Morgunblaðið - 01.03.1985, Page 43
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 1. MARS 1985
43
Þóra S. Ingimund-
ardóttir - Minning
Fædd 10. febrúar 1918
Dáin 21. febrúar 1985
í gær, 28. febrúar, fór útför
Þóru Ingimundardóttur fram frá
Kapellunni í Fossvogi.
Þóra var fædd 10. febrúar 1918
að Kletti í Gufudalssveit, dóttir
hjónanna Sigríðar Þórðardóttur
og Ingimundar Þórðarsonar. Hún
var yngst sjö systkina og missti
föður sinn sjö ára gömul. Eftir það
fylgdi hún móður sinni fyrst til
Vestfjarða og síðan til Reykjavik-
ur. Þær mæðgur áttu heimili sam-
an, þar til árið 1945, að Þóra gift-
ist Brynjólfi G. Ársælssyni, stýri-
manni, nú húsverði hjá Lands-
banka íslands. Þau eignuðust einn
son, Brynjólf Þór, skrifstofu-
stjóra. Hann er kvæntur Ragn-
heiði Jónsdóttur og eiga þau þrjú
börn.
í árslok 1980 kenndi Þóra fyrst
þess meins, sem nú hefur bundið
enda á líf hennar. Við, vinir henn-
ar, höfðum gert okkur vonir um að
hún næði heilsu á ný, en um miðj-
an vetur varð okkur ljóst, að svo
yrði ekki. Hún lagðist inn á
Landspítalann í byrjun janúar, og
þar lá hún þar til yfir lauk, þann
21. þessa mánaðar.
Það er sagt, að orð séu til alls
fyrst, en þó er eins og þau láti á
sér standa, þegar lýsa skal látnum
vini. Minningarnar hrannast upp,
þær verða ekki frá manni teknar,
en ekki er auðvelt að finna hverjar
þeirra gefa bezta mynd af hinum
látna.
í ársbyrjun 1952 var okkur
hjónunum úthlutað íbúð í sambýl-
ishúsi við Bústaðaveg ásamt
þrennum öðrum ungum hjónum.
Þeirra á meðal voru Þóra og
Brynjólfur. Hófust allir handa við
innréttingar af miklu kappi og
nýttu hverja frístund. Við fluttum
inn í septemberbyrjun sama ár
ásamt dætrum okkar tveimur, og
þá var húsið fullsetið. Nokkru áð-
ur hafði Þóra, sem fyrst flutti,
boðið okkur hjónunum í kaffi.
Hófust þar kynni okkar og upp úr
þeim sú vinátta, sem aldrei hefur
borið skugga á. Við eignuðumst
gott sambýlisfólk og vorum þakk-
lát fyrir það, en nú hefur stórt
skarð verið höggvið í frumbyggja-
hópinn. Við Árni erum einu hjón-
in, sem ennþá erum bæði á lífi, hjá
öllum hinum er annar makinn
fallinn frá.
Þóra vinkona mín var smávaxin,
fínleg kona og einstaklega snyrti-
leg. Undraðist ég oft, hversu
hreinlegt var f kringum hana, að
hverju sem hún gekk. Aldrei sást
blettur á vinnufötum hennar, né
óhreinindi á vegg eða gólfi.
Fyrstu árin á Bústaðaveginum
var Brynjólfur enn á sjónum, og
hygg ég að Þóra hafi oft verið ein-
mana. Þá var skotist milli íbúða
og drukkinn kaffisopi meðan rædd
voru dægurmál og einnig oft þau,
sem þyngra lágu á hjarta. Við
gættum barna hvor fyrir aðra
þegar skreppa þurfti í bæinn og
studdum hvora aðra ef einhvers
þurfti með. Þóra var mjög tryggur
vinur og einhver sú hjálpfúsasta
manneskja, er ég hefi kynnst. Hún
var alltaf boðin og búin, hvernig
sem stóð á hjá henni sjálfri. Á
þetta reyndi mest, er fjölskyldan
flutti til útlanda í ársbyrjun 1957,
og við höfðum aðeins viku til und-
irbúnings. Þóra hafði þá nýlega
tekið bílpróf, en ekkert ekið. Nú
þurfti ég á aðstoð hennar að
halda, var þá óhikað sezt undir
stýri og mér ekið, hvert sem
þurfti. Löngu síðar frétti ég, að
hún hefði alveg lagt aksturinn á
hilluna að þessu loknu. Ekki lét
hún við þetta sitja. Hún leit eftir
telpunum og hafði okkur öll í fæði
síðustu dagana heima, þegar bús-
áhöldum okkar hafði verið pakk-
að.
