Morgunblaðið - 01.03.1985, Qupperneq 31

Morgunblaðið - 01.03.1985, Qupperneq 31
MORGUNBLADID, FÖSTUDAGUR L MARS 1985 31 Ryður snjó frá hjólastólnum sínum Þessi tuttugu og Hmm íra Bandaríkjamaður, Witold Debrowski, hefur fundið upp tæki sem er fest framan á hjólastól hans og ryður frá honum snjó. Debrowski ryður einnig fyrir nágranna sína og notar peningana sem hann fær fyrir ruöninginn til að kosta nám sitt. Hann hefur verið bundinn við hjólastólinn frá tíu ára aldri er hann lenti í mótorhjólaslysi. Rauðir khmerar í Kambódíu: Náðu bækistöð Víetnama og felldu 15 hermenn Bangkok. Thailandi, 27. rebrúar. AP. SKÆRUUÐAR Rauðra khmera halda því fram, að þeir hafi fellt níu víetnamska hermenn og sært 15 er þeir tóku á sitt vald eina af bæki- stöðvum Víetnama, í bænum Puny- alue Kompong-Oss, sem er í um 12 km fjarlægð frá Phnom Penh, höfuð- borg Kambódíu. í útvarpi Rauðra khmera, sem heyrðist í Bangkok, sagði að í árásinni, sem gerð hefði verið á laugardag, hefðu skæruliðar eyði- lagt mikið magn vopna og sprengi- efnis. Það hefði aðeins tekið þá tíu mínútur að ná bækistöðinni á sitt vald og hrekja 367. herdeild Víet- nama á brott. Yfirleitt er talið að fréttir af þessu tagi, sem koma frá Rauðum khmerum, séu ýktar, en þó hefur fengist staðfesting á sumum bar- dagafréttum, sem útvarpsstöð þeirra skýrði frá í fyrra. Bandaríkjaþing veitir 175 millj. dollara til neyðarhjálpar í Afríku Wuhington, 28. febriur. AP. ÖLDUNGADEILD Bandaríkjaþings samþykkti í kvöld 175 milljóna dollara fjárveitingu til aðstoðar hungruðum Afríkubúum, eða sjö sinnum meiri upp- hæð en stjórn Reagans hafði farið fram á. Aðstoðin er skilyrt að því leyti að hún verður ekki notuð til matvælakaupa. Fjárveitingin var samþykkt með 62 atkvæðum gegn 35. Sams- konar frumvarp hafði áður verið samþykkt í fulltrúadeildinni, og verða bæði tekin til meðferðar á fundi sameiginlegrar nefndar beggja þingdeilda, þar sem þau verða samræmd. Reagan hafði óskað eftir heim- ild til neyðaraðstoðar að upphæð 25 milljónir dollara. Fjárveitingin verður notuð til að styrkja sjálf- boðaliðasamtök, sem tekist hafa á hendur neyðaraðstoð í Afríku. Hluti fjárveitingarinnar verður notaður til aðstoðar flóttafólki og fólki sem flutt hefur verið nauð- ungarflutningum milli landshluta. Þá eru báöar þingdeildir með til umfjöllunar frumvarp, sem gerir ráð fyrir allt að 700 milljóna doll- ara matvælaaðstoð við þurrka- svæðin í Afríku, en til þessa hafði stjórn Reagans óskað eftir 185 miíljónum dollara. 20 milljónir Banda- ríkjamanna líða skort Boston, 27. febrúar. AP. MILIJONIR Bandaríkjamanna fá að jafnaði ekki nóg að eta, og niðurskurð- ur stjórnvalda á framlögum til félagsmála hefur valdið því, að fleiri eru hungraðir en nokkru sinni frá því á kreppuárunum, samkvæmt niðurstöðum rannsóknar, sem kunngerð var í gær, þriðjudag. „Hungrið er mikið vandamál með þjóðinni," sagði í skýrslu læknanna sem að rannsókninni stóðu. „Enginn veit nákvæma tölu þeirra Bandaríkjamanna sem svelta, en margt bendir til þess að þeir kunni að vera allt að 20 millj- ónir. Er þá átt við fólk, sem er hungrað a.m.k. ákveðin tímabil í hverjum mánuði." J. Larry Brown, prófessor við læknadeild Harvard-háskóla, sem stjórnaði rannsókninni, sagði á fréttamannafundi, að þessi tala væri „varlega áætluð" og byggð á gögnum frá stjórnvöldum. I læknanefndinni, sem að rann- sókninni stóð, voru 22 læknar, þar af margir af fremstu sérfræðing- um Bandaríkjanna. NÍU LÍF? Líf og stðrfsorka er dýrmæt- asta eign hvers og eins, enda grundvöllur þeirra verðmæta sem standa undir þörfum ein- staklinga og fjölskyldna. Eru þér ljós þau áhrif sem skyndilegt fráfall þitt myndi hafa á stöðu þinna nánustu? Veitir lífeyrissjóður, al- mannatryggingarkerfi, eða kjarasamningur stéttarfélags þíns nauðsynlega grundvallar- vemd? Líftrygging vemdar fjöl- skyldu þína gegn fjárhagslegum áföllum við óvænt fráfall þitt. Við bjóðum verðtryggingu allt tryggingartímabilið svo líf- tryggingin heldur ætíð verðgildi sínu. Tryggingaráðgjafar okkar aðstoða þig við val á tryggingar- upphæð og tegund tryggingar svo ömggt sé að þú hafir há- marksvernd á hagstæðu iðgjaldi. Verðtryggð líftrygging K'uftrygging GAGNKV€MT TRYGGINGAFÉLAG BRUNABÓTAFÉLAG ÍSLANDS Skrifstofur: Laugavegur 103 105 Revkjavík Sími 91 26055 UMBOÐSMENN UM ALLT LAND
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.