Morgunblaðið - 30.04.1985, Síða 55
MÖRQUNBLADID, ÞftlPJUIMGUR 80, ABRÍLit9S5
Mývatnssveit:
Skiptar skoðanir á fjölsóttum
fundi Náttúruverndarráðs
Vopim, Mývatiwsveit, 26. aprfl.
Náttúniverndarríð boðaði til al-
menns fundar í Skjólbrekku síðast-
liðið miðvikudagskvöld. Umraeðu-
efnið var náttúruvernd á vatnasvæði
Mývatns og Laxár. Hófst fundurinn
klukkan 21. Formaður Náttúru-
verndarráðs, Gyþór Einarsson, setti
fundinn. Óskaði hann þess að Helgi
Jónasson stjórnaði fundinum og rit-
arar yrðu Friðrik Dagur Arnarson og
Hulda Finnlaugsdóttir. Var það sam-
þykkt. Um 200 manns sóttu þennan
fund.
Framsöguerindi fluttu Eyþór
Einarsson, Jón Gunnar Ottósson,
Árni Einarsson og Þóroddur Þór-
oddsson. Ræður frummælenda
snerust um náttúruvernd á þessu
svæði og lífríki Laxár og Mývatns.
Mjög var ræðumönnum tíðrætt um
námaleyfi iðnaðarráðherra vegna
Kisiliðjunnar sem þeir fordæmdu.
Töldu þeir að ráðherra hefði sett
þetta mál í hnút með fljótfærnis-
legri ákvörðun, voru jafnvel að
gefa í skyn að ekki yrði af þeirra
hálfu tekið þátt í neinum rann-
sóknum hér fyrr en málið væri
leyst. Augljóst er að fundarboð-
endum bar skylda til að boða iðn-
aðarráðherra á þennan fund, svo
mjög sem þeir virtust eiga vantal-
að við hann um þetta leyfismál.
Hann hefði þá getað svarað þeirri
ádeilu sem á hann var borin á
fundinum. Trúlega hefðu fundar-
menn þá líka orðið nokkuð fróðari
um þessi mál.
í upphafi fundar var tilkynnt að
engar tillögur um ályktanir yrðu
bornar upp á þessum fundi. Að
framsöguerindum loknum gaf
fundarstjóri heimamönnum orðið.
Margir tóku til máls og beindu
spurningum til framsögumanna
sem þeir svöruðu eftir bestu getu.
Fyrsti ræðumaður var Hákon
Björnsson, framkvæmdastjóri Kís-
Frambæri-
legt glysrokk
Hljómplotur
Siguröur Sverrisson
Hanoi Kocks
Two steps from the move
CBS/Steinar
Hanoi Rocks er sveit, sem
undanfarin ár hefur verið ein
þeirra glysrokksveita, sem hvað
mesta athygli hafa hlotið í
bresku popppressunni. Hérlendis
kannast þó vafalítið fáir við
Hanoi Rocks.
Ég held mér skjátlist ekki þeg-
ar ég segi Hanoi Rocks vera upp-
runalega frá Finnlandi. Ekki er
þó neitt finnskt hægt að sjá á
nöfnum meðlimanna, sem öll eru
rituð á enska vísu.
Eftir að hafa lesið svo mikið
um Hanoi Rocks en aldrei heyrt
í sveitinni, varð það með nokkr-
um spenningi að ég renndi þess-
ari plötu undir nálina. Sannast
sagna varð ég mjög undrandi því
tónlistin er á allan hátt mun
heflaðri en ég hafði gert mér
vonir um. Lögin mörg hver mjög
góð og flutningurinn hnökralít-
ill. Hreint ekki sú hávaðafram-
leiðsla sem glysrokkið vill oft
verða.
Eitt laganna á plötunni er
meira að segja hið gamalkunna
Creedence Clearwater-lag, Up
around the bend. Útsetning
Hanoi Rocks er nokkuð svipuð
þeirri upprunalegu, en kraftur-
inn óneitanlega meiri.
