Morgunblaðið - 03.03.1985, Page 78
ER tiEIMI rVII\MTNI)ANNA
Michael Caine, sem breski Rússinn Kuzminsky.
Laurence Olivier.
Bíóhöllin:
Heimkoma njósnarans
- Ný mynd meö Michael Caine og Laurence Olivier
HVAÐ eiga Kim Philby, Guy Burg-
ess, Donald MacLean, Anthony
Blunt og Sir Philip Kimberley sam-
eiginlegt? Fljótt á litið virðast þessir
menn ekkert eiga sameiginlegt, en
ef betur er að gáð, þá eru þeir allir
njósnarar, sem hafa svikið land sitt
fyrir pening eða hugsjónir í einhvers
konar formi, nema hvort tveggja sé.
Fjórir fyrstnefndu mennirnir eru all-
ir þekktir, og saga þeirra verður
ekki rakin hér, en sá síðastnefndi er
aðalpersónan í splunkunýrri kvik-
mynd með stórleikurunum Michael
('aine og Laurence Olivier. Myndin
heitir Heimkoma njósnarans („The
Jigsaw Man“) og er sýnd í Bíóhóll-
inni um þessar mundir.
Saga um njósnara
Sögur um njósnara hafa alla tíð
verið í miklu uppáhaldi hjá fólki,
og skiptir þá engu hvort, þeir eru
„góðir“ eða „illir“. Njósnarar eru
kaldrifjaðir ævintýramenn og það
er varla hægt að útskýra vinsæld-
ir njósnasagnanna á annan veg en
að almúginn sjái eitthvað spenn-
andi og framandi við líf þessara
persóna. Rithöfundar gengu
snemma á lagið og hafa skrifað
mörg hundruð tonn af slíkum sög-
um, og ekki hefur staðið á kvik-
myndagerðarmönnum að svala
forvitní fólks.
Sennilega er það tilviljun ein að
„The Jigsaw Man“ skuli skjóta upp
hér á landi einmitt þegar mál
Arne Treholts stendur sem hæst.
Ekki svo að skilja að tengsl séu á
milli myndarinnar og norska
njósnamálsins. „The Jigsaw Man“
er byggð á samnefndri skáldsögu
eftir einhverja Dorothea Bennett
sem er gift leikstjóra myndarinn-
ar, Terence Young. Sagan fjallar
um Kimberley, sem er hæfur og
virtur sérfræðingur í stjórnmál-
um og njósnum. Hann hlaut
menntun sína í Cambridge, sem er
m.a. gerjunarstöð fyrir upprenn-
andi njósnara. En árið 1974 á
hann að hafa flúið sjálfviljugur
austur yfir. Áður en hann fer, fel-
ur hann skýrslu yfir alla helstu
njósnara Sovétmanna á Vestur-
löndum, ef ske kynni að Sovét-
menn misstu áhuga á honum. Um
það leyti sem myndin hefst fer allt
í handaskolum; KGB segist ekki
hafa not fyrir hann lengur. En
KGB vill að Kimberley fari aftur
vestur og komi til baka með földu
skýrsluna. Hann snýr til baka
undir dulnefninu Kuzminsky. Yf-
irmaður bresku leyniþjónustunn-
ar, Sir Scaith, sem Laurence Olivi-
er leikur, fær pata af þessu leyni-
makki og hyggur á gagnráðstafan-
ir. Þær felast meðal annars í að
flækja dóttur Kimberleys í málið.
Þegar Kimberley/Kuzminsky
kemur á fornar slóðir reynist líf
njósnarans ekki eins unaðslegt og
ætla mætti ...
Olivier og Caine
Michael Caine er orðinn ansi
tíður gestur í reykvískum kvik-
myndahúsum. Engin furða, mað-
urinn er sennilega sá eftirsóttasti
þessa dagana. Síðast var hann í
Bíóhöllinni i grinmyndinni
„Blame It on Rio“. Þar áður lék
hann í „Heiðurskonsúlnum"
ásamt Ríkharði Geir, og um svip-
að leyti sýndi Stjörnubíó eina
vinsælustu kvikmynd síðastliðins
árs hér á landi, „Educating Rita“.
Af Caine er það að frétta, að
honum hefur verið boðið að leika í
mynd sem Woody Allen ætlar að
gera á næstunni og verður spenn-
andi að fylgjast með samstarfi
þeirra.
Fáir núlifandi leikarar hafa
meiri leikreynslu en Sir Laurence
Olivier. Hann er tæplega áttræð-
ur, fæddur 1907, og hefur hann
helgað sig leiklistinni mestan part
ævinnar.
Það er nokkuð langt um liðið
síðan Olivier sást hérlendis i
kvikmynd; síðast sást hann í stór-
merkilegri heimildamynd um
þennan leikhúsmann og kvik-
mynda sem íslenska sjónvarpið
sýndi um áramótin.
Michael Caine og Laurence
Olivier hafa einu sinni áður leikið
saman í kvikmynd. Það var í
myndinni „Sleuth“ sem gerð var
1973. Michael Caine var þá út-
nefndur til Óskarsverðlauna, í eitt
skipti af mörgum, og á hann enn
eftir að hreppa hnossið.
I
I
Frægðarferö til Indlands
Kynning á breskri stórmynd sem
frumsýnd verður í Regnboganum
næstu daga.
Það hefur ætíð einhvers mikils
verið að vænta af David Lean, því
hann er manna óragastur við að
leggja í stórvirkin og leysa þau af
einskærri snilld, eins og dæmin
sanna. Lawrence of Arabia, The
Bridge On The River Kwai, Great
Kxpectations, Dr. Zhivago, Ryan’s
Daughter eru meðal kunnari verka
hins brátt áttræða leikstjóra. Og
nú er röðin komin að Indlandsreis-
unni, A Passage to India.
Að baki hverrar myndar býr
saga hennar, mismikil eða merki-
leg að vonum. A Passage to India á
að baki sér hvorki meira né minna
en 26 ára sögu samningaþjarks,
vonbrigða, sigra og svo að lokum
þriggja ára undirbúningsvinnu og
kvikmyndagerðar.
Ástæðan fyrir þessum einstæða
hægagangi var fyrst og fremst
óbeit höfundar bókarinnar A Pass-
age to India, E.M. Forster, á
kvikmyndaforminu og vantraust
hans á kvikmyndagerðarmönnum
yfir höfuð. Áleit hann þá ekki
færa til að skapa hlutlaust verk
b.vggt á bókinni, heldur yrði hallað
á aðra hvora, Indverja eða Breta.
Eftir nokkuð skyndilegt fráfall
Forsters, þá loks hann var búinn
að samþykkja kvikmyndatökuna,
var það King’s College í Cam-
bridge sem varð handhafi kvik-
myndaréttarins. Höfðu forráða-
menn hans jafn mikinn ímigust á
kvikmyndagerðinni og höfundur-
inn áður. Það var svo ekki fyrr en
1980, eftir stjórnendaskipti við
skólann, að framleiðandanum,
John Brabourne, var gefið grænt
ljós á tökuna, þá hafði hann sótt á
brattann allar götur frá 1958!
En hvert skyldi svo efni þess
verkefnis vera sem Lean velur sér
eftir hartnær 15 ára hlé?
Ung, bresk kona, Adela Quested
(Judy Davis), heldur til Indlands
til að giftast mannsefni sínu,
Ronny Heaslop (Nigel Havers),
sem stormar upp metorðastigann.
Félagi hennar á ferðalaginu er
móðir Ronnys, Mrs. Moore (Peggy
Ashcroft).
Gröm yfir smáborgaralegu
ófrelsi hins breska samfélags í
borginni og full löngunar til að
kanna „hið sanna indland”, gleðst
Adela mikið er hún er kynnt fyrir
ungum, indverskum lækni, Áziz
(Victor Banerjee), af eina, frjáls-
lynda Bretanum á staðnum, skóla-
kennaranum Richard Fielding,
(James Fox).
Þó Adela hrífist af hinum
glæsta Aziz þá skilur hún ekki
áhuga hans á hennar eigin tilfinn-
ingum og vandræðalegit samband
þeirra veldur hinni raunalegu ráð-
gátu Marabar-hellanna, og var
sögð fyrir af brama-dulspekingn-
um prófessor Godbole (Alec
Guinness).
Atvikið sem gerist niðri í þess-
um sögufrægu bergmálshellum er
óútskýrð þungamiðja myndarinn-
ar/bókarinnar.
Þetta er aðeins rauði þráðurinn.
Iæan hefur tekist að gera það
heillandi kvikmynd eftir bókinni,
að A Passage to India er þegar far-
in að sópa til sín verðlaunum strax
eftir frumsýningu (14. des. ’84 1
New York). Má þar nefna að gagn-
rýnendur í New York völdu hana
mynd ársins, Lean besta leikstjór-
ann og þau Peggy Ashcroft og
Victor Banerjee voru kjörin bestu
leikarar ársins. Þá hlaut myndin
álitlegan skerf af Golden Globe-
tilnefningum.
Mest. er að sjálfsögðu um Ósk-
arsverðlaunin vert og hlaut A
Passage to India flestar tilnefning-
Gamall meistari sigrar einu sinni enn. Leikstjórinr David Lean.