Morgunblaðið - 03.03.1985, Qupperneq 53
MORGUNBLADID, SUNNtlDAGUR 3. MARS 1985
53
Það er skilyrðislaus skylda há-
skóladeildar að láta reyna á það
til hins ýtrasta hvað fjárveitinga-
vald og alþingi vilja leggja af
mörkum til að skapa deildinni
möguleikaa á að sinna þeim sem
til hennar sækja sómsamlega. í
„klínísku" kennslunni í læknadeild
verður samt alltaf einn takmark-
andi þáttur, sem fyrirgreiðsla
stjórnvalda fær ekki breytt, og
það er sjúklingafjöldi. Sjúkt fólk
verður að vernda gegn ofskoðun og
oflækningu, sem gæti leitt af of
miklum fjölda nemenda á sjúkra-
deildum. Þegar meta skal heppi-
legan fjölda nemenda á deild, og
þetta sjónarmið eitt er lagt tií
grundvallar, þá eru læknar við-
komandi deildar einir dómbærir.
Vel meinandi háskólapólitískir
hugsjónamenn geta ekkert lagt af
mörkum til þeirrar ákvarðana-
töku.“
Hvað um þá skoðun, sem heyrst
hefur, að ýmsir innan háskólans
séu að róa árum stéttarfélags síns,
en ekki háskólans?
„Ekki vil ég ætla neinum sam-
kennara mínum þá siðblindu,"
segir Jóhann. „Eftir að þeir hafa
gerst starfsmenn háskólans, eiga
þeir skyldur fyrst og fremst við
hann, en ekki sitt stéttarfélag."
Jóhann er spurður álits á því
lífeðlisfræðin er ein af grundvall-
argreinunum til skilnings á starfi
líkamans, bæði í heilbrigði og þeg-
ar eitthvað fer úrskeiðis. Rann-
sóknarstofan í lífeðlisfræði hefur
reynt að sníða kennsluna eftir
þörfum þeirra mismunandi hópa
sem við kennum, og við höfum á
síðustu árum reynt að koma til
móts við þær.“
Þú leggur mikla áherslu á rann-
sóknir, hefur reyndar margoft
sagt að enginn geti kennt af viti
nema hann stundi rannsóknir. En
hvaða „praktíska" þýðingu aðra
hafa rannsóknir, t.d. í þinni grein?
„Öll ný þekking í lífeðlisfræði
mannsins og annarra dýra leiðir
fyrr eða síðar til aukins skilnings
á starfsemi mannslikamans, og
þar með á truflunum á þeirri
starfsemi, þ.e. sjúkdómum. Auk-
inn skilningur á sjúkdómum leiðir
svo aftur til markvissari meðferð-
ar, þ.e. betri læknisþjónustu.
Rannsóknir geta líka leitt til for-
varnaraðgerða — orðið góð fjár-
festing í heilbrigði, eins og land-
læknir myndi segja. Og ef við lít-
um til annarra dýrategunda, eins
og t.d. fiska, þá getur aukin þekk-
ing á lífeðlisfræði þeirra fært
okkur skynsamlegri veiðarfæri,
hraðari vöxt eldisfiska, og þannig
mætti lengi telja."
Viö þolpróf í
Rannsóknarstofu
■ lífeðlisfræöi
hvað geti komið í stað fjöldatak-
markana?
„Ef óhjákvæmilegt reynist að
takmarka eru t.d. inntökupróf
möguleg. Þau kunna hins vegar að
bjóða heim vandamálum, sem
snerta allt starf á lægri skólastig-
um, og verður að huga vandlega að
kostum og göllum áður en hafist
verður handa um slíkt. Svo er sá
möguleiki, sem ég og aðrir hafa
margsinnis bent á, að hafa sam-
eiginlegt nám fyrir allar heil-
brigðisstéttir og verðandi líffræð-
inga fyrstu árin. Menn gætu þá
innritað sig í þetta nám án þess að
ákveða fyrirfram hvaða námsleið
þeir endanlega velji. Það sem
vinnst við þetta er að þótt nem-
endur komist ekki áfram á þeirri
námsbraut, sem þeir helst kjósa,
þá dettur fólk ekki út úr námi
meira eða minna kalið á hjarta
eins og nú gerist.“
Rannsóknir eru
„góð fjárfesting
í heilbrigði“
Hefur ekki aðstaða til lífeðlis-
fræðikennslu breyst mikið til
batnaðar frá því þú hófst störf í
deildinni?
„Jú, hún hefur breyst til batnað-
ar, en þó hvergi nærri nóg. Ég
held að allir séu sammála um að
Virðingu ávinna menn
sér af verkum sínum
Stundum er talað um þverrandi
virðingu þjóðarinnar fyrir merk-
ustu stofnunum sínum, t.d. Al-
þingi og Háskóla Islands. Hvað
viltu segja um það efni?
