Morgunblaðið - 14.03.1985, Qupperneq 22
22
MORGUNBLAÐID, FIMMTUDAGUR 14. MARZ 1985
Fréttir úr BORGARSTJORN
Ibúðir fyrir hreyfihamlaða;
Ákvæöum reglugerð-
ar verði framfylgt
at-s,
iMmm *■*'
Töluverðar umræður urðu
um það, hvernig staðið er við
ákvæði byggingarreglugerðar
frá 1979 um hönnun húsa með
tilliti til þarfa hreyfihamlaðra á
fundi borgarstjórnar á fimmtu-
dag í framhaldi af fyrirspurn
Sigurðar E. Guðmundssonar,
borgarfulltrúa Alþýðuflokks-
ins, varðandi embætti bygg-
ingarfulltrúans í Reykjavík,
stjóm verkamannabústaða og
fleiri aðila. Á fundinum var
samþykkt samhljóða að borgar-
stjórn legði áherslu á það við
byggingarnefnd og embætti
byggingarfulltrúa að þeim
ákvæöum byggingarreglugerð-
ar, sem fjalla um íbúðir er
henta þörfum hreyfihamlaðra,
verði framfylgt.
í byggingarreglugerðinni segir
m.a. að í fjölbýlishúsum skuli, þar
sem aðstæður leyfa, a.m.k. ein íbúð
á jarðhæð hönnuð þannig, að hún
henti þörfum hreyfihamlaðra. Þá
segir að í hverri íbúð skuli fylgja
a.m.k. eitt herbergi með vatnssal-
erni og handlaug, sem sé ekki minna
en 4 m' að gólfflatarmáli og skal það
þannig úr garði gert, að það henti
einnig hreyfihömluðum. Ennfremur
að í ibúðum á jarðhæð, sem ætlað er
að fullnægja kröfum fyrir hreyfi-
hamlaða... skulu salerni og bað-
herbergi hönnuð í samræmi við
ákveðnar reglur. Aðkoma að þess
konar íbúðum og innrétting skuli
vera hönnuð þannig, að þær henti
fólki í hjólastól.
Spurði Sigurður E. Guðmundsson
um það, hvort embætti byggingar-
fulltrúans í Reykjavík hefði haldið
uppi fullnægjandi eftirliti með því
að þessi ákvæði reglugerðarinnar
væru haldin. Ennfremur hvort
stjórn verkamannabústaða og aðrir
félagslegir aðilar fullnægðu þeim og
hvað margar íbúðir hefðu verið
byggðar af stjórn verkamannabú-
staða frá gildistökutíma reglugerð-
arinnar, þar sem tillit væri tekið til
reglnanna. Ef þessum reglum hefði
ekki verið fylgt með fullnægjandi
hætti, hvort borgarstjóri hygðist
tryggja að það verði gert eftirleiðis.
Hilmar Guðlaugsson, formaður
bygginganefndar, sagði, að þar sem
íbúðir væru á jarðhæð væri reynt að
halda möguleikanum opnum svo
Stofnun fólkvangs í
Eliiðaárdal frestað
STOFNIIN fólkvangs í Elliöaárdal hef-
ur verið frestað að svo stöddu eða þar til
forsendur liggja fyrir um stofnun hans.
Var frestunin samþykkt á borgarstjórn-
arfundi á Hmmtudag með atkveðum
borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins
gegn atkvæðum minnihlutans. Þá var
samþykkt að treysta stöðu dalsins, sem
eins aðahítivistarsvaeðis borgarbúa með
öllum ráðum, svo þar megi margbreyti-
legt og öflugt útilif þróast.
„Moldin rýkur í Iogninu“ er orðtak,
sem manni kemur í hug, þegar horft
er til viðbragða minnihlutans vegna
frestunar fólkvangsins í Elliðaárdal,"
sagði Hulda Valtýsdóttir, formaður
umhverfismálaráðs, við umræður um
málið.