Einu sinni á þeim fjórum árum,
sem við bjuggum erlendis, komum
við mæðgurnar heim til þess að
heimsækja foreldra mína og
tengdaforeldra, sem bjuggu úti á
landi. Höfðum við ákveðið að
dvelja nokkra daga í Reykjavík
síðsumars, áður en við færum aft-
ur af landi brott. Þegar Þóra
heyrði það, bauð hún okkur að búa
hjá þeim Brynjólfi, sem þá var
hættur á sjónum, svo að telpurnar
gætu verið í gamla hverfinu og
hitt leikfélaga sína. Ekki tókst þó
betur til en svo, að Þóra varð að
leggjast á sjúkrahús skömmu áður
en við komum í bæinn. Áður en
hún fór þangað, hringdi hún í mig
og tók af mér loforð um að láta
spítalavist sína engu breyta. Það
mátti ekki bregðast bðrnunum.
Þetta atvik lýsir Þóru e.t.v. betur
en margt annað og ekki síður sam-
bandi þeirra hjóna. Hún gat full-
komlega treyst því, að Brynjólfur
léti ekki sitt eftir liggja og væri
fús til þess að taka á móti okkur
og hýsa.
Síðan þetta gerðist eru liðin
tuttugu og fimm ár. Þóra og
Brynjólfur hafa alltaf átt heima á
Bústaðavegi, við í næsta nágrenni,
Hvassaleiti, og þvi verið skammt
milli vina. Á síðari árum hafa
heimsóknir þó ekki verið eins tíð-
ar og fyrrum, en síminn meira
notaður, svo að oft hefur verið
fylgst með því helsta, sem gerst
hefur í fjölskyldunum báðum. Ég
veit, að ég á eftir að sakna þess
mikið að geta ekki lengur slegið á
þráðinn og rætt við Þóru, og ég
mun ekki ein um það. Vinir henn-
ar og ættingjar munu ætið minn-
ast þeirrar frábæru gestrisni og
hlýju, sem alltaf beið þeirra á
heimili hennar, og einnig gjaf-
mildi hennar og greiðvikni, sem til
fádæma má telja.
Á kveðjustund þakka ég af al-
hug nábýlið góða á Bústaðavegin-
um, vináttu og tryggð við okkur
hjónin og dætur okkar, og allar
samverustundir.
Ég sakna Þóru úr vinahópnum.
Þeir verða margir, sem sakna
hennar og þeir mest, sem þekktu
hana gerst og stóðu henni næst.
Þeim öllum sendum við hjónin og
dætur okkar hugheilar samúð-
arkveðjur.
Guð blessi minningu góðrar
konu.
Guðrún Gestsdóttir.
Hinn 21. febrúar sl. andaðist á
Landspítalanum Þóra Sigríður
Ingimundardóttir, Bústaðavegi 57,
Reykjavík. Útförin hefur farið
fram í kyrrþey að ósk hinnar
látnu.
Þóra var fædd 10. febrúar 1918 á
föðurleifð sinni, Kletti í Gufu-
dalssveit, dóttir hjónanna Sigríð-
ar Þórðardóttur, ættaðri frá
Sléttuhreppi í Norður-ísafjarðar-
sýslu, og Ingimundar Þórðarson-
ar. Þau hjónin eignuðust átta börn
og var Þóra þeirra yngst.
Þegar Þóra var enn barn að
aldri, hafði faðir hennar þegar
meðtekið þann sjúkdóm, sem um
síðir leiddi hann til dauða.
Vegna veikinda húsbóndans,
ákváðu þau hjónin að leggja niður
búskap og flytja af jörðinni til
Hnífsdals. Þar lézt Ingimundur
árið 1924. Sigríður flutti með
börnin til ísafjarðar og síðar til
Reykjavíkur.
