Morgunblaðið - 14.03.1985, Side 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 14. MARZ 1985
Fasteignaverð undir byggingarkostnaði:
Fólk selur eignir og
stendur eftir í skuld
*
Astandið mun verra úti á iandi
FASTEIGNAVERÐ hér á landi hef-
ur að undanförnu farið hlutfallslega
lækkandi miðað við verðlagsþróun
og er þetta einkum áberandi úti á
landi, þar sem fasteignir seljast nú
langt undir byggingarkostnaði. A
höfuðborgarsvæðinu er ástandið
heldur skárra þótt dæmi séu um, að
fasteignir, einkum stærri eignir,
gangi á verði sem er undir bygg-
ingarkostnaði. Þessar upplýsingar
komu m.a. fram í samtölum, sem
blaðamaður Morgunblaðsins átti við
Stefán Ingólfsson hjá Fasteignamati
ríkisins, talsmenn hinna nýstofnuðu
Samtaka áhugafólks um úrbætur í
húsnæðismálum og aðila, sem tengj-
ast fasteignaviðskiptum.
Öllum þessum aðilum bar sam-
an um, að þessi þróun væri hluti
þess vanda, sem við blasir hjá
íbúðarkaupendum og húsbyggj-
endum, að eignirnar lækka í verði
á sama tíma og greiðslubyrði af-
borgana af lánum fer vaxandi.
Eru dæmi þess, að fólk, sem orðið
hefur að selja vegna greiðsluerfið-
leika, hefur komið út úr viðskipt-
unum í skuld, jafnvel þótt það hafi
eytt stórum hluta tekna sinna á
undanförnum árum í að greiða af
viðkomandi eign.
„Vandamálin eru hrikaleg hvar
sem á þau er litið, en af samtölum
okkar við fólk er þó ljóst, að
ástandið er verra úti á landi. Við
höfum dæmi um að fóik sem hefur
selt stendur uppi eignalaust og
jafnvel í skuld," sagði Björn
Ólafsson, einn af talsmönnum
Samtaka áhugafólks um úrbætur í
húsnæðismálum. „Ástandið er
mun verra en við gerðum okkur í
hugalund í upphafi. Við vissum að
fólk átti í greiðsluvandræðum en
það sem við blasir er hreint gjald-
þrot í mörgum tilfellum. Nú þegar
hefur á fimmta þúsund manns lát-
ið skrá sig hjá okkur og síminn
hringir endalaust. Þetta fólk biður
ekki um fyrirgreiðslu heldur hróp-
ar á hjálp. Og það er ljóst að það
verður að gera eitthvað þegar í
stað. Hér duga engar bráðabirgða-
lausnir heldur verður að gera
eitthvað róttækt í málunum og
tryggja lausn til frambúðar. Þetta
er hreint neyðaróp, sem glymur í
eyrum okkar og ég hefði ekki trú-
að því að óreyndu hvernig ástand-
ið er í raun orðið," sagði Björn.
Stefán Ingólfsson, verkfræðing-
ur hjá Fasteignamati ríkisins,
staðfesti í samtali við Morgun-
blaðið að fasteignaverð hefði farið
hlutfallslega lækkandi allt frá
haustinu 1982 og fram til dagsins i
dag. Stefán kvaðst að vísu ekki
hafa nákvæmar tölur frá fyrstu
mánuðum þessa árs þótt ástæða
væri til að ætla, að nú í fyrsta
skipti á undanförnum tiu árum,
hefði fasteignaverð ekki hækkað á
almennum markaði eins og venja
var í byrjun árs.
Stefán sagði að mest he”i
lækkunin orðið á tímabilinu frá
apríl 1983 og fram á haust það
sama ár, en þá hefði fasteignaverð
á föstu verðlagi miðað við láns-
kjaravísitölu fallið um 25%. Þar
hefðu vandamálin byrjað þar sem
þetta þýddi, að aðili, sem t.d. hefði
keypt íbúð haustið 1982 og átt eig-
ið fé upp á 20%, hefði í raun tapað
þeirri upphæð árinu seinna, þar
sem svo til allar skuldir hefðu ver-
ið verðtryggðar. Stefán sagöi að
hér væri þó aðeins um að ræða
einn þátt af mörgum í umfangi
þessa vandamáls. Annað væri það
til dæmis, að fólk gerði ekki grein-
armun á verðtryggðum lánum,
sem það tekur yfir, og óverð-
tryggðum, sem hefði í mörgum til-
fellum haft í för með sér vanmat á
greiðslubyrðinni. Og jafnvel enn
væru hugmyndir margra óljósar
um hættuna í þessum efnum.
Ólafsvík:
Beint sjónvarp
frá bæjar-
stjórnarfundum
ÓUTsrík, 13. nura.
VILLA-Video hélt aóalfund sinn
á dögunum. Mikil gróska er í
starfsemi boðveitunnar, sem nú
nær til flestra ibúa Ólafsvíkur.
Fram kom á fundinum, að menn
bíóa spenntir eftir því aó ný út-
varpslög taki gildi og vonast eftir
að þau verói meó frjálslegu sniði.
Mikill áhugi er á að auka
heimaunnið efni, svo sem bein-
ar útsendingar og hefur bæjar-
stjórn samþykkt að heimila út-
sendingar frá fundum sínum.
Sitthvað fleira er á döfinni.
Nýja stjórn félagsins skipa:
Vilhelm Árnason, ólafur
Arnfjörð og Kristján Guð-
mundsson.
— Helgi
Páll Ásgeir Tryggvason, sendiherra í Moskvu, og Halldór Asgrímsson, sjávarútvegsráóherra, vió utlörina.
„Mjög virðuleg athöfn"
„ÞETTA var mjög virðuleg athöfn
og mikið fjölmenni samankomió,"
sagói Halldór Ásgrímsson, sjávar-
útvegsráðherra, þegar blm. Mbl.
náói sambandi vió hann á Hotel
Sovetskaya í Moskvu, en Halldór
var fulltrúi ríkisstjórnarinnar við
útför Cbernenkos.
„1 morgun fórum við og lögðum
blómsveig að líkbörunum en sjálf
athöfnin eða útförin hófst klukk-
an eitt á Rauða torginu. Var þar
margt manna samankomið og at-
höfnin öll hin virðulegasta eins
og líklegt er. Gorbachev, sem
skipaður hefur verið aðalritari
kommúnistaflokksins og eftir-
maður Chernenkos, flutti ræðu
við útförina og virtist flytja mál
sitt mjög vel þótt ég sé að vfsu
ekki manna dómbærastur um það
þar sem ég skil ekki rússnesku.
Að athöfninni lokinni tók
Gorbachev á móti erlendum gest-
um og heilsuðum við þá upp á
hann. Hann kemur mjög vel fyrir,
heimsmannslegur í fasi og alúð-
legur,“ sagði Halldór Ásgrímsson
að lokum. Halldór hélt frá
Moskvu í morgun, fimmtudag.
Sömu myndböndin og
voru á lista tollgæzlu
„VIÐ ERUM meó þrettán myndbönd, sem fundust í fjörunni á Akranesi. Ég
held að ekki leiki vafi á, að skipverjar á Álafossi hafi kastað þeira frá boröi.
Myndböndin koma heim og
saman við lista, sem við höfðum
um smyglvarning í skipinu. Þessi
fundur staðfestir, að grunsemdir
okkar voru á rökum reistar og að
smyglvarningnum var komið und-
an,“ sagði Kristinn Ólafsson,
tollgæzlustjóri, í samtali við blm.
Mbl. Svó sem fram kom í Mbl.
fundust á þriðjudag myndbönd
sem rak á land á Akranesi.
„Verst að ekki flýtur meira
upp,“ sagði Kristinn. Tollgæzlan
hafði upplýsingar erlendis frá um
að um borð í Álafoss hefði verið
skipað áfengi, myndbandstækjum
og spólum og fór fram víðtæk leit
í skipinu en án árangurs. Einnig
var leitað í gámum, en án árang-
urs. Að undanförnu hefur suð-
austanátt verið ríkjandi og þykir
það renna stoðum undir þá kenn-
ingu, að myndböndunum hafi ver-
ið kastað frá skipi á ytri höfninni
í Reykjavík.
Fjölmennur stofn-
fundur kúabænda
BÆNDIJR á Suðurlandi fjöl-
menntu á stofnfund Félags kúa-
bænda, sem haldinn var á Hvoli í
gærkvöldi. Hvert sæti var skipað í
salnum og voru 120—150 bændur
úr Árnes-, Rangárvalla- og Vestur-
Skaftafellssýslu á fundinum. Á
svæði Búnaðarsamhands Suður-
lands er alls á áttunda hundrað
bænda.
Loftmengun af álveri við Eyjafjörð:
Óráðlegt að stunda kvikfjár-
rækt á 600 hekturum lands
þar sem nú eru 6 býli með 29 kúm og 500 fjár
Akurejri, 13. mara.
INNRI mörk mögulegs mengunar-
svæðis af völdum hugsanlegrar ál-
verksmiðju á Dysnesi við Eyjafjörð ná
frá Hjalteyri inn að Dagverðareyri.
Það er um 2.600 hektara land með
7.500 ærgildum (123 kúm og 1.340
ám). Þá er talið að á um 600 hektara
svæði í grennd við Dysnes sé senni-
lega ekki ráðlegt að stunda kvikfjár-
rækt. Á því svæði, sem er um fjögurra
kflómeta langt og hálfur annar kfló-
metri á breidd, eru nú sex býli með
1.470 ærgildum. Þetta kom fram á
fréttamannafundi, sem Staðarvals-
nefnd hélt hér í kvöld.
Nefndin lagði í dag fram bráða-
birgðaskýrslu um athuganir á um-
fangi og dreifingu loftmengunar af
völdum flúors frá hugsanlegri 130
þúsund tonna álverksmiðju á Dys-
nesi við Eyjafjörð, skammt innan
við Hjalteyri í Arnarneshreppi.
Dreifingarspáin er unnin af Norsk
Institutt for luftforskning (NILU)
og er byggð á veðurfarsathugunum
og öðrum gögnum, sem sérstaklega
hefur verið safnað í Eyjafirði vegna
þessa verkefnis.
Miðað er við að verksmiðjan sé
búin fullkomnum þurr- og vot-
hreinsibúnaði. Lokaskýrsla um loft-
mengun mun liggja fyrir í apríllok
og ná til mengunar af völdum flú-
ors, tjöru og brennisteinstvíildis.
Samráðshópur sveitarstjórnar-
manna og hagsmunaaðila, þar á
meðal náttúruverndarmanna, í
Eyjafirði hefur fylgst með rann-
sóknunum skref fyrir skref.
Dregin eru einkum tvenn mörk
hugsanlegs mengunarsvæðis og
með því gefnar vísbendingar um
líkur á áhrifum álvers á umhverfið.
Utan ytri markanna eru svæði, sem
talin eru undir sennilegum hættu-
mörkum en þau ná frá Arnarnesvlk
inn að Skjaldarvík og þvert yfir
Eyjafjörð. Innan þeirra er um það
bil fímm þúsund hektara land upp
að 100 metra hæð yfir sjó og á því
er 41 býli með 18.500 ærgildi (530
kúm og 3.900 ám).
Innan innri markanna, sem ná
frá Hjalteyri inn að Dagverðareyri,
er 2.600 hektara land og fimmtán
býli með 7.500 ærgildum (123 kúm
og 1.340 ám). Á þessu svæði er flú-
ormengun áætluð yfir sennilegum
hættumörkum. Á beltinu milli ytri
og innri marka er ekkert sagt um
mengunarhættu annað en það, að
hún er óljós og breytileg en fer
minnkandi eftir því sem fjær dreg-
ur miðju.
Á sex hundruð hektara svæði I
grennd við Dysnes er sennilega ekki
ráðlegt aö stunda kvikfjárrækt. Það
svæði er fjórir km á lengd og 1,5 km
á breidd en þar eru sex býli með 29
kúm og 500 ám (1.470 ærgildum).
Áhrif flúors á sjó eða lífverur I
sjó eru engin, að því er segir í
skýrslunni.
Tekið er fram, að um legu fyrr-
greindra markalina er 10—50%
óvissa. Auk þess eru ýmsir aðrir
óvissuþættir, svo sem um áhrif flú-
ormengunar á gróður og grasbíta.
- Sv.P.
Það kom skýrt fram á fundin-
um að félagið er ekki stofnað til
höfuðs því félagskerfi bænda,
sem nú er við lýði, heldur hugsað
sem tæki í kjarabaráttu og til
hagsmunagæzlu. Þetta er fyrsta
sérgreinafélagið sem er stofnað I
hefðbundinni búgrein, en áður
hafa verið stofnuð slík félög
bænda í nýrri búgreinum.
Framsögu á fundinum höfðu
Bergur Pálsson, ómar Halldórs-
son og Sigurður Steinþórsson, en
meðal þeirra sem tóku til máls
var Hákon Sigurgrímsson, fram-
kvæmdastjóri Stéttarsambands
bænda. Sagðist hann fylgjandi
þessari félagsstofnun. Mikil
óánægja kom fram á fundinum
með hvernig málum kúabænda
er nú háttað og var t.d. kjarnfóð-
urskatturinn gagnrýndur.
INNLEN'T