Morgunblaðið - 01.03.1985, Side 47
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 1. MARS 1985
47
Marteinn hafði hvassan stíl og
var ófeiminn að segja það sem
hann taldi sannast og réttast.
Sumt af því var þess eðlis að hefðu
andstæðingar hans verið með al-
gerlega hreinan skjöld málefna-
lega séð hefðu þeir auðveldlega átt
að geta höfðað mál á hendur hon-
um og fengið orð hans dæmd
ómerk. Enginn hafði þó kjark til
þess og sýnir það e.t.v. betur en
flest annað hver hafði rétt fyrir
sér. Sumt af hugsjónum Marteins
er nú orðið að veruleika og hug-
myndir hans hafa smátt og smátt
síast út í þjóðfélagið, og einnig
læknar hafa tileinkað sér þær.
Annað bíður framtíðarinnar.
Marteinn leitaði ávallt sann-
leikans í hverju máli og þó að
hann væri oft óvæginn í skrifum
um andstæðinga sína, fyndist hon-
um réttu máli hallað, var hann
mikill mannþekkjari og fljótur til
sátta ef hann taldi að einhver
hefði af fljótfærni eða fávisku
fremur en af illvilja veist að hon-
um eða sagt eitthvað sem hann
taldi rangt. Hann hafði andstyggð
á undirferli og flærð, enda voru
þeir þættir skapgerðar einna
fjærst eðli hans. Einnig var hroki
í öllum myndum honum lítt að
skapi. Sjálfur var hann allra
manna ljúfastur, þrátt fyrir heita
skapgerð, og allra vanda reyndi
hann að leysa, væri það á færi
hans.
I blaðadeilum var oft reynt að
láta líta svo út að hagsmunir
Elamro væru það eina sem skipti
máli fyrir Martein og fyrir hann
væru hagnaðarsjónarmið aðalat-
riðið. Slík skrif verkuðu þó sem
argasta öfugmæli á þá sem þekktu
hann eitthvað. Fáa veit ég sem
peningagræðgi hefur minna þjáð
en Martein. Allt hans starf var
unnið af hreinni hugsjón, en vit-
anlega getur enginn látið leggja
ævistarf sitt í rúst án þess að bera
hönd fyrir höfuð sér. Hversu
I margir hafa ekki heimsótt heimili
þessara hjóna á liðnum árum og
verið leystir út með gjöfum í formi
bætiefna og hollra ráðlegginga?
Kynni okkar Marteins hófust í
Heilsuhringnum árið 1978 og hef
ég síðan verið tíður gestur á heim-
ili þeirra hjóna. Það er ávallt mik-
ið lán að kynnast góðu fólki. Mart-
einn var óvanalegur og sérstæður
persónuleiki, sem öllum sem
kynntust hlaut að þykja vænt um
og verður ógleymanlegur í minn-
ingunni.
Um þátt Astrid konu hans í
lífsstarfi hans mætti skrifa langa
grein en hún hefur alltaf staðið
sem klettur við hlið hans í blíðu og
stríðu, auk þess að búa honum fal-
legt heimili. Missir hennar er því
sárastur, en ég veit þó, að hún býr
yfir þeirri trúarvissu að skilnað-
urinn sé aðeins tímabundinn.
Nú kveðjum við hugsjónamann-
inn, baráttumanninn og mannvin-
inn Martein Skaftfells. Ég og fjöl-
skylda mín biðjum þess að sá er
öllu ræður veiti ástvinum hans
styrk og óska þess um leið að við
ættum fleiri menn sem líktust
Marteini Skaftfells.
Ævar Jóhannesson
Kveðja frá Heilsuhringnum
Marteinn Skaftfells, vinur
okkar og félagi, átti frumkvæði að
stofnun Heilsuhringsins árið 1977
og var fyrsti formaður félagsins.
Með honum hverfur af sjónarsvið-
inu litríkur, sterkur og heillandi
persónuleiki, sem verður öllum
ógleymanlegur sem kynntust hon-
um. Hann var flestum fróðari um
allt er snerti holla lifnaðarhætti
og fagurt mannlíf og var óspar á
að miðla öðrum af þekkingu sinni,
sem hann stöðugt bætti við og
endurnýjaði. Hann var mikill
höfðingi heim að sækja og verða
okkur ógleymanlegar margar
stundir á heimili hans og Astrid,
sem hvatti mann sinn til allra
góðra verka.
Hann fræddi og leiðbeindi án
þess að prédika og dæma eða skipa
fyrir. Hann var örlátur og gaf af
sjálfum sér og var ákaflega næm-
ur á tilfinningar og líðan annarra,
ekki einungis manna heldur einnig
málleysingja. Hann lét því ekkert
tækifæri ónotað ef hann taldi sig
geta orðið þeim að liði, sem voru
hjálparþurfi og minnimáttar.
Marteinn var fullhugi og
baráttumaður allt til hinstu
stundar og hopaði hvergi, þótt
stundum sýndist við ofurefli að
etja. Hann lét aldrei sinn hlut ef
honum þótti gengið á rétt almenn-
ings til greiðari aðgangs að heilsu-
bætandi fæðuefnum.