Með fádæma dugnaði og aðstoð
eldri barnanna tókst henni að
halda heimili fyrir börnin og
koma þeim til manns. Eins og að
líkum lætur, þurfti Þóra snemma
að fara að vinna fyrir sér.
Á kreppuárunum var lítið um
vinnu, en Þóru tókst alltaf að ná
sér í vinnu við sitt hæfi, enda
fljótt þekkt fyrir dugnað og
trúmennsku í starfi.
Kynni okkar Þóru hófust fyrir
fjórum áratugum, þegar hún og
yngsta systkin hennar, Ingibjörg,
komu saman til Vestmannaeyja.
Voru þær systumar ráðnar til að
reka matstofu Hraðfrystistöðvar
Einars Sigurðssonar. Mér er enn í
fersku minni, er ég sá þær í fyrsta
sinni.
Þótti mér mikið til þeirra koma
og sótti fast eftir félagsskap við
þær. Ingibjörg varð síðar konan
min. Samskipti okkar hjónanna
við Þóru og heimili hennar voru
bæði mikil og góð um áratuga
skeið.
Árið 1945 giftist Þóra eftirlif-
andi manni sínum, Brynjólfi G.
Ársælssyni, ættuðum úr Reykja-
vík. Eignuðust þau hjónin einn
son, Brynjólf Þór, sem kvæntur er
Ragnheiði Jónsdóttur. Þau ungu
hjónin hafa eignazt 3 börn, sem
hafa verið mikið eftirlæti ömmu
og afa.
Þær Þóra og Ingibjörg voru
mjög samrýndar eins og títt er um
börn, sem alin eru upp af einstæðu
foreldri. Leið varla sá dagur, að
þær systur töluðu ekki saman í
síma, ef ekki var hægt að hittast.
Það var því mikið áfall fyrir Þóru,
þegar Ingibjörg lézt árið 1970
fyrir aldur fram.
Þá kom vel í ljós eins og oft
áður, hversu góða vini ég og fjöl-
skylda mín áttum, þar sem þau
Brynólfur og Þóra fóru.
Þóra saknaði alltaf systur sinn-
ar og stundum fannst mér eins og
hún gæti aldrei sætt sig við, að
hún væri horfin af sjónarsviðinu,
svo mikil var trúfesta hennar og
kærleikur til þeirra, sem hún
unni.
Þóra var hreinskiptin og dreng-
lunduð, það var bjart yfir henni og
hún gat verið ákveðin og hispurs-
laus í tali við fólk, ef henni mislik-
aði, en um leið mild og sáttfús ef
því var að skipta.
Mikill harmur er kveðinn við
fráfall hennar að eiginmanni og
börnum, sem gerðu allt, sem í
mannlegu valdi stendur, til að
létta henni þungbær veikindi.
Ég og fjölskylda mín söknum
vinar í stað og við sendum eigin-
manni, syni, tengdadóttur og
barnabðrnum okkar dýpstu sam-
úðarkveðjur.
GIsli Kristjánsson
Kransar, kistuskreytingar
BORGARBLÓMÍÐ
SKÍPHOLTÍ 35 SÍMÍ: 32213
Minning — Helena
Sjöfn Svansdóttir
Fædd 22. maí 1984
Dáin 25. febrúar 1985
Þegar ungbörnin koma á eilífðar strönd,
Jesú auglit þeim Ijómar svo blítt.
Þau fá mjallhvitan skrúða og hörpu í hönd,
þeirra höfuð er kórðnu prýtt.
Margt er fagurt að sjá, þar með brosandi brá,
ganga bömin í skrúðgrænan lund.
Og með Guðs englum þá sínar gullhörpur slá,
í þeim gullfagra angandi lund.
Og þau sitja til borðs í Guðs himnesku höll,
aldrei hungur þar finnst eða neyð.
Þar hin líknsami Frelsari fræðir þau öll,
stjarna friðarins Ijómar þar heið.
Og þau teyga þar á lifsins eilífa straum,
Jesú auglit þau sjá þar svo ljóst.
Og þau horfa á Guð sem i himneskum
draum,
og þau hvíla við Frelsarans brjóst.
