Morgunblaðið - 14.03.1985, Síða 41

Morgunblaðið - 14.03.1985, Síða 41
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 14. MARZ 1985 41 staeður efnalítils fólks og ævikjör nákominna forfeðra og formæðra okkar fyrir 80—100 árum. Þá koma mér sérstaklega í hug örlög hinnar húnvetnsku ömmu Ingvars og langómmu minnar, Guðrúnar Bjargar Sveinsdóttur, og þykir miður að vera ekki fær um að segja frá kjörum hennar, svo að vel fari. En þar mun að finna efni í hetjusögu úr hversdagslifinu. Eins er það fremur undarlegt, að ekkert skuli hermt á prenti af þeim sérstæða manni Pálma Pálmasyni, syni hennar. Hann á það sannarlega inni hjá fróðum mönnum, að þeir setji saman þátt af honum eins og gert hefur verið um ýmsa ómerkari og leiðinlegri persónur en hann, enda var hann hvorugt. Pálmi var eftirminnilegur mað- ur, þótti að vísu bæði fjöllyndur og galsafenginn og varla smáborg- aralegur. Harðlyndur gat. hann verið. En mér er næst að halda að hann hafi verið hin mesta sveit- arprýði á Norðfirði um daga sína, þessi húnvetnski dalamaður, sem m.a. var tungumálagarpur af guðs náð og gat kaupslagað við franska skútukarla á pompólafrönsku, sem hann talaði fyrirhafnarlaust. Enda skorti hann aldrei rauðvín né koníak, ef á þurfti að halda. Gamall Norðfirðingur hefur rifjað það upp við mig nýlega, að eitt sinn þegar hann var að vaka yfir túni snemma sumars hafi hann séð Pálma koma róandi til lands á kænu sinni með rauðvínstunnu í skut. Það var afli hans þá nótt. Pálmi barst austur á land á þann hátt, að hann kynntist konuefni sínu, Ólöfu Stefánsdóttur frá Ormsstöðum, þegar hún var við nám í Kvennaskólanum á Ytri-Ey og fylgdi henni austur. t kjölfar hans nokkrum árum síðar kom svo bróðir hans, Ingvar, og gerði garð- inn frægan á Nes-Ekru og á fjölda afkomenda þar eystra og víðar um laiid, ef ekki öllum heimshornum. Hafi ekki verið pláss fyrir þá Pálmasyni í heimahögum nyrðra á sinni tíð, þá skipuðu þeir rúm sitt vel sem landnámsmenn, hvort sem var á Norðfirði, sem átti við um þá Pálma og Ingvar, — eða í Kanada, þar sem Erlendur og Sveinn reyndust dugnaðarmenn og for- sjálir og eiga merka afkomendur í Kanada og Bandaríkjunum. Sumir þessara afkomenda halda tryggð við frændfólk sitt á íslandi. Ingvar Pálmason óx upp með foreldrum sínum og fimm systkin- um á Norðfirði. Bræður hans voru Erlendur og Bjartmar, sem báðir voru skipstjórnarmenn, og Ágúst Alfons, verslunarmaður á Norð- firði og síðar fulltrúi í stjórnar- ráðinu, en systur hans voru Guð- rún, sem gift var Karli Svendsen, norskum vélsmið á Norðfirði, og Guðlaug, sem var allra elst systk- inanna, en dó rúmlega tvítug. Hafði hún menntast og var heim- iliskennari á Blönduósi, er hún lést, en var ógift. Af þessum systk- inum er Ágúst nú einn á lífi. Auk þess átti Ingvar tvö hálfsystkin, Soffíu Pálma, kaupkonu í Reykja- vík, og Helga Pálmason, sjómann á Norðfirði, sem dó ungur. Ekki hafði Ingvar slitið barns- skónum, þegar hann fór að róa á útvegi föður síns, og tæpra 17 ára var hann orðinn formaður á ára- báti. Hann tók hið minna fiski- mannapróf við Stýrimannaskól- ann í Reykjavík 1919 og var áður reyndar og eftir það bátaformaður og útgerðarmaður á Norðfirði til 1938, er hann fluttist til Reykja- víkur og settist þar að. Eftir að hann fluttist til Reykjavíkur tekur hann að stunda síldveiðar og skip- stjórn á síldveiðiskipum meira en áður kann að hafa verið, en hann var nótabassi á togaranum Brimi, sem gerður var út frá Norðfirði á árunum fyrir strið og fiskilóðs á því skipi á togveiðum. Á Norð- fjarðarárum sínum hafði Ingvar verið duglegur og aflasæll formað- ur, og var honum treyst til þess manna helst að stjórna fiskveið- um á bæjartogaranum, hvort sem var á togveiðum eða síldveiðum með herpinót, enda reyndist hann þess trausts verður. Frá því um 1940 og næstu 20 ár að kalla var Ingvar Pálmason landskunnur síldveiðiskipstjóri og forgöngu- maður á því sviði, ekki einungis að hann væri í hópi mestu afla- manna, heldur var hann framsýnn og framtakssamur um allar nýj- ungar og vildi að aðrir tileinkuðu sér þær. Það var Ingvari nokkur fjötur um fót, þegar á leið, að hann hafði ekki skólamenntun til að öðlast full skipstjórnarréttindi. Úr því bætti hann þótt hann væri þá kominn á miðjan aldur og lauk meiraprófi frá Stýrimanna- skólanum árið 1946. Á árunum 1955—1961 starfaði hann á vegum Fiskifélags íslands að síldarleit og veiðarfæra- og tækjatilraunum, og er það merkur kafli á starfsferli hans í þágu ís- lenskra sjávarútvegsmála. Mikil- vægur þáttur hans í að kynna og útbreiða notkun „kraftblakkar" við síldveiðar er viðurkenndur af þeim, sem gerst mega vita. Árið 1%2 verða mikil umskipti á störfum Ingvars Pálmasonar. Hann er þá hálfsjötugur að aldri. Þá stofnar hann innflutningsfyr- irtæki, gerist stórkaupmaður og sérhæfir sig í innflutningi véla og veiðarfæra. Vafalaust hafa synir hans verið með í ráðum um þá starfsemi frá upphafi. Fyrirtækið I. Pálmason hf. hefur dafnað vel á þeim grunni, sem upphaflega var lagður, og fært út kvíarnar. Er Sigurður, sonur Ingvars, þar framkvæmdastjóri. Ingvar Pálmason kunni vel að sjá eiginhag sínum borgið, en hann var félagslyndur, sem m.a. kom fram í því að hann rak útgerð oftast í félagi við aðra, þegar hann á annað borð var beint við útgerð- arrekstur riðinn, sem oft var. Ungur eignaðist hann lítinn vél- bát og rak hann ejnn nema ef vera skyldi með föður sínum að hluta. Hét bátur þessi Hafalda. Segir sagan, að Símon bóndi í Hellisfirði hafi lánaö honum fyrir bátnum. En þegar nafn Símonar í Hellis- firði er nefnt kemur manni í hug einn Húnvetningurinn enn, sem settist að í Norðfjarðarbyggðum og ástæða væri til að vita svolítið meira um, því að nokkuð var í hann spunnið. Þá átti Ingvar hlut að útgerð stærri og meiri Haföldu löngu síðar, eða upp úr 1930, en við þá útgerð voru margir riðnir með honum, svo sem mágar hans á Framnesi, Óskar og Hinrik, svili hans, Stefán Höskuldsson, Jón og Karl Karlssynir og e.t.v. fleiri. Þá stóð Ingvar að útgerð „Svíþjóðar- báts“, sem Nanna hét og gerður var út frá Reykjavík. Áttu ýmsir einstaklingar hlut í þeim bát með honum. Ingvar tók þátt í félagsstörfum stéttarbræðra sinna í Reykjavík og sat þing Farmanna- og fiski- mannasambands Islands. Það man ég einnig að prýði þótti að nafni hans á framboðslistum Framsóknarflokksins í Reykjavík. Fyrir margháttuð störf sín var Ingvar sæmdur riddarakrossi hinnar íslensku fálkaorðu og hlaut viðurkenningarbréf breskra stjórnvalda fyrir hlut sinn að björgun enskrar skipshafnar úr sjávarháska fyrir austan. Ekki fer milli mála, að Ingvar var farsæll skipstjórnarmaður og mikill afla- maður. En hann var einnig hjúa- sæll og mikils metinn af hásetum sínum. Sóttust menn eftir að vera með Ingvari á sjó, og hafði hann sömu menn oft ár eftir ár. Hann kunni vel að stilla skap sitt og vann allt með lagni, ef þess var kostur. Skorti hann þó hvorki skap né afl. Hann var fríður mað- ur og í öllu vel á sig kominn. Eins og áður segir var kona Ingvars Friðrikka Sigurðardóttir fædd 15. september 1897, dóttir hjónanna Sólveigar Gísladóttur og Sigurðar Þorsteinssonar á Fram- nesi. Framnessystkinin voru mörg og hafa flest átt heima alla ævi á Norðfirði. Er frá þeim kominn mikill ættbogi. Ingvar og Frið- rikka þekktust frá barnæsku, voru fermingarsystkin og fylgdust að alla ævi. Það gegnir tæpast furðu að forlögin skyldu sjá til þess að þau hjón féllu frá samtímis að kalla. Friðrikka lést í janúar sl. og var hennar þá minnst í dagblöð- um. Ingvar og Friðrikka eignuðust 4 börn, misstdu dóttur, Auði Hall- dóru, á barnsaldri, en eftir lifa: Auður, húsfreyja í Reykjavík, Pálmi, fiskiðnfræðingur, búsettur í Seattle í Bandaríkjunum, og Sig- urður, framkvæmdastjóri í Reykjavík. Fósturdóttir þeirra er Björg Sigurðardóttur, systurdóttir Friðrikku, húsfreyja á Norðfirði. Ingvar Pálmason dó að vísu saddur lífdaga, en hann átti að baki langa og starfsama ævi. Ekki verður það áætlað nákvæmlega né rökstutt á annan hátt, hversu mikið nútímakynslóðin á að þakka kynslóð Ingvars Pálmasonar, en margir munu trúa því með mér að án hennar verka væri íslenska þjóðfélagið í mörgu annað en það er og íslendingar varla sú þjóð sem þeir vilja vera. Ingvar lagði að fullu fram sinn skerf í fram- farasókn íslendinga um daga sína. Fyrir það eru honum færðar þakk- ir og fyrir það heiðrum við minn- ingu hans. Ingvar Gíslason Stórbætt aðstaða á Sól- heimum í Grímsnesi SeiroNHÍ, 10. mara. ALBERT Guðmundsson, fjármála- ráðherra, tók í dag fyrstu skóflu- stunguna að nýju vistmannahúsi á Sólheimum í Grímsnesi. Bygging sú, sem nú er hafist handa við, er vist- cining sem leysa mun vanda 8 vist- manna, auk 5—8 starfsmanna. Húsið er einingahús, smíðað af fyrirtækinu Samtaki hf. á Sel- fossi. Arkitekt er Samúel Smári Hreggviðsson, Selfossi. Grunnflöt- ur hússins er 300 m2, en undir því er kjallari með sama gólffleti. Húsiö mun standa í brekku og verður gengið inn í kjallarann af jafnsléttu að neðanverðu. Á efri hæð hússins verða 8 rúmgóð her- bergi fyrir vistmenn auk lítillar starfsmannaíbúðar og aðstöðu fyrir afleysingastarfsfólk. Þar verður stórt eldhús og borðstofa auk stofu og garðskála, sem nýta má í tengslum við borðstofu. Á neðri hæð hússins verða 4 rúm- góðar íbúðir fyrir starfsfólk. Húsið verður að mestu byggt fyrir fé úr Framkvæmdasjóði fatl- aðra, en byggingunni hafa þegar borist stórmannlegar gjafir frá einkaaðilum. Aðili sem óskar nafnleyndar hefur gefið kr. 300 þúsund til byggingarinnar og For- Kyikmyndasýningar: Byggingarlist og endurbætur gamalla borgarhluta í ÁSMUNDARSAL við Freyjugötu stendur þessa dagana yfir sýning sem ber nafnið Architecture and Renewal in USA. Sýningin er opin frá 2.—14. mars virka daga frá kl. 10.00—21.00, laugardaga og sunnu- daga frá kl. 14.00—21.00. Sýningin er unnin í samvinnu við Menningarstofnun Bandaríkj- anna og lýkur henni á fimmtudag- inn kemur með kvikmynda- og myndbandasýningum í Ásmund- arsal kl. 21.00-22.30. Sýndar verða fjórar myndir um endurbætur á gömlum borgarhlut- um í Bandaríkjunum og sagt frá hliðstæðum „Torfusamtökum“ þar. Allir eru velkomnir á þessa myndasýningu á meðan húsrúm leyfir. Myndirnar verða aðeins sýndar þetta eina skipti. eldra- og vinafélag Sólheima hef- ur greitt fyrir framkvæmdum með fjárframlagi. Þá hefur Hjálpar- stofnun kirkjunnar tekið að sér að standa straum af kostnaði við uppgröft og malarfyllingu í grunn hússins. Verkfræðistofa Sigurðar Thor- oddsen hf. vann útboðsgögn fyrir gröft og fyllingu undir sökkul, en samningur um það verk hefur ver- ið gerður við Ræktunarsambandið „Ketilbjörn“. Framkvæmdir við sjálfa bygginguna munu hefjast í maí og er áætlað að unnt verði að taka visteininguna i notkun í ágúst á þessu ári. Innrétting kjall- arans mun bíða til næsta vetrar. Sólheimar í Grímsnesi er sjálfs- eignarstofnun sem hefur með höndum meðferð og umönnun vangefinna einstaklinga. Sesselja Sigmundsdóttir hóf meðferðar- starf á Sólheimum árið 1930, en Barnaheimilisnefnd Þjóðkirkj- unnar keypti jörðina til slíkrar starfsemi. Sólheimar er því elsta starfandi heimilið fyrir vangefna hér á landi. Rekstur heimilisins og uppbygging hefur alltaf notið mikils stuðnings einkaaðila. Mest hefur þar munað um stuðning Lionsklúbbsins Ægis í Reykjavík, sem hefur haft Sólheima sem sér- stakt líknarverkefni frá stofnun klúbbsins. Albert Guðmundsson, fjármálaráðherra, er stofnandi Lionsklúbbsins Ægis og í stuttu ávarpi við athöfnina sagðist hann vonast til að heill og hamingja fylgdi starfseminni á Sólheimum hér eftir sem hingað til. Hilmar INNLENT Barnabókaverðlaun Félags norrænna skólasafnvarða FÉLAG norrænna skólasafnvarða (Nordisk skolebibliotekarforening, NSF) er félag skolasafnvarða á Norðurlöndum innan kennarasam- taka. Félagið ákvað á stjórnarfundi í júní sl. aö efna tl árlegra barna- bókaverðlauna. Tilgangurinn er fyrst og fremst sá, að örva útgáfu góðra barnabóka á Norðurlöndun- um. Verðlaunin eru veitt sem heiðurslaun til norræns barna- bókarithöfunds sem skrifar sín verk fyrir börn á grunnskólaaldri. Verðlaunin eru veitt einstöku verki, skáldlegu eða faglegu, eða höfundi og verkum hans. Hvert félag má tilnefna tvö verk eða höfund og verk hans. Félag skólasafnvarða er aðili í NSF og tilnefndi til verðlauna „Sitji Guðs englar“ eftir Guðrúnu Helgadótt- ur og fagbókina „Húsdýrin okkar“ eftir Stefán Aðalsteinsson. Þriggja manna dómnefnd velur verðlaunahafann. Fulltrúar Sví- þjóðar, Danmerkur og Noregs skipa dómnefnd í ár en árlega gengur einn fulltrúi út og full- trúar hinna félaganna ganga inn. Fulltrúi Noregs er í dómnefnd eitt ár, Danmerkur tvö ár og Svíþjóðar þrjú ár. Fulltrúi Svíþjóðar, Rolf Kristensson, er formaður dóm- nefndarinnar. Verðlaunin verða veitt í fyrsta sinn á árlegri ráðstefnu Norrænna skólasafnvarða, sem haldin verður í Finnlandi í síðustu viku júni- mánaðar 1985. (Frétutiikynninio

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.