Morgunblaðið - 01.03.1985, Side 63
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 1. MARS 1985
63
Morgunblaöiö/Július
• Pálmar Sigurðsson nær ekki að stöðva isak Tómasson í þetta skipti í leiknum í gærkvöldi, en sá hlær best sem síöast hlær. Pálmar og félagar
í Haukum náöu loks aö vinna sigur á Njarðvíkingum í körfuboltanum — og þaö í Ljónagryfjunni í Njarðvík. ísak skorar þarna eitt af 15 stigum
sínum í gærkvöldi.
EM undir 18 ára:
Enskir
töpuðu í
Dublin
Fré Bob Hennessy fréttamanni Morgun-
btoöains é Englandi.
ÍRAR sigruöu Englendinga 1:0 í
Evrópukeppni landsliöa 18 ára og
yngri í Dublin um helgina. Þaö var
Tom McDermott sem skoraöi
eina mark leiksins en Tom þessi
er samningsbundinn 2. deildar-
liöinu Leeds United á Englandi.
Islendingar eru i riöli meö þess-
um tveimur þjóöum ásamt Skotum
og hafa þegar lokiö einum leik.
Töpuöu fyrir Englendingum ytra í
haust.
Tapiö um helgina var annaö tap
Englendinga í riölinum til þessa,
áöur höföu þeir tapaö fyrir Skot-
um.
Islendingar leika næst í riölinum
í lok maí er Skotar koma hingaö til
lands, í byrjun júlí veröur síöan
viöureign islands og irlands i
Reykjavík, í byrjun september
leika Englendingar hér á landi og í
nóvember leika íslendingar tvíveg-
is á Bretlandi, fyrst gegn Skotum
og síöan irum.
• John Ryan, sem veriö hefur
framkvæmdastjóri hjá Cambridge
undanfarna þrettán manuði, var
rekinn í gær. Ryan er 37 ára, fyrr-
um bakvöröur hjá Luton, Norwich
og Manchester City. Cambridge er
nú langneöst í 3. deildinni, níu stig-
um á eftir næsta liöi, og hefur aö-
eins unniö sjö leiki ailan þann tíma
sem Ryan hefur veriö viö stjórnvöl-
inn. Líklegasti eftirmaöur Ryan er
Brendan Batson, varnarmaöurinn
kunni sem lék meö Arsenal, Cam-
bridge og WBA. Hann varö aö
hætta sem leikmaöur vegna
meiösla fyrir nokkrum árum. .Ég á
mjög góöar minningar frá þeim
tíma er ég lék meö Cambridge og
gæti því vel hugsaö mér aö gerast
framkvæmdastjóri liösins,“ sagói
Batson í gær, en undanfariö hefur
hann veriö þjálfari utandeildarliös.
Haukar sigruðu Njarðvíkinga loks í fjórtándu tilraun — nú í bikarnum:
spenna í Ljóna-
Gífurieg
gryfjunni — ekki mikil
HAUKAR náöu loks aö sigra
Njarövíkinga f körfuknattlaiknum
í gærkvöldi, er liöin mættust í
8-liöa úrslitum bikarkappninnar í
Njarðvík. Haukar sigruöu 76:75.
Staöan í hálflaik var 32:31 fyrir
Njarövík. Þetta var fjórtánda viö-
ureign þassara liöa sfðan Haukar
komu upp úr 1. deild lyrir tvaimur
árum — og höföu Njarövíkingar
unniö fyrstu þrattán leikina.
Liöin léku ekki vel í gær þegar á
heildina er litiö. Mikil taugaspenna
setti svip sinn á leikinn, mikiö var
um misheppnaöar sendingar og
hittni var frekar slök, eins og stiga-
tölurnar sýna. En spennan bætti
þaö upp og leikurinn var mjög
skemmtilegur á aö horfa.
Haukar skoruöu fyrstu körfuna,
en Njarövíkingar fjórar þær næstu.
Staöan þá 8:2 fyrir Njarövík og
þrjár mín. búnar. Síðan leiddu
Njarövíkingar meö tveimur til sex
stigum allt þar til þrjár mín. voru
eftir af fyrri hálfleik — þá náöu
Haukar aö jafna, 26:26. Lokatölur
hálfleiksíns svo 32:31 fyrir Njarö-
vik.
Haukar skoruöu tvær fyrstu
körfurnar í síöari hálfleik, komust
þar meö yfir, og eftir tvær og hálfa
mín. var staöan 38:36 fyrir Hafn-
firöingana, en á næstu þremur
min. áttu Njarövíkingar sinn besta
kafla í leiknum — skoruöu tíu stig
í röö og breyttu stööunni í 46:38.