(Sálmur S.Sv.)
Lífið getur verið ansi harður
skóli, það finnst okkur að minnsta
kosti í svona tilfelli þegar Guð
gefur ungum foreldrum yndislegt
barn, en tekur það svo frá þeim
aftur. Við spyrjum Guð aftur og
aftur, af hverju, Guð? En við fáum
ekki svar við því. Vegir Guðs eru
órannsakanlegir.
Leið okkar í gegnum lífið er
mislöng og misgóð, það verðum við
að sætta okkur við hvort sem
okkur líkar betur eða verr. Leið
litlu Helenu Sjafnar var stutt, en
góð. Níu mánuðir er ekki langur
tími af heilli mannsævi. En þessa
mánuði fékk hún að njóta mikillar
gleði, ástar og umhyggju frá for-
eldrum sínum og öðrum ættingj-
um.
Við sem eftir lifum geymum
mynd hennar og brosið hennar
bjarta ávallt í hjörtum okkar.
Stórt skarð er nú skorið í hjörtu
foreldra hennar og ættingja. En
tíminn græðir sárin, það vitum
við, þótt örin sitji alltaf eftir.
Við biðjum Guð að styrkja og
styðja foreldra hennar, Gerðu og
Svan, og aðra ættingja og vini.
Guð blessi og geymi minninguna
um litlu rósina sem vaknaði að
vori en fölnaði að vetri, og láti
engla sína vaka og halda vörð um
hennar næturstað.
Þess óskar
Fjölskyldan að Lambastekk 2
Konur standi saman
á kvennaáratugnum
EFTIRFARANDI ályktanir voni
gerðar á aðalfundi Bandalags
kvenna í Reykjavík um sl. helgi:
Aðalfundur Bandalags kvenna í
Reykjavík, haldinn 23. og 24.
febrúar 1985, beinir þeirri áskorun
til stjórnar bandalagsins, að leitað
verði leiða ti að uppræta hinn
mikla mun sem er á kjörum karla
og kvenna á almennum vinnu-
markaði.
Aöalfundur Bandalags kvenna í
Reykjavík 23. og 24. febrúar 1985,
minnir á, að á þessu ári lýkur ára-
tugnum sem Sameinuðu þjóðirnar
hafa helgað sérstaklega því átaki
að bæta stöðu kvenna í heiminum.
Hvetur fundurinn allar konur í
landinu til þess að standa saman
Hugmyndasamkeppni
Iðnaðarbankans
373 tillög-
ur bárust
UMSÓKNARFRESTUR í hug-
myndasamkeppni Iðnaðarbankans
um nýtt merki, skrift og einkenn-
islit fyrir Iðnaðarbankann og
ennfremur um myndrænt tákn til
notkunar í auglýsingum og kynn-
ingargögnum bankans rann út 15.
febrúar sl.
Mikil þátttaka var í sam-
keppninni. AIls bárust 373 tillög-
ur og er dómnefnd nú að störf-
um. Dómnefnd skipa Bragi Ás-
geirsson listmálari, Gísli B.
Björnsson teiknari, Rafn Hafn-
fjörð prentsmiðjustjóri, Tryggvi
Tryggvason teiknari og Valur
Valsson bankastjóri.
Verðlaun fyrir bestu tillögu
um nýtt merki, skrift og letur
eru kr. 120.000,- en verðlaun
fyrir myndrænt tákn eru kr.
40.000,-.
Úrsíit verða kynnt og efnt til
sýningar á tillögum fljótlega.
um þennan áfanga og þær aðgerð-
ir sem fyrirhugaðar eru á íslandi
á þeim dögum sem konur hafa
helgað sér, 8. mars, 19. júní og 24.
október.
Jarðarfarar-
skreytingar
Kistuskreytingar, krans-
ar, krossar.
Græna höndin
Gróðrarstöð viö Hagkaup,
simi 82895.
Útfaraskreytingar
Kistuskreytingar, krans-
ar og krossar meö stutt-
um fyrirvara. Sendum um
allt land.
Flóra, Langholtsvegi.
Sími 91-34111.
Opiö til kl. 22.00.
löfðar til
. fólks í öllum
starfsgreinum!