Morgunblaðið - 01.03.1985, Síða 23
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 1. MARS 1985
23
„Nauðsynlegt að setja
lög um dráttarvexti"
— segir Baldur Guðlaugsson hrl., sem telur
dráttarvaxtamálin í hinum mesta ólestri
Lögfræftingafélag fslands hélt ný-
lega fund um réttarreglur um drátt-
arvexti. Að sögn Baldurs Guðlaugs-
sonar hæstaréttarlögmanns, sem var
einn fjögurra framsögumanna á
fundinum, var sú skoðun ríkjandi á
fundinum að þessi mál væru í hinum
mesta ólestri og væri brýn nauðsyn á
því að setja almenn lög um dráttar-
vexti.
Sagði Baldur að Seðlabankanum
hefði verið falið það vald að fara
með dráttarvexti en bankanum
hefðu verið ákaflega mislagðar
hendur í því efni. Hann hefði ekki
fylgt neinni markaðri stefnu,
dráttarvextir hefðu á undanförn-
um árum sveiflast frá því að vera
neikvæðir um tugi prósenta miðað
við verðbólgu og upp í það að vera
12% miðað við mánaðarlegan
dráttarvaxtareikning, eins og ver-
ið hefði á sl. ári.
Þetta hefðu menn almennt verið
sammála um að væri óþolandi auk
þess sem dráttarvaxtaákvarðanir
Seðlabankans hefðu á undanförn-
um árum verið haldnar ýmsum
öðrum ágöllum. Sagði Baldur að
fyrir lægju tillögur að lagareglum
um bætur vegna dráttar á greiðslu
gjaldkræfra peningakrafna þar
sem annarsvegar væri gert ráð
fyrir verðbreytingu, þannig að
krafa héldi verðgildi sínu frá
gjalddaga og hinsvegar kæmu hin-
ir eiginlegu dráttarvextir. Þeir
þyrftu að vera hóflegir, en tryggja
kröfuhafanum raunverulegar
skaðabætur vegna greiðsludráttar
skuldarans.
Morjfunblaðift/Ól.K.M.
Kyndill við Eyjagarð
„EYJAGARÐUR", hin nýja oliubryggja í Örfirisey, er nú að verða
fullgerð, en um tveir mánuðir eru síðan fyrsta skipið lagðist þar upp að.
Á meðfylgjandi mynd má sjá olíuskipið Kyndil við festar á Eyjagarði
nýverið.
Félag bókagerðarmanna:
Atkvæðagreiðsla
um aðild að ASÍ
FÉLAGSMENN í Félagi bókagerð-
armanna munu á næstunni greiða
atkvæði um hvort félag þeirra eigi
að æskja aðildar að Alþýðusambandi
íslands. Þegar félagið var stofnað úr
þremur félögum bókagerðarmanna
(Hinu íslenska prentarafélagi, Graf-
íska sveinafélaginu og Bókbindara-
félaginu) fór fram atkvæðagreiðsla
um aðild þess að ASÍ en þeirri til-
lögu var hafnað með afgerandi
meirihluta.
Á síðasta aðalfundi félagsins
var samþykkt tillaga um að láta
fara fram allsherjaratkvæða-
greiðslu um aðild að ASÍ og til
undirbúnings þeirri atkvæða-
greiðslu heldur FBM almennan fé-
lagsfund um aðild á Hótel Hofi 10.
mars næstkomandi. Málshefjend-
ur á fundinum verða þeir Ólafur
Björnsson, sem talar fyrir aðild,
og Ársæll Ellertsson, sem mælir
gegn aðild Félags bókagerðar-
manna að Alþýðusambandinu.
Lögbannskröfu Ávöxt-
unar gegn Ávöxtun-
arfélaginu
LÖGBANNSKRÖFU, sem Ávöxtun
sf. gerði á hendur Ávöxtunarfélaginu
hf. vegna firmanafns síðarnefnda fé-
lagsins, hefur verið synjað af fógeta-
rétti Keykjavíkur. Avöxtun sf. er
verðbréfamiðlari en Ávöxtunarfélag-
ið hf. er stofnað til að ávaxta hlutafé
eigenda sinna á sem bestan hátt og
hefur hingað til starfað sem verð-
bréfasjóður.
Ávöxtunarfélagið hf. var stofn-
að í lok sl. árs og taldi Ávöxtun sf.
synjað
að firmanafn þess bryti gegn lög-
vernduðu firmanafni sínu. Bryti
það gegn þeim rétti þegar aðrir
aðilar tækju sér nafn sem líktist
þeirra nafni. Forráðamenn Ávöxt-
unarfélagsins hf. vefengdu það að
lögverndin næði yfir heiti sem
lýstu ákveðinni starfsemi, eins og
væri um heitið Ávöxtun. Allavega
gæti lögverndunin ekki náð yfir
aðrar samsetningar slíks orðs.
Eins og fyrr segir náði lögbanns-
krafan ekki fram að ganga.
Viö veröum með kynningu
á Stendahl snyrtivörum í
dag frá kl. 10—17 í
Snyrtistofunni Evu,
Ráðhústorgi,
Akureyri.
Bestu kveöjur, Yolande
Keizer, sérfræöingur frá
Stendahl, París.
■■■
Viö verðum meö kynningu
á Stendahs snyrtivörum í
dag frá kl. 10—18 í
Amaro,
snyrtivöFudeild,
Akureyri
Bestu kveöjur, Yolander
Keizer, sérfræöingur frá
Stendahl, París.
SUMIR VERSLA DÝRT -
AÐRIR VERSLA
HJÁ OKKUR
Kynnum
í dag
í Mjóddinni: PÍZZU rúllur
Ostakökur frá MS
Fiskibollur frá HUMLI
Z-Snakk-ðLaukídýfu
í starmýri: Aldiil Ávaxtagrauta
KYNNINGAVERÐ
Bananar Folaldahakk
.00
pr. kg.
AÐEINS
.00
pr.kg.
AÐEINS
\
.00
pr.kg.
Lambakiöt, ..
í 1/1 skrokkum g yl
niðursagað ■
Onið fil kl TÍ ‘kvö,d
p o n j mjóddinni
en til kl. 19 í austurstræti & starmýri.
IDJ
STARMYRI 2 AUSTURSTRÆT117 MJODDINNI