„Einstaklingur eða stofnun get-
ur ekki krafist virðingar, virðingu
ávinna menn sér með verkum sín-
um. Ef háskólamenn virða sjálfa
sig, störf sín og stofnanir, og há-
skólinn skipar öndvegi í öllu
þeirra veraldarvafstri, þá þurfa
þeir ekki að kviða því að fólkið í
landinu muni ekki virða þá og há-
skólann."
Nú heyrist það oft að vísinda-
menn hafi ekki „vit á öðru en vís-
indurn", og þá helst á einni sér-
grein. Þeir hafi t.d. ekkert vit á
stjórnmálum. Hvað viltu segja um
þetta atriði?
„Menntun og starf vísinda-
manns gerir hann í sjálfu sér ekk-
ert hæfari en aðra til að svara sið-
ferðilegum spurningum, en að
sjálfsögðu heldur ekki óhæfari.
Hann hefur ekki starfs síns vegna
minna vit á stjórnmálum, eða
réttu og röngu, en hver annar
þjóðfélagsþegn og þjálfun hans
ætti fremur að auðvelda honum að
draga rökréttar ályktanir en hitt.
Honum ber auðvitað að taka af-
stöðu til þjóðfélagsmála sem ein-
staklingi, samkvæmt bestu vit-
und.“
Fjórtán ára japönsk stúlka, sem
segist dunda sér við ljóða- og smá-
sagnagerð. Safnar frímerkjum:
Yoshimi Shimajiri,
573 Itakura-cho,
Ashikaga-shi,
Tochigiken,
326-01 Japan.
Frá Bandaríkjunum skrifar frí-
merkjasafnari sem ekki getur um
aldur. Vill skiptast á frímerkjum:
Victor Wilcke,
5401 S. Woodlawn nr.2,
Chicago,
Illinois 60615,
U.S.A.
Fjórtán ára japönsk stúlka með
áhuga á tónlist og bóklestri:
Yukako Hattori,
1552 Imajukuhigashi-cho,
Asahi-ku Yokohama City,
Kanagawa 241,
Japan.
Sextán ára japanskur piltur með
fótbolta- og frímerkjaáhuga. Vill
skrifast á við 16 ára stúlku:
Masashi Sato,
50 Shinyashiki,
Sato-machi,
Anjou-shi Aichi,
446 Japan.
Frá ísrael skrifar piltur, sem
kveðst hafa mikinn áhuga fyrir ís-
landi og vill eignast hér pennavini.
Getur hann ekki um aldur, en er
vart mikið yfir tvítugt. Áhugamál
önnur getur hann ekki um:
Paul Cohn,
P.O. Box 13126,
91131 Jerusalem,
Israel.
Dönsk tveggja barna húsmóðir, 31
árs, með mörg áhugamál, vill
skrifast á við konur á sínu reki:
Pia 0stergárd,
Asfergvej 1,
Hvidsten,
8981 Spentrup,
Danmark.
Frá V-Þýzkalandi skrifar 16 ára
piltur með íslandsáhuga:
Vinh Trinh,
Otterstadterweg 50,
D-6720 Speyer,
W-Germany.
Viltu
Veitingahallarveislupf
heim til þín á y^i
sem kemur á^ovart?
Wí
Husi verzlunarinnar.
Foreldrar fermingarbarna og
aörir sem þurfa aö halda
veislu:
Nú getum viö loks oröiO viO fjölmörgum
óskum viOskiptavina okkar um stóraukna
veisluþjónustu Veitingahallarinnar, hvort
sem um er aO ræöa konunglegt heitt og kalt
veisluborö, eöa hlö landsfræga kaffihlaö-
borö okkar, sem þúsundir gesta hafa gsatt
sér á.
Þar er aö flnna meiriháttar tertur, heitar og
kaldar ofnbðkur, heimabökuð döölubrauö,
flatkökur meö hangikjöti o.fl. góögaati.
Allt þetta er hægt aö ‘á heimsent og þlö
losnið viö allt stress og þurflö aöeins aö
leggja á boröiö og segja gjörið þM avo vei.
Svo getum viö auóvitaö haldlö fyrir ykkur
20—70 manna velslur aö morgni, í hádegl,
um kaffileytiö eöa aö kvöldi og bjóöum þar
aö auki glæsilega aöstööu til hádegls- og
kvöldverðarfunda.
Veislusímarnir okkar eru 33272, 30400,
685018. Ykkar aö velja, okkar aö vanda og
veröiö kemur ykkur örugglega á óvart.