„Meirihluti umhverfismálaráðs
hefur samþykkt að fresta stofnun
fólkvangsins með tilvísun í umsögn
borgarverkfræðings um þær athuga-
semdir, sem borist hafa vegna auglýs-
ingar um fólkvang í dalnum. Þá hefur
ráðið lagt til að skipuð verði Elliða-
árdalsnefnd, sem á að fjalla um nýt-
ingu dalsins til útivistar. Verður
nefndin ráðinu, borgarstjórn og borg-
arráði til ráðuneytis um málefni, sem
snerta nýtingu dalsins, og á að hafa
samráð við hagsmuna- og fram-
kvæmdaaðila I dalnum í þeim til-
gangi, að umsvif þessara aðila sam-
ræmist sem best útivist á svæðinu.
Meðal athugasemda sem bárust
eftir auglýsinguna var krafa eigenda
jaröarinnar Vatnsenda um kaup á
þeim landssvæðum sem fólkvangur-
inn nær til og markast af Elliða-
vatnsstíflu og farvegi Bugðu frá
Oddgerðisnesi að ármótum og farvegi
Dimmu frá ármótum að stíflunni.
Þessi hluti Vatnsenda er óumdeilt f
lögsögu Kópavogs. Hinn hluti lands
Vatnsenda sem lendir innan hinna
auglýstu fólkvangsmarka og er efst í
Árbæjarhólma eða Vatnsendahólma
er samkvæmt sumum heimildum
upprunalega í landi Árbæjar og þá
innan lögsögu Reykjavíkur þótt hann
sé óumdeilanlega f eigu Vatnsenda-
bóndans. Þessi landamerkjamál eru
nú í athugun að beiðni borgarstjóra.
Eðlilegt er að fá úr þessum málum
skorið áður en til landakaupa kemur
því eðlilegt virðist, að hvort sveitarfé-
lagið um sig kaupi þau lönd, sem inn-
an lögsögu hvors um sig verða að
falla undir fólkvanginn.
Lönd Vatnsendabóndans sem hér
um ræðir eru rúmlega 30 ha að stærð
og má búast við að kaup þeirra geti
numið verulegum fjárhæðum. Þvf er
nauðsynlegt að slá stofnun fólkvangs-
ins á frest. Eg legg áherslu á að hér er
talað um að fresta en ekki að falla
frá,“ sagði Hulda m.a.
„Málið verður að skoða frá fjár-
hagslegu, lögfræðilegu og landfræði-
legu sjónarmiði. Við hljótum að bera
hag borgarbúa fyrir brjósti f öllum
tilvikum og þvf verið sammála um að
hagkvæmast sé að doka við með
stofnun fólkvangsins og lfta fyrst til
allra átta. Auðvitað verður um leið að
tryggja að á engan hátt verði gengið á
þetta dýrmæta útivistarsvæði," sagði
hún ennfremur.
Álfheiður Ingadóttir, borgarfull-
trúi Alþýðubandalagsins, og Kristján
Benediktsson, borgarfulltrúi Fram-
sóknarflokksins, sögðu að engin rök
væru fyrir þessari frestun. Þar sem
engin tímatakmörk fengjust sett á
frestunina væri ljóst að með sam-
þykktinni væri f raun verið að hverfa
frá fyrri áformum um friðlýsingu
dalsins um langa framtfð. Gerðu
borgarfulltrúar Alþýðubandalagsins
tillögu um að 30 ha spildan í landi
Vatnsenda yrði undanskilin fólkvang-
inum á meðan úr þvf væri skoriö hver
lögsaga sveitarfélaganna væri. Guð-
rún Ólafsdóttir, borgarfulltrúi
Kvennaframboðsins, kvað málinu
stefnt í hættu með þessari frestun því
óljóst væri hvaða kostnað stofnun
fólkvangsins mundi hafa f för með
sér. óeðlilegt væri af borginni að taka
afstöðu án þess að gefa bæjarstjórn
Kópavogs tækifæri til að láta skoðun
slna i ljós. Eðlilegast væri að setjast
niður með fulltrúum frá bæjarstjórn
Kópavogs og náttúruverndarráðs og
ná samkomulagi um þetta mál.
Jtt*. J f
SÁÁ yfirtekur áfengisvarna-
deild Heilsuyerndarstöðvarinnar
Á fundi borgarstjórnar á fimmtudag
var samþykkt með atkvæðum borgar-
fulltrúa sjálfstæðismanna að ganga til
samninga við SÁÁ um yfirtöku þeirra á
starfsemi áfengisvarnardeildar Heilsu-
verndarstöðvar Reykjavfkur. Borgarfull-
trúar minnihlutans greiddu atkvæði
gegn þessari ákvörðun.
I drögum aö samningi heilbrigðis-
ráðs og SÁÁ sem samþykktur var f
heilbrigðisráði f febrúar segir m.a. að
borgin feli SÁÁ að taka að sér starf-
semi áfengisvarnardeildarinnar.
Starfsemin er fólgin f leiðbeiningu og
ráðgjöf við aðstandendur áfengis-
sjúklinga og falli undir starfsemi
heilsuverndarstöðva samkvæmt
ákvæðum laga um heilsuvernd. Skal
fræðslu- og leiðbeiningarstöð SÁÁ
rækja þá starfsemi scm áfengisvarn-
ardeildin sinnir nú og leitast við að
þróa nýjungar á sviði fjölskyldumeð-
ferðar vegna ofneyslu vfmuefna. Sér-
stök stjórnarnefnd verður skipuð
þremur fulltrúum SÁÁ, einum full-
trúa frá heilbrigðisráði Reykjavík-
urborgar og einum fulltrúa starfs-
manna. Ber stjórnarnefndinni að
ráða m.a. til starfa lækni og dag-
skrárstjóra, sem séu ábyrgir um fag-
legt starf gagnvart borgarlækni og
nefndinni. Ber þeim að veita reglu-
bundnar upplýsingar um starfsemina
auk heildaryfirlits í árslok.
Þá er kveðið á um það að starfs-
menn áfengisvarnardeildar njóti for-
gangs til starfa hjá SÁÁ við gildis-
töku samningsins, með ekki lakari
launakjörum en þeir njóta nú hjá
borginni. Einnig skulu starfsmenn-
irnir njóta áunninna veikinda- og
orlofsréttinda. Er samningurinn upp-
segjanlegur af beggja hálfu með
þriggja mánaða fyrirvara og ber að
endurskoða hann að ári liðnu. Fyrir
þessa starfsemi SÁÁ greiðir borg-
arsjóður samsvarandi upphæð og
áætlað var að verja til deildarinnar í
ár.
„Með þessari ráðstöfun fæst betri
nýting fjármuna, betra skipulag og
samþættara starf að þessum málum,“
sagði Páll Gislason, borgarfulltrúi
Sjálfstæðisflokksins, m.a. við umræð-
ur í borgarstjórn. „SÁÁ hefur sýnt
það í verki á undanförnum árum að
vera þess traust verð. Með þessu
myndu skapast mun betri skilyrði til
þróunar m.a. á fjölskyldumeðferð
vegna ofneyslu vímuefna hvað nám-
skeið og hvers konar ráðgjöf varðar.
Eftirlit og upplýsingastreymi til heil-
brigöisráðs um starfsemina er tryggt
með fulltrúanum í stjórnarnefndinni
— jafnvel betur en verið hefur.“
Sagði Páll, að nauðsynlegt væri að
veita markvissa fræðslu i skólum um
áfengi og aðra vímugjafa og minnti á
fræðslumyndina, sem ákveðið hefur
verið að vinna á vegum borgarinnar
til fræðslu í grunnskólunum. Óskað
var álits heilbrigðisráðuneytisins á
þessari ráðstöfun og í svari þess sagði
að borgin gæti tekið upp eins konar
samvinnu um rekstur deildarinnar
við áhugasamtök eða einkaaðila.
Sagði Páll að víða væru þess dæmi að
ýmsir þættir heilbrigðisþjónustunnar
væru boðnir út með líkum hætti og
þessi ráðstöfun fæli I sér og nefndi
hann heimilislækna sem dæmi.
Borgarfulltrúar minnihlutans mót-
mæltu þvf að borgin skyldi kasta
áfengisvarnardeildinni frá sér, eins
og gert væri með samningi þessum.
Engin rök væru fyrir því að þessi
samningur væri tímabær eða stuðlaði
að betri þjónustu á sviði áfengis-