Morgunblaðið - 14.03.1985, Side 27
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 14. MARZ 1985
27
er mikilvægt að þeir standi saman
að baráttunni fyrir hagsmunum
sínum. Umbótasinnar hafa lagt
fram tillögu um skipulagsbreyt-
ingar á skrifstofu Stúdentaráðs til
að tryggja að hún, sem á að vera
miðpunktur hagsmunabaráttunn-
ar, hafi forgang um að efla tengsl
Stúdentaráðs og deildarfélag-
anna.“
Kjartan Jónsson,
Félagi manngildissinn-
aðra stúdenta:
Rjúfum
einangrun
Háskólans
FÉLAG manngildissinnaðra stúd-
enta var stofnað fyrir tæpum tveim-
ur vikum. Efsti maður á lista þeirra
er Kjartan iónsson. Hann var spurð-
ur hver væru helstu stefnumál þessa
nýja félags.
„Félag manngildissinnaðra
stúdenta setur manninn númer
eitt. Við lítum ekki á skólann sem
verksmiðju til að framleiða „app-
aröt“ fyrir kerfið. Heldur á hann
að sinna þörfum og áhuga nem-
endanna.
Kjartan Jónsson
Helsta stefnumál okkar er að
rjúfa þá einangrun sem Háskóli
íslands virðist vera kominn í. Það
er algengt að úti í þjóðfélaginu sé
litið á starfsemi hans sem sóun á
almannafé. Ég tel að það stafi af
því að fólk veit ekki hvað er að
gerast innan veggja skólans.
Við teljum nauðsynlegt að
deildirnar geri út hópa í fyrirtæki
á landinu til þess að kynna starf-
semi skólans. Þetta er gott fyrir
fólkið í atvinnulífinu og einnig
stúdentana.
Einnig þarf að auka þjónustu
við almenning. Það hefur verið
gert t.d. í Orator, félagi laganema,
sem hefur veitt almenningi ráð-
gjöf.
Félag manngildissinnaðra stúd-
enta telur að Háskólinn þurfi að
vera sjálfstæðari og að ekki séu
höfð pólitísk afskipti af stöðuskip-
unum. Slikt á að vera alfarið í
höndum Háskólans.
Við stefnum að því að vinna
öðruvísi en gert hefur verið. í dag
er Stúdentaráð mjög einangrað.
Nemendur þurfa að fá að ákveða
sjálfir hverjir eru hagsmunir
þeirra.
Ég tel það vera lélegan vitnis-
burð að stúdentar hafa gefist upp
á rekstri matsölu í Félagsstofnun
stúdenta. Að okkar mati ættu
stúdentar helst að sjá um allan
rekstur hennar sjálfir.
Að lokum vil ég minnast á það
að nemendur njóta ekki allir sömu
aðstöðu í lánamálum. Við berj-
umst fyrir því að fyrsta árs nemar
fái sömu réttindi og aðrir í þessum
málum,“ sagði Kjartan Jónsson.
Sendum ekki
skatteftirlitinu
svona boðskort
■SPyT
V'
3 .
* jF' V Ja*,. .. -w "*aL-~y ?:
WBMm&r&Sz
—-v..
/ Þegar skatteftirlitsmenn fara yfir framtalsgögn
^ / fyrirtækja með aðstoð nýjustu tölvutækni fá þeir
/ stundum upp í hendurnar það sem þeir kalla „Boðskort“
^éLát / - þ e. gloppur í framtali eða bókhaldi sem þrautþjálfaðir
'W / eftirlitsmenn sjá að eru tilraunir til skattsvika. í framhaldi af
þessuferfram nákvæm rannsókn á öllum fjárreiðum
fyrirtækisins.
Stöndum saman um heiðarleg framtöl
Öllum aðilum, bæði framtalsskyldum og
öðrum, er skylt að láta skattyfirvöldum í té
ókeypis, og í því formi sem óskað er, allar
nauðsynlegar upplýsingar og gögn er þau
beiðast og unnt er að láta þeim í té, t.d.
bókhald og bókhaldsgögn, svo og önnur
gögn er varða reksturinn, þar með talin bréf
og samningar.
FJÁRMÁLARÁÐUNEYTIÐ
Gódan daginn!