Morgunblaðið - 01.03.1985, Qupperneq 61

Morgunblaðið - 01.03.1985, Qupperneq 61
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR L MARS 1986 61 Nýr glæsilegur sjö hæða íþróttaleikvangur í Mónakó: Knattspyrnuvöllurinn er á annarri hæð! • Hið glæsilega mannvirki séð úr lofti: Stade Prinz Rainier III. NÚ ER nýlokið byggingu glœsi- legs íþróttaleikvangs í fursta- dæminu Mónakó á Miójaröar- hafsströnd Frakklands. Þrátt fyrir að í ríkinu væri til staðar knattspyrnuvöllur þar sem um 15.000 áhorfendur komast fyrir, Stade Louis II, og sjaldgæft sé að þar sé þröngt setinn bekkur- inn, réðst Rainier fursti í bygg- ingu þess glæsilega mannvirkis sem meöfylgjandi mynd er af. Leikvangurinn er nefndur eftir furstanum: Stade Prinz Rainier III. i Nýi leikvangurinn er á sjö hæöum — og líkist meira íbúöar- blokk en íþróttavelli. Hann er all- ur hinn glæsilegasti. Á neöstu hæöinni eru bílastæöi, íþrótta- salur þar sem 2.500 til 3.700 áhorfendur rúmast í sæti, sund- laug, nægilega stór fyrir alþjóö- leg mót og bílastæöi. Þar er einnig aö finna mjög góöa æf- ingaaöstööu fyrir öll íþróttafélög i Mónakó. Stærsta plássiö fær knattspyrnuliö staöarins, AS Monaco, en auk mikils pláss fyrir æfingar hefur liöiö veitingahús, eldhús, sjónvarpsherbergi og fleira í þeim dúr til umráöa. Sem sagt, flest sem hægt er aö hugsa sér á slíkum staö, og kannski meira til. Völlurinn er svo á annarri hæö og sérstakir rúllustigar eru í þessari „höll“ til aö áhorfendur eigi auöveldara meö aö komast aö sínum stööum — en rými er fyrir 20.000 áhorfendur á leik- vanginum. Þar af 10.000 í sæti, og byggt er yfir öll áhorfenda- stæöin. Fyrir 20 árum var svæöiö þar sem leikvangurinn hefur nú veriö byggöur ekki til — hafiö náöi þá yfir allt þaö svæöi ríkisins sem kallast Fontvielle. Þá var ráöist i þaö aö stækka ríkiö um 22 hekt- ara og fyllt var upp í svæöið. Þar hefur nú talsvert veriö byggt — en þess má geta aö viö þessa uppfyllingu stækkaöi Mónakó- ríkiö um hvorki meira né minna en 16%. Hafist var handa viö byggingu nýja leikvangsins í mai 1981 og lauk verkinu nú um áramótin. Heildarkostnaöur viö bygging- una var tæplega tveir og hálfur milljaröur íslenskra króna. Rainier Prinz vígöi nýja leik- vanginn 25. janúar siöastliöinn og Mónakó-liðið í knattspyrnunni mun nú fariö aö leika sina heima- leiki þar. Er blm. Mbl. var á ferö í Mónakó á síðastliðnu ári var honum tjáö aö skv. áætlun ætti aö taka völlinn i notkun fljótlega upp úr áramótum og þaö hefur staöist. Þá var enn leikiö á gamla vellinum — og óhætt er aö segja aö leikmenn Mónakó-liösins, sem nokkrir af bestu knatt- spyrnumönnum Frakklands skipa, hafi kunnaö ágætlega viö sig þar. Le Roux, Genghini, Amoros, Bellone og Bravo, svo einhverjir séu nefndir, sýndu þá hvaö í þeim býr. Sýndu sannkallaöa snilldartakta í tveimur stórsigrum á fáum dögum — og vonandi er enginn þeirra verulega loft- hræddur, þannig aö þeir veröi i vandræöum meö aö leika á nýja vellinum! Mónakó hefur gengiö nokkuö vel í frönsku 1. deildarkeppninni í knattspyrnu undanfarin ár og liö- iö varö meistari keppnistímabiliö 1981 — 1982. Liöiö leggur ætíö áherslu á létta knattspyrnu sem er mikiö fyrir augaö. Þaö hefur veriö á kostnaö árangurs í Evr- ópukeppninni undanfarin ár — liöiö hefur ætíö veriö slegiö út er þaö hefur mætt liöum þar sem líkamlegur styrkleiki skiptir meira máli. En þaö er greinilegt aö for- ráöamenn liösins og Rainier fursti ætla aö halda liöi sinu á toppnum. Þaö hafa þeir sýnt meö byggingu þessa nýja leik- vangs. Þaö hefur nú veriö ákveöið aö „Supur