Morgunblaðið - 30.04.1985, Blaðsíða 46

Morgunblaðið - 30.04.1985, Blaðsíða 46
víðs vegar af landinu, aldursmun- ur verulegur og uppeldis- og þroskaskilyrði ólík. Upplag og eðli höfðu líka sitt að segja þá eins og nú. Þótt stutt og stopul skóla- ganga fyrir komuna að Reykholti væri flestum sameiginleg, var bókakostur misjafn eftir heimil- um og sveitum. Víða voru góð r heimilisbókasöfn, og í sumum sveitum höfðu ungmennafélögin komið á fót lestrarsöfnun fyrir fé- lagssvæði sín. Úrslitum réð þó, hvernig einstaklingarnir nýttu sér aðstöðuna. Það kom brátt í ljós, að ungi sveinninn frá Skeggsstöðum var enginn venjulegur 17 ára ungling- ur. Miklu frekur líktist hann fjöl- menntuðum fulltíðamanni og hugsuði, þegar hann tók til máls, hvort sem það var í einkaviðræð- um eða á mannfundum. Það leyndi sér ekki, að hann var víðlesinn og lestrarefni hafði ekki verið af sama toga og flestra hinna. Hér- aðsskólinn í Reykholti var á þess- ari tíð hin merkasta menntastofn- un með úrvalskennara í hverju sæti, eins og hinir héraðsskólarnir voru sjálfsagt líka. í sumum námsgreinum skólans hafði Sig- valdi aflað sér góðrar undirstöðu, svo sem í sögu og bókmenntum, en fyrst og fremst hafði lestrarefni hans í heimahúsum þó verið sótt í önnur fræði en þau, sem mest eru ástunduð á skólabekkjum. Til dæmis lék hann sér að því að vitna í erlend fræðirit um heimspeki og trúarbrögð í orðræðum um marg- * vísleg efni. Hann hafði þá þegar kynnt sér rækilega öll tiltæk rit hér á landi um guðspeki, gerst fé- lagi í Guðspekifélagi íslands og jafnvel sjálfur ritað greinar um fræðilegar kenningar guðspekinn- ar. Flestir skólafélagarnir litu líka upp til Sigvalda með aðdáun og virðingu, sumir e.t.v. með nokk- urri öfund og einhverjum kann að hafa virst hann „furðufugl." Úr skólabrag, sem ortur var um „fé- Á* lags- og heimilislífið" í Reykholti veturinn ’38—’39, man ég aðeins eina vísu, og hún hljóðar svo: „Og þegar í Reykholti sólin er sest og sindra’ allar stjörnur um geima hann Sigvaldi á Skeggsstöðum segir oss mest um sálir og fjarlæga heima.“ Við Sigvaldi vorum samtímis tvo vetur í Reykholti, 1938—40. Kynni okkar urðu því náin og góð. Eiginlega hófust þau strax í fyrsta leikfimitímanum, þegar við völd- umst af tilviljun til að ganga hlið við hlið í leikfiminni — eða var það kannski ekki tilviljun? Að minnsta kosti hélst sú samfylgd í tvo vetur. Samstarf okkar varð þó „. þýðingarmeira í skólastarfinu og 1 félagslífinu og þar var gott að eiga samvinnu við Sigvalda. Hann tók hlutina aldrei vettlingatökum, að vera eða vera ekki var það sem gilti. Leiðir okkar skildi á Reykholts- hlaði vorið 1940. Beggja hugir stefndu þó til lengri skólagöngu. Ég lagði þá árar í bát um sinn, en hóf róðurinn aftur seinna. Sig- valdi ákvað að brjótast það beint. En fátækur, foreldralaus sveita- piltur átti úr vöndu að ráða. Kenn- araskólinn var þá aðeins þriggja vetra skóli. Það var þó betra en ekki neitt og reyndar að sumu leyti ekki slæmur kostur. -yi Allir verða að sjá sér og sinum farborða og það gerði Sigvaldi með kennslustörfum, en einkum með blaðamennsku og ritstörfum. Blaðagreinar hans hafa margar hverjar verið gefnar út endur- prentaðar í bókaformi, enda eiga þær meira skylt við fræðirit eða bókmenntir en blaðaskrif. Alla tíð var Sigvaldi mikill unn- andi fagurbókmennta, ekki síst MQRGÚNBLAÐH), JfWmWm. W- ljóða í hvaða formi sem var, enda mat hann þar sem annars staðar innihaldið meira en umbúðirnar. Sjálfur var hann vel liðtækur við ljóðasmíð, en lagði hana ekki fyrir sig að marki. Einu sinni tjáði hann mér, er fundum okkar bar saman, að alltaf hefði hann eitthvað ort á hverju ári, stundum þó ekki nema eitt eða tvö ljóð. Ljóðadísin lét hann nefnilega aldrei alveg í friði, svo