnaðarsjóð, og gerir nefndin það að tillögu sinni að stjórn hvers sjóðs hafi
miklu meira sjálfstæði en nú er, samkvæmt því sem Friðrik Sophusson
alþingismaður, einn nefndarmanna, upplýsti blm. Mbl. um í gær.
Sjóðanefnd hefur nú skilað for-
sætisráðherra tillögum sínum
varðandi uppstokkun sjóðakerfis-
ins og nýsköpun atvinnulífsins, í
formi 6 eða 7 frumvarpa, en
nefndin lítur ekki þannig á að hún
hafi lokið störfum, þar sem búist
er við að frumvörpin taki breyt-
ingum i meðförum ríkisstjórnar
og stjórnarflokka.
Nefndin gerir ráö fyrir, aö
stjórnir sjóðanna hafi það mikiö
sjálfstæði. að þær geti tekið
ákvarðanir um lán til annarrar
starfsemi en þeirrar sem sjóðirnir
eru kenndir við. Jafnfrsmt leggur
nefndin til að sem mest af lánveit-
ingum fjárfestingarlánasjóðanna
fari í gegnum viðskiptabankana.
Gert er ráð fyrir að fjárfestingar-
lánasjóðir geti tekið erlend lái>
beint. en ekki þurfi milligöngu
Framkvæmdasjóðs. Lántökur
þessar yrðu þó aö vera innan
ramma lánsfjárlaga.
Nefndin gerir aö tillögi sinn! aö
Framkvæmdastofnun verð lögo
niður í núverandi mynd, en í stað
hennar komi Byggðastofnun, sem
hafi þrengra starfssvið, en meira
sjálfstæði en nú er. Verður
Byggðastofnun samkvæmt þessu
ætlað að ráðstafa fjármagni því
sem Alþingi ákveður að leggja í
byggðamál, og það verður þing-
kjörin stjórn sem ráðstafar því og
hefur hún tiltölulega frjálsar
hendur um skipulag stofnunarinn-
ar og ráðstöfun fjárins.
Þá gerir sjóðanefnd tillögu um
að stofnað verði eignarhaldsfélag
ríkisins, sem fari með eignarhluta
ríkisins i atvinnufyrirtækjum
þeim sem ríkiö ætlar sér aö selja.
Gerir þessi tillaga ráð fyrir því ao
hver fagráðherra fyrir sig taki
ákvörðun um hvort fyrirtækið fer
til þessa eignarhaldsfélags, en það
myndi þá jafngilda samþykki
ráðherrans fyrir sölu á fyrirtæk-
inu.
Loks gerir sjóðanefnd það að til-
lögu sinni að stofnað verði hluta-
félag með miklu hlutafé, jafnvel
200 milljónum króna, í eigu ríkis
og annarra aðila, svo sem banka,
sparisjóða, fjárfestingarlána-
sjóða, fyrirtækja og einstaklinga.
Vonast nefndin til að ríkið geti
verið minnihlutaeigandi að slíku
fyrirtæki, sem fyrst og fremst
myndi standa fyr:r forkönnunum.
og hagkvæmnisathugunun’ og
hlutafjárframlögum i ný fyrir-
tæki, sem síðar. yrðn seld á al-
mennum markað’ eftir einhvem
árafjölda.
Refsing Ingvars
Heiðars þyngd
í G/EK voru kveðnir í Hæstarétti upp
dómar í „Ncobic-málinu" svokallaöa,
fyrir vopnaA rán viA útibú Lands-
banka íslands fvrir ári síAan. William
James Scobie var dæmdur til fimm
ára fangelsÍKVistar auk greiAslu
skaAabóta og er dómurinn yfir honum
í meginatriAum á sömu lund og í
Sakadómi.
Hins vegai’ var refsing Ingvars
Heiðars Þórðarsonar þyngd Hann
var dæmdur i ?,'/• árs fangelsi auk
greiðslu skaðabóta, en var dæmdur
í 1V:. árs fangelsi í Sakadómi. Griff-
ith David Scobie var dæmdur i sex
mánaða skilorðsbundið fangeisi.