Morgunblaðið - 30.04.1985, Page 57
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 30. APRtL 1985
57
WTann
Security since 1795
Enskir
Sænskir
peningaskápar
Eldtraustir — þjótheldir
heimsþekkt framleiðsla.
E. TH. MATHIESEN H.F.
DALSHRAUNI 5 — HAFNARFIRDI — SIMI 51888
Farrah ver hendur sínar...
Fjöldi blaða fyrir vestan haf
hefur gert sér málaferli nokk-
ur að máltíð. Leikkonan og kyn-
táknið Farrah Fawcett, núverandi
sambýliskona og barnsmóðir Ry-
ans O’Neil, þarf að verja hendur
sínar áburði sem leikkona að nafni
Sonja Dunson hefur borið á hana.
Ungfrú Dunson hefur krafist 165
milljóna dollara i skaðabætur.
Fyrir hvað mætti spyrja og
svarið er, að ungfrú Dunson segir
Förru hafa komið því þannig i
kring að hún fengi engin hlutverk
eftir að Farrah grunaði hana um
að eiga vingott við Lee Majors
sem þá var eiginmaður Förru.
Sonja segir að Lee og hún hafi
vissulega verið vinir, en að um
ástarsamband hafi verið að ræða
sé af og frá og helber uppspuni og
Farrah hafi vitað það mæta vel.
Hún hafi samt beitt áhrifum sín-
um til að eyðileggja feril sinn
vegna umtalsins sem kynni Sonju
og Lee ollu. Sjálf segir Sonja að
hún hafi verið efnileg og nokkuð
eftirsótt leikkona um þetta leyti,
en þessir atburðir eiga að hafa
gerst snemma á áttunda áratugn-
um. Sonja segist ítrekað hafa
reynt að brjótast fram í sviðsljós-
ið á ný á seinni árum, en ávallt
rekið sig á veggi.
Sanngjarnt að gefa Förru orðið
augnablik: „Þetta fór ógurlega í
taugarnar á mér á sínum tíma og
það voru litlir kærleikar á milli
mín og ungfrú Dunson. Gn að ég
hafi beitt áhrifum mínum til að
eyðileggja feril hennar stenst
ekki. Það er hugarburður og ekk-
ert annað.“
leist bara vel á stúlkurnar
Frú Duffey ósátt við lífið?
Eftir því sem fyrrum þjónustustúlka Patricks Duffy og eiginkonu
hans segir, er lífið ekki dans á rósum á þeim bæ. Stúlkan, Bonita
Ann Miller, vann hjá Duffy-hjónunum í 10 mánuði og ber ekki Carlyn
Duffy vel söguna. „Hún meðhöndlar hann eins og brúðu og hann veit
aldrei hvar hann hefur hana,“ segir Bonita.
Húshjálpin segir ástandið hafa verið allgott uns Patrick tók þá
ákvörðun að hvíla sig á Dallas-þáttunum og reyna fyrir sér annars
staðar. Carlyn hefur að sögn Bonitu tekið því afar illa, orðið uppstökk og
einræn. Hún hafði áhyggjur af útliti sínu, en hún er 10 árum eldri en
Patrick, og einnig af því hvernig þau gætu búið í 30 herbergja einbýlis-
höll sinni ef Dallas-tekjur hættu að streyma inn. „Hún tók upp á alls
kyns vitleysu, eyddi peningum í ótrúlegu óhófi, þannig trylltist hún út í
Patrick einn daginn út af engu, þaut síðan niður í bæ og höndlaði
snyrtivörur fyrir 700 dollara. Svo æðir hún í skápa sína, rífur og tætir
föt sín um allt og skiptir fimm til sex sinnum um föt á dag, öskrar að sér
líki ekki við fötin sín og æðir niður í bæ og kaupir og kaupir. Hún ber
enga virðingu fyrir honum og kemur fram við hann eins og hvert annað
snifsi. Það er synd, því Patrick er svo hægur og ágætur maður, sannkall-
að krútt,“ segir Bonita.
aé Cosmetics Inc.
ean
Pure Aloe Herbal
Organic Skin Care
(Lífrænt húðkrem)
Oska eftir aö komast í samband við húð-
snyrtisérfræðing á íslandi.
Hafið samband við: Dee Pye á Hótel Esju,
sími 82200.
\&NN OG
VEGLEGUR
Ergodata stóllinn frá Drabert er stíl-
hreinn og sterkur. Hann verndar heilsu
þína. Hann er veglegur og óskaplega
vœnn vinnufélagi.
Þú situr rétt í Ergo-data stól. Hann
passar höfuð, herðar, hné og tœr og
allt þar á milli.
I SKRIFSTOfU HUSGOGN
HAllARMÚLA 2, SÍMI 83509