að hann neyddist til að hlýða kalli hennar þrátt fyrir stranga sjálfsgagnrýni. Tvær ljóðabækur hafa komið út frá hans hendi. Ungur að árum kaus Sigvaldi sér leið guðspekinnar í sannleiks- leit sinni og á vegum hennar fann hann mörg svör við áleitnum spurningum lífsgátunnar. Sjálfs- ögun, hugrækt og sálarþroski voru hans stærstu áhugamál og ljúf- ustu viðfangsefni, og hann fór a.m.k. þrjár ferðir til námsdvalar austur til Indlands á fullorðinsár- um. Um þessi austurlensku fræði skrifaði Sigvaldi bækur, auk ferðaþátta frá Indlandi. I þágu guðspekinnar lagði Sigvaldi fram mikla vinnu. Hann var um skeið Forseti Guðspekifélags íslands, einnig í allsherjarráði Guðspeki- félagsins, og loks var hann f stjórn Evrópusambands guðspekifélaga. Auk alls þessa ritaði hann margt um guðspeki. Æviskeið Sivgalda varð aðeins sextíu og þrjú og hálft ár. Það er ekki hár aldur nú á öld hinna öru framfara í læknavísindum. En hvað er langlífi? spurði listaskáld- ið góða fyrir hálfri annarri öld og svaraði því eins og alkunna er: Hvað er langlífi? Lifsnautnin frjóva, alefling andans og athöfn þörf. Jónas Hallgrímsson skildi, að lífsgildi mælist ekki I árum, enda sannaðist það á honum sjálfum. — Það er einmitt þetta, sem mér virtist sannast svo vel á Sigvalda. Alefling andans var það, sem hann keppti alla tíð að sem æðsta takmarki. Þegar Grétar Ó. Fells, fyrrver- andi forseti Guðspekifélagsins, lést 1968, ritaði Sigvaldi minn- ingargrein um hann og nefndi hana: Að hverfa inn í sólskinið. — Nú er Sigvaldi sjálfur horfinn inn f sólskinið, þar sem hann mun ótrauður halda áfram hugrækt sinni og sókn til andlegs þroska. Þar munu honum birtast rök lífs- ins í skærara ljósi á hærra til- verustigi. Ég votta samúð mína eiginkonu Sigvalda, Bjarney Alexanders- dóttur, einkadótturinni, Ólöfu, Jóni, bróður hans, og öðrum vin- um og vandamönnum. ÖIl hefðum við óskað að hafa hann lengur hér á meðal vor. En þökkum það sem okkur var veitt. fvar Björnsson Einhvern veginn er það hálfveg- is úr takti að kveðja með orðum þann mann, sem hefur kennt manni að þögnin segir meira en orð, og að kyrrðin færir mann nær hinum raunverulega kjarna alls. Það voru þó orð, sem Sigvaldi Hjálmarsson hafði að atvinnu með einum eða öðrum hætti lengst af, og það var gegnum meðhöndl- un með orð sem kynni okkar hóf- ust. Sigvaldi var merkilegur maður og vitur. Mönnum gat þó auðveld- lega yfirsést það, því hann gat verið hversdagslegur í viðræðum og viðmóti ef aðstæður og viðmæl- endur gáfu tilefni til. Hann upp- hóf sig ekki á kostnað annarra, heldur gerði sig „lítinn" til að öðr- um þætti þeir vera stærri. Hann var ræðinn og framkoma hans einkenndist af látleysi og mann- legri hlýju. Minnisstæð verður manni rödd hans sem hafði mörg blæbrigði og hann gat beitt á áhrifamikinn hátt, og augun, sem jafnan lýstu af glettinni góðvild, innri styrk og jafnvægi. Sigvaldi var afkastamikill við ritstörf og skrifaði meðal annars bækur sem ég hygg að muni vekja enn meiri athygli þegar frá líður en hingað til. Hann verður ógleymanlegur þeim sem þekktu hann vel, ekki vegna þess sem hann skrifaði eða sagði, heldur vegna þess sem hann var. Þeir skynjuðu að hann var annað og meira en hann virtist vera. Á kveðjustund eru færðar ein- lægar þakkir fyrir vináttu og dýrmætar samverustundir og vit- undin sveipar vorbjartri kyrrð um minningu Sigvalda Hjálmarsson- ar. Jónína Michaelsdóttir Ský af gulli svífur yfir og sáldrar regni á gróður hugans svo víðáttumar skrýðast syngjandi blómum. Þetta ljóð, sem er birt í síðustu bók Sigvalda, ljóðabókinni Víðátt- um, segir heilmikið um skáldið og manninn, hann leitaði þess er sveif ofar hversdagsleikanum, víð- áttur mannlegrar vitundar voru þau svið, er hann beindi huga sín- um