Morgunblaðið - 30.04.1985, Page 3
MORGUNBLAÐIP, ÞRfÐJZJDACUB 30, AfRÍL lýff
Óboðinn
gestur í
hjóna-
rúminu
LÖGREGLAN í Reykjavík var
kvödd að íbúðarhúsi við Suðurgötu
síðdegis á sunnudaginn til að fjar-
Isgja óboðinn gest, sem hafði
hrciðrað um sig í hjónarúminu.
Húsfreyjan varð mannsins vör
er hún kom heim til sín og hafði
maðurinn komist inn i íbúðina á
meðan heimilisfólkið var fjarver-
andi, en íbúðin var ólæst. Hér var
um að ræða utanbæjarmann, og
gat hann engar skýringar gefið á
ferðum sínum í húsinu. Hafði
hann verið að skemmta sér um
helgina.
1
Leðurblakan frumsýnd
Leðurblakan var frumflutt í íslensku óperunni á laugardagskvöld. Söngvurum var vel tekið á frumsýningunni.
Hljómsveitarstjóri er Gerhard Deckert og leikstjóri Þórhildur Þorleifsdóttir. Myndin er tekin í lok sýningarinnar.
SIM BREYTTIST
Á EINNINÓTTU
Þú getur skemmt þér
stórkostlega í Glasgow, borg-
inni sem breyttist á einni nóttu.
Þótt þér dauðleiðist
sekkjapípumúsík,
finnist skotapils hallærisleg og gamlir kastalar óspennandi, þá
er fjölmargt annað í Glasgow sem gæti heillað þig upp úr
skónum og gert þig að aldavini skoskrar menningar og
lífshátta.
Glasgow er nútímaborg á gömlum grunni. Þangað er aðeins
um 2 klukkustunda flug með Flugleiðum frá íslandi. Þessi
nágrannaborg okkar á sér vaxandi aðdáendahóp hérlendis. Þökk
séviðmóti Skotanna, kránum, veitingahúsunum, næturklúbbunum,
diskótekunum, verslununum, ágætum söfnum og skemmtilegri
menningu.
- Skoski ballettinn, Skoska óperan, Skoska sinfónían og Skoska
þjóðleikhúsið hafa aðsetur í Glasgow!
- I Glasgow eru 16 fyrsta flokks diskótek, og auðvitað tugir af verri
gerðinni!
- Glasgow státar af 36 veitingahúsum, þar sem matur og þjónusta
eru í hæsta gæðaflokki!
- Glasgow er draumastaður sælkera og lífsnautnamanna. f
borginni eru hvorki fleiri né færri en 80 vínstúkur, ölkrár og litlir
matsölustaðir sem hægt er að mæla sérstaklega með. En þá
eru ótaldir staðir sem heiðarlegir Skotar geta ekki mælt með!
Þú átt varla kost á ódýrara sumarleyfi en ef þú flýgur með
Flugleiðum til Glasgow. Þar býðst gisting á vönduðum hótelum fyrir
hlægilegt verð og í verslunum borgarinnar eru vörurnar á mun
lægra verði en i London.
Gieymdu öliu sem þú hélst að þú vissir um Glasgow! Skemmtileg bcrg meó lágan aógangseyrí
GLASGOW
LEiTIÐ FREKARI UPPLÝSINGA
A SÖLUSKRIFSTOFUM FLUGLEIÐA,
HjA UMBODSMÖNNUM OG FERÐA
SKRIFSTOFUM.
2