Morgunblaðið - 01.03.1985, Page 15
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 1. MARS 1985
15
Egilsstaðir:
Þorrafagn-
aöur grunn-
skólanema
Kgil.sstööum, 17. febrúar.
SÁ siður hefur viðgengist undanfar-
in 10 ár hjá grunnskólanemendum
hér á Egilsstöðum að efna til sér-
staks fagnaðar á þorra, og eru þá
kræsingar góðar á borðum. Að vísu
ekki súrmeti eða hákarl heldur
vænar hnallþórutertur og flatbrauð
með hangikjöti. Og í stað þess
mjaðar sem fullorðnir neyta gjarn-
an á þorrafagnaði og reynist á
stundum göróttur væta grunnskóla-
nemendur kverkarnar með kóla-
drykkjum hvers konar, appelsíni
eða malti.
Að þessu sinni var þorrafagn-
aður grunnskólanemenda haldinn
með sérstökum myndarbrag og
vöktu skreytingar athygli, en þær
voru unnar af völdum hópi nem-
enda er naut aðstoðar Guðrúnar
Sigurðardóttur, hannyrða-
kennara.
Þorrafagnaðurinn hófst með
borðhaldi, en meðan á því stóð
var haldið uppi hvers konar
skemmtan og fjöldasöng undir
öruggri stjórn veislustjórans,
Hjalta Þorkelssonar í 7. bekk.
Skemmtiatriði voru undirbúin af
þar til völdum hópi nemenda er
naut aðstoðar tómstundafulltrúa
Egilsstaðahrepps, Ingu Þóru
Vilhjálmsdóttur.
Að borðhaldi loknu var stiginn
dans fram eftir nóttu, og lék
hljómsveitin Náttfari fyrir dansi.
Þorrafagnaður þessi fór eins og
endranær mjög vel fram.
Formaður nemendaráðs Eg-
ilsstaðaskóla er Hilmar Gunn-
laugsson.
— Ólafur.
Sjómenn á Djúpavogi:
Oryggisæfing
í Sunnutindi
Djúpavogi, 27. febrúar.
FUNDUR um öryggismál sjómanna var haldinn hér á Djúpavogi sunnudag-
inn 24. febrúar síðastliðinn. Þorvaldur Axelsson erindreki SVFÍ kom á
fundinn og flutti hann erindi um öryggismál.
Fundurinn var vel sóttur og
voru nánast allir sjómenn mættir.
Tekið var fyrir allt sem viðkemur
slysum og slysagildrum um borð í
skipum. Hvatti Þorvaldur menn
til að halda æfingar um borð og
sáum við fljótt árangur af komu
hans því á þriðjudag mætti öll
áhöfnin á Sunnutindi um borð i
skipinu og æfðu þeir þar allt frá
reykköfun og að bjarga manni sem
fallið hafði fyrir borð. Er þetta i
fyrsta skipti sem svona ítarleg æf-
ing fer fram hér. — Fréttaritari.
Utvarp Akureyri:
Fyrsta staðbundna út-
varpið hefur starfsemi
FYRSTA staðbundna útvarpið á ís-
landi tekur til starfa hjá ríkisútvarp-
inu á Akureyri í dag, föstudaginn 1.
mars klukkan 7.30 og stendur í 30
mínútur. Síðar um daginn klukkan
18.00 verður útvarpað aftur og þá
einnig í 30 mínútur.
Reglulegar útsendingar verða
fimm daga í viku, frá mánudegi til
föstudags, og er útvarpað á
FM-bylgju 96.5 megariðum. Þetta
eru tilraunaútsendingar og 1. júní
verður árangur veginn og metinn
og breytingar gerðar eftir þörfum.
Talið er víst, að útsendingar stað-
bundins útvarps heyrist á Akur-
eyri, í Eyjafirði og í Mývatnssveit.
Sjö starfsmenn ríkisútvarpsins
á Akureyri annast staðbundna út-
varpið, með tveimur tækni-
mönnum og undir stjórn Jónasar
Jónassonar deildarstjóra. Útvarp-
ið flytur staðbundnar fréttir, upp-
lýsingar, auglýsingar og tónlist,
viðtöl og annað sem þurfa þykir.