að, og með vakandi athygli meðtók hann gullregnið, sem hann nefnir svo, enda var gróðurinn í hugarheimi hans skrýddur fögrum syngjandi blómum. En Sigvalda var ekki að skapi að njóta þess einsamall er honum hlotnaðist, hann dreifði blómvöndum út til meðbræðra sinna í skrifum sínum og hinum mörgu fyrirlestrum er hann flutti og með persónulegum leiðbeiningum jós hann úr þekk- ingaríorða sínum. Þar var af miklu að taka því alveg var ótrú- legt hve mikillar þekkingar hann hafði aflað sér á duispeki og heim- speki yfirleitt, enda varði hann ómældum tíma af lífi sínu við það starf að kynna sér þau fræði. Sem kunnugt er ferðaðist hann til Ind- lands í þeim tilgangi og óhætt er að segja, að honum hafi orðið vel ágengt 1 þeim efnum. Á hugrækt og yoga kunni hann góð skil og leiðbeindi öðrum á þeim leiðum í mörg ár. Það var fyrir 41 ári norður á Blönduósi, sem við Sigvaldi hitt- umst í fyrsta sinni, er við urðum samferða til Reykjavíkur. Á næstu árum urðu kynni okkar ekki önnur en að ræða saman er við hittumst á götu. Mér fannst að vísu strax að við værum gamlir kunningjar, svo mikið er víst, að mér leið ávallt betur á eftir en undan þeim fundum. Árið 1962 hittumst við á fundi hjá Guðspeki- félagi íslands og með þeim fundi hófst vinátta, sem jókst ár frá ári. í því félagi og fyrir það starfaði Sigvaldi lengi og vel, hann var for- seti þess um nokkur ár, og einn aðalfyrirlesari þess um langan tíma og allt til hins síðasta, þó heilsubrestur hafi þar dregið úr störfum hans. Mig grunar að eftir- menn hans I nefndum störfum hafi sótt til hans ómæld ráð í langan tíma. Sigvaldi var maður athafna, það starf sem hann stundaði lengst af, blaðamennska, er krefjandi um árvekni og oft skjótar ákvarðanir, slíkt átti vel við hann. í því starfi nýttist honum vel sá sterki vilji, sem hann var gæddur og agað og gott minni. Sem fyrirlesari naut hann sín vel, röddin hljómmikil, framsögnin skýr, krafturinn mik- ill, en mildin var honum einnig eðlislæg og þekkingin á efninu yf- irgripsmikil. Þannig er einnig með það, sem hann skrifaði, yfir því er sérstaklega frískur blær og var sem hann sæi ávallt nýjar hliðar, nýjar víddir á hverju máli og hverjum fleti, sem aðrir komu ekki auga á. Kynni okkar voru mest tengd svokölluðum andlegum málum, það er fjölbreyttur flokk- ur mála og máske margar vilpur á þeim leiðum, en Sigvaldi komst framhjá þeim og seildist hærra en flestir aðrir. Hann var orðinn af- burðamaður á þeim sviðum, er hann helgaði siðustu ár sín, en það eru esóterísk fræði (eða andleg reynsluleið). Sólarlagið heillaði Sigvalda, en þó held ég, að sólarupprásin hafi verið nær vitund hans. Dögunin stóð honum svo nærri, þegar sólin uppljómar daginn og þerrar næt- urdöggina er sem sálin fái vængi og var það ef til vill á slíkri stund, sem hann orti Ijóðið Návist, sem byrjar þannig Það er svo óendanlega bjart á þessari víðáttu hún einsog strik hvert sem litið er. Sumt af störfum hans mun geymast í bókum þeim er hann skrifaði. Þó þær séu ekki rúmfrek- ar á bókahillum er í þeim mikil viska, sem mun endast lengi þeim, er eftir leitar og sennilega ekki til á íslensku betra veganesti ungum, er leita návistar við almættið. Sigvaldi var ekki maður, sem haslaði sér völl í keppni um þægi- legt sæti hér á Hótel Jörð og kærði sig lítt um að safna þeim veraldar- auði, en öðlaðist þeim mun meira af þeim auði, er mölur og ryð fær ei grandað. Fyrir framtíðina reyndi hann að starfa og finnst mér að þessar Ijóðlínur eftir Gunnar Dal eigi vel við hans störf: Verk þín falla i óþekkta jörð. Þú sáir i akur milljónanna sem bíða, í.akur hinna óbornu sem erfa sorgir og gleði hins liðna. Orð þín falla í óþekkta jörð eins og síðasti andardráttur ljóðs sem deyr inn í morguninn. + Systir