Morgunblaðið - 14.03.1985, Side 19

Morgunblaðið - 14.03.1985, Side 19
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 14. MARZ 1985 19 Hjálpræðisherinn safnar vegna jarð- skjálftanna í Chile MÖRGUNBLAÐINU hefur borLst cftirfarandi frá Hjálpræöishernum: „í gegnum fjölmiðla heyrum viö og sjáum að eyðilegging af völdum jarðskjálftanna hefur orðið einna mest í borginni Santiago. Hjálpræðisherinn í Chile veitir bágstöddum alla þá hjálp, sem honum er unnt, þrátt fyrir alvarl- egt tjón, sem meðlimir sjálfir hafa orðið fyrir. Það má nefna að fjórar stofnanir Hjálpræðishersins eru jafnaðar við jörðu, en þar er um að ræða elliheimili, dagheimili, heimili fyrir drykkjusjúka og vistheimili. Ennfremur eru höfuðstöðvar Hjálpræðishersins í Santiago stórskemmdar, en þrátt fyir þetta er reynt að veita hjálp á marjvís- legan hátt. Öll hjálp víðsvegar að úr heiminum er kærkomin og Hjálpræðisherinn á fslandi biður íslensku þjóðina um hjálp til styrktar þeim bágstöddu í Chile. Gjafir merktar „CHILE“ óskast lagðar inn á póstgíróreikn. no. 17900-0, eða í söfnunarbauk sem verður staðsettur við Pósthúsið í Austurstræti, föstudaginn 15. mars kl. 10—18. Flokkarnir á Akureyri og ísa- firði munu einnig leggja sitt af mörkum við söfnunina og gjöfum er einnig veitt móttaka þar. Með fyrirfram þökk fyrir veitta hjálp. f.h. Hjálpræðishersins, Reykjavík, Anne Marie Reinholdtsen. Framsóknarfélag Reykjavíkur: Mótmælir stefnu ríkis- stjórnar í vaxtamálum Á STJÓRNARFUNDI í Framsókn- arfélagi Reykjavíkur, sem haldinn var 13. marz, var eftirfarandi álykt- un samþykkt samhljóða: „Stjórn Framsóknarfélags Reykjavíkur telur sérstaka ástæðu til að mótmæla stefnu Seðlabankans og ríkisstjórnarinn- ar, sem fylgt hefur verið í vaxta- málum. Sú stefna hefur leitt til þess, að miklir greiðsluerfiðleikar hafa skapast jafnt hjá fyrirtækj- um sem einstaklingum, ekki sízt húsbyggjendum, og blasir víða gjaldþrot við. Telur stjórn Framsóknarfélags Reykjavíkur með öllu óverjandi, að lán séu verðtryggð meðan laun eru óverðtryggð. Verði núverandi vaxtastefnu fylgt óbreyttri, er líklegt, að hún leiði til gengisfellingar, sem bitn- ar ekki sízt á sparifjáreigendum, sem upphaflega átti að vernda með núverandi vaxtastefnu. Þá lýsir stjórn Framsóknarfé- lags Reykjavíkur yfir furðu sinni á því, að núverandi vaxtastefna hefur verið í framkvæmd, þrátt fyrir andstöðu meirihluta þing- flokks Framsóknarflokksins." GEíSIBS ÁN/ALLT MIKIÐ ÚRVAL AF FERÐATÖSKUM fltargiiiiMðMfc Góóan daginn! RÍÓ er alveg ekta... RlÓkaffipakkinn er harður og lofttæmdur því þannig helst RÍÓkaffið ferskt og bragðríkt alla leið í bollann þinn. Rjúkandi RÍÓ -hörkugott kaffi AUK hf 93 3

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.