Morgunblaðið - 01.03.1985, Side 46
46
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR l. MARS 1985
Marteinn Skaft-
fells - Minning
Fæddur 14. ágúst 1903
Dáinn 20. febrúar 1985
Vinur minn Marteinn Skaftfells
er látinn.
Mikill baráttumaður hefur lokið
ævistarfi sínu. Maður, sem þorði
að standa við skoðanir sínar hvar
og hvenær sem var. Eldhugi, sem
aldrei þreyttist á því að vekja
skilning manna á þeim einfalda
sannleika að góð heilsa er dýr-
mætasta eign hvers manns, að við
getum aflað okkur vitneskju um
hvað er líkama okkar til uppbygg-
ingar og hvað við verðum að forð-
ast ef við óskum eftir því að lifa
góðu lífi lengi.
Marteinn Skaftfells missti
heilsuna á besta aldri og barðist
við sjúkdóminn af slíkri karl-
mennsku og einurð að með ein-
dæmum var. Árangurinn lét ekki
á sér standa. Árin urðu áttatíu og
eitt og þrekið síst minna en al-
mennt gerist. Marteinn var aðal-
hvatamaður að stofnun Heilsu-
hringsins árið 1977. Byrjað var að
gefa út tímarit félagsins Hollefni
og heilsurækt árið 1978. Fyrstu
árin var Marteinn formaður fé-
lagsins og átti alltaf glæsta
drauma um framtíð þess. Sumir
þeirra hafa ræst, aðrir eru enn í
deiglunni, en árangur starfs hans
og annarra innanlands sem utan,
er vinna að því að glæða áhuga
manna á heilbrigðu lífi lýsir sér i
því, sem glöggt má sjá hvarvetna í
dag. áhugi fólks og skilningur á
þessum efnum hefur stóraukist og
fer stöðugt vaxandi.
Digur sjóður er enginn til í eigu
félagsmanna og vinna við blaðið
er öll unnin í sjálfboðavinnu, en
samvinna er góð. Við óskum þess
af alhug að draumur vinar okkar
Marteins Skaftfells megi rætast
— að maðurinn læri að varðveita
líkamlega heilsu sína og vinni
gegn mengun og niðurrífandi efn-
um í umhverfinu.
Móðir mín og ég þökkum Mart-
eini holl ráð á síðastliðnum áratug
og óskum honum farsældar á nýj-
um leiðum. Astrid konu hans vott-
um við innilega samúð. Hún hefur
með huga og höndum hjálpað svo
mörgum, að hún hlýtur að fá ríku-
leg laun.
Elfa-Björk Gunnarsdóttir
Mér brá mjög þegar ég heyrði í
útvarpsfréttum að vinur minn,
Marteinn Skaftfells, væri látinn.
Raunar má alltaf búast við slíkum
tíðindum um roskið fólk, en hann
var svo sprækur og andlega hress
þegar ég ræddi við hann nýlega að
lát hans kom mér mjög á óvart.
Nú hefi ég fengið að vita hjá
Astrid ekkju Marteins, að fyrir
tveim árum hefði fundist lokugalli
í hjarta hans og hefur hann senni-
lega riðið honum svo skyndilega
að fullu.
Þó Marteinn væri mjög hrein-
skilinn og opinskár, hafði hann
ekki haft orð á þessari veilu við
mig og sagði ævinlega að sér liði
ágætlega, þegar ég spurði um
heilsufar hans.
Það var með ólíkindum hve
miklu hann gat afkastað, enda sí-
starfandi og alltaf datt honum
eitthvað í hug, sem nauðsynlega
þurfti að gera.
Ég held að við Marteinn höfum
kynnst fyrst á fundi í Dýravernd-
unarfélagi Reykjavíkur fyrir rösk-
um tuttugu árum. Hann var þá
formaður félagsins. Marga fundi
sat ég með honum, bæði í því fé-
lagi og Sambandi dýraverndunar-
félaga íslands.
Alltaf hafði hann margt og gott
til málanna að leggja og áhuginn
mikill. Hann~lét sér ekkert óvið-
komandi, sem dýravernd snerti,
einkum er mér þó minnisstæð hin
þrotlausa barátta hans fyrir góðri
meðferð hesta, er þeir voru fluttir
héðan til útlanda.