okkar, SIGURLAUG HELGADÓTTIR, Túngötu 18, Kaflavík, lést í Landspítalanum 27. þ.m. Matthíaa Helgason, Haukur Helgason, Ólafur Hslgason, Jóhanna Hslgadóttir, Marfa Hslgadóttir. + Hjartkær móöir mín og fósturmóðlr. + Eiginkona mín, móöir okkar og tengdamóöir, HALLDÓRA LÁRUSDÓTTIR, SVAVA STEFÁNSDÓTTIR, Barónsstíg 20A, Neóra-Núpi, Raykjavik, Mlöflrói, lést aö kvöldi 26. april í Landspítalanum. lést aö heimili sinu sunnudaginn 28. þ.m. EmiKa E. Thorarensen, Þorbergur Jóhannesson, Hulda Smith. börn og tengdabörn. Hann hafði trú á því, að mann- kyninu mundi auðnast að lifa nýja dögun í lífsviðhorfi og nýta til góðs möguleika sína á þann veg, að mennirnir lifðu með náttúru jarðar. Allt dráp var honum fjarri, allt líf átti sinn rétt, honum þótti undir vænt um gróður jarðar og tré voru honum hjartfólgin. En fyrst og fremst beindist hugur hans að manninum sjálfum. Fyrir tíu árum skrifaði hann: „Maður- inn er merkilegasta rannsókn- arefnið og meðan ráðgátan maður er óleyst eru allar gátur óleystar. Þær voru margar ferðirnar, sem ég fór heim til Sigvalda og Baddí- ar. Ánægjulegt og fróðlegt var að hlýða á Sigvalda ræða um sín áhugamál. Eins er við sátum án orða, þá, og ekki síður þá, var túlk- un hans sterk. Það sannaðist á Sigvalda, að fyrir þeim sem á knýr mun upp- lokið verða. Það er hverri þjóð dýrmætt að eiga menn, sem hafa þor til þess að klífa hæðirnar í mannlegri hugsun. Sigvaldi var einn þeirra vökumanna, hvaðan þær fregnir munu berast frá, sem mestu varða heill mannkyns. Á þessum tímamótum færi ég Sigvalda Hjálmarssyni þakkir fyrir margar góðar stundir og góð ráð, fyrir návist hans sem enn varir. Baddí, við Nanna sendum þér, Elfu og fjölskyldu, samúð- arkveðjur og biðjum ykkur styrk þess almættis, er öllu ræður. Kristján Fr. Guðmundsson Þú sveipar um þig sólskininu eins og svartnættið notar myrkur til að dyljast. Hvaða birta er svo björt að hún fölni ekki í þeirri birtu sem er þú? hvaða myrkur svo dimmt að þú ljómir ekki í því? Þannig kvað Sigvaldi í síðustu ljóðabók sinni Víðáttur, og má í þessu stutta, einfalda og djúpa ljóði finna kjarnann i lífsviðleitni hans alla tíð. Að skynja á áþreif- anlegan hátt hið óendanlega Ijós, hinn skapandi mátt sem streymir í gegnum alheiminn, hinn óper- sónulega guð sem þó verður að ávarpa með persónufornafninu Þú. Sigvaldi var dulhyggjumaður, mystíker, í orðsins fyllstu merkingu. Hann notaði ekki orðið mystík um kukl, um það að sjá í gegnum holt og hæðir, vera skyggn eða sjá fyrir óorðna hluti. Fyrir honum var mystík skynjun og upplifun í stað trúar. Að finna umhverfis sig óumræðilega, lif- andi þögn. Að upplifa að maður er sjálfur hluti alls, og allt er hluti af manni sjálfum, sameiningu hins ytri og innri veruleika. Að finna hina miklu návist sem svo vel er tjáð í Ijóðinu hér að framan. Og lifa að lokum hina endanlegu um- sköpun sem engin orð ná yfir. Sigvaldi var jafnaðarmaður, lýðræðissósíalisti. Fyrir honum var sú stefna ekki stjórnmála- skoðun, heldur eðlileg lífsvenja. Þess vegna var hollusta hans bundin hugsjóninni en ekki stjórnmálaflokki. Hann vissi mætavel að stjórnmálaflokkar eru ekki úr föstu efni heldur breytast eftir forystunni hverju sinni. Hon- um sárnaði spilling og hégómleiki stjórnmálamanna en þóttist þó viss um að grundvöllur hugsjónar- innar myndi lifa þá af. Ekkert héld ég hafi verið honum fjær en löngun til eigna og prjáls, og ekki held ég að hann hafi sóst eftir vindi fáfengileikans. Sigvaldi var heill maður og vit- ur. Viska hans fólst í eðlislægri grandskoðun á innsta kjarna hvers viðfangsefnis, en ekki síður í viðurkenningu á eigin takmörkun- um. Hann sá betur en margir aðr- ir að hin vitræna hugsun nær ekki
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.