Morgunblaðið - 30.04.1985, Side 23
innulaunum háskólamanna hjá
ríki og annars staðar.
3. Gögnum leynt
í kjaradómsmáli
I fréttabréfi kjararannsóknar-
nefndar ASÍ og VSÍ, nr. 67, eru
birtar tölur um launakjör á al-
mennum markaði. Meðal efnis eru
mælingar á tímakaupi og launa-
skriði á almennum markaði. Sam-
kvæmt fréttabréfinu er hreint
tímakaup fyrir dagvinnu hjá
skrifstofufólki ASt ekkert lakara
en langmenntaðra háskólamanna
í þjónustu rikisins. Skoðum nokkr-
ar tölur:
Laun fyrir dagvinnu
ASf-HamninKur BHMR-nnmningur
4. ársf. 1984 desember 1984
Alm. skrifstofu- Háskólam.
fólk 22.908 21.974 hjúkr.frœðingar
Gjaldkerar og Vióskipta- og
bókarar 29.626 29.752 hagfræðingar
Fulltrúar 37.366 32.840 Verkfræðingar
Deilda- og skrifstofustjórar á
ASÍ samningum voru samkvæmt
fréttabréfinu með 43.733 krónur.
Nú liggja fyrir sögusagnir úr
röðum ASÍ-manna að kapp var
lagt á af forseta ASÍ og sam-
ráðsmanni hans úr VSÍ að leyna
niðurstöðum fréttabréfs kjara-
rannsóknarnefndar fram yfir
kjaradóm. Það vildi BHMR til
happs að aðalfundur VSÍ knúði á
um að þessi gögn yrðu lögð fram.
Sömu heimildir segja að ASt-
miðstjórnin hafi ákveðið að leggja
ekki fram kaupkröfur sínar fyrr
en eftir kjaradóm og yrði þá mið-
að við að taka inn allar hækkanir
BHMR. í samráðskerfi BHMR og
ríkisins verður BHMR að sanna
launakjör á almennum markaði til
að fá leiðréttingu en með leyni-
makki ASÍ og VSf er reynt að
kippa stoðunum undan þessu
kerfi.
, 30. A,PRÍkl985
4. Forseti ASÍ sendir
Kjaradómi greinargerð
Á þessum viðkvæma tímapunkti
í störfum Kjaradóms sendi forseti
ASÍ (og starfsmaður VSf) grein-
argerð til Kjaradóms. í henni er
skýrt frá því að ríkisstarfsmenn
búi við annað launakerfi en ríki á
almennum markaði. Á almennum
markaði fái menn ekki greitt fyrir
tiltekinn vinnutíma heldur fyrir
tiltekið starf en þar að auki er
gefið í skyn að vinnumarkaður
ríkisstarfsmanna lúti öðrum
óæðri lögmálum og þetta útskýri
launamismuninn milli háskóla-
manna hjá ríki og annars staðar.
BHMR frétti fyrst af þessum af-
skiptum ASÍ-forsetans af Kjara-
dómsmáli aðildarfélaga BHMR
eftir að Kjaradómur hafði fellt úr-
skurð sinn. Ekki var þess vegna
unnt að fara fram á umfjöllun um
þessa aðkomnu greinargerð. En
þetta innlegg samráðsmanna bar
án efa tilætlaðan árangur.
5. Útvarpsviðtal við
forseta ASÍ
Forseti ASf kom raunar fyrr við
sögu í Kjaradómsmáli þessu. I út-
varpsviðtali 26. mars sl., einmitt
þá er málflutningur í málum
BHMR-aðildarfélaga stóð sem
hæst, fullyrðir hann, að lífeyr-
issjður opinberra starfsmanna sé
70% dýrari en sjóðir ASÍ-manna
og umframréttur ríistarfsmanna
um 15%. Þóttist hann hafa
skýrslu rannsóknarnefndar máli
sínu til sönnunar en engar slíkar
niðurstöður er að finna i um-
ræddri skýrslu.
Þetta viðtal var greinilega pant-
að af himnum og átti að ganga
beint til Kjaradóms til að siað-
festa 15% launamismun milli rík-
isstarfsmanna og þeirra sem
vinna hliðstæð störf á almennum
markaði. BHMR lagði hins vegar
vel ígrunduð gögn fram sem sýndu
að umframréttur BHMR-manna
var að jafnaði nær 3% og kom
varnaraðili í málinu ekki með nein
gögn sem sýndu annað.
Ut á hvað gengur
samráðsmakkið...
Ég er sannfærður um að há-
skólamenntaðir ríkisstarfsmenn
muni fyllast réttlátri reiði gagn-
vart samráðsklúbbi Ásmundar
Stefánssonar og Vilhjálms Egils-
sonar sem lagt hefur sitt af mörk-
um til að halda niðri launum ríkis-
starfsmanna í BHMR. Hin vís-
indalega kjarabarátta BHMR sá
ekki við baktjaldabrögðum sam-
ráðsmannanna. Á þessari stundu
er þó vert að spyrja sig hvort
takmark samráðsins sé að halda
almennt launum niðri og þá sér-
staklega launum ríkisstarfs-
manna.
Auðvitað ætla ég forseta ASÍ
ekki þá skoðun að vilja stuðla að
lágum launum. Ég hygg að hann
sé einfaldlega fangi allra fordóma
samráðsaðilans, VSÍ, um hver sé
höfuðvandi efnahagsmála á Is-
landi í dag. í greinargerð sinni til
miðstjórnar Alþýðusambands Is-
lands nýverið eru allar megin-
áherslurnar þær sömu og í kveðju-
ræðu fráfarandi formanns Vinnu-
veitendasambands Islands. Þar er
verðbólguvandinn sem er höfuð-
vandinn og svo arðsemisvandamál
fyrirtækja af ýmsum toga. Ég
dreg í efa að Ásmundur geti nokk-
uð aðstoðað VSÍ.
Höíundur er hagfræðingur BHMK.
SKÁKSAMBAND íslands afhenti fyrir skömmu verðlaun fyrir Skák-
þing fslands. Hér mi sjá Karl Þorsteins, skákmeistara íslands 1985,
með hinn veglega verðlaunagrip, sem nafnbótinni fylgir.
tREMFÍLL
MMI
85522
1 C
..
Skákmeistari íslands
i
BEMT FLUGISOLSKINH)
8.MAÍ-3VIKUR
Félagsmálastofnun Reykjavíkurborgar er með hóp eldri borgara í þessari
ferð. Fararstjóri verður Anna Þrúður Þorkelsdóttir; hjúkrunarfræðingur
verður Kolbrún Ágústsdóttir. Athugið, að aðeins fáein sæti eru laus. Hafið
því samband sem fyrst.
Benidorm er á Suður-Spáni og einn vinsælasti, sólríkasti og snyrtilegasti
staðurinn á sólarstrónd Spánar. Það er staðfest.
Gististaðir eru íbúðir eða hótel, með eða án fæðis. Pantið tímanlega og
tryggið ykkur sæti í sólskinið á ströndinni hvitu. Ferðaáætlun til BENIDORM:
8. og 29. maí / 19. júní / 10. og 31. júlí / 21. ágúst / 11. sept. / 2. okt.
FERÐAÁÆTLUN 1985-, . . þú lest ferða-
bæklinginn okkar af sannri ánægiu. I honum
eru ferðamöguleikar sem Feroamiðstöðin
hefur ekki booið áður og eru mjög gimilegir
og freistandi.
Við bjóðum t.d. ferðir til Grikklands,
Frakklands, USA, Marokkó, Italíu, Spánar,
sumarhús í Þýskalandi, Danmörku, Frakkl-
andi og Englandi. Auovitað færðu líka hjá
Ferðamiðstoðinni farmiða og hótel viljir þú
heimsækja Norðurlöndin eða stórborgir
Evrópu, Ameríku eða jafnvel Asíu! -
Þetta er bara brot af því sem FERÐAÁ-
ÆTLUN 1985 segir frá . . ! Hringdu í síma
28133 og við senaum þér hana í póstinum.
Strax!
m
FERDAMIÐSTÖÐIN
ADALSTRÆTI 9
SIMI28133