Morgunblaðið - 30.04.1985, Síða 33

Morgunblaðið - 30.04.1985, Síða 33
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 80. APRlL 1985 33 Að lifa af ragnarök Símamynd/Ar Fjórir þátttakenda í ráðstefnu um „Hvernig eigi aó komast hjá ragnarökum kjarnorkustyrjaldar“ á blaðamannafundi í höfuðstöðvum Sameinuðu þjóðanna á föstudag. A mvndinni eru f.v. dr. Allan A. Boesak, prestur frá Suður-Afríku, Schridath S. Rampal frá Gyana, Willy Brandt, V-Þýzkalandi, og Ólafur Ragnar Grímsson, íslandi. V-Þýskaland: Vinstri menn sprengja á þremur stöðum IJtísseldorf, 29. opríl. AP. ÞRJÁR sprengjur sprungu í morgun í Dtisseldorf og Köln. Talsvert tjón varð á mannvirkjum en engan sakaði. Hryðjuverkasamtök vinstrimanna lýstu ábyrgð á verknaðinum og kváðu sprengt til þess að mótmæla leiðtogafundi um efnahagsmál, sem hefst á fimmtudag í Bonn. Sprengjurnar sprungu með 10 minútna millibili, sú fyrsta í bygg- ingu Hoechst-efnaverksmiðjunnar í Köln og skrifstofu járniðnaðar- ins þar í borg. Þriðja sprengjan sprakk við byggingu Deutsche Bank í Dusseldorf. Fyrsta sprengjan sprakk skömmu eftir miðnætti. Talið er að tjónið hjá Höechst og Deutsche Bank nemi a.m.k. 1,5 milljónum króna á hvorum stað, en minni háttar skemmdir urðu hjá skrif- stofu járniðnaðarins. Samtökin, sem lýstu ábyrgð á Washington, 29. aprfl. AP. LEIÐTOGAR sjö helstu iðnríkja heims, að kommúnistaríkjunum undanskildum, koma saman til fundar í Bonn í Vestur-Þýskalandi síðar í vikunni. Verður þar leitað leiða til að ýta undir áframhaldandi hagvöxt og draga úr þeim ágreiningi, sem uppi er um viðskipti og verslun, gjaldeyrismál og efnahagsstefnu ein- stakra ríkja. Bandaríkjamenn, Kanadamenn og Evrópuþjóðirnar hafa horn í síðu Japana vegna gífurlegs útflutn- ings þeirra til þessara landa í skjóli hafta á sínum eigin heima- markaði og Kanadamenn, Japanir og Evrópuþjóðirnar leggja hart að Bandaríkjamönnum að ráða bót á fjárlagahallanum, háum vöxtum og sterkum dollar, sem heldur gjaldmiðlum hinna þjóðanna niðri. Bandaríkjamenn, Kanada- menn og Japanir eru svo saman um að hafa áhyggjur af litlum hagvexti og úreltum vinnubrögð- um í Evrópu. hendur sér, eru talin hættulegustu hryðjuverkasamtök Þýzkalands. Leiðtogafundur sjö helstu iðnríkjanna hefst á föstudag: Meginverkefnið meiri og jafnari hagvöxtur og minni ágreiningur Þessi mál eru svo flókin, að tveggja daga leiðtogafundur mun ekki finna á þeim neina lausn en mestar vonir eru bundnar við, að mönnum skiljist betur en áður, að þjóðir heims eru sem ein fjöl- skylda og að erfiðleikar einnar draga dilk á eftir sér fyrir hinar. Fiðrildi gegn illgresi London, 29. aprfl. AP. BRETAR hyggjast flytja inn margar milljónir af sérstakri fiðrildategund frá Suður-Afríku og sleppa þeim lausum upp í sveitahéruðum Bretlands. Markmiðið með þessu er að bjarga verðmætu og víðáttumiklu graslendi frá því að leggjast í órækt sökum ágengni burkna og annars illgresis. Skýrði blaðið Sunday Telegraph frá þessu í gær. Rannsóknir hafa leitt í ljós, að fiðrildi þessi og lirfur þeirra éta gífurlegt magn af burkn- um, sem á undanförnum árum hafa dreifzt yfir þúsundir hektara af graslendi í Bret- landi. Fiðrildi þessi eru hins vegar ekki talin hættuleg öðr- um gróðri. Svo rammt hefur kveðið að útbreiðslu burkn- anna, að þeir hafa lagt undir sig nær 7000 hektara af gróð- urlendi árlega í Bretlandi. Síðastliðin þrjú ár hefur hag- vöxtur farið vaxandi hjá öllum þátttökuþjóðunum, Bandaríkja- mönnum, Vestur-Þjóðverjum, Japönum, Frökkum, Bretum, ítöl- um og Kanadamönnum, en að því er stefnt, að hann verði sem jafn- astur í öllum ríkjunum og nái einnig til þjóða þriðja heimsins. f nýlegri skýrslu frá Alþjóðagjald- eyrissjóðnum, sem 148 þjóðir eiga aðild að, segir, að á síðasta ári hafi verið meiri þróttur í efna- hagslífi heimsins en við hefði ver- ið búist, framleiðsla aukist, verð- bólga minnkað og fjárhagur fá- tækra þjóða batnað. Hagvöxtur í iðnríkjunum var nærri 5% í fyrra, sá mesti síðan 1976, en búist er við, að hann verði um 3% í ár og á næsta ári. Talið er hins vegar, að hann muni standa fastari fótum en verið hefur og verði ekki eins sveiflukenndur. í skýrslu Alþjóðagjaldeyris- sjóðsins er einnig bent á ýmis áhyggjuefni eins og mikinn halla á greiðslujöfnuði iðnaðarþjóðanna, sem lýsir sér t.d. í þvf, að erlend fjárfesting í Bandaríkjunum er miklu meiri en fjárfesting Banda- ríkjamanna í öðrum löndum. Vak- in er athygli á atvinnuleysinu í Evrópu, sem virðist erfitt að ráða bót á, og á því hve hægt gengur að bæta lífskjör fólks í þróunarríkj- unum. Ágreiningsefni iðnríkjanna sjö eru margvísleg og þau hafa ýmis- legt að athuga hvert við annað. BILL SEM HÆFIR ÖLL Hann hefm sannad kosti sina vid islenskar adstœdui sem: / kjörínn íjölskyldubíll / duglegui atvinnubíll / vinsæll bUaleigubíll / skemmtilegur sporíbíll Verð frá kr. 394.000 6 áia lydvamaiábyigd 50 ára reynsla í bílainnílutningi og þjónustu IHIHEKLAHF Laugavegi 170-172 Simi 21240 VOLKSWAGEN GOLF PÝSKUR KOSTAGRIPUR KEFLAVIK — NEW YORK - KEFLAVIK 1. maí, 8. maí og 15. maí FLUGLEIÐIR FLUGFRAKT

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.