Árið 1948 afhenti móðir mín,
Guðrún J. Erlings, Dýraverndun-
arfélagi íslands nokkra fjárhæð
að gjöf til myndunar „Sólskríkju-
sjóðs“ í minningu manns síns,
Þorsteins Erlingssonar skálds. Að
móður minni látinni árið 1960 tók
ég við forstöðu sjóðsins og hefi
síðan eftir mætti reynt að afla
honum tekna, útvega fuglafóður
og senda það til flestra barnaskóla
landsins og nokkurra annarra
skóla og einstaklinga. 1 þessu
starfi fyrir Sólskríkjusjóðinn hefc
ur Marteinn verið mér mjög hjálp-
legur á ýmsa lund, aðstoðað mig
við útgáfu og sölu jólakorta,
stækkaðra fuglamynda, merkja
o.fl.
Um langt árabil hefur hann
geymt nokkurn kornforða, sem
sjóðurinn hefur miðlað af til ým-
issa aðila hér í borginni og ná-
grenni. Fyrir alla þessa hjálp við
mig og Sólskríkjusjóðinn er ég i
mikilli þakkarskuld við Martein,
sem af sinni miklu ljúfmennsku og
fórnfýsi hefur ávallt verið reiðu-
ibúinn til þess að rétta hjálpar-
hönd.
Marteinn var óvenju víðlesinn
og fjölfróður, og kunni góð skil á
hinum ólíkustu hlutum og málefn-
um. Hann hafði t.d. mikinn áhuga
á læknisfræði og fræddi mig oft á
ýmsu, sem hann hafði lesið af því
tagi í erlendum ritum, einkum var
það um áhrif mataræðis, bætiefna
og hollefna á heilsufar manna.
Marteinn er löngu landskunnur
fyrir fjölda greina, sem hann hef-
ur ritað í blöð og tímarit um ýmis
efni svo sem dýravernd, náttúru-
lækningar og margt fleira, auk
þess samdi hann og gaf út all-
margar bækur.
Það verða margir sem sakna
þessa góða drengs og mæta
manns, nú þegar hann er horfinn
af sjónarsviðinu.
Það var alltaf hressandi og
gaman að ræða við Martein. Hann
var svo glaðvær og kunni frá svo
mörgu fróðlegu og skemmtilegu að
segja.
Þau mörgu ár sem við höfum
þekkst og starfað saman hef ég
verið tíður gestur hjá honum og
Astrid eiginkonu hans. Frú
Astrid, sem er af norskum ættum,
er einkar glaðlynd og geðþekk
kona, myndarleg og góð húsmóðir,
sem hefur búið manni sínum vist-
legt og gott heimili. Hún var hon-
um mikil stoð og stytta í lífsstarfi
hans og áhugamálum.
Að lokum vil ég biðja Marteini
vini mínum guðs blessunar og
velfarnaðar á þeim leiðum, sem
hann nú hefur lagt út í. Blessuð
veri minning hans.
Ég, Þórdís kona mín og fjöl-
skylda okkar vottum frú Astrid,
börnum og öðrum aðstandendum
okkar innilegustu samúð.
Erlingur Þorsteinsson
Marteinn kennari Skaftfells var
fæddur í Skaftafellssýslu að
Auðnum í Meðallandi. — Foreldr-
ar hans voru Magnús Jónsson og
Unnur Ingibergsdóttir, góðir
Skaftfellingar í ættir fram.
Sín fyrstu spor fetaði sveinninn
ungi — Marteinn Skaftfells — á
sléttum grundum Meðallands
skammt frá brimgörðum Ægis
konungs annarsvegar og ólgandi
jökulelfum hinsvegar. En um það
bil fimm ára flyst sveinninn
ásamt foreldrunum frá byggðum
þessarar friðsælu sveitar, sem átti
að umgjörð einhverja þá fegurstu
fjallasýn, sem fyrirfinnst meðal
íslenskra byggðarlaga með sjálfan
konunginn, Öræfajökul tignar
stærstur við ystu sýn til austurs
en hinsvegar breiðar bungur
Mýrdalsjökuls til vesturs, gljá-
skyggðar með Kötlugjá að agnar-
litlu fegurðartákni utanvert við
háhvirfilinn mót sólarátt.
Frá þessu svipmikla umhverfi
flyst ungi sveinninn ásamt for-
eldrunum og setjast að á Álftanesi
með Skerjafjörð og Reykjavík að
nágrönnum. Á þessum sögufræga
stað þroskast Marteinn Skaftfells
til þess sem hann varð, til mann-
virðingar og til margskonar
forustustarfa, aðkallandi
þjóðþrifamála, og þeim öllum til
trausts og vonandi langra lífdaga.
