Morgunblaðið - 01.03.1985, Síða 58

Morgunblaðið - 01.03.1985, Síða 58
58 5 j.i JrQ A.JL' I Q r ' I | I 'PJI ( jn * ii.’i » 1.1 A»Jf MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 1. MARS 1985 „Éq h«ld oub \/i& gctum kom'&i af á.r\ hanalar benctinga. á. ir>i5ju kyrrahafinu." ást er ... ... bað í bala TM Rea U.S. Pat. Ott.-all rlghts re»rv«t •19M Los Angeles Tlmes Syndlcate Einkennilegt hve oft mig dreymir sama drauminn: Ég stend með fullt fangið af skemmdum tómöt- um og grýti verkstjórann en þó kurteislega? Með morgunkaffinu Hann er kominn þessi ynrnáttúru- lega freki, Gunna systir! HÖGNI HREKKVÍSI Bréfritarar eru ósáttir við það hve þungarokk er sjaldan leikið í útvarpi og sjónvarpi. Hvar heyrist allt þetta þungarokk? Óskað upplýsinga Gísli skrifar: Starfandi eru tvö félög um málefni fólks með geðræn vandamál, Geðhjálp og Geð- verndarfélag íslands. Því spyr ég: 1. Hvar er hægt að gerast fé- lagsmaður? 2. Hvernig er háttað starfsemi þessara félaga og hvernig vinna þau að hagsmunum þessa fólks? 3. Er fræðslu- og upplýsinga- þjónusta hjá þessum félög- um og ef svo er, þá hvar og hvernig? 4. Veita félögin fólki með geð- ræn vandamál einhverja þjónustu? Karate á Skagann Þrjár þrettán ára: Hæ Velvakandi. Við erum hérna þrjár á Akra- nesi sem finnst vanta mjög mik- ið karate á Skagann. Er ekki hægt að fá einhvern hingað til að kenna það? Við vitum um fullt af krökk- um sem langar til að æfa karate og því yrði slíkt námskeið alveg örugglega vel sótt. Við vonumst til að sem flestir Skagamenn taki undir þetta. Tveir þungir skrifa: Við eigum vart orð til að lýsa undrun okkar á skrifum Boggu í Mbl. 7. og 21. feb. Við lestur greina hennar kemur það berlega í ljós að hún er mikill andstæðingur þunga- rokks og virðist hún heyra það alls staðar. Hvar hún heyrir allt þetta þungarokk þætti okkur vænt um að vita. Ríkisútvarpið, sjónvarpið og rás 2 spila ekkert sem kallast þungarokk og kallast það gott ef að leikið er eitt þungarokkslag í þess- um fjölmiðlum á viku. Þá er það Skonrokk. Bogga talar um að setja þungarokkið út af dagskrá þar, henni væri nær að segja að láta það á dagskrá þar, þvf að í hverjum þætti er að meðaltali leikið eitt þungarokkslag. Það köll- um við ekki mikið fyrir okkur þungarokksaödáendur þvi að þó að við séum minnihlutahópur þá erum við stór minnihlutahópur sem taka þarf fullt tillit til. Rás 2 er í okkar augum ekkert nema hneyksli og ættu stjórnendur hennar og annarra fjölmiðla að skammast sín fyrir framkomuna við þungarokksaðdáendur. Viljum við nota tækifærið og óska eftir því að fjölmiðlar fari að sýna réttlæti í þessum málum. Því fyrr því betra. Hvernig væri svo að sjónvarpið sýndi tónleika með einhverri þunga- rokkshljómsveit í staðinn fyrir alla þessa popptónleika og rás 2 mætti fara að setja á laggirnar þunga- rokksþátt. Svo við víkjum nú aftur að Boggu þá erum við alveg hneyksl- aðir á rógburði hennar í garð þungarokks og unnenda þess. Lang- ar okkur til að vita ástæðu þess að hún er svo mjög á móti þungarokki og eina ástæðu þess að hún hleypur með það alla leið í fjölmiðlana. Sæl að sinni. Illa farið með bændur Þau mistök áttu sér stað við birt- ingu þessa bréf þann 17. febrúar að niður féllu nokkrar línur. Því birtist bréfið aftur i heild sinni. K.S. skrifar: Bændur kvarta ekki þótt þeim séu áætlaðar tekjur f gegnum skrifstofur í Reykjavík. Það er að- dáunarvert, hvað þeir þegja við öllu sem af þeim er krafist og ætl- ast af mönnum sem fara með þeirra mál. Þeir hafa í hendi sér kvóta, kjarnfóður og verð á afurð- um. Já, verð á afurðum, sem er fjandakornið sama og ekkert. En það er ekki hægt að ætlast til að neytendur geti keypt landbúnað- arafurðir á þessu verði, sem á þeim er út úr verzlun, fólk með 20—25 þús. kr. tekjur getur ekki veitt sér þann munað. Eg tek smá dæmi af fjölmörgum ... viðvíkj- andi verði á því sem bóndi fær og svo því sem varan er seld á út verzlun. Bændur sætta sig við að fá t.d. fyrir kálfakjöt 55—64 krón- ur kg (í des. ’84 er búið að draga frá sláturkostnað). Hvert kíló er svo selt út úr verzlun á 198 kr. — 520 kr. kg (21. jan. ’85). Bændur fá ekkert fyrir lifur og hjörtu, sem aftur á móti kosta 93 kr. út úr verzlun. Bóndi fékk í haust 47 kr. fyrir kíló af folalda- og trippakjöti, sem er selt út úr verslun (31. jan. ’85) á 279 kr. — 318 kr. hvert kg. Smjör úr rjóma sem kannski er tekinn úr léttmjólkinni, meðal annars, er selt á óheyrilega háu verði. Fram- leiðsluráð lítur svo á, að osta- og smjörbirgðir hrannist upp fyrir það að fólkið í landinu getur ekki keypt vörurnar. En söluaðilar segja, það er offramleiðsla á af- urðum. Þeim dettur ekki í hug að lækka verðið til neytenda með því að lækka milliliðakostnaðinn. Framleiðendur þurfa á neytendum að halda og því ætti það að vera krafa bænda að söluaðilar síni sanngirni í verðlagningu búvara. Ég held að heilsugæslukostnaður, svo sem tannlækna-, lyfja, læknis- og sjúkrahúskostnaður, myndi lækka ef börn og fullorðið fólk borðuðu meira af landbúnaðaraf- urðum. Börn sem fá nógan og holl- an mat sækjast ekki eftir sælgæti. En eiga íslendingar ekki met í sykuráti? Bréfritari segir að bændur fái alltof lítið fyrir vöru sína miðað við það verð sem hún er seld á út úr verslun. Tekur hann sem dæmi kálfa- og hrossakjöt.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.