Þegar öllu er á botninn hvolft,
er Hanoi Rocks hin frambæri-
legasta rokksveit og forsprakk-
inn Mike Monroe hreint ágætur
söngvari. Þetta er flokkur, sem
rokkarar ættu að kynna sér nán-
ar.
iliðjunnar. Aðrir er til máls tóku
voru: Dagbjartur Sigurðsson,
Gunnar Ingi Gunnarsson, Kristján
Þórhallsson, Sigurður Rúnar
Ragnarsson, Stefanía Þorgríms-
dóttir, Þorgrímur Starri, Illugi
Jónsson, Sigurbjörn Sörenson, Ág-
úst Hilmarsson og Sigrún Guð-
jónsdóttir. Margt fróðlegt kom
fram hjá ræðumönnum. Sumir
gagnrýndu Náttúruverndarráð
mjög.
Eftirfarandi spurningu var með-
al annars beint til Náttúruvernd-
arráðs: „Nú vilja bændur sem land
eiga að Ytri-flóa Mývatns láta
dæla kísilgúr á þeim svæðum sem
eftir eru í flóanum til að koma í
veg fyrir að þessi svæði þorni sem
margir óttast. Ennfremur hefur
það sýnt sig á undanförnum árum
að lífsskilyrði fyrir silung og jafn-
vel fugl virðast vera hin ákjósan-
legustu þar sem þegar er búið að
dæla. Þá er silungur einnig talinn
feitari og betri á þessu svæði en
annars staðar í Mývatni. Það
bendir meðal annars til að dýpi
vatnsins sé þarna heppilegt og áta
nægileg. Nú vilja bændur ef til vill
hefja ræktun á silungi í Ytri-flóa
og er dæling úr flóanum forsenda
þess. Hér myndi því vera um að
ræða hefðbundna búgrein. Nú vilj-
um við spyrja Náttúruverndarráð:
Hefur einhver lagalegt vald til að
banna bændum að láta dæla kísif-
gúr úr Ytri-flóa Mývatns?"
Þessari spurningu var svarað á
&
þá leið að bændur gætu látið dæla
innan netlagna en utan þeirra yrði
að fá leyfi frá iðnaðarráðuneytinu.
Engar sannanir komu fram á þess-
um fundi um að dæling á kísilgúr
af botni Ytri-flóa hafi haft skaðleg
áhrif á lífríki vatnsins til þessa.
Hins vegar var þess getið að þar
sem vatnið er orðið grynnst á því
svæði, botnfrýs á vetrum og hefur
þar af leiðandi hættuleg áhrif á
lífríki þar.
Fundurinn fór vel fram og var
ekki lokið fyrr en nokkru eftir mið-
nætti en þá sleit Eyþór Einarsson
honum. Óskaði hann fundar-
mönnum velfarnaðar og þakkaði
góða fundarsetu. Þess má í lokin
geta að nýlega er búið að stofna
hér í sveitinni samtök um verndun
Mývatns. Kosin hefur verið 5
manna framkvæmdastjórn þess-
ara samtaka. Stofnun samtakanna
var tilkynnt á fundinum og lesin
yfirlýsing um tilgang og markmið.
Kristjin
COCTAIL-KEPPNI
ÍSLANDS 1985
verður haldin
á hótel Sögu
sunnudaginn 5. maí
kl. 18
LONG
DRirSKS
KEPPNI
Vörukynning
*
í Atthagasal
Gestum verður gefinn
kostur á að smakka
á mörgum tegundum
. t u - af vinum
Bestu barpjonar
landsins keppa um
ÍSLANDSMEISTARATITILINN 1985
Gestir kvöldsins dæma drykkina sjálfir
SKEMMTIATRIÐI: M
Glæsileeur
Hljómsveit ^ ^ ^
Magnúsar Kjartanssonar bri" réttaður
leikur fyrir dansi til kl. 03 x •n
matseðill
Kynnir kvöldsins verður
hinn geysivinsæli útvarpsmaður
PÁLL ÞORSTEINSSON
Allt þetta færðu fyrir aðeins kr. 1100
Aðgöngumiðasala og borðapantanir eftir kl. 3
föstudag, laugardag og sunnudag í Súlnasal