Átta stiga munur sem var þaö
mesta í leiknum.
En Haukar söxuöu smátt og
smátt á forskotiö á ný og um miðj-
an hálfleikinn var staöan oröin jöfn
á ný, 52:52. Þá áttu Haukar góöan
sprett, skoruöu næstu þrjár körfur
— breyttu stööunni þá, 52:58 sér í
hag. Er sex mín. voru eftir höföu
Njarövíkingar minnkaö muninn
niöur í eitt stig, 60:61. Þá sigu
Haukar aftur fram úr og er þrjár og
hálf mín. voru eftir höföu þeir náð
sjö stiga forskoti, staöan 70:63.
Leikurinn hélst í jafnvægi næstu
tvær min. og er 46 sekúndur voru
eftir var staöan 76:71 fyrir Hauka.
Fimm stiga munur. Þá má segja aö
spennan hafi veriö í algleymingi —
Árni Lárusson skoraöi fyrir Njarö-
' vík, minnkaöi muninn í þrjú stig, og
er tiu sek. voru eftir átti Valur Ingi-
mundarson langskot — sem heföi
dugaö til aö jafna því hann var fyrir
utan þriggja stiga línuna — boltinn
dansaöi á hringnum en niöur um
hringinn vildi hann ekki. Eftir frá-
kastiö var brotiö á Isak Tómassyni
og hann skoraöi úr tveimur víta-
köstum. Staöan þá 75:76 og aö-
eins fjórar sekúndur eftir og tókst
Haukum aö halda knettinum þann
tima. Fyrsti sigur þeirra á Njarövik-
ingum í höfn.
Njarövíkingar höföu á oröi eftir
leikinn aö þaö heföi betur veriö
rétt í Morgunblaöinu á dögunum
aó sigur þeirra á Haukum þá í
deildinni heföi veriö í bikarkeppn-
inni, eins og sagt var hér vegna
misskilnings. „Við heföum alveg
mátt viö því aö tapa í deildinni!"
sögóu þeir.
Ivar Webster var yfirburöamaö-
ur hjá Haukum í fráköstunum en
hittni hans var í lakara lagi. Pálm-
ar, Ólafur Rafnsson og Hálfdán
Markússon voru einnig mjög góðir.
Njarövíkingarnir voru jafnir í
leiknum. Flestallir leikmenn liösins
áttu sína góöu kafla. Ellert Magn-
ússon var t.d. mjög góöur í fyrri
hálfleik en slakur i þeim síöari. ísak
aftur á móti geysigóóur í síöari
hálfleiknum og Hreiðar Hreiöars-
son seinni hluta síöari hálfleiks.
Valur var mjög góöur í fráköstun-
um en skoraöi óvenjulttiö miöaö
viö tilraunafjölda þó hann væri
stigahæstur Njarövíkinga.
STIG UMFN: Valur Ingimundarson
18, Hreiöar Hreiöarsson 15, isak
Tómasson 12, Ellert Magnússon
10, Jón Viöar 8, Helgi Rafnsson 6
og Árni Lárusson 4 og Gunnar
Þorvaröarson 2. Þetta var fyrsti
leikur Jóns Viðars meö Njarövík-
urlióinu í þrjú ár. Hann hefur veriö
til sjós. Hann lék stutt en var mjög
traustur meðan hann var inni á.
Hann veröur liöinu mikill styrkur
þegar hann veröur kominn i cjóöa
gæði
æfingu. Þess má geta aö Jónas
Jóhannesson lék ekki meö Njarö-
víkingum i leiknum — hann er
meiddur og vantaöi þvi tilfinnan-
lega stóran mann i fráköstin í liö
meistaranna gegn Webster.
STIG HAUKA: Ólafur Rafnsson 15,
Hálfdán Markússon 15, Pálmar
Sigurösson 13, ivar Webster 13,
Henning Henningsson 8, ivar Ás-
grimsson 6 og Kristinn Kristinsson
6.
Dómarar voru Kristinn Alberts-
son og Rob lliffe og voru þeir frek-
ar slakir. Einkum þó Kristínn.
ÓT./SH.
íslandsmót í innan-
hússknattspyrnu stúlkna
2. og 3. flokkur
veröur haldiö á Akranesi dagana 9. og 10. mars.
Þátttökutilkynningar skulu berast skrifst. KSÍ fyrir
6. mars nk. ásamt þátttökugjaldi.
Knattspyrnusambandiö.