Morgunblaðið - 01.03.1985, Síða 24
24
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 1. MARS 1985
Strindberg
fagnað þegar
í fyrsta þætti
Sex þættir um líf hans í sænska sjónvarpinu
— eftir Pétur
Pétursson
Nýlega var sýndur í sænska
sjónvarpinu fyrsti þáttur af sex
um líf Augusts Strindberg. Þætt-
irnir eru byggðir á handriti rit-
höfundarins Pers Olovs Enquist
sem hann hefur unnið að í mörg ár
í samvinnu við útgefendur,
sænska sjónvarpið og kvikmynda-
gerðarmenn. Enquist hefur gefið
út ævisögu Strindbergs sem ekki
hefur fallið öllum í geð og valdið
töluverðum umræðum hér áður en
þættirnir voru fullgerðir. Hér var
mikið í húfi að vel tækist því
fyrirtækið kostaði um 35 milljónir
sænskra króna. Hluti af þessu
fjármagni hefur komið frá þýsku
fyrirtæki sem hefur einkarétt á
sölunni til sjónvarpsstöðva í Evr-
ópu, en nú þegar munu flestar
stöðvar í Vestur-Evrópu hafa
keypt þættina til sýningar. Lik-
lega kemst myndin einnig á mark-
að í Bandaríkjunum og gæti þá
malað gull fyrir sænska sjónvarp-
ið.
August Strindberg (1849—1912)
er án efa frægasti rithöfundur
Svía fyrr og síðar. Bæði hann
sjálfur og það sem hann skrifaði
var mjög umdeilt á sinni tíð — og
svo er enn í dag. Strindberg lifði á
miklum breytingatímum í evr-
ópskri menningarsögu. Hann var
manna fljótastur að kynnast and-
ans mönnum annarra þjóða og
veita áhrifum frá þeim yfir til Sví-
þjóðar. í verkum hans mótar
greinilega fyrir áhrifum frá t.d.
Darwin, Marx, Nietzche, Brandes,
Zola og Ibsen. Strindberg vinsaði
úr öllu þessu á sinn persónulega
hátt og bjó úr því sprengjur sem
hann sendi.inn í sænskt lista- og
bókmenntalíf. Andróðurinn gegn
honum í heimalandinu varð svo
mikill á tímabili að hann flúði
land og bjó í nokkur ár í Frakk-
landi. "
Strindberg var maður barátt-
unnar og hann var oft hamslaus.í
gagnrýni sinni á sænskt þjóðfélag,
hræsni borgaranna og aumingja-
skap millistéttanna. Stundum var
hann vinur þeirra verst settu í
þjóðfélaginu en stundum fyrirleit
hann þá. Þó hann væri þjóðfé-
lagsgagnrýnandi leit hann á til-
veruna fyrst og fremst sem drama
og vildi kanna það út í ystu æsar
og með öllum ráðum — og verða
þannig betri og snjallari rithöf-
undur og skáld. Hann var sjálfur
miðpunkturinn — leikstjórinn og
séníið. Flest, ef ekki öll verk hans,
eru að einhverju leyti byggð á
reynslu og lífi hans sjálfs, sem var
mjög litríkt á köflum — sem sagt
hér er ekki á ferðinni neinn „med-
el-Svenson“.
Það er því ekki að undra að
skoðanir Svía á þessum manni
hafi verið skiptar. Sjálfur var
hann mótsagnakenndur og breytti
oft um skoðanir, vildi ekki vera
háður neinu eða neinum. Margir
hafa spreytt sig á því að skrifa
ævisögu hans og eru ævisöguhöf-
Danskennarasamband Islands heldur
sunnudaginn
10. marz nk.
Heimsmeistararnir í suöur-amerískum
dönsum, þau Donnie Burns og Gaynor
Fairweather sýna alla suöur-amerísku
dansana. Danssýning — Nemendur frá
öllum skólum sambandsins sýna og
börnin fá aö dansa.
Kvöldskemmtun
. kl. 20.30
Heimsmeistararnir syna og nemendur allra
skóla sambandsins dansa. Ljúffengur kvöld-
veröur veröur framreiddur frá kl. 20.30.
MATSEÐILL
Fordrykkur
S'innepssteiktur svínahryggur framreiddur með ristuðum an-
anas. gljáðum gulrótum. hlómkáli I ostasósu og Rohert-sósu.
h og ávextir með súkkulaðisósu.
Forsala aögöngumiða og boröapantanir fyrir matargesti í Broadway 1. og 2. marz kl.
17—19. Aögöngumiöar gilda sem happdrættismiöar. Missiö ekki af þessu einstæöa tækifæri
til aö sjá þaö besta í dansinum í dag.
íöj. Danskennarasamband íslands DSÍ
m.
L
V
n w
m 1
1
August Strindberg
undar ekki á eitt sáttir — enda
hefði sjálfum höfuðpaurnum
sennilega fallið það afarilla. Einn
þekktasti bókmenntahöfundur
Svía, Sven Stolpe (sem að sjálf-
sögðu hefur skrifað sína Strind-
berg-ævisögu sjálfur) hefur harð-
lega gagnrýnt þá mynd sem koll-
egi hans, Per Olov Enquist, gefur
af Strindberg í þeirri bók sem
liggur til grundvallar sjón-
varpsþáttunum. Hún sé of ein-
hliða og á lágu plani segir hann og
sýni Strindberg aðallega sem
óþokka, tillitslausan og grófan.