Cup“-viöureignin ár hvert, leikurinn milli Evrópu- meistara bikarhafa og sigurveg- aranna í Evrópukeppni meistara- liða áriö á undan, fari fram á Stade Prinz Rainier III: Leikinn veröi einn leikur þar í staö tveggja, heima og heiman, eins og tiökast hefur undanfarin ár. AP/Símamynd • Mark Hately, í miðið, { baréttu við Mal Donaghy, varnarmann norður-írska liösins, í fyrrakvöld. Hately skoraði eina mark leiksins. Til vinstri er Norman Whiteside. Ensku blöðin ekki ánægð þrátt fyrir sigur í Belfast ENSKU blöðin voru ekki hrifin af leik enska landsliösins í knatt- spyrnu í Belfast í fvrrakvöld, er liðið sigraði Norður-lra, 1:0, í und- ankeppni heimsmeistarakeppn- innar. Það var Mark Hately sem skoraöi eina mark leiksins, eins og kom fram í Mbl. í gær, en Englendingar voru mjög heppnir að ná báöum stigunum úr viöur- eigninni. England átti tvö skot aö marki allan leikinn og skoraöi úr ööru þeirra, en blaöiö Daily Express kvaö Mark Hately hafa skotiö „enska liöinu hálfa leiö til Mexíkó“, en þar fer úrslitakeppnin fram næsta ár. Skotar voru ekki heppnir á Spáni — þ.e.a.s. ekki áöur en viö- ureign þeirra viö heimamenn hófst, þar sem þeir voru án tveggja lyk- ilmanna, Liverpool-leikmannanna Kenny Dalglish, sem leikiö hefur 96 sinnum í landsliöinu, og Steve Nic- ol. Þeir veiktust skyndilega aö morgni leikdagsins — og enginn viröist vita hvaö amaö hefur aö þeim. Þeir fengu einhverja dular- fulla bakteriu í sig. Jock Stein, þjálfari skoska liös- ins, neitaöi aö kenna því um aö liö hans tapaöi aö leikmennirnir tveir heföu ekki verið meö, en sagöi jafnframt aö þaö heföi vissulega veriö skarö fyrir skildi aö jafn leik- reyndur maður og Dalglish heföi ekki verið. „Við notum þaö þó ekki sem afsökun," sagöi Stein. Gerry Armstrong, framherjinn kunni hjá Norður-írum, sem áöur lék meö Watford en nú með Real Mallorca á Spáni, sagöi eftir leik- inn viö Englendinga aö England væri „heppnasta liö i heimi aö sigra í þessari viöureign". Hann bætti viö: „Þeir áttu tvö skot á mark og unnu okkur sarnt." Mark Hately, nýjasta stjarna Englendinga, sem leikur meö AC Mílanó á ítalíu, var besti maður liðsins og sá eini sem eitthvaö sýndi af eölilegri getu. Hately kem- ur með mexíkanskan sólargeisla,“ sagði eitt enska blaöið i gær. Ray Wilkins, sem var fyrirliöi enska liösins í staö Bryan Robson, sem er meiddur, sagöi aö leikurinn heföi verið léleg skemmtun. „Þetta var hryllingur,” sagöi hann. „Þetta var einn af þeim leikjum sem mað- ur er ánægöur með aö hafa fengið tvö stig en reynir aö gleyma öllu ööru sem allra fyrst. Urslitin voru í sjálfu sér allt sem máli skipti. Þaö sem skiptir máli er aö komast i úrslitakeppnina í Mexíkó — ekki hvernig viö komumst þangaö,“ sagöi Wilkins. Skoski þjálfarinn Stein haföi svipaöa sögu aö segja eftir leikinn i Sevilla. „Aðalmáliö er aö komast til Mexíkó og viö eigum enn alla möguleika á því. Ef einhver heföi sagt okkur áöur en riölakeppnin hófst að þegar baráttan væri hálfnuö yröum viö i efsta sætinu meö jafn mörg stig og Spánverjar — og hefðum þegar lokiö báðum ieikjunum viö þá, heföum viö ekki oröiö mjög óánægöir." kemur í dag GORDON Lee, Englendingurinn sem þjélfa mun 1. deildarlið KR í knattspyrnu í sumar, kemur til landsins í dag, ásamt Steinþóri Guðbjartssyni, sem verður að- stoðarþjélfari hans í sumar. Steinþór hefur dvalist undan- farna daga hjá Arsenal í London, fylgst meö æfingum, og kynnt sér meðferö meiösla. KR-ingar byrja að æfa af fullum krafti undir stjórn Lee nú á næstu dögum.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.