Morgunblaðið - 30.04.1985, Síða 26
26
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIDJUDAGUR 30. APRÍL 1985
íslandsmótið í vaxtarrækt.
Fjnn varð
íslands-
meistari
fótbrotinn
„ísland.smei.staratitillinn kom mér
ekki á óvart, ég hafói stefnt að þessu
með þrotlausum sfingum í fimm
mánuði. Það er vissulega taugastríð
að koma fram en þetta tókst,“ sagði
fslandsmeistari karla í vaxtarrækt,
Sigurður Gestsson, í samtali við
Morgunblaðið. Hann hlaut titilinn f
sínum þyngdarflokki og reyndist síð-
an bestur yfir heildina. Aldís Arnar-
dóttir varð fslandsmeistari kvenna og
hlaut einnig titilinn í sfnum flokki.
„Það er meiriháttar góð tilfinning að
vera íslandsmeistari," sagði Aldís.
Július Ágúst Guðmundsson varð Ís-
landsmeistari í unglingaflokki.
í vaxtarræktarmótinu sem fór
fram á Broadway var keppt f átta
þyngdarflokkum og hlutu sigurveg-
arar þeirra allir Islandsmeistara-
titil. Að lokinni þeirri keppni var
gert upp á milli þess hver væri
allra lögulegastur yfir heildina, en
alls tóku 25 keppendur þátt. Voru
fimm ameríkanar af Keflavíkur-
flugvelli meðal þátttakenda. „Gald-
urinn við að ná árangri í vaxtar-
ræktarmóti er margslunginn og
margir þættir verða að mynda
sterka heild," sagði einn dómara
keppninnar, Finnbogi Helgason, í
samtali við Morgunblaðið. „Auk
þess að vera vöðvamiklir þurfa
keppendur að hafa góð hlutföll á
milli líkamshluta. Skurður þarf að
vera góður, þ.e. lítið fitulag á lfk-
amanum svo vöðvarnir sjáist
greinilega. Síðan skiptir góð fram-
koma og reisn máli. Einnig að hafa
gott vald á líkamanum við frjálsar'
æfingar með músfk, þar sem vöðv-
arnir eru spenntir. Það gilda sömu
reglur hjá konum og körlum, en
kvenmenn hafa náttúrulega ekki
sömu möguleika á vöðvauppbygg-
ingu. Ég held að enginn fþrótt
krefjist eins mikils af keppendum
og vaxtarrækt. T.d. tveimur mán-
uðum fyrir keppni hætta keppend-
ur flestir að láta ofan f sig matar-
bita umfram það sem kemur að
gagni við uppbyggingu fyrir
keppni," sagði Finnbogi.
ísland.smeistari í undir 90 kg
flokki — fótbrotinn. Magnús
Oskarsson keppti með ógróið
beinbrot á vinstri fæti. Hann vant-
ar ekki keppnishörkuna ...
Það voru fremur fáir keppendur f
sumum flokkanna á Islandsmótinu.
En í unglingaflokki voru þó fímm
kappar. Tvar Hauksson vann örugg-
lega léttari unglingaflokkinn, hafði
meiri vöðva og betra hlutfall en
mótkeppendurnir. Einar Guðmann
varð í öðru sæti, en Björn Brodda-
son, Pétur Broddason og Ronald E.
Miley komu honum næstir. í þyngri
unglingaflokknum voru aðeins
tveir keppendur og þar fór Júlfus
Ágúst Guðmundsson með sigur af
hólmi, en Sigurður Pálsson reynd-
ist ekki eins þrekinn. Júlíus hlaut
DSMOT
íslandsmeistarar yfir heildina. Júlíus Ágúst Guðmundsson í unglinga-
flokki (Lv.), Aldís Arnardóttir í kvennaflokki og Siguröur Gestsson í
karlaflokki.
Ljóamyndir Mbl./GunnlauKur Rögnvaldaaon
Kvenlegur yndisþokki skín úr andliti Guðrúnar Reynisdóttur í frjálsum
æflngum.
síðan Islandsmeistaratitil unglinga
eftir að hafa keppt við fvar, sigur-
vegara léttari flokksins. Voru dóm-
ararnir sammála um að Júlfus væri
allur vöðvameiri og öllu stæltari.
Daníel Olsen varð augljós sigur-
vegari í flokki karla, 70 kg og undir.
Hann hafði mestu vöðvana og var
betur skorinn en Kenneth Bollinger
og Sævar Símonarson. Sigurður
Gestsson varð einnig öruggur í 80
kg flokki, en jöfn keppni var um
annað sætið milli Macc L. Krocker
og Gests Helgasonar. Sá fyrrnefndi
hafði betur, vegna meiri handleggs-
og axlarvöðva. Magnús Óskarsson
lét ekki fótbrot tveim mánuðum
fyrir keppni aftra sér frá þátttöku.
Hann pumpaði stíft járn þó rúm-
liggjandi væri og æfði grimmt.
Kom hann fram í keppninni í gifsi
þó sárið væri ekki talið gróið! Hann
uppskar sigur og Islandsmeistara-
titil f 90 kg flokki, en Kristinn Æg-
isson varð annar. Augljós sigurveg-
ari f yfir 90 kg flokki var Kári Ell-
ertsson. Hann atti síðan miklu
kappi við Sigurð Gestsson um Is-
landsmeistaratitilinn yfir heildina,
Fyrrum íslandsmeistari í vaxtar-
rækt, Jón Páll Sigmarsson, fór létt
með að böggla saman reiðhjól,
með berum höndum. Vöktu nokk-
ur uppátæki hans um kvöldið
mikla kátínu áhorfenda en mikið
fjölmenni fylgdist með keppninni.
en Sigurður hafði betur vegna
betra hlutfalls milli vöðva og miðað
við líkamsstærð.
Kvennaflokkar voru tveir. Þann
léttari vann Ása Kristfn Árnadótt-
ir, var hún í betri þjálfun en eini
mótkeppandinn, Guðrún Reynis-
dóttir, þótti betur skorin og sýndi
betur vöðvana sökum þess. Áldís
Árnadóttir vann þyngri kvenna-
flokkinn örugglega, en aðrir kven-
keppendur voru nýliðar. Svandís
Grétarsdóttir og Katrín Gísladóttir
voru jafnar eftir forkeppnina, í
öðru sæti, en Svandfs náði sfðan að
gera betri æfingar við músik í úr-
slitakeppninni, sem reyndar báru
af í keppninni, og náði silfrinu. Þær
Kristjana Ivarsdóttir og Norma Le
Vally komu á eftir þeim stöllum.
G.R.
Hér keppa þrír íslandsmeistarar í sínum þyngdarflokkum
um heildarsigur. Daníel Olsen (t.v.), Sigurður Gesbwon og
Magnús Óskarsson í frjálsum æflngum við músík.
ívar Hauksson vann léttari unglingaflokkinn örugglega.
Ilann er mikill íþróttamaður, vel liðtækur í golfi, karate og
nú vaxtarrækt.
Það er engu líkara en Herkúles sé mættur á svæðið ... en
þetta er Akureyringurinn Kári Ellertsson, sigurvegari í yflr
90 kg flokki.