Morgunblaðið - 01.03.1985, Blaðsíða 52
52
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 1. MARS 1985
Scfawarzenegger og Jones spenna vöðvana í Conan the Destroyer.
Hormónahasar
Kvikmyndir
Árni Þórarinsson
Laugarásbíó:
Conan the Destroyer ★ *
Bandarísk. Árgerð 1984. Handrit:
Stanley Mann. Leikstjóri: Richard
Fleischer. Aðalhlutverk: Arnold
Schwarzenegger, Grace Jones, Wilt
('hamberlain, Sarah Douglas.
Tvö ofurmenni úr hasarblöðum
gnæfa nú við tjöld og hnykla vöðv-
ana í bíóum borgarinnar. Finnist
einhverjum hasarinn of heim-
spekilegur í Greystoke, The Leg-
end of Tarzan í Austurbæjarbíói,
þá þarf hann ekki að hafa áhyggj-
ur af slíku í Conan the Destroyer í
Laugarásbíói. Conan er kannski
ekki brött mannvitsbrekka en
hann er mikið vöðvafjall og það
dugir til að halda uppi býsna
spretthörðum hasar sem ekki
krefst neinna vangaveltna um
uppruna tegundanna.
Conan the Destroyer fellur
kirfilega inní þá hasarmyndahefð
sem vinsæl hefur verið undanfarin
ár og kennd er við „sword and
sorcery", þar sem ægisterkar og
hugumstórar hetjur berjast fyrir
fagrar meyjar við skrímsli og
skilmingakappa í ævintýraheimi
seiðskratta og hulinna vætta.
Persónan er teiknimyndafígúra
sem fæddist í blaðinu Weird Tales
Magazine árið 1930 en tók fyrst á
sig kvikmynd í Conan the Barbari-
an árið 1982. Um söguþráð er
óþarft að fjölyrða. Conan The
Destroyer er hin frambærilegasta
afþreying fyrir þá sem hafa gam-
an af kraftmiklum bardagaatrið-
um. Arnold Schwarzenegger legg-
ur Conan ekki aðeins til skæslegan
hormónaskrokk heldur líka nokk-
urn sjarma og kímnigáfu. Diskó-
drottningin Grace Jones veitir
honum dyggilega aðstoð sem
rennilegur svartur villiköttur. Að-
rir þátttakendur eru mun þynnri.
Gjarnan hefði mátt henda rest-
inni af leikurunum og persónun-
um út úr myndinni og setja eitt-
hvað kryddaðra í staðinn. Þetta er
voða bragðdauft lið. En seigt und-
ir tönn.
Smiöjuvegi 1^ Kópavogi.
Föstudagur: Gömlu dansarnir 21—03. Hljómsveit Jóns Sigurössonar leikur
og syngur. Nú veröur stanslaust fjör. Aög. 150 kr.
Laugardagur: Lokað vegna einkasamkvæmis.
Sunnudagur kl. 21.00—00.30.
Gömlu dansarnir og samkvæmisdansar. 150 kr. sími
ÍÓ
46500.
Vínveitingar ekki enn sem komiö er. Snyrtilegur klæönaöur. Aldurstakmark 18 ára.
Hinir óttalegu ísræningjar.
Á köldum klaka
Kvikmyndir
Sæbjörn Valdimarsson
Bíóhöllin: ísræningjarnir
Leikstjóri: Stewart Raffil. Framleið-
andi: John Foreman. Handrit: Raff-
ill og Stanford Sherman. Kvik-
myndataka: Matthew F. Leonetti,
ASC. Tónlist: Bruce Broughton.
Frumsýnd í mars 1984. Bandarísk
frá MGM/UA. Sýningartími: 96 mín.
Það sem hefur vakað fyrir fá-
kunnandi aðstandendum þessarar
rislágu kvikmyndar er erfitt að
ráða í, þó hefur kvikmyndin fsræn-
ingjarnir líklegast átt að verða sat-
íra á borð við Airplane myndirnar,
o.fl., nú skyldu geimsstríðsmyndir
skrumskældar.
Þessi ásetningur mistekst að vel
flestu leyti. Efnið og umbúðirnar
með þynnsta móti, húllumhæ í lé-
legu stúdíói. í einhverri vetrar-
braut út i blámanum líða menn
mikinn vatnsskort. Ulmenni ráða
yfir þeim fáu dropum sem enn
seytla uppá yfirborðið. Söguhetjur
myndarinnar eru einskonar Hróar
Hettir sem stela frá þeim lindar-
vatninu og miðla á meðal þyrstra.
Að sjálfsögðu fléttast inní þessa
margslungnu atburðarás prins-
essa sem týnt hefur honum pápa
sínum og söguhetja vor finnur
þegar hann lítur upp frá vatns-
austrinum. Ekki þarf að fara í
grafgötur með hver fundarlaunin
eru!
Mikið af illa gerðum leiksviðum,
aflóga vélmennum, fimmaura
bröndurum og stælingum frægra
atriða úr geimmyndum, allt frá
2001 til Return Of The Jedi, ein-
kenna ísræningjana. Úll tækni-
vinna er í hálfgerðum handaskol-
um og leikurinn óburðugur. Ein af
þeim myndum sem best eru
gleymdar sem fyrst.
íslenzka hljóm-
sveitin í Borgarnesi
ÍSLENZKA hljómsveitin heldur
tónleika í íþróttamiðstöðinni í Borg-
arnesi á laugardaginn klukkan 15,
og endurflytur hljómsveitin þar dag-
skrána „Sveiflur" sem hún flutti í
Laugardalshöll á öskudagskvöld.
Með hljómsveitinni koma fram
gítarleikararnir Björn Thorodd-
sen og Vilhjálmur Guðjónsson,
Sverrir Guðjónsson söngvari og
Ásgeir H. Steingrímsson tromp-
etleikari.
Á dagskránni eru fimm ný
„sveifluverk". Stjórnandi er Guð-
mundur Emilsson
Bónatær Tónabær
Friðarvika
Topp tískusýning
Modelsamtökin meö
sýningu á fatnaöi fra
versluninni Hjartaö.
Kung Fu flokkurinn.
50 fyrstu fa Trillu-
borgara.
l escw. inc
Þann fyrsta mars nk. hefst friöarvika í
félagsmiðstöövum Reykjavíkur og nágrennis. Hefst
vikan kl. 17.00 á Lækjartorgi meö glæsilegum
skemmtiatriöum.
Þaðan verður síðan gengiö með friðarljós í Tónabæ þar
sem haldinn verður dansleikur frá 9.00—01.00.
Reynt veröur að hafa vikuna sem fjölbreyttasta á hinum
ýmsu félagsmiðstöðvum, þó meö nokkrum sameigin-
legum verkefnum t.d. veggplakatsamkeppni, skemmti-
kvöldum í öllum félagsmiöstöövum og umræðuhópum.
En umræðuhóparnir koma til meö að taka fyrir andlegt
og líkamlegt ofbeldi, skoöuð verða myndbönd og m.fl.
m.fl.
Opiö kl. 21.00—01.00.
Trillan, Ármúla, toppstaöur með opiö til kl. 03.00.
3 stuð-hljómsveitir kynda upp fjöriö.