Stolpe vill einnig að glæsi-
mennska, lífsþrá og kímnigáfa
Strindbergs komi fram. Honum
finnst það galli á myndinni að höf-
undurinn tekur ekki með hinn trú-
arlega þátt í persónu og lífi
Strindbergs. En eftir að hafa séð
fyrsta þátt myndarinnar er þó
Stolpe nokkuð ánægður og telur
hann út af fyrir sig mjög góðan að
flestu leyti. Flestir aðrir gagnrýn-
endur eru enn jákvæðari og telja
bæði leikstjórn og persónusköpun
til fyrirmyndar.
í lifanda lífi var Strindberg ekki
fagnað í fyrsta þætti af lands-
mönnum sínum. Atakanlegar eru
lýsingarnar á örbirgð hans og fá-
Rithöfundurinn Per Olov Enquist
Tommy Berggren í hlutverki
Strindbergs.
tækt fyrstu skrefin á rithöfunda-
brautinni.
Pétur Pétursson er fréttaritari
Mbl. í Lundi í Svíþjóð.
Eggjadreifingarmiðstöðin:
30 % hækkun eggja
SAMBAND eggjaframleiðenda
hækkaði heildsöluverð eggja um
30% frá og með 20. febrúar. Aðrir
eggjaframleiðendur hafa ekki hækk-
að verð framleiðslu sinnar, en búist
er við svipaðri hækkun hjá þeim um
eða upp úr mánaðamótum.
Algengt smásöluverð á eggjum
fyrir hækkun er 113 krónur kílóið
og má búast við að það hækki í 147
kr. Frjáls verðmyndun er á eggj-
um og hafa þau verið auglýst allt
niður í 77 kr. kílóið að undanförnu,
þannig að um mismunandi miklar
hækkanir getur verið að ræða hjá
einstökum framleiðendum og
verslunum.
Eyþór Elíasson, framkvæmda-
stjóri eggjadreifingarmiðstöðvar
Sambands eggjaframleiðenda,
sagði í samtali við Mbl. að egg
hefðu síðast hækkað í nóvember
um 15% en fram að þeim tíma
hefði verðið verið óbreytt í heilt
ár. Hækkunin í nóvember hefði
bæði komið of seint og verið minni
en til stóð. Síðan þá hefði orðið
gengisfelling með tilheyrandi
launa- og fóðurhækkunum og
verðbólgu í kjölfarið. Því væri
þessi hækkun nú ekki óeðlileg þeg-
ar til lengri tíma væri litið. Ýms-
um eggjaframleiðendum utan
eggjadreifingarmiðstöðvarinnar
þótti hækkunin nú of mikil í einu
stökki þó þeir teldu í sjálfu sér
þörf á hækkuninni, skv. heimild-
um Mbl. Hafa þeir ekki hækkað
verð framleiðslu sinnar enn sem
komið er, en búist er við svipuðum
hækkunum hjá þeim á næstunni.
Framleiða
eggjamassa
fljótlega
f MARS koma til landsins vélar til
að vinna massa úr eggjum. Eggja-
dreiflngarstöð Sambands eggjafram-
leiðenda kaupir vélarnar og verða
þær settar upp í húsakynnum stöðv-
arinnar í Kópavogi. Að sögn Eyþórs
Elíassonar, framkvæmdastjóra Sam-
bands eggjaframleiðenda, er stefnt
að því að hefja framleiðslu með vél-
unum í apríl.
Sagði Eyþór að í vinnsluna yrðu
notuð þau egg sem flokkuðust frá,
væru með brotinni skurn og þ.h.
Tilgangurinn með vélakaupunum
væri að koma afgangseggjunum í
verð með þessum hætti. Þau yrðu
brotin upp, rauðan og hvítan að-
skildar og búin til gerilsneyddur
eggjamassi úr þeim, sem fyrirhug-
að er að selja til iðnaðar, svo sem
bakaríum og sælgætisgerðum.
Frumsýning
HRINGURINN, íslensk kvikmynd,
sem Friðrik l*ór Friðriksson. Einar
Bergmundur Arinbjarnarson og
Gunnlaugur l*ór Pálsson gerðu á sl.
hausti, verður frumsýnd nk. laugar-
dag, 2. mars.
Myndin var þannig gerð, að
kvikmyndatökuvél var sett fram-
an á bifreið og tók hún 1 mynd-
ramma á hverjum 12 metrum,
„Hringsins“
meðan keyrt var hringinn í kring-
um landið. Tónlist við myndina
gerði Lárus Grímsson og mun
hljómplata með kvikmyndatón-
listinni koma á markaðinn í næstu
viku.
Frumsýningin verður í Háskóla-
bíói kl. 16.00 og er forsala að-
göngumiða á frumsýninguna f
verslununum Fálkanum og
Gramminu og Háskólabíói.