Við þökkum Marteini samfylgd-
ina og allt það góða, sem hann gaf
af örlæti hjarta síns. Astrid eig
inkonu hans, börnum og öðrum
ástvinum sendum við innilegar
samúðarkveðj ur.
Stjóm Heilsuhringsins
Kveðja frá Náttúru-
lækningafélaginu
Marteinn Skaftfells hóf ungur
afskipti af málefnum náttúru-
Félag íslendinga á Norðurlönd-
um, SÍDS, hélt 9. ársþing sitt í Árós-
um helgina 22.—24. febrúar sl.
SÍDS var stofnað vorið 1976 og
var í upphafi samband íslendinga-
félaga í Danmörku og Suður-Sví-
þjóð. Markmið félagsins er að
stuðla að menningarsamskiptum
íslendinga á Norðurlöndum og
efla tengsl þeirra, bæði innbyrðis
og við Island og íslensk málefni.
Árið 1980 var sambandinu breytt'í
félag. Eru hin einstöku íslend-
ingafélög, sem mynda deildir í
lækningahreyfingarinnar. Hann
veiktist snemma á ævi sinni af
lömunarveiki, en náði sér nær al-
gjörlega þrátt fyrir að veikindin
hafi verið alvarleg. Þakkaði hann
batann Jónasi Kristjánssyni,
lækni, sem var stofnandi Náttúru-
lækningafélagsins á íslandi. Jónas
beitti aðferðum náttúrulækna við
endurhæfingu sjúklinga og var ár-
angurinn oft næsta ótrúlegur eins
og m.a. sýndi sig á bata Marteins.
Upp frá því starfaði Marteinn
með Jónasi og öðrum brautryðj-
endum náttúrulækningastefnunn-
ar að framgangi hennar hér á
landi. Hann var um skeið stjórn-
armaður í Náttúrulækningafélagi
Reykjavíkur og einn af stofnend-
um pöntunarfélags þess. Marteinn
vann mikið að uppbyggingu
heilsuhælis Náttúrulækningafé-
lagsins í Hveragerði og átti einna
mestan þátt í útvegun landsvæðis-
ins sem það stendur nú á. Nær-
ingarfræði var eitt af megin-
SÍDS, nú 18 og var gert ráð fyrir
að 5 myndu bætast við á ársþing-
inu.
Að því er segir í frétt, sem Mbl.
hefur borist frá SÍDS, rekur félag-
ið m.a. sérstakan sjóð, sem ætlað
er að styrkja menningarviðburði
ýmiskonar. Hafa fjölmargir ein-
staklingar og hópar notið góðs af
starfsemi sjóðsins. Þess er einnig
getið, að hópar listafólks frá ís-
landi hafi komið til Skandínavíu
með verkefni sín og fengið til þess
styrk frá SÍDS.
áhugamálum Marteins, einkum sá
þáttur er varðar fæðubótaefni.
Hann myndaði félagsskap, Heilsu-
hringinn, sem vinnur að fræðslu
um náttúruleg heilsuefni. Hann
stofnaði heildverslunina Elmaró,
sem helgað hefur sig innflutningi
slíkra efna.
„Heilbrigð sál í hraustum lík-
ama“ var eitt af orðatiltækjum
Marteins, en hann leit svo á að
rétt fæðuval væri grundvöllur
góðrar heilsu. Marteinn var mikill
baráttumaður og hreif menn
gjarnan með sér í ræðu. Efaðist
enginn um sannan vilja hans til
þess að fyrirbyggja sjúkdóma hjá
hinum heilu en líkna hinum
hrjáðu.
Marteinn var heiðursfélagi í
Náttúrulækningafélagi Reykja-
víkur frá 1982. Við kunnum hon-
um bestu þakkir fyrir stöf hans og
samfylgd á liðnum árum. Eigin-
konu og börnum vottum við
dýpstu sámúð vegna fráfalls góðs
drengs.
Annar hluti starfseminnar, sem
orðið hefur æ umfangsmeiri með
árunum, er að útvega féiagsmönn-
um flugferðir til lslands á hag-
stæðum kjörum. Segir í fréttinni
að góður og mikill árangur hafi
náðst í þeim efnum. En á síðasta
starfsári flugu um 3.500 farþegar
á vegum SÍDS frá Skandinavíu til
Islands og er það mesta þátttaka í
sögu félagsins.
Félagið starfar á sex svæðum og
á hvert svæði einn fulltrúa í
stjórn. Höfuðaðsetur félagsins er í
Kaupmannahöfn.
Arsþing Islendinga á Norð-
urlöndum haldið í Árósum
BókamarkaÓur Máls og Menningar
Opnar í daQ íslenskar og Bókaveislaá erlenda': bækAur wwiwivwiu u • a gomlu verði öllum hæoum • * tnboðsverði • í tilboðspökkum • með afborgunum • með staðgreiðsluafslætti Bókaveisla fjölskyldunne i—É—i f Bókabúð 3 LmALS & MENNINGAR J LAUGAVEG118-101 REYKJAVÍK SÍMAR: 24240 Þrjú gramsborð hlaðin bókum á 25 krónur - 50 krónur og 75 krónur
ir - 24242