Nú voru það stóru byggðarlögin,
Reykjavík og Hafnarfjörður, sem
þjónuðu hlutverkum risajöklanna,
sem töfruðu augnatillit unga
sveinsins hátt, allt til ystu randar
og tignar að himinhvolfinu sjálfu.
Fyrsta áfanga til menntunar
lýkur Marteinn Skaftfells vorið
1931 með kennaraprófi frá Kenn-
araskóla íslands og það sama ár er
hann ráðinn kennari skólaskyldra
unglinga í sinni fæðingarsveit —
Meðallandi. En 1933 er hann fast-
ráðinn kennari við Miðbæjarskól-
ann i Reykjavík og að Melaskólan-
um flyst Marteinn 1946, en það ár
byrjaði kennsla við þann skóla og
var hann í fyrstu almennt skoðað-
ur sem einskonar útbygging frá
höfuðskóla höfuðstaðarins —
Miðbæjarskólanum við Tjörnina.
Marteinn Skaftfells var glað-
vakandi unglingafræðari og til
þess að uppfylla skyldu sína betur
en gengur og geríst varðandi kröf-
ur aðstandanda og vonir ung-
mennanna í fræðsluefnum, jók
hann verulega við sína grunn-
menntun með ýmsum hætti, svo
sem með utanlandsferðum til
margra menntastofnana á Norð-
urlöndum og Þýskalandi. — Hér
heima nam Marteinn Skaftfells án
afláts allt mögulegt, sem sneri að
íslenskri tungu — móðurmálinu
enda skipaði sú námsgrein önd-
vegissess í hans fræðslustarfi.
Þeirri ályktun minni til sönnunar
vísa ég til gagnlegrar námsbókar
— íslensk málfræði — sem hann
ritaði ásamt Magnúsi Finnboga-
syni og sem gefin var út 1940
námsgreininni til trausts og halds
í öllu skólakerfi tslands. Með fullu
kennarastarfi þjónaði Marteinn
Skaftfells af lífi og sál fjölmörg-
um áhugamálum sínum, persónu-
legum og félagslegum. Þeim sinnti
hann öllum með stakri trú-
mennsku og óviðjafnanlegri fórn-
arlund. Aldrei mér vitanlega voru
það launin, sem skiptu þar máli til
eða frá. Honum var það nóg, ef
aðilinn hlaut það, sem vonin gaf
ríkulegt tilefni til í öðruveldi við-
komandi farsælla lffi, heilbrigði
og hamingju.
Á fyrrihluta fimmta áratugs
þessarar aldar sýktist Marteinn
Skaftfells af mænuveiki og var um
tíma allþungt haldinn. Þá héldu
margir, að dagar hans að leggja
land undir fót væru með öllu tald-
ir, en svo reyndist ekki. Með frá-
bærum vilja og sjálfsmeðferð til
andófs þessum hryllilega sjúk-
dómi tókst Marteini Skaftfells að
endurheimta sitt fyrra þrek mun
meira en nokkur gat vonað. —
Þessi sífellda og stanslausa þjálf-
un til endurvakningar lífi í útlim-
um var hvatinn að því, að Mart-
einn Skaftfells fór að hugleiða eitt
og annað tilheyrandi heilbrigð-
ismálum okkar þjóðfélags og yrði
það allt rakið til enda, myndi það
nægja í býsna góðan bókaflokk al-
þýðumanna til aflestrar, því víða
stakk Marteinn Skaftfells á mein-
unum. Hann læddist aldrei með
görðum í þessum efnum, hann var
opinskár og hikaði aldrei við að
deiia við andskoðendur ef honum
fannst ástæða til þannig átaka. Og
í öllum slíkum viðskiptum var það
með ólíkindum, hversu fjölmargar
tilvitnanir voru Marteini Skaft-
fells tiltækar úr allskyns fræðirit-
um austanhafs og vestan framsett
af heimsþekktum vísindamönnum
sínum eigin málefnum til stuðn-
ings.
Ég efast um að nokkur alþýðu-
maður í okkar þjóðfélagi hafi með
slíkri alúð og samviskusemi unnið
til jafns við Martein Skaftfells að
batnandi heilsufari meðbræðra
okkar og systra. Og þá hef ég i
huga hið mikla magn af hollustu-
efnum, sem hann fékk smátt og
smátt leyfi til að flytja inn frá
öðrum þjóðum og urðu öllum sem
neyttu þeirra til margskonar
heilsubóta.
Marteinn Skaftfells var einlæg-
ur og traustur dýravinur og marga
blaðagreinina ritaði hann í dag-
blöðin til áminningar um að dýrin,
smá og stór, tamin og frjáls, væru
líka verur, sem þörfnuðust tillits-
semi á borð við mannfólkið. Altítt
á hörðum vetrardegi mátti líta
mörg hundruð spörfugla gæða sér
á góðgæti — fuglafæðu — framan
við stofugluggann i Hamrahlíð 5
og víst voru það meðal ánægju-
samlegustu tilverustunda Mart-
eins Skaftfells, er hann þjónaði
þessum fiðruðu lífverum. Marteini
var létt um mál, rökfastur og
fljótur að greina aðalatriðin frá
miðlungnum. Hann ritaði mikið í
dagblöðin um öll möguleg málefni,
hann þýddi úr ýmsum þjóðtungum
fjölbreytt lesefni fyrir unglinga.
Hann ritstýrði unglingablaðinu
Hörpunni í tvö ár og nú síðast var
hann aðalritstjóri tímaritsins
Hollefni og heilsurækt — frábært
að efni og víðlesið.
öll samtök í okkar þjóðfélagi,
sem að stofni til miðuðu að velferð
og bættu lífi, studdi Marteinn
Skaftfells með fyllstu orku hugar
og handar og í því sambandi er
vert að minnast á hið víðþekkta
heilsuhæli í Hveragerði, sem
Marteinn og aðrir skynsamir
áhugamenn stofnuðu til og hrintu
af stað um miðbik þessarar aldar
með hinn kunna og dáða lækni
Jónas Kristjánsson að leiðarljósi.
Eftirlifandi kona Marteins
Skaftfells er Astrid Vik, fædd og
uppalin í Blakstad í Noregi. Á sín-
um yngri árum lærði hún hjúkr-
unarfræði. Hún ann list í mörgu
formi og þjónar henni við og við
með fjölbreyttum litum, pensli og
lindarpenna. Á fyrri árum ritaði
Astrid Vik bókina Ævintýri
bókstafanna. Bókin var skrifuð á
norsku, móðurmáli frúarinnar, en
maður hennar, Marteinn Skaft-
fells, sneri henni til íslenskrar
tungu.
Heimili þessara elskulegu
hjóna, Astridar og Marteins, var
aðlaðandi og vistlegt. Þar hylja
veggina bókahillur, sem varðveita
eitt hið stærsta bókasafn sem ég
hef litið í eins manns eigu.
Astrid Vik og Marteinn eignuð-
ust eitt barn, soninn Hákon Magn-
ús, fæddur 2. janúar 1945. Hann er
fyrirliði og forstjóri heildverslun-
arinnar Elmaro á Bergstaðastíg
19, Reykjavík. j J
í dag kveðjum við hugsjóna- og
baráttumanninn Martein Skaft-
fells.
Marteinn fæddist á Auðnum,
Meðallandi 14. ágúst 1903, en ólst
að mestu upp á Álftanesi.
Hann tók kennarapróf árið 1933
og bætti síðar við menntun sína í
Askov, Kennaraháskóla Kaup-
mannahafnar og Háskóla íslands
auk ýmissa námskeiða bæði utan-
lands og innan. Kennslu stundaði
hann þar til hann fór á eftirlaun.
Hann hóf sambúð með Þórunni
Björnsdóttur árið 1931 en þau
slitu samvistir að sex árum liðn-
um. Þau áttu tvö börn saman,
Heiðar kvikmyndagerðarmann í
Vestmannaeyjum og Venný
Keyth, gift og búsett í Vestur-
heimi.
Eftirlifandi kona hans er Astrid
fædd Vik, hjúkrunarkona ættuð
frá Noregi. Þeirra sonur er Hákon
sem nú er framkvæmdastjóri
heildverslunarinnar Elmaro.
Marteinn lagði á sinni löngu ævi
gjörva hönd á margt fleira en
kennslustörf. Hann sat allra
manna lengst í stjórn Náttúru-
lækningafélags íslands og var
einn aðalhvatamaður að stofnun
Heilsuhælis NLFÍ í Hveragerði og
NLFÍ-búðarinnar. Hann var lengi
formaður Dýraverndarfélags
Reykjavíkur, vann að málefnum
Sólskríkjusjóðsins og ýmsum öðr-
um dýraverndunarmálum.
Þá þýddi hann eða frumsamdi
fjölda barnabóka auk annarra rita
um ýmis málefni. Þekktastur var
Marteinn þó sennilega fyrir ótölu-
legan fjölda greina um heilsu-
fræðileg efni, sem birst hafa í
dagblöðum og tímaritum um heil-
brigðismál, sérstaklega Heilsu-
vernd og Hollefni og heilsurækt,
sem Heilsuhringurinn gefur út, en
Marteinn var fyrsti formaður
hans.
Marteinn var hugsjóna- og bar-
áttumaður. Eigin reynsla ásamt
skarpri greind og opnum hug fékk
hann til þess að endurskoða hefð-
bundnar hugmyndir um sjúkdóma
og heilbrigði. Hann veiktist mjög
alvarlega árið 1946 og var þá ekki
hugað líf. Hinn þekkti frumkvöð-
ull og baráttumaður Jónas Krist-
jánsson læknir kom honum þá til
aðstoðar og óbilandi viljaþrek
Marteins og lækniskunnátta og
hæfileikar Jónasar unnu það
kraftaverk að koma honum til
heilsu, þó að líkamsþrek Marteins
hafi þó líklega aldrei náð sér að
fullu.
Þetta opnaði augu hans fyrir því
að iæknisfræði væri að mörgu
leyti á villigötum. Orsök ýmissa
sjúkdóma mætti rekja til rangra
lífsvenja og alveg sérstaklega til
rangrar og ófullnægjandi nær-
ingar, sem fylgir efnaskertri mat-
vöru 1 nútíma þjóðfélögum.
Þetta leiddi til þess að hann fór
að kynna sér gagnsemi bætiefna
og hvernig skortur þeirra leiðir til
sjúkdóma og vanheilsu. f milli
þrjátíu og fjörutíu ár las hann allt
sem hann náði í um vísindalegar
rannsóknir um þessi efni og var
áskrifandi að fjölda erlendra
tímarita um slíkar rannsóknir og
einnig um það sem í nágranna-
málunum er nefnt „alternativ
medicin", þ.e.a.s. óhefðbundnar
lækningaaðferðir, sem sannanlega
gefa oft athyglisverðan árangur.
Þekking hans á næringarfræði
og fæðubótaefnum var því orðin
mjög yfirgripsmikil og hefðu
margir, einnig háskólagengnir í
þeim fræðum, getað ýmislegt af
honum lært.
Hann stofnaði innflutningsfyr-
irtækið Elmaro árið 1946 til að
bæta úr tilfinnanlegum skorti
fæðubótaefna hér á landi. Mart-
einn notaði þekkingu sína á þess-
um vörum til að velja til innflutn-
ings það sem hann taldi best og
nauðsynlegast að fólk hefði að-
gang að hér á landi. Fljótlega fóru
þó vissir sterkir aðilar, sem ætla
má að hagsmuna hafi átt að gæta
í sambandi við innflutning lyfja,
að reyna að hindra innflutning
þessara efna. Beittu þeir til þess
aðferðum sem Marteinn taldi
brjóta í bága við lög og reglugerðir
auk þess að vera ögrun við heil-
brigða skynsemi og rannsóknir
þekktra erlendra vísindamanna.
Þá benti hann á það með réttu, að
túlkun hliðstæðra laga í ná-
grannalöndunum væri öll önnur
en hér á landi og flest þau heilsu-
bótarefni sem hér hefur verið
reynt að banna sölu á væru seld
hindrunarlaust þar. Vel má vera
að einhverjum sem les þessar lín-
ur finnist ósmekklegt í minn-
ingargrein að rifja upp þessi mál.
Um það verður vitanlega hver og
einn að hafa sína skoðun, en það
er hreinlega ekki hægt að skrifa
um Martein Skaftfells án þess að
þetta sé rætt. Ég er þess fullviss
að hvar sem andi Marteins dvelur
nú ætlast hann beinlínis til þess
að ég minni á baráttumál hans í
meira en þrjátíu ár i þessari grein.
Hann barðist lengi vel, að mestu
einn, við ofureflið og í fjölda
greina í dagblöðum sést, að á
stundum var sú barátta óvægin á
báða bóga. Andstæðingar hans
skreyttu nöfn sín oft með alls kon-
ar lærdómstitlum, en hann varð
að láta sér kennaranafnbótina
nægja. Þekking hans var þó svo
yfirgripsmikil, að í fræðilegum
efnum máttu „sérfræðingarnir"
vara sig.