Morgunblaðið - 30.04.1985, Page 34

Morgunblaðið - 30.04.1985, Page 34
34 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 30. APRÍL 1985 plfirgmi Útgefandi nMafrifr hf. Árvakur, Reykjavík. Framkvæmdastjóri Haraldur Sveinsson. Ritstjórar Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. Aöstoöarritstjóri Björn Bjarnason. - Fulltrúar ritstjóra Þorbjörn Guömundsson, Björn Jóhannsson, Árni Jörgensen. Fréttastjórar Freysteinn Jóhannsson, Magnús Finnsson, Sigtryggur Sigtryggsson, Ágúst Ingi Jónsson. Auglýsingastjóri Baldvin Jónsson. Ritstjórn og skrifstofur: Aöalstræti 6, sími 10100. Auglýsingar. Aö- alstræti 6, sími 22480. Afgreiösla: Kringlan 1, sími 83033. Áskrift- argjald 330 kr. á mánuöi innanlands. í lausasölu 25 kr. eintakiö. Fréttabæklun sjónvarpsins (f ) Tnfcri ptioKIo- numcnti cujuidam Lundenfít io Scanu. D*. mú.M. MM44 3: ®er ^ilp/ ®U6 {líllp / Deus adjuvet. (fí LEXICON ISLANDICUM ShfCj GOTHICÆ. RUNÆ vtl Lingv* Scptcntrionalis Didionaríum [pattimprout hoc Idiotna in Vetuftis Ccdicibui & Anti- qvis Ardioum Documcntis incorruptum ac inviolatum ma- r: refiduum j pat tim qvatenus hodie apud Gentem Nor- ftý M-X-jk ý, vegicatr. in extrcma Islandia lárrum teÁum in qvondiano f/" loqvendi ufu & fcnbendi remanet modo : Inferta porrö '* funt multa Vocabula neoterica & i peregrinis Ungvis mu- T.-Ifcgy* *2ZÍt tuata,qv* fubmde in ufu elTe coeperunt: Adjeda tandem — cft non rarb Vocum probabilis Origo, &ccerens cun’ Lingvis ccnvenientia ] in grttiam eorum <pjt etrcbt.ct. 1 Gothktgentit smont ftrmomtm fot dU.fmU .tmeéomstmm, fdw- firtptwv 1 ** - -■ • a I GUÐMllNDO ANDREÆ ISLANDO uunc rar.deiii *. ' icem p’-oduétúm pcr PETR.UM jOHAN. Í'.ESENIUM. hIvnYíF. Jmti yp»3 W/.rviNr;. ryp^. & fumptibuf '' -W Bibliop. ChlUyTiER CiHP!-- M. Pú LXXTi AirJi JíjcKi y Ljósrit af titilsíðu íslensku ordabókarinnar og sýnishorn af textanum. íslensk-latnesk orðabók finnst í Ungverjalandi ÍSLENSK-LATNESK orðabók, sem var prentuð í Kaupmannahöfn árið 1683, fannst í fórum bókasafnsins í Szeged í Ungverjalandi í vetur. Dr. Cúri Károlyné, deildarstjóri á bókasafninu, sagði í samtali við frétta- ritara Morgunblaðsins að fundurinn væri mikilvægur af þvi að bókin er bundin inn í miðaldahandrit sem er eista handritið í eigu safnsins. Orðabókin var áður í eigu Car- í bókina og merkti sér hana árið olos Somogyi, kórsbróður, en 1719. Miðaldahandritið, sem hann gaf bókasafninu yfir 17.000 orðabókin er bundin inn í, er bækur á síðustu öid. Fyrri eig- þýskt. andi hefur ritað „Rarisimus" inn Stbruá PÍbUT.Cf^»r.'»rbor.L/{iM uirintu. (5þor.M.g Chorm pro Ttmplifmr- tt inttMd, mbi ctmnnr. (Jþriflur/ Chriým <SWftnc.F.«Se/u. •v,<Sþurfurfl(/ BUCltr, á ÍIqXtUCiu ðt ffifíftt (rtmsnm. - fflnfei* fonimuquiniitgGallicú cA £irffl/ro.g Circinut,iCirculo. €Ipflur/ tflpftrt/ djftcrinm, a< flpRra/f/i*/«uro. íor / Colciqvo piogumur & fcri buncur thftohrn... Cfoinp^gn/ Ctllegti. ComfágniCtlU■ ct.m, focietasin Contraöibus: <>an(fa/ CtmfonUt. Œ-Omp£t/ ’^Amuftum , Soltrinm, bcráTÍnm ■ Schápmm (£un(raftja/ EjftgUt, CTontrafijrrf. FiCi-r. <Jopi i' vel Cstfinm, ExtmpUr, Pie- vúi 'nm, áfegrtrfkrmtj. <£t>Jfpr IV g. i Ctestnrm pro Ani- nsalcul raro. ^.."fOftlfl / (.rotoJilm, (JíOiíSt::n X'Jft/Crtctuili (xrrjmtt jjreoflo * utrur br^. : e ftc. U ttr- aytntur falfchrú. <5 liftaH rf <Jtiflf.W 3l 'if/Chpl/ tU lmarrv'&‘ frigut r.fvcalk&'tfUcirj. -’unlnaur/CunicáUu, pu ,1 r ,1a! (4?) fflrrfur Sc (Jlrrfrrfrf cUriem Sc etrnm OrAt, á »Aií;®*. Strt,fo{fei- fuficl.pttrám. (Jlumrna/ Tjptgráphtrum fftgimt Jnfineu. Sic CaRanít brr/ Crffrþrr&cO- ftftniá (ft Ceráfnm-t. (Jomrblr & (J omrbianffrarrr/ira exotuá, q\«rdam verohorumper 3t lolcnniccr fcripn reperiuntiir. 8e plura in Licera X. ejufdem lannz funr rcqvirenda_». (Slaufi/ Cáu'ulá fenttntiofá.,. D- A DlnLingvii csrdinalibi’s qvar- tum pan.tr clementum in- *cra veculhflima Runmum GrámuttUá orr.iflum. ac per vel T.mpenfatum videtur. Hísete- ... Lirenscognatum geric jinnm atq; ptttftátcm. ícu D. cjus vicem r.Diöionum iniriononmtpqvaru obiiflebaf voces teftantur: f < pro • r*or Aiij. U gn/ 4» -f</ J) (fnan; Li*nnst Si» í dt/ af'pctlcrájfmP•;c. InratJoautera | vr.euai tl freqvcuciuspro ..' leíen- /•.iin vene-atur. Intetea fio-m ver- I bctu. :T oro D egregiéclaudit. vc- I luti & hcc &. P .manis conniio- ilo.Dí*. jjar.f!*. i qvam pro icdifféteori fuerat, ut íf o ■ »t t:í p* / Yar« Sc ^urrrtifjjaltt í han' vel háut, nfuá, atut, fic verba 'ti i.o’ii/ Si< pjjittá, Gkutil'nm.’ cirx. perfonac: ftt,fecu, áíeer.jit, i/wuiíf Lec/m. 'jf.uiii'vafliD.pronuritiargau- E z ticnt Ljósrit úr handritinu. Vegagerðin sparar helm- ing kostnaðar með útboðum Forsíðufrétt Morgunblaðs- ins á sunnudag um veiru- sjúkdóminn AIDS vakti verð- skuldaða athygli. Fyrirsögn hennar fór þó sérstaklega fyrir brjóstið á kommissörun- um á ríkisfréttastofu sjón- varpsins. Var henni slegið upp í átta-fréttum á sunnudags- kvöldið með þeim orðum, að Morgunblaðið ýkti og skýldi sjónvarpið sér í því efni á bak við orð sem Sigurður B. Þor- steinsson, læknir, lét falla, þegar hann var spurður á þann veg, hvort Morgunblaðið gengi ekki of langt með fyrir- sögn sinni. f lokafréttum sjón- varpsins á sunnudagskvöld voru „ýkjur" Morgunblaðsins um hættuna af AIDS enn helsta efnið. í fréttum sjón- varpsins bar hins vegar einnig svo til, að þulur las meginefni fréttar Morgunblaðsins og byggði á samtali blaðsins við þá Sigurð B. Þorsteinsson og dr. Harald Briem, sem eru nýkomnir heim frá AIDS- ráðstefnu í Atlanta í Banda- ríkjunum. Þar voru um tvö þúsund sérfræðingar saman- komnir og flutt voru um 700 erindi um þennan lífshættu- lega veirusjúkdóm, sem hlotið hefur hið fáránlega íslenska heiti „áunnin ónæmisbæklun". Sjúkdómurinn lýsir sér þannig að lítt þekktar veirur brjóta ónæmiskerfi líkamans niður með þeim afleiðingum að hann á í vök að verjast gagnvart öðrum sýklum. Fyrirsögnin sem fór fyrir brjóstið á fréttastofu sjón- varpsins var svona: „Allt mannkynið í hættu". Með fyrirsögninni er það eitt gefið til kynna sem nú er vitað, að AIDS-sjúkdómurinn er ekki bundinn við kynhverfa karl- menn, blæðara og eiturlyfja- neytendur. í forsíðufrétt Morgunblaðsins segir: „Nú er talið fullsannað að AIDS- veiran geti borist með kyn- mökum af hvaða tagi sem er, sem gerir allt mannkynið að áhættuhópi." Fyrirsögn frétt- arinnar vísar til þessarar staðreyndar. Hitt er einnig staðreynd, að einungis sumir þeirra sem veikjast af AIDS deyja úr sjúkdómnum. Rann- sóknir á honum eru að vísu svo skammt á veg komnar, að eng- inn getur sagt með fullri vissu um tjónið sem hann kann að valda. Það er því full ástæða til að vara við þessari nýju, hættulegu drepsótt. Viðvaran- ir gegn hættunni af AIDS er ástæðulaust að hafa í flimt- ingum að hætti fréttastofu sjónvarpsins. Bandaríska vikuritið Time talar í frétta- grein sinni, 29. apríl. sl., um AIDS-ráðstefnuna í Atlanta, um „aukna ógnun við al- menning" í heiminum vegna meiri útbreiðslu veikinnar en áður var talið. Sjúkdómurinn muni ógna mannkyninu um langan tíma — og vitnar þá í ummæli bandarísks sérfræð- ings í krabbameini. Morgunblaðið reyndi á eng- an hátt að nota samtal sitt við þá Sigurð B. Þorsteinsson og dr. Harald Briem til að auka á ótta eða ýkja ástandið. For- síðufrétt blaðsins var byggð á frásögnum breska vikublaðs- ins Observer og bandaríska tímaritsins Newsweek, en í hvorum tveggja var sagt frá ráðstefnunni í Atlanta. Viðtal- ið við íslensku læknana birtist á blaðsíðu 4B í Morgunblaðinu á sunnudag undir fyrirsögn- inni: „Aðeins spurning um tíma hvenær AIDS berst til íslands". Þar kemur hið sama fram og á forsíðunni, að ráð- stefnan í Atlanta hafi staðfest að menn eru hættir að líta svo á, að AIDS einskorðist við ákveðna áhættuhópa, allt mannkynið sé áhættuhópur, svo uggvænlegt sem það nú er. í Bandaríkjunum eru 9.608 skráð tilfelli af AIDS og þar af hafa 4.712 látist. Þá er einnig talið, að fjöldi Bandaríkja- manna, sem hafi veiruna í blóði sínu, sé mun meiri en þessar tölur segja til um, eða milli fimm hundruð þúsund og ein milljón. Fréttadeild sjón- varpsins þótti að vísu ekki þörf á að tíunda þetta, sem er undarlegt í gúrkutíðinni sem þar herjar um þessar mundir. Fréttastofa sjónvarpsins sá ekki heldur ástæðu til að spyrjast fyrir um valið á for- síðu-fyrirsögninni hjá Morg- unblaðinu. Hefði fréttastofan viljað kynna sér málið hefði hún getað komist hjá því að ganga í vatnið og sæta ámæli fyrir slæm vinnubrögð og það að nota afl sjónvarpsins og einokun til að koma höggi á eina keppinaut sinn hér á landi. í heimild Morgunblaðs- ins, Newsweek, tölublaði dag- settu 29. apríl, sem fréttastofa sjónvarps fær kannski ein- hvern næstu daga, segir, að AIDS sé einn óhugnanlegasti smitsjúkdómur þessarar aldar og allra alda, hann „ógni mannkyninu" („threatening the world general population") og gera megi ráð fyrir, að hann sé orðinn að því sem kalla megi heimsfaraldur („pandemic"). Að öllu þessu athuguðu er ástæðulaust fyrir Morgun- blaðið að taka aftur orð af því sem það hefur sagt um mál þetta. Hitt er einnig ástæðu- laust að skilja forsíðu-fyrir- sögn blaðsins þannig, að í henni felist yfirlýsing um að yfir öllu mannkyni vofi AIDS-hætta á næsta leiti. Morgunblaðið hvetur sjón- varpið og lækna til að stuðla að árvekni, svo að stjórnvöld og almenningur séu á varð- bergi þar sem AIDS- ógnvaldurinn er annars vegar. Þetta sem hér hefur verið sagt eða í sjónvarpinu í tilefni af fyrirsögninni „Allt mann- kyn í hættu“ er engan veginn kjarni málsins, eða það sem beina á athyglinni að í umræð- um um AIDS. Mestu skiptir að uppræta sjúkdóminn sjálfan eða finna haldgóðar leiðir til að halda honum í skefjum og lækna þá sem veikjast. Nú er komið í ljós að veiran býr um sig í miðtaugakerfi (heila og mænu) sjúklinga, sem hefur í för með sér að erfiðara er að etja við hana, eða eins og Sig- urður B. Þorsteinsson orðaði það í Morgunblaðssamtalinu: „Menn vissu reyndar fyrir að mikilla skemmda verður oft vart í miðtaugakerfi AIDS- sjúklinga, en það er ekki fyrr en nýlega sem tekist hefur að rækta veiruna úr frumum í miðtaugakerfinu. Þessi upp- götvun dregur mjög úr líkum á að meðferð geti skilað árangri, því afar fá lyf eru þeim eigin- leika gædd að geta brotið sér leið inn í miðtaugakerfið." Fyrir okkur íslendinga skiptir höfuðmáli, hvernig staðið verður gegn því, að þessi hættulegi veirusjúkdóm- ur breiðist út í landi okkar. Að horfa í fjármuni í því forvarn- arstarfi er fráleitt. Undir for- ystu heilbrigðisráðherra og ráðuneytis hans er skylt að gera gangskör að því að komið verði til móts við óskir sér- fræðinga um hæfileg viðbrögð. í því efni er ástæða til að staldra við ummæli dr. Har- alds Briem, sem sagði í Morg- unblaðssamtalinu: „Það er auðvitað landlæknis að ákveða hvað gert verður. En það er okkar skoðun að það eigi að rannsaka mótefnaástand ís- lendinga gagnvart þessari veiru, sér í lagi blóðgjafa, og ef þess er nokkur kostur ein- staklinga, sem tilheyra þess- um svokölluðu áhættuhópum. Aðeins á grundvelli slíkra upplýsinga er hægt að spá um það með nokkru viti hvað verður um þennan sjúkdóm hérlendis á næstu árum.“ Morgunblaðið tekur undir þessi orð læknisins. íslend- ingar eiga hér jafn mikið í húfi og aðrar þjóðir í barátt- unni við þennan sjúkdóm sem herjar á allt mannkyn, þótt ekki sé hann bráðsmitandi, sem betur fer. Allt þetta hefði sjónvarpið getað tíundað í gúrkutíðinni. Áhugi ríkis- fréttastofunnar var þó meiri á fyrirsögn Morgunblaðsins en efni málsins og hinu brýna forvarnarstarfi sem er nauð- synlegt til að stemma stigu við A IDS-sj úkdómnum. TILBOÐ í tvö verkefni sem Vega- gerð ríkisins bauð nýlega út voru opnuð í gær og voru lægstu tilboð í báðum tilvikum innan við helmingur af kostnaðaráætlun Vegagerðarinn- ar. Kostnaðaráætlun verkanna er samtals 13.246 þúsund kr., lægstu tilboð eru 6.034.700 kr. samtals og getur Vegagerðin því sparað sér 7,2 milljónir kr. með því að taka lægstu tilboðum, miðað við að kostnaðar- áætlun sé reiknuð út frá því hvað það hefði kostað Vegagerðina sjálfa að framkvæma þessi verk. Hagvirki hf. á lægsta tilboðið, kr. 4.888 þús kr., í vegarlagningu á Laxárdalsheiði. Kostnaðaráætlun Vegagerðarinnar er 10.790 þúsund kr. og er tilboðið því 45,3% af kostnaðaráætlun. 16 verktakar buðu í verkið og voru öll tilboðin undir kostnaðaráætlun. 16 aðilar buðu einnig í akstur á styrkingar- og malarslitlagi í Krísuvíkurveg. Hörður Brandsson á lægsta tilboð- ið, 1.146 þúsund kr., sem er 46,7% af kostnaðaráætlun Vegagerðar- innar, en hún er 2.456 þúsund kr.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.