Morgunblaðið - 14.03.1985, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGIJR 14. MARZ 1985
3
Góöur afli vertíðarbáta
Vestmannaeyjar:
Mokafli og
rígaþorskur
— stærstu boltam-
ir yflr 30 kfló
Vestmannaeyjum, 13. marz.
ÞÁ LOKSINS gaf á sjó í gær og
nctahátar gátu dregið net sín eftir
bræluna, var rótarafli hjá þeim öll-
um. Alls bárust á land hér í gær
611 tonn og var enginn netabátur
undir 30 tonnum. En þess ber að
gæta, að þetta var tveggja og
þriggja nátta fiskur og hráefnið því
ekki eins og best er á kosið, eins
og þegar netin eru dregin daglega.
Afli trollbáta var einnig góður,
mest rígaþorskur.
Suðurey VE var með mestan
afla í gær, 57 tonn. Ófeigur VE
var með 51 tonn, Þórunn
Sveinsdóttir VE 48 tonn, Gandí
VE 47 tonn og Valdimar Sveins-
son VE 45 tonn. Þetta voru afla-
hæstu bátarnir, en almennt var
fiskirí mjög gott. Uppistaðan í
aflanum var þorskur, en hjá
nokkrum var aflinn ufsabland-
aður.
Afli trollbáta hefur glæðzt
mikið og í gær lönduðu þeir
margir góðum afla, rígaþorski
þar sem stærstu boltarnir vógu
yfir 30 kíló og er því ekkert smá-
fiskadráp hér um slóðir. Helga
Jóh. VE landaði 40 tonnum í gær
og Björg VE var með 21 tonn af
rígaþorski eftir daginn. Það var
því líflegt við höfnina í gær-
kvöldi, hver báturinn af öðrum
kom drekkhlaðinn að bryggju og
karlarnir brosleitir í brúar-
gluggunum. Þá voru nokkrir
loðnubátar að tínast inn í gær-
kvöldi með fullfermi. Nú er
hrognataka i fullum gangi og
hefur gengið vel að kreista
hrognin úr loðnunni. Framund-
an er vaktavinna í frystihúsun-
um við hrognafrystinguna. Gott
hljóð var í körlunum í talstöð-
inni í dag og vona menn að ver-
tíðin sé að komast vel í gang eft-
ir undangengið óvissuástand.
hkj
Akranes:
Vertíöin fer
vel af stað
Akranem, 13. marz.
ÓHÆTT er að segja að vertíðin
hafi byrjað vel hjá bátum á Akra-
nesi eftir að verkfalli lauk. f gær
komu stóru bátarnir úr fyrsta róðri
sínum og var afli þeirra góður.
Skírnir landaði 35 tonnum eft-
ir nóttina og Sigurborg 25. Hjá
minni bátunum var afli frá 2 til
4 tonn og var það orðið nokkurra
nátta gamalt. Þriðji stóri bátur-
inn, Rauðsey, er að skipta yfir á
netaveiðar, en hún hefur stund-
að loðnuveiðar frá því í haust.
Enn eru tveir bátar á loðnuveið-
um, Bjarni Ólafsson og Víking-
ur.
Togararnir Haraldur Böðvars-
son og Krossvík hafa nú hafið
veiðar að nýju, en Höfðavík ligg-
ur enn við bryggju vegna bilun-
ar. Bilanir hafa verið tíðar hjá
henni það sem af er þessu ári.
Sömu söguna er að segja af
Skipaskaga, sem enn er í slipp
vegna vélarskipta. — J.G.
Þorlákshöfn:
466 tonnum
landað á
þriðjudag
„ÞAÐ var stór dagur hér í Þor-
lákshöfn í gær, en þá komu alls
466 tonn á land af 31 bát. Þetta er
eitthvað daufara í dag, en þó
þokkalegt," sagði Gestur Ámund-
arson, vigtarmaður í Þorlákshöfn, í
samtali við blm. Morgunblaðsins í
gær.
Gestur sagði, að ekki væri
fyllilega að marka þennan mikla
afla vegna þess, að bátarnir
hefðu hvorki komizt út á sunnu-
dag né mánudag til að draga net-
in. Fiskurinn hefði því verið orð-
inn tveggja og þriggja nátta. Því
væri erfitt að spá nokkru um
framvindu vertíðarinnar.
Aflahæstu bátarnir í Þor-
lákshöfn á þriðjudag voru Giss-
ur með 46 tonn, Höfrungur III og
Snætindur með 45 tonn og Jón á
Hofi með 43 tonn. Mikill ufsi var
í afla bátanna á þriðjudag.
Ólafsvík:
Lag á róðra
eftir rysjur
Ólafsrík, 13. mars.
NÚ ER að komast lag á róðra að
nýju eftir rysjur síðustu daga. Fisk-
ur hefur enn ekki gefið sig til að
ráði en sjómenn segja mikinn fisk
á miðunum. Loðna er um allt og
fiskurinn er á ferð upp um sjó eftir
henni. Ef að vanda lætur skellur
hrotan á um eða eftir 15. þessa
mánaðar.
Dragnótabátar hafa fengið
ágæta róðra inn í milli. Bervík
SH landaði til dæmis 24 tonnum
í gærkvöld, eins dags afla. Mesti
afli í net í gær var hinsvegar
fjórtán tonn.
Sjór gekk mjög hátt að landi
hér sem annars staðar í rosan-
um. Mikið hafrót var við ver-
búðabyggingarnar en ekki varð
teljandi tjón á húsunum. í svo-
kallaðri Bót er sjór hinsvegar
mjög að vinna sig á land og verð-
ur að bregða hart við til að fyrir-
byggja að stórtjón verði á
mannvirkjum á næstu misser-
um.
— Helgi
,.Með
pauinann
í liöndiuium
Ætlir þú aö ávaxta fé þitt í lengri eða skemmri tíma
er þér óhætt aö setjast niður, loka eyrunum fyrir öllum gyllibcðöum og bera saman kjör og öryggi
á sparifjármarkaönum. Niöurstaöan veröur áreiöanlega sú aö þú velur
snariskírteini ríkissjóös aö því loknu og stendur upp með pálmann í höndunum.
Verötryggö spariskírteini
Verötryggö spariskirteini
Verötryggö spariskírteini
Gengistryggð spariskírteini
meö 7% vöxtum. Innleysanleg meö 6.71% vöxtum sem greiðasl til 18 mánaöa meö vöxtum sem nieð 9% vöxtum til 5 ára.
eftir 3 ár.
misserislega. Innlevsanleg
eftir 5 ár.
eru meöaltal vaxta
viöskiptabankanna á 6 mán.
verötr. reikn.
+ 50% VAXTAAUKA.
ENGIR LEYNDIR VARNAGLAR - ENGIR LAUSIR ENDAR
HREINIR QG KLÁRIRSKILMÁLAR MEÐ MEIRI ÁVÖXTUN OG FULLKOMNU ÖRYGGI.
Sölustaðir eru:
Sedlabanki íslands. viðskiptabankamir. sparisjóðir, nokkrir verðbréfasalar og pósthús um land allt.
RIKISSJOÐUR ISLANDS