Morgunblaðið - 30.04.1985, Síða 29

Morgunblaðið - 30.04.1985, Síða 29
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 30. APRÍL 1985 29 landsins sýni dagmæðrum þá virð- ingu að láta þær njóta sannmælis i hvívetna og gæti þess að vera aldrei með i að sýna þeim lítils- virðingu. Ég vona að þær geri sér alltaf grein fyrir því að dagmæður leggja mikið að veði i starfi sínu. Þær eru með heimili sín og fjöl- skyldu inni i þvi. Dagmæður óska eindregið eftir góðu samstarfi við félagsmálastofnanir landsins, en algjört skilyrði er að komið sé fram við þær með virðingu og á jafnréttisgrundvelli og að þeim sé ekki sýnd valdniðsla á neinu sviði. Dagmæður eru undir landslögum eins og aðrar stéttir og er sjálf- sagt að þær fari eftir þeim, en var- ast ber að rugla saman eftirliti og lögreglu eða dómskerfi landsins. Eftirlit á að byggjast á gagn- kvæmu trausti. Eins og nú háttar eftirliti í Reykjavík held ég að við kostum ekki borgina mikið. Eftir- lit okkar er í samkrulli með eftir- liti við gæsluvelli borgarinnar. Álít ég það mjög óskylt, þar sem annað er rekið algjörlega á vegum borgarinnar en hitt einkarekstur. Finnst mér þessu hafa verið rugl- að ansi mikið saman og oft á tið- um komið sá andi fram að eftirlit- ið sé framkvæmdastjórn dag- mæðra, sem er alrangt. Dagmæð- ur, hver fyrir sig, eru fram- kvæmdastjórar sinnar starfsemi og bera alla ábyrgð á henni. Vona ég eindregið að þessu verði breytt og að borgin stuðli að því að eftir- lit hennar við dagmæður verði vel skipulagt og að fóstrunum verði gefinn tími til að styrkja og upp- fræða dagmæður, ásamt ákveðnu eftirliti og réttsýnu. 3. maí 1984 sendi stjórn Sam- taka dagmæðra í Reykjavík eftir- farandi til Barnaverndarnefndar Reykjavíkur. Oskað var eftir að leita samn- inga við barnaverndarnefnd Reykjavíkur um að nefndin hlutist til um: 1. Að sett verði reglugerð um störf dagmæðra í Reykjavík við gæslu barna sem taki til allra þátta starfanna og annarra atriða sem tengjast þeim. 2. Að nefndin hlutist til um að námskeið Námsflokka Reykjavík- ur fyrir dagmæður verði sam- ræmd námskeiðum Námsflokka Reykjavíkur fyrir sóknarkonur sem starfa á dagvistarstofnunum i R., meðal annars að því er varðar kennslu o.fl., þannig að námskeið dagmæðra verði ekki síðri á nokk- urn hátt en námskeið sóknar- kvenna. 3. Einnig var nefndin beðin að hlutast til um að skilyrði fyrir leyfi til daggæslu á einkaheimil- um í R. verði háð félagsaðild í Samtökum dagmæðra i R. Með þvi er tryggt að þær fái gjaldskrá í hendur sem er undir veðlagsráðs- eftirliti og fréttabréf er muni upp- lýsa þær um öll hlunnindi sem hægt er að bjóða þeim og börnum, sem er í gæslu þeirra, svo sem námsmöguleikum, leikfangakaup- um og hvernig stjórn samtakanna vinnur að málefnum þeirra. Sem sagt að þær verði í sambandi hver við aðra. Var tekið vel í þetta og hefur nefnd verið að vinna i allan vetur til að endurskoða alla þætti starf- semi dagmæðra. Höíuadur er íorraaður Samtaka dagmæðra í Reykjarík. Miðstjóm ASÍ: Mótmælir ásökunum BHMR á hendur forseta ASÍ MORGUNBLAÐINU hefur borist eftirfarandi fréttatilkynning frá miðstjórn Alþýðusambands ís- lands: „Fundur miðstjórnar Alþýðu- sambands íslands haldinn föstu- daginn 26. apríl 1985, mótmælir þeim ásökunum sem fram hafa komið á hendur Ásmundi Stef- ánssyni, forseta Alþýðusam- bands Islands, um að hann hafi reynt að hafa áhrif á niðurstöður Kjaradóms i deilu BHMR og fj ármálaráðuney tisins. Vegna rangtúlkunar launa- málaráðs BHMR á niðurstöðum úr fréttabréfi Kjararannsóknar- nefndar var nauðsynlegt að fram kæmi leiðrétting. í Kjararannsóknarnefnd sitja þrír fulltrúar ASt auk þriggja fulltrúa frá vinnuveitendum. Miðstjórn lýsir fullu trausti á störf þeirra." Og nú gerð C-12 - ennþá meira fyrir lítið: Sjátfvirk miðjusetning texta, sjálfvirk undirstrikun, sjálfvirk niðurröðun talna, leiðréttingarminni ein lína o.fl. Ananaustum 13 Innritun i símum Hjón 03 systkini fá 20% afslátt á öll námskeið Mímis svo 03 allir félajsmenn Stjórnunarfélags Islands. 17. maf ATHUGIÐ: Málaskólinn Mímir er fluttur í nýtt og glaesifegt húsnæóí aö Ánanaustum 15. Vel heppnuð ferð er ekki sjálfsögð. Það þarf undirbúning til. Ferðanámskeið 10004 og 21655. Mímis eru sérsniðin fyrir ferðamanninn. Við kennum tungumál og hagnýta ' ferðafræði. Markmið okkar er að þú lærir að bjarga þér á tungumálinu við | sem flestar aðstæður. Jafnframt færðu innsýn í líf og hugsunarhátt þjóðar- |1|h9 innar sem þú heimsækir. 20.-31. maí kl. 1830 - 2 1 00 Spænska Frartska ítalska Vió bjóöum upp á kennslu í ensku, þýsku, dönsku, frönsku, spænsku, ítölsku, serb-króatísku og grísku, — átta tungumál — átta þjóölönd. Ferðanámskeið Mímis er gott veganesti. er' VÁt \ Viei*i)vr»r\ Ert þú eins og ómálga barn